Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1984, Qupperneq 20
20
DV. FIMMTUDAGUR17. MAI1984.
'
Gústaf Baldvinsson. Gunnar Gíslason.
Breyí ingar hjá
1. deildarfélögum
VALUR
• Þjálíari: IanRoss.
• Nýir leikmenn: Jóhann Þorvarðarson,
Víkingi, Ian Ross, Hereford, Stefán Amarson,
KR og Om Guömundsson, Lillehammer.
• Farair: Ingi Björn Albertsson, FH, Njáll
Eiðsson, KA, Brynjar Guðmundsson, V-Þýska-
land. Dýri Guðmundsson, FH og Guðmundur
Hreiðarsson, FH.
AKRANES
• Þjálfari: Hörður Helgason.
• Nýir leikmenn: Karl Þórðarson, Laval og
Birgir Skúlason, Völsungi.
KR
• Þjálfari: Hólmbert Friðjónsson.
• Nýir leikmenn: Gunnar Gíslason, KA, Har-
aldur Haraldsson, KA og Omar Ingvarsson,
Njarðvík.
• Farnir: Stefán Arnarson, Val og Magnús
Jónasson, Víkingi.
ÞRÓTTUR
• Þjálfari: Asgeir Elíasson.
• Nýir Ieikmenn: Jóhann Jakobsson, KA, Þor-
steinn Sigurðsson, Val, Per Ström, TB Tvöteyri,
Færeyjum, Wilhelm Fredriksen, KR og Bjöm
Bjömsson, Akranesi.
KA
• Þjálfari: Gúataf Baldvinsson.
• Nýir leikmenn: Gústaf Baldvmsson,
Einherja, Hafþór Kolbeinsson, Siglufirði, Birkir
Kristinsson, Einherja, Njáll Eiðsson, Vai,
Bjami Jóhannsson, Isafirði og Mark Duffield,
Siglufirði
• Farnir: Haraldur Haraldsson, KR, Jóhann
Jakobsson, Þrótti, Ragnar Rögnvaldsson, Isa-
firði, Guðjón Guðjónsson, Keflavik og Gunnar
Gisiason, KR.
ÞÓR
• Þjálfari: Þorsteinn Olafsson.
• Nýir leikmenn: Páli Guðlaugsson, Götu —
Færeyjum, Oli Þór Magnússon, Keflavik og
Kristján Kristjánsson, Völsungi.
• Famir: Helgi Bentsson, Keflavik.
KEFLAVÍK
• Þjálfari: Haukur Hafstemsson.
• Nýir leíkmenn: Helgi Bentsson, Þór, Sigurjón
Sveinsson, Reyni, Valþór Sigþórsson, Vest-
mannaeyjum, Kristinn Jóhannsson, Grindavík,
Jón Sveinsson, Grindavik, Guðjón Guðjónsson,
KA og Helgi Sigurbjömsson, Viði.
• Farnir: Skúli Rósantsson, Njarðvík, Oli Þór
Magnússon, Þór, Freyr Sverrisson, Njarðvík og
Páll Þorkelsson, Njarðvik.
VÍKINGUR
• Þjálfari: BjömAmason.
• Nýlr leikmenn: Amundi Sigmundsson, Isa-
firði, Kristinn Jónsson, Fylki, Hans Leó, Götu —
Færeyjum, Omólfur Oddsson, Isafirði og
Magnús Jónsson, KR.
• Farnir: Stefán Halldórsson, Selfossi, Oskar
Tómasson, Leikni, Fáskrúðsfirði og Jóhann
Þorvarðarson, Vai.
BREIÐABLIK
• Þjálfari: Magnús Jónatansson.
• Nýir leikmenn: Friðrik Friðriksson, Fram,
Loftur Olafsson, Fylki, Jón Oddsson, Isafirði,
Guðmundur Baldursson, Fylki og Jón Einars-
son, Augnabliki.
• Farnir: Hákon Gunnarsson, Augnabliki,
Sigurður Grétarsson, Tennis Borussia Berlín,
Valdimar Valdimarsson, Augnabliki og Ing-
valdur Gústafsson, Isafirði.
FRAM
• Þjálfari: Jóhannes Atlason.
• Nýir ieikmenn: Kristinn Atiason, Kopelvik,
Guðmundur Steinsson, Oster, Omar Jóhanns-
son, Vestmannaeyjum, Lárus Grétarsson, Götu
— Færeyjum, Om Valdimarsson, Fylki og Rafa
Rafiisson, LAX, Sviþ jóð.
• Farnir: Marteinn Geirsson, Viði, Jón Péturs-
son, Haukum, Friðrik Friðriksson, Breiðabliki
og Halldór Arason, sem hefur tekið sér frí frá
knattspymu.
-SOS.
íþróttir
íþróttir
Iþróttir
Magnús Bergs
áfram á Spáni!
Tongeren og Santander að semja um kaupverðið
„Það eru samningaviðræður í gangi
núna milli Santander og Tongeren og
ég reikna með að samningar takist
mjög fljótlega,” sagði Magnús Bergs í
samtali við DV í gærkvöldi en hann
hefur mikinn bug á að leika áfram á
Spáni.
Lið Magnúsar á Spáni, Santander,
vann sér sem kunnugt er rétt til að
leika í 1. deildinni spönsku næsta
keppnistímabii. „Eg vii miklu frekar
vera áfram hér en leika í Belgíu. Mér
hefur liðið mjög vel hér og ég held aö
óhætt sé að seja að mér hafi gengið
vel,” sagði Magnús.
Tongeren lánaöi Magnús í vetur til
spánska liðsins og nú eru þau að semja
um kaupferð sin i milli. Sagði Magnús
að þaö væri einungis dagaspursmál
hvenær frá málum yrði gengið. -SK.
Hver skorar
fyrsta markið?
Víkingur og KR leika á Laugardalsvellinum
íkvöid
Víkingar og KR-ingar fá guiiið
tækifæri til að skora fyrsta mark 1.
deiidarkeppninnar í kvöld þegar
þeir mætast á Laugardalsveliinum
kl. 20. Það má búast við f jörugum
ieik og hefur maður það á til-
finningunni að mörg mörk verði
skoruð í leiknum.
Oskar Ingimundarson úr KR
skoraöi fyrsta mark 1. deildar 1983,
Jóhann Georgsson, Vestmannaeyj-
um, 1982, Guömundur Torfason úr
Fram 1981 og Pétur Ormslev úr
Fram 1980.
-sos
1
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
J
EVRÓPUKEPPNI BIKARHAFA
Sigur fyrir
Juventus og
ítölsku vamar-
knattspymuna
Juventus tryggði sér sigur í Evrópukeppni
bikarhafa í Basel með því að vinna Porto 2-1
Juventus Iék sina alkunnu varnar-
leikaðferð á St. Jakons leikvellmum í
Basel í gærkvöldi fyrir framan 60 þús.
áhorfendur. Það dugði félaginu til
sigurs 2—1 gegn Porto og geta leik-
menn Juventus þakkað óheppni og
klaufaskap markvarðar portúgalska
liðsins sigurinn. Ze Beto, markvörður
Porto, átti ekki sinn besta dag — fékk
tvö ódýr mörk á sig. Markið sem Porto
skoraði var einnig af ódýrarí gerðinni.
Sousa skoraði markið af 20 m færi og
segir mér svo hugur um að gamla
kempan Dino Zoff hefði varíð skotið þó
hann hefði veríð óæfður.
Þótt leikurinn væri Ieiðinlegur á að
horfa, sáust nokkrir skemmtilegir
kaflar í honum. Juventus skoraði
fyrsta markið — Vignola á 12. mín. Þaö
var eins og við mannninn mælt — um
Ieið og Juventus var búið að skora
drógu leikmenn sig í vörn og ætluðu
greinilega að halda fengnum hlut í þær
78 mín. sem eftir voru. Porto náði að
jafna 1—1 á 28. mín. og var það Sousa
sem skoraði markið. Það var svo
Pólverjiim Boniek sem tryggði
Juventus sigur 2—1 á 40. mín. með
vafasömu marki. Hann braut af sér
áður en hann skoraði.
Leikurinn var sigur fyrir Juventus
og ítölsku vamarknattspyrnuna. En
ekki sigur fyrir sóknarknattspymu.
Það er furðulegt að félag eins og
íþróttir
■kSSBB
Juventus, með stórstjörnur hlið við
hhð, skuli leyfa sér að nota bestu
sóknarleikmenn heims sem varnar-
leikmenn.
Það var annað sem setti svip sinn á
leikinn. Það var dómarinn sem var frá
A-Þýskalandi. Hann lokaði augunum
fyrir tveimur augljósum vítaspymum.
Fyrst þegar Platini var felldur inni í
vítateig Porto og síðan þegar ítalski
varnarleikmaðurinn Scirea leyföi sér
þann munað að handleika knöttinn inni
í vítateig.
-sos.
Ip'
1 - ! -
Sigurður Jónsson var i gær fluttur á Borgarspitalann þar sem hann átti ai
Þessi mynd var tekin af Sigurði seint i gærkvöldi.
Hverjir ha
DV-styttu
DV hef ur ákveðið að koma á keppni
Mesta sóknarf élag íslands
Hvaða félag verður útnefnt mesta
sóknarfélag 1. deildarkeppninnar? það
félag sem ber sigur úr býtum í sér-
stakri stigagjöf DV hlýtur að launum
fagra DV-styttu og sæmdarheitið
Mesta sóknarfélag Islands 1984.
Leikur DV felst í því að skora sem
flest mörk í leik og fá félögin sérstök
stig í sambandi við það. Félögin verða
að skora þrjú mörk í leik til að fá stig í
keppninni um DV-styttuna.
Eysteinn
sáfyrsti
Eysteinn Guðmundsson fær þann heiiur að
dæma fyrsta leikinn í 1. deild Islandsmótsins í
knattspyrau í kvöld kl. 20.00 jiegar Víkingur
og KR mætast á Laugardalsvelli. Fimmtán
dómarar dæma í 1. deild í sumar og hafa 14
þeirra lokið tilskyldum prófum og sá 15. gerir
það á næstu dögum. -SK.
Það félag sem skorar þrjú mörk í
leik fær þrjú stig og síðan eitt aukastig
fyrir hvert mark sem það skorar til
viðbótar í leik.
• Dæmi: Ef félag vinnur leik 3—1,
fær það þrjú stig. En ef úrslit verða 5—
2færþaðfimmstig.
Ekkert stig er gefiö nema þrjú mörk
séu skoruð í leik. 2—2 jafntefli gefa
ekkert stig. Aftur á móti gefur 3—3
jafntefli hvoru félagi sitt stigiö.
Ef leikur færi t.d. 5—3 fengi það fé-
lag sem skorar fimm mörk fimm stig
og hitt félagið þrjú.
Keppnin um DV-styttuna hefst að
sjálfsögðu í kvöld á Laugardalsvellin-
um þegar Víkingar og KR-ingar leika
fyrsta leik 1. deildarkeppninnar.
Leikmenn 1. deildarliðanna verða aö
fara að taka fram skotskóna ef þeir
ætla sér aö vera meö í keppninni um
hina glæsilegu DV-styttu og nafnbótina
Mesta sóknarfélag Islands 1984.
OPIMUNARLEIKUR ÍSLANDSIVIÓT
VIKINGUR -
Á LAUGARDALSVELLI f KVC
VIKINGAR LEIKA I
ÍÞRÓTTAVÖRUM FRÁ