Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1984, Qupperneq 5
DV. MIÐVIKUD AGUR'23: MM1984:
5
Yf irheyrslur og mátflutningur í fálkaeggjamálinu fyrir sakadomi:
Eiginmaðurinn áður
dæmdur fyrir eeeja-
þjóf nað í Þýskalandi
„Hér eru févana peö á ferö og til þess
verður aö taka tillit þegar dómur er
felldur,” sagöi Om Clausen hrl. meöal
annars í málflutningi sínum í svo-
kölluöu fálkaeggjamáli fyrir sakadómi
ígær.
Þar fóm fram yfirheyrslur og mál-
flutningur í máli ungu, þýsku hjónanna
er stálu eggjum úr fálkahreiðrum á
Noröurlandi i síöasta mánuði.
Ákæra í fjórum liðum
Ungu hjónin, Miroslav Peter Baly og
Gabriele Uth-Baly, eru búsett í Köln í
Vestur-Þýskalandi. Hann er Tékki,
fæddur árið 1961, hún er þýsk, fædd
árið 1964.
Sýknunar eða vægustu refs-
ingar krafist
Eftir að yfirheyrslum yfir hjónunum
lauk hófst málflutningur. Orn Clausen
hrl., skipaður verjandi Miroslav Peter,
tókfyrsturtil máls.
Hann kraföist algerrar sýknu yfir
umbjóöanda sínum af fyrsta ákærulið
og þeim fjórða. Hann sagði alveg ljóst
að ferðin í fyrra hefði einungis verið
undirbúningsferð og því ekki farin í
þeim tilgangi að stela úr fálkahreiðr-
um. Varöandi fjórða liðinn hefði engin
ákæra komið fram af hálfu bílaleig-
anna. Þær hefðu leitað beint til sín með
reikninga sína og þeir heföu verið
gerðir upp. Þá krafðist hann vægustu
refsingar fyrir brot samkvæmt öðmm
og þriðja ákærulið. Þá krafðist hann til
vara vægustu refsinga • fyrir alla
ákæruliði.
„Ef refsiyist verður dæmd jafnhliða
sekt er þess krafist aö frá henni verði
dregnir þeir fimm sólarhringar sem
ákærði sat í gæsluvarðhaldi,” sagði
Orn.
Þá kom fram að hjónin voru send
hingaö og kostuö af þýskum aðila sem
enn er óljóst hver er. Sá hefði nú sagt
.skilið við þau. Einnig kom fram að
Frá sakadómi. Til hægri er Miroslav Peter. Hann reyndi að skýla andliti sinu
fyrir Ijósmyndaranum. Við hlið hans er Úrn Clausen hrl., skipaður verjandi
hans■ DV-mynd Bj.Bj.
Miroslav Peter er með skilorðsbundinn
dóm á herðunum sem hann fékk í
Þýskalandi vegna svipaös máls.
Guðmundur Jónsson hdl., skipaður
verjandi Gabriele, tók næstur til máls.
Hann krafðist sýknu yfir umbjóðanda
sínum en mildustu refsingar sem lög
leyfatil vara.
Hann sagði aö þaö hefði verið tilvilj-
un aö hún heföi farið meö eiginmanni
sínum hingað til lands. Hún hafi aö
vísu vitað um tilgang ferðarinnar en
ekki gert sér grein fyrir hvert lögbrotið
var. Hafi hún verið í gönguferðum á
meðan hann stundaði iðju sína.
Hún hafi átt mjög erfiða æsku, átt
við sjúkdóm að stríða, og foreldrarnir
skildir að skiptum. Sautján ára gömul
hafi hún gifst Miroslav Peter án þess
aö nokkur vissi. Hún hafi aldrei á ævi
sinni komist í kast viö lögin. Þegar þau
hafi verið tekin, hafi eiginmaðurinn
stungið eggjunum inn á hana, hann
hafi litið á sig sem brotamann en ekki
hana og því talið að ekki yrði leitaö á
henni.
Benti Guömundur á aö Gabriele
hefði nú þegar orðið fyrir nægum
óþægindum vegna þessa máls. Ekki
væri á það bætandi.
Dómur í máli þessu veröur kveðinn
upp í dag. Samkvæmt heimildum DV
má búast við að hjónin verði dæmd í tíu
til þrjátíu þúsund króna sekt. og
Miroslav Peter í skilorðsbundið fang-
elsi. -KÞ.
Akæran sem Þórður Björnsson ríkis-
saksóknari gaf út er í fjórum liðum. I
fyrsta lagi er þeim gefið að sök að hafa
verið hér á landi vikuna eftir 6. maí
1983 og ferðast um Norðurland í því
skyni að að leita uppi fálkahreiður.
I öðru lagi er þeim gefið að sök að
hafa dagana 23. apríl til 27. apríl 1984
feröast um Mývatnssveit, Asbyrgi og
norður um Melrakkasléttu og tekið tvö
egg úr fálkahreiðri í eða við Náma-
fjall, og önnur tvö úr hreiðri í Geita-
felli. Einnig aö hafa ferðast þann 30.
apríl um Hvammssveit, Fellsstrandar-
hrepp og Skarösstrandarhrepp og
tekið fjögur egg úr fálkahreiðri við
Harastaði í Fellsstrandarhreppi.
I þriðja lagi er þeim gefiö að sök að
hafa farið til Akureyrar 28. apríl með
fjögur egg í farangri sínum, skipt þar
um bíl, ekiö um sveitir Dalasýslu og
bætt við fjórum eggjum. Þegar þau
voru handtekin 30. apríl við Olafsdal í
Saurbæjarhreppi hafi Gabriele verið
meö eggin innanklæða og ætlunin hafi
veriö að flytja eggin úr landi. Hafi þau
verið með mjög fullkominn búnaö til
bæði að ná eggjum svo og að halda
þeim heitum.
I fjórða lagi er Miroslav Peter gefið
að sök að hafa ferðast um landið í
tveimur bílaleigubílum hvorum frá
sinni bílaleigunni, tekið vegmælana úr
sambandi í því skyni að komast hjá því
aðgreiða hluta af leigugjaldinu.
Er lagt til aö þau hjón verði dæmd til
refsingar, svo og upptöku á öllum
búnaði sem var auk tækja ljósmynda-
filmur af varpstöðum fálka og kort er
fálkahreiður voru merkt inn á.
Gabriele segist ekki hafa
gert sér grein fyrir
lögbrotinu
Miroslav Peter sagði fyrir sakadómi
að í fyrra þegar hann var hér á landi
hafi ekki verið möguleiki á að taka egg
úr hreiðrum fálkanna. Hann hafi verið
of seint á ferö til þess og hreiðrin því
tóm. Hann hafi einungis verið að
kanna máliö með það í huga að koma
hingað til lands síðar. Þá sagöi hann að
þ aö heföi ekki verið ætlun sín að greiða
ekki þennan hluta leigugjalds bílanna.
Hann heföi einfaldlega ekki getað
borgað nákvæmlega eftir mælunum
nema kjafta frá því sem hann vildi
leyna.
Gabriele sagðist ekki vera tengd
þessu máli öðruvísi en að Miroslav
væri eiginmaöur sinn. Hún hefði að
vísu vitað hver tilgangurinn hefði verið
með ferðinni en ekki gert sér grein
fyrir aö þetta væri slíkt lögbrot.
Þar sem
GÆÐI OG GLÆSILEUQ
eru metin crð § MmmSikJ
verdleikum er C/«7U«
í fctrarbroddi
MEST SELDIBILL AISLANDI
Frá því FIAT UNO var kynntur á miöju s.l. ári hefur hann selst meira en nokkur annar
einstakur bíll hér á landi.
Bíll ársins 1984
Uno!
BILL FAGURKERANS
ÍTÖLSK HÖNNUN, KLASSÍSK FEGURÐ
JEGILL
r VILHJÁLMSSON HF.Í
Smidjuvegi 4, Kópavogi. Simar 77200 - 77202.