Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Side 1
DAGBLAÐIÐ — VÍSIR 233. TBL. — 74. og 10. ÁRG. — MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 1984. Engir launaútreikningar þrátt fyrir úrskurð kjaradeilunef ndar: LOKA ANDDYRUM SKÝRSLUVÉLANNA Verkfallsstjórn BSRB lét loka and- dyrum SKYRR, Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkurborgar eftir aökjara- deilunefnd úrskurðaði í gær um að þar skyldi unnið aö launaútskriftum til starfsmanna viö heilsugæslu og öryggisgæslu, annarra en eru í BSRB. Vakt var utan dyra í alla nótt og er engum hleypt inn nema þeim sem allt frá upphafi verkfalls hafa sinnt neyðarþjónustu. Þetta mál hefur verið til meðferð- ar í kjaradeilunefnd dögum saman. I gær lá fyrir ein aðaltillaga frá Helga V. Jónssyni, formanni nefndarinnar, um að skylda starfsmenn SKÝRR til vinnslu á launaútreikningum sam- kvæmt sérstakri skilgreiningu. Felld var breytingartillaga um að vinnslan næði ekki aðeins til annarra starfs- manna en eru í BSRB, svo sem Sókn- arkvenna og BHM-fólks, heldur einn- ig BSRB-fólks sem skylt er að vinna í verkfallinu. Þrír fulltrúar BSRB og þrir aðrir nefndarmenn felldu þá tillögu en þrír voru með henni. Aðaltillaga Helga var samþykkt með fimm atkvæðum gegn þrem at- kvæðum BSRB-manna. Mótat- kvæðum þeirra er nú fylgt eftir meö því aö loka húsi SKÝRR. Vinna við launaútskriftir getur því ekki hafist og ekki heldur vinna við útskriftir líf- eyrisgreiðslna sem kjaradeilunefnd úrskurðaði um á laugardag. Fulltrúar BSRB létu bóka að þeir teldu nefndina fara út fyrir verksvið sitt og aö launagreiöslur af þessum toga væru samningsmál milU BSRB og fjármálaráðuneytisins „þar til ljóst er að starfsmenn hætta störfum vegna vangoldinna launa og nauð- synleg öryggis- og heilsugæs. a skerð- ist”. HERB Vörum skipað úr Skaftafeliinu íGrundarfirði: FRÉTTARITARA DV HÓTAÐ UPPSÖGN FYRIR MYNDATÖKU Vörum úr skipi Sambandsins, ms. SkaftafelU, var skipaö upp um helgina í Grundarfirði. Var þar um að ræða nýjar jarðýtur auk ör- bylgjuofna, rafmagnshitara og ýmiss konar eldhúsáhalda sem kom- ið var fyrir í hraðfrystihúsinu í Grundarfirði. Fréttaritari DV í Grundarfirði tók myndir af þessarí uppskipun en aö því loknu fékk hann skilaboð um þaö að ef DV fengi þessar myndir frá honum yrði hann rekinn úr vinnu srnni í frystihúsinu sem er í eigu Sambandsins. Að sögn lögreglunnar í Grundar- firði er engin lögregluvakt á sunnudögum og varð því enginn á lögreglustöðinni var við að Skafta- felUð lægi í höfninni. Að sögn Loga Egilssonar, fuUtrúa sýslumannsins í Stykkishólmi, höfðu þeir engar fregnir af þessari uppskipun en öllum væri leyfUegt að leggjast að bryggju ef þeir kæmu frá annarri höfn innanlands. Omar Jóhannsson, aöstoöarfram- kvæmdastjóri SkipadeUdar Sam- bandsins, sagði í samtali við DV að skipið hefði verið toUafgreitt í Reykjavik er það kom hingað fyrir nokkrum dögum en losunin í Grund- arfirði hefði veriö gerð til að losa um pláss fyrir fisk til útflutnings. Sigurður Eggertsson, sveitar- stjóri í Grundarfirði, sagði í samtali við DV aö krani sá sem notaður hefði verið við uppskipunina væri í einka- eign og því hcfðu hafnaryfirvöld ekk- ert með hann að gera. -EH/FRI. íslendingur í Danmörku: Framseldur vegna norsks hasssmygls Dönsk yfirvöld hafa ákveöið að framselja 24 ára gamia íslenska konu tU norskra yfirvalda. Ástæðan er sú að konan mun hafa aðstoöað við smygl á nokkrum kílóum af hassi til Osló. Konan hafði viðurkennt brot sitt fyrir dómstóli í Danmörku í von um að hljóta dóm þar í landi. I Nor- egi getur hún nefnúega átt í vændum 12 sinnum þyngri refsingu. Norska lögreglan krafðist þess að konan yrði framseld til Noregs vegna þess að 3 Norðmenn höföu þegar verið handteknir þar vegna sama máls. Er konan var yfirheyrð fyrir undirrétti i Kaupmannahöfn fyrir nokkrum vikum neitaði hún staöfastlega að fallast á að veröa framseld. Hún taldi það mjög óeöli- legt að til framsals kæmi vegna þess hversu munur á refsingum fyrir umrætt brot er mikiU í Danmörku og Noregi. I Danmörku eru brot sem þessi ekki litin svo alvarlegum augum og heföi konan að öllum líkindum slopp- ið með 2 mánaða fangelsi. Mál þetta hefur vakið mikla athygli innan dönsku lögreglunnar og þykir mörgum lögreglumönnum furðulegt að konan skuli framseld. Hefðu Norðmenn farið að venju í þessu máli hefðum þeir fariö fram á það við dönsk yfirvöld að málið gegn konunni yrði rekið í Danmörku en nú verður hún semsé framseld til Nor- egs þar sem hún á mun þyngri refs- inguívændum. -GAJ-Lundi. /i - Stakk af frá árekstri Harður árekstur varð á Hringbraut á móts við Gamla Garð á fjórða timanum i gær. ökumaðurinn sem slysinu oUi ók vestur Hringbraut og beygði inn á háskólasvæðið fyrir neðan Garð. Þar ók hann í veg fyrir annan bil sem var á leið austur Hringbraut. úku- maðurinn stöðvaði þó ekki, heldur ók áfram. Lögregian fann hann skömmu síðar i einni af byggingum Háskólans. Grunur ieikur á að um ölvun hafi verið að ræða. DV-mynd GVA Kyrrstaðaí samninga- málum Enginn árangur varð af fundi samninganefnda Vinnuveitenda- sambandsins og landssambanda innan Alþýðusambandsins sem hófst klukkan 18 í gærkveldi og stóð til klukkan 4 í nótt. Á f undinum voru ræddir ýmsir liðir í tiiboði VSI en ekki náðist samkomulag um neitt atriði. Annar fundur aðila hefur verið boöaður klukkan 16 í dag. Sáttafundi samninganefnda BSRB og fjármálaráðuneytisins var frestað á hádegi í gær. Lítill árangur varð af fundinum. Nýr fundur hefur verið boðaður klukkan 13 í dag. Á bls. 2 er fjallað nánar um stöðu samningamála BSRB. -ÓEF. Innbrof ið á Akranesi: Sjöígæslu- varðhald Um helgina voru sjö manns úrskurö- aðir í gæsluvarðhald í Sakadómi Reykjavíkur vegna rannsóknar á inn- brotinu í áfengisverslunina á Akranesi í síðustu viku. Fimm af þeim voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 7. nóvember en tveir eitthvað styttra. Taliö er að þessir aðil- ar séu á einn eöa annan hátt viðriðnir innbrotið á Akranesi en ekki áfengis- og tóbaksþjófnaðina úr gámunum í KeflavíkogReykjavík. -klp.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.