Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1984, Qupperneq 4
4
DV. ÞRIÐJUDAGUR17. APRIL1984.
Frumvarp
um jámblendi
-tilstaðfestingar
á samningnum
viðElkemog
Sumitomo
Ferming og skirn. A sunnudag þegar séra Arni Pá/sson iKópavogskirkju var að ferma 22 börn skirðihann i
/eiðinni systur eins fermingarbarnsins. ,,Ég geriþetta stundum þegar svona stendur á," sagði séra Árni. Á
myndinni heldur fermingarbarnið, Theódóra Bragadóttir, systur sinni undir skirn. Hlaut hún nafnið Eva
Rut. Fyrir aftan þær stendur faðir þeirra, Bragi Sveinsson. -KÞ/D V-mynd S.
Iðnaðarráðherra hefur lagt fram á
Alþingi stjórnarfrumvarp til aö afla
ríkisstjóminni lagaheimildar til að
ganga frá samningum um fjárhags-
lega endurskipulagningu íslenska
járnblendifélagsins samkvæmt
samningi við Elkem a/s í Noregi og
Sumitomoí Japan.
Samningur þessi felur í sér að
Sumitomo kaupir 15% hlutafjár í Járn-
blendifélaginu af Elkem og mun
Elkem þá eiga 30% hlutafjár en
íslenskra ríkið 55% eins og verið hefur.
Jafnframt leggja núverandi hluthafar
fram nýtt hlutafé til félagsins er
nemur 15,9 milljónum Bandaríkjadala.
Er fyrirhugaö að þetta fé verði notað
að mestu eða öllu leyti til að greiða
niður núverandi skuldir Járnblendi-
félagsins. Þessi endurskipulagning
mun hafa í för með sér lækkun á heild-
arskuldum íslenska ríkisins sem svar-
ar jafnvirði 16 milljóna Bandaríkja-
dala. -ÖEF.
Jónas Guð-
mundsson
sýniríEden
umpáskana
A morgun klukkan 17 (miövikudag)
opnar Jónas Guðmundsson, rithöfund-
ur og listmálari, málverkasýningu í
Eden í Hveragerði.
Ber sýningin yfirskriftina Páskar
1984 en Jónas Guðmundsson hefur um
nokkurra ára skeið sýnt um páska í
Eden.
Jónas Guömundsson sagöi aö mörg
ár væru síðan byrjað var að halda
myndlistarsýningar í Eden. Fyrst
við fremur frumstæö skilyrði í kaffi-
stofu en fyrir nokkrum árum var hús-
næðinu breytt og þaö lagfært meö það
fyrir augum að það hentar nú vel að
halda þama málverkasýningar. Hefur
f jöldi listamanna sýnt í Eden og hef-
ur aðsókn verið góð enda f jölmenni oft
í gróðrarstööinni, bæði um helgar og
eins á góðviðrisdögum.
Jónas Guðmundsson og dóttir hans við
tvö verkanna á sýningunni.
Á sýningu Jónasar verða 30—40
myndir, olíumálverk og vatnslita-
myndir. Tengjast myndir hans einkum
sjósókn, þorpinu og borginni. Þá veröa
nokkrar landslagsmyndir og hesta-
myndir á sýningunni.
Jónas sagðist mála umhverfi sitt,
eða næsta nágrenni, og telur sig ver-
tíöarmann þótt eigi stundi hann lengur
sjó.
Sýningin veröur, sem áður sagði,
opnuð á miövikudag fyrir páska og
henni lýkur sunnudaginn 29. apríl.
Lestrargleraugun sem Hagkaup selur eru vinsæl
Eru þrefalt ódýrari en
í gleraugnabúðum
Sala Hagkaups á lestrargleraugum,
sem sagt var frá í DV fyrir helgina,
mun örugglega draga dilk á eftir sér
miöaö viö fyrstu viðbrögð optikera viö
þessum fréttum og bíða þeir nú aöeins
eftir því að nýsamþykkt lög á Alþingi
verði birt í Stjórnartíðindum svo þeir
geti stöðvað söluna á gleraugunum í
Hagkaupi. I þessum nýju lögum eru
hertar mjög reglur þær sem ná yfir
sölu og vinnslu á gleraugum og þá
sem mega annast slikt.
Lestrargleraugu þau sem hér um
ræðir hafa náð miklum vinsældum í
Bandaríkjunum og Svíþjóð þar sem
þau eru seld í búöum á borð við Hag-
kaup. „Viðbrögð neytenda í Svíþjóð
voru mjög góð. Við áætluöum að selja
um 10 þúsund fyrsta árið en við
seldum 50 þúsund á fyrsta hálfa
árinu,” sagði Sam Bjuwin, fram-
kvæmdastjóri GRETT í Svíþjóð, í
samtali við DV en hann hefur verið
Hagkaupsmönnum innan handar í
þessu máli og aðstoðaö þá við upp-
setningu á lestrargleraugnadeildinni í
Hagkaupi.
„I Svíþjóö eru um 1000 optikera-
búðir og þar erum við að brjóta upp
einkaleyfi þeirra á sölu þessara gler-
augna en þeir hafa á móti reynt allt
annaö en heiðarlega samkeppni til að
stöðva okkur,” sagði hann, og bætti því
við að verö á þeirra gleraugum væri
um þrefalt lægra en á gleraugum þeim
sem optikerar selja í Svíþjóð og þessi
munur er einnig hérlendis, í Hagkaupi
kosta gleraugu 595 kr. á móti 1800—
3000 kr. hjá optikerum.
I Bandaríkjunum seljast að
meðaltali 2,5 milljónir af þessum gler-
augum á ári og þegar hafa selst yfir 10
milljónir þeirra þar.
Hann lagði áherslu á aö þessi gler-
augu væru eingöngu ætluö þeim sem
daprast hafa á sjón vegna aldurs sem
er eðlileg þróun en neytandinn sér
sjálfur um aö prófa sín gleraugu og
þau eru honum hættulaus, að mati
Bjuwin, þótt neytandinn velji sér gler-
augu af röngum styrkleika.
Þorsteinn Júlíusson, lögfræðingur
Optikerafélagsins, sagði í samtali við
DV að Hagkaupi yrði gert að stöðva
þessa sölu um leið og hin nýju lög á
Alþingi öðlast gildi.
„Þessi lög eru ekki síður sett til að
vemda almenning en þessa starfs-
stétt,” sagði hann og benti á að
aðgerðir þeirra mundu verða í gegnum
hið opinbera ákæruvald.
„Ætli þeir finni svo næst upp á því
aö selja hjá sér gervitennur, komið og
mátið,” sagði Þorsteinn.
-FRI.
í dag mælir Dagfari
I dag mælir Dagfari
í dag mælir Dagfari
Fellir kakómjólkin ríkisstjómina?
SuFmSTSSSrSS.
IIVJ.M IJ« I«I t.l( !U1 l.liJl
Það fór eins og Dagfari spáði.
Framsóknarflokkurinn tók upp
hanskann fyrir kakómjólkina, jóg-
ann og mangósopann með þeim af-
leiðingum aö nú hriktir í stjórnar-
samstarfinu. Deilan um fjárlaga-
gatið, stjómarskrána og kvóta-
skiptinguna mun vera hátíð miðað
við þann hatramma slag, sem nú
þegar er hafinn um fyrmefnda
þjóöardrykki.
Lög kveða skýrt á um þaö, að
vörugjald og söluskatt eigi að greiða
af blönduðum m jólkurdrykkjum eins
og annarri drykkjarvöru. Af ein-
hverjum undarlegum ástæðum, sem
enginn þykist hafa hugmynd um,
hefur það þó viðgengist um árabil, að
hlífa Mjólkursamsölunni við inn-
heimtu á þessum opinberu gjöldum.
Aö minnsta kosti þrír fjármála-
ráðherrar hafa haldið hlífiskyldi yfir
þessu lagabroti, sem hefur kostað
ríkissjóð tugmilljóna króna, eftir að
kakómjólkin varð að skyldudrykkju
skólabarna í fríminútum.
Er ekki nema von, að göt finnist á
fjárlögunum, þegar f jármálaráðher-
ar ganga á undan með það fordæmi
aö innheimta ekki lögboðin gjöld.
Þessu vill núverandi fjármála-
ráðherra kippa í lag, enda löghlýðinn
borgari, (samanber hundahaldið) og
ætlar þá allt vitlaust að verða.
Framsóknarkerlingar lýsa því
samstundis yfir að hollustuhættir
þjóðarinnar séu i hættu, ef söiu-
skattur verði innheimtur af kakó-
mjólk og mangósopinn er skyndilcga
orðinn að meiriháttar hollustufæðu,
sem stendur og fellur með þvi, að
hann sé drukkinn án söluskatts og
vörugjalds.
Landbúnaðarráðherra fær for-
sætisráðherra tii liðs við sig og hótar
öllu illu í rikisstjórninni ef f jármála-
ráðherra lætur ekki lögleysuna
viðgangast áfram. Mun það eins-
dæmi í íslenskri stjórnsýslu, að flutt
sé um það tillaga í sjálfri ríkis-
stjórninni, að lög séu brotin. Greini-
lega liggur mikið við, enda ekki á
hverjum degi, sem hróflað er við
hinni ginnheQögu landbúnaðarpólitík,
sem dafnað hefur í skjóli lögbrota,
fyrirgreiðslu og framsóknarmis-
notkunar svo lengi sem elstu menn
muna.
Framsóknarflokkurinn hefur nú
sameinast i skjótum viðbrögðum og
hefur ákveðið að slá skjaldborg um
kakómjólkina. Undir forystu þing-
flokksformannsins frá HöUustööum
sem hefur eins og fleiri bændur fjár-
fest i mjaltavélum í góðri trú á að
kakómjólk og mangósopi njóti for-
réttinda á neytendamarkaðnum,
hefur verið lagt fram sérstakt frum-,
varp á hinu háa alþingi, þar sem lagt
er tU að þessir eöalbornu svala-
drykkir séu lögiega undanþegnir
þeim Ula söluskatti, sem kakó-
mjólkin hefur verið ólöglega undan-
þegin fram að þessu.
Þessi framsóknartillaga er borin
fram í sömu andrá og rikisstjórnin
og forsætisráðherra ákveða að fækka
söluskattsundanþágum og herða inn-
heimtu skattsins. Þeir passa upp á
sína, framsóknarmenn, enda
Mjólkursamsalan skUgetið afkvæmi
þeirrar offramlciðslustefnu, sem
kemur óseljanlegum mjólkuraf-
urðum í lóg með niðurgreiðslum og
lögleysum.
Má nú búast við því, að háttvirtir
alþingismcnn heyi langa og stranga
umræðu um gUdi kakómjólkur og
mangósopa og skiptist í striðandi
fylkingar mcð og móti. Mun sú
umræða eflaust auka hróður löggjaf-
arsamkundunnar og endast fram á
vorið. Verður fróðlegt að fylgjast
með því, hvort stjórnarsamstarfið
muni standast átökin um kakómjólk-
ina, mangósopann og jógann, ekki
síst vegna þess, að óvíst er með öllu,
að nokkur þingmaður hafi sopið þá
fjöruna, hvorki með cða án sölu-
skatts. Dagfari.