Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1984, Blaðsíða 8
8
DV. ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTOBER1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Popieluszko talinn látinn:
BEÐIÐ FYRIR PRESTINUM
UM GJÖRVALLT PÓLLAND
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni,
fréttaritara DV í Svíþjóð:
Vökur voru haldnar í fyrrinótt í þús-
undum kirkna um allt Pólland til
stuðnings prestinum Jerzy
Popieluszko sem rænt var á föstudags-
kvöld. Um hádegisbilið í gær var svo
vinna lögð niður í verksmiðjum í þrjár
mínútur og beðið fyrir prestinum. Lík-
legt þykir að presturinn ungi sé þegar
látinn.
Honum var rænt um klukkan 10 á
föstudagskvöldið. Hann var þvingaður
ofan í farangursgeymslu bíls
ræningjanna. Þeir voru þrír, þar af
einn í lögreglubúningi.
Þaö er bílstjóri Popieluszko sem er
til frásagnar. Hann segir mann-
ræningjana hafa stöðvað bílinn undir
því yfirskini að ætla að taka áfengis-
prufur. Hann hafi bjargað sér með því
að kasta sér út úr bílnum á ferð. Við
þaö rifbeinsbrotnaði hann og skadd-
aðistáfótum.
Tveir af leiðtogum Einingar, hinna
bönnuðu verkalýðssamtaka, héldu
ræður á sunnudag í kirkju Popieluszko.
Það voru þeir Javorski og Lech
Walesa. Javorski sagði: „Eg hef ekki
hitt einn einasta Pólverja sem trúir því
að hér séu á ferö glæpamenn. Lög-
reglan í þessu landi hefur svo slæmt
orð á sér að fólk telur augljóst aö leyni-
lögreglan standi að baki mannráninu.”
Hann sagöi Popieluszko vera einn hug-
rakkasta prestinn í Póllandi og hann
væri maður sem þyrði að segja mein-
ingu sína. „Allir vita að hann er í ónáð
hjá valdhöfum.”
Sovéskir fjölmiðlar hafa áður rætt
um Popieluszko og þá farið hörðum
orðum um hann.
Pólverjar báðust fyrlr í kirkjum um helgina og báðu fyrir prestinum Jerzy Popieluszko.
Mondale hefur á brattann að
sækja fyrir kosningarnar 6.
nóvember.
m--------------*-
Reagan má vera ánægður með
frammistöðu sína í kappræðun-
um á sunnudagskvöld.
Bandaríkin:
HNÍFJAFNT EINVÍGI
MONDALES OG REAGANS
Reagan og Mondale, forsetafram-
bjóðendurnir tveir í Bandaríkjunum,
eru taldlr hafa komið jafnir út úr
kappræðum sinum í fyrrinótt. Walter
Mondale byrjaði ó að gagnrýna
Ronald Reagan af mikUli hörku en
Reagan þótti snúa sig vel út úr aö-
förlnni og svara Mondale af miklu
öryggi. Töldu menn Reagan koma
sýnu betur út úr þessu einvígi en
hinu fyrra.
Þetta sjónvarpseinvígi snerist
fyrst og fremst um utanríkismál.
Mondale sakaði forsetann um aö
vera iUa að sér í þeim efnum. Hann
hefði ekki einu sinni haft hugmynd
um slíkt grundvaUaratriði að flest
kjamorkuflugskeyti Sovétmanna
væru staðsett á landi. Mondale gagn-
rýndi einnig harðlega „leynistríð”
Bandaríkjanna í Nicaragua. I því
sambandi benti hann á útgáfu bækl-
ings, sem nýlega hefur orðið uppvíst
um, þar sem leyniþjónustan CIA
kennir skæruUöum, sem eru að
berjast gegn Nicaraguastjórn,
hvemig skuh bera sig að við hryðju-
verkastarfsemi.
Reagan var hins vegar í essinu
sínu og sagði einarölega að Mondale-
stjórn myndi veikja vamarmátt
Bandaríkjanna og færa mönnum
aftur óvissu og óöryggi Carter-ár-
anna.
Mondale sagði að meö stjömu-
stríðshugmyndum Reagans um að
nota gervihnetti í auknum mæU í
kjamorkuvopnakapphlaupi stór-
veldanna myndi forsetinn færa stór-
veldaátökin upp í himinhvolfiö og
lagðist gegn sUkum hugmyndum.
Betra væri að leggja áherslu á
vopnatakmörkunarviðræður. Reag-
an svaraði því tU með því að nota
gervihnetti til að eyöa kjamorku-
flugskeytum í loftinu og mætti gera
sUk flugskeyti úrelt og því gæti
áætlunin leitt tU þess að kjamorku-
vopn sem slík yrðu úrelt.
MikU kæti er nú í herbúöum for-
setans því aðstoðarmönnum hans
þykir hann hafa farið á kostum. Sér-
staklega eru þeir ánægðir með
hvemig hann tók á gagnrýnmni um
að hann væri orðinn of gamaU til að
gegna forsetaembættinu í f jögur ár í
viðbót.
„Eg ætla mér ekki að gera mér
pólitískan mat úr æsku og reynslu-
skorti andstæðings míns,” sagði
Reagan alvarlega, við mikinn hlátur
áheyrenda.
Francois Truffaut, einn af færustu kvikmyndagerðarmönnum Frakka,
er látinn, 52 ára að aldri.
Kvikmyndagerðarmaðurinn Truffaut látiiyn:
Einn af f rammámönnum
f rönsku nýbylgjunnar
Frá Friðriki Rafnssyni,
fréttaritara DV í París:
Franski kvikmyndagerðarmaðurinn
Francois Truffaut lést í fyrradag, 52
ára að aldri. Truffaut var án efa einn
af máttarstólpum franskrar kvik-
myndagerðar og einn af frammá-
mönnum frönsku nýbylgjunnar sem
reis einna hæst á sjötta áratugnum.
Truffaut stjómaöi um árabil útgáfu
tímaritsins Cahiers du Cinema og
gerði það að vettvangi frjórrar um-
ræðu sem gat af sér ýmsa þekktustu
kvikmyndageröarmenn Frakka á
síöari árum, menn eins og Godard,
Rahmer, Chabrol og fleiri.
Auk 22 kvikmynda liggja einar 25
bækur eftir hann þar sem hann fjallar
um kvikmyndagerð í orösins fyllstu
merkingu. Hann lauk til dæmis nýlega
við ævisögu Hitchcocks, en það var
einmitt Truffaut sem kynnti Hitchcock
fyrir Frökkum. Franska pressan slær
fregninni um andlát Truffauts upp á
forsíðu líkt og um þjóðhöfðingja væri
að ræða. Þó er ekki ýkja langt síðan
Truffaut náði almenningshyili hér í
Frakklandi en það var með myndinni
Síðasta hraölestin sem gerð var 1980 og
var sýnd í Reykjavík í sumar.
Af öðrum myndum Truffaut má
nefna Utburðinn, frá 1970, Vasa-
peninga, frá 1976, Græna herbergiö,
frá 1978, Nágrannakonuna, frá 1981, og
þá nýjustu sem heitir Flakkað til
sunnudags og var gerð í fyrra.
Truffaut er sá fyrsti af stórmennum
franska nýbylgjutímabilsins í kvik-
myndagerö sem deyr.
Ný bókíSvíþjóð:
80 manna njósnalið
Sovétríkjanna
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, fréttarit-
ara DV í Svíþjóð:
Frá 1956 hafa 195 Svíar gerst
sovéskir njósnarar auk þess sem 190
Sovétmenn hafa unnið viö njósnir í Sví-
þjóð. Þetta var megininntakið í for-
síðufréttum sænsku síðdegisblaðanna,
Expressen og Aftonbladet, í gær þar
sem kynnt var innihald glænýrrar
bókar um starfsemi KGB í Svíþjóð.
Höfundur bókarinnar er Charlie
Nordblom, kunnur blaöamaður. I bók-
inni er því haldið fram að Vladimir
Bapjkirov, 43 ára gamail starfsmaöur
sovéska sendiráðsins í Stokkhólmi,
stjórni njósnunum í Svíþjóð og hafi um
80 njósnara á sínum snærum um
þessar mundir. Nordblom styðst í bók-
inni við upplýsingar og frásagnir mörg
hundruð manna innan sænska varnar-
málakerfisins, iönaðarins, rann-
sóknarstofnana og stjórnmálaflokk-
anna.
Augljóst viröist af fyrstu viöbrögð-
um að bókin eigi eftir að koma af stað
miklum umræðum í Svíþjóð um þessi
mál á næstu dögum og þegar í gær
gerði Expressen njósnir Sovétmanna
að umtalsefni í leiðara.
Engar verðlækkanir
Fundur hjá OPEC, samtökum oiiuút-
flutningsríkja, hefur ákveðiö að olíu-
verð ríkjanna verði óbreytt þrátt fyrir
verðlækkun á olíu úr Norðursjó og frá
Nígeríu. Yamani, olíuráðherra Saudi
Arabíu, sagði að engar verðbreytingar
hefðu veriö ákveönar. Hins vegar
hyggjast olíusöluríkin minnka fram-
leiðslu sína um allt að 20 prósent.
Umsjón: Þórir
Guðmundsson
GOTT FÓLK
DV. ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTOBER1984.
9
Hæstu vextirog verðtrygging!
í TROMPreikningi sparisjóðanna sameinast aiiir bestu kostir:
STIGHÆKKANDI
VEXTIR
ÁRSÁVÚXTUN
ALLTAD27,58%
TRYGGm GEGN
VERBBÓLGU
ÓBUNBim
REIKNINGUR
Vaxtakjör TROM Preikningsins verða betri eftir því sem
innlegg er iátið standa lengur á reikningum. Við stofnun ber
reikningurinn 17% vexti, sem hækka stig af stigi og ná
25.5% eftir 12 mánuði. Þeir vextir sem þú ávinnur þér gi/da
að sjálfsögðu frá innleggsdegi.
Vextir reiknast tvisvar á ári 30. júní og 31. desember og geta
því gefið al/t að 27.58% ársávöxtun.
Á sex mánaða fresti er óhreyfð innistæða borin saman við
ávöxtun verðtryggðra reikninga með 6.5% vöxtum og
hagstæðari kjörin látin gilda. S/íktrygging er sérstaklega
mikilvæg í ótryggu ástandi þjóðmála.
Innistæða á TROMP/-eikningi er alltaf laus til útborgunar,
án uppsagnar. Þegar tekið er út af reikningnum hefst
nýtt vaxtatímabili.
Það er einfalt að stofna TROM Preikning, - þú þarft aðeins að fylla út umsókn og innleggsmiða
á næsta afgreiðslustað.
TROMPreikningurinn er meira en einföld og áhyggjulaus /eið til hæstu ávöxtunar, - hann er
sjálfsagt svar sparifjáreigenda við hættu á vaxandi verðbólgu.
tt
SPARISJÓÐURINN í KEFLAVÍK,
SPARISJÓÐUR KÓPAVOGS, SPARISJÓÐUR MÝRASÝSLU,
SPARISJÓÐUR REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS, SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA