Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1984, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1984, Side 40
FRETTA SKOT/Ð 1.0 Fywir hvwrt fréttaxkot. st 3-QOO króntar fyrir i um fritt - Ka er notað i DV. fréttmskariö íhverri riku. 68-78-58 SIMINN SEM ALDREI SEFUfí Varmi Bilasprautun hf. Auóbrekku 14 Kópavogi Sími 44250 i r ÞRIÐJUDAGUR 17. APRIL1964. afboðuð Verkföll mjólkurfræðinga og skip- stjóra á farskipum sem hófust aðfara- nótt mánudags voru afboðuð í gær eftir að samningar höfðu verið undirritaðir. Sáttafundir beggja aðila höfðu þá staðið i rúman sólarhring. Vínnsla mjólkur hófst því aftur í nótt og jafn- framt hefja þau skip, sem stöövast höfðu, aftur siglingar í dag. Mjólkurfræöingar náðu framí sínum samningi ýmsum ákvæöum er snerta vinnuréttindi þeirra en að öðru leyti var samningurinn samhijóða sam- komulagi ASI og VSI. Skipstjórar sömdu hins vegar um 7% kauphækkun frá 1. april en áfangahækkanir veröa þær sömu og í samkomulagi ASI og VSI. -ÓEF. „Nú þurfa mennað Jf LUKKUDAGAR 17. april 37746 BARNASUNDLAUGFRÁ I.H. HF. AÐ VERÐMÆTI KR. 500.- Vinningshafar hringi i síma 2UQ68 LOKI Lýsi og veHingur, páska- maturinn / ár. Brennuvargsins enn leitað „Við athuguðum brunavarnir i Glæsibæ fyrir ári. Kom þar margt athugavert í ljós. Var eigendum verslananna gert viövart þar um en þvi mun ekkert hafa verið sinnt,” sagði Guðmundur Gunnarsson, deildarverkfræðingur Brunamála- stofnunar, i samtali við DV í morg- un. Einsog sagt var frá hér í blaðinu í gær varð milljónatjón þegar kveikt var í Glæsibæ aöfaranótt mánudags. „Þaö kom í ljós að ef eldur kæmi upp, til dæmis í kjallara, væri ekki mögulegt aö varna þvi að hann bær- ist um allt á svipstundu. Það sem bjargaöi i þessu tilfelli var hversu fljótt þaö uppgötvaðist að eldur væri laus í húsinu. Þá kom einnig í ljós að þegar húsið var byggt á sínum tíma var það skii- yrði fyrir byggingarleyfinu aðsjálf- virkt slökkvikerfi væri þar. Slíkt var á teikningunni af húsinu. En slökkvi- kerfið hefur aldrei verið sett upp. Slíkt kerfi hefði i þessu tilfelli ráðið niðurlögum eldsins á svipstundu,” sagði Guðmundur Gunnarsson. Hjá RLR fengust þær upplýsingar í morgun að mennimir tveir, sem sagt var f rá hér í blaðinu í gær og grunað- ir voru um íkveikjuna, heföu verið yfirheyrðir í allan gærdag en sleppt um kvöldmatarleytið. Þá höfðu log- reglunni borist upplýsingar um fleiri mannaferðir við húsiö, en milli klukkan 24 og 24.30, aðfaranótt mánudags, sást maður þar á vappi, einmitt fyrir utan þann stað sem eldurinn kom upp. Ekki liggja fyrir nógu haldgóðar lýsingar á honum. Hans er nú Ieitað og biður lögreglan alla þá sem veitt geta einhverjar upplýsingar um hann að láta sig vita. -KÞ - segir forsætisráðherra um hugsanlegt veggjald á ökutækin Fjárlagagatið var ekki á dagskrá ríkisstjórnarfundar í morgun. Um það er nú einungis fjallað á fundum fjár- málaráðherra og forsætisráðherra og siðan nánustu samstarfsmanna þeirra hvorsfyrirsig. Af samtali við Steingrím Hermanns- son forsætisráðherra í morgun má marka að í rauninni standi þær megin- línur aö sparnaður og tilfærslur dugi upp í hálft fjárlagagatið, síðan komi til ný gjöld eða nýir skattar upp á ailt að 400—500 milljónir en gatinu verði síðan lokað með framlengingu Iána eða nýjumlánum. „Það gæti verið að ég hafi verið sannspár þegar ég talaði um 600 millj- ónir sem hugsanleg lán i þessu sam- bandi,” sagði forsætisráðherra í morgun. Hvað um söluskattinn og veg- gjaldið? „Hvort tveggja er enn imynd- inni. Við framsóknarmenn höfum verið þeirrar skoðunar að skipta ætti á lækkun tolla af ökutækjum og svo greiðslum vegna notkunar þeirra. Það er tvívegis búið að lækka tollana og menn hafa því bara boröað sælgætið. Nú þurf a menn að taka lýsið.” -HERB. Laust fyrir k/. 21 i gærkveldi átti sér stað nokkuð harður árekstur á Breiðholtsbraut við Stöng. Tveir bilar rákust á og var farþegi annarrar bif- reiðarinnar og einn ökumaður fluttir á Slysadeildina. ökumaðurinn var ómeiddur og fékk að fara heim eftir rannsókn en farþeginn hlaut höfuð- högg sem ekki er talið alvar/egt. Liðan hans er eftir atvikum. Á svipuðum tima og svipuðum slóðum var ekið á gangandi vegfaranda. Ekki munhafa verið um alvarlegt slys að ræða. -APH/D V-mynd S. ertendir uppboðshaldarar hafa áhuga Ein elsta bifreið á landinu, Dixie- Flyers, árgerð 1919, er nú til sölu norður á Akureyri. Bifreiðin kom til landsins árið 1923, er i ökufæru ástandi enda aðeins verið í eigu þriggja einstaklinga. Jón G. Sólnes, sem hefur milligöngu um söluna fyrir eigandann, Oskar Osberg, sagði í samtali viö DV að hann hefði þreifað fyrir sér erlendis varðandi verð á svona gripum og þá hefði hann oröið var viö verulegan áhuga hjá Christiesuppboðsfyrirtækinu i London á þvi að fá bilinn út og selja hæstbjóðanda. „Það er bara svo dýrt að flytja bíl- inn út og svo rennur maður alveg blint í sjóinn með verðið á slikum uppboðum,” sagði Jón. „Svo væri líka skemmtilegra að halda þessum dýrgrip innanlands. ’ ’ Margir kannast við Dixieí'Iyers bílinn úr kvikmyndinni Land og synir og einnig var hann notaður til að aka Kristjáni Eldjárn, fyrrum forseta, er hann heimsótti Akureyri Dbtm-Ffyers, árgerð 1919, á futtri ferð á Akureyri. Myndin er tekin er Krist/án Eldjám, fyrrum forseti, heimsótti Akureyri 1980 í tiiefni af 100 ára afmæli MA. árið 1980 i tilefni af 100 ára afmæli Menntaskólans. Erfitt er að segja til um gangverð á G5 ára gömlum Dixie-Flyers en bill- inn mun vera falur fyrir 700 þúsund krónur. -EIR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.