Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Síða 7
DV. MANUDAGUR 29. OKTOBER1984.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Korthafar
verða að
standa
skil
— þótt tilkynning
berist ekki
Þegar þetta er skrífaö er póstþjón-
ustan enn lömuð vegna verkfalla. Það
hefur í för með sér að ekki verður hægt
að tilkynna greiðslukoilahöfum í gegn-
um póstinn hversu mikil skuld þeirra
er við viðkomandi fyrirtæki. En hvern-
ig ætla fyrirtækin að leysa þetta mál?
Hjá Visa Island fengust þær upp-
lýsingar aö eindagi greiðslunnar yrði
sem áður 2. nóvember og eftir þann
tíma myndu dráttarvextir falla. Enn
væri ekki búið að ákveða hvort til-
kynningaseðlarnir yrðu bomir út til
viðskiptavinanna. En flestir vita að
það dregur að greiöslu og í viðkomandi
banka geta allir fengiö upplýsingar um
hversu mikið þeir eiga að greiða.
Hjá Kreditkortum sf. eru allir
reikningar tilbúnir en óvíst hvernig
jeöa hvort þeir verða sendir út. Þar
verður síðasti greiösludagur eins og
venjulega 5. nóvember, líklegt að fólk
fái 2ja daga frest vegna þess ástands
sem nú ríkir. Korthafar geta einnig
fengið upplýsingar um hver staöan er
hjásínumbanka.
Þá er einnig spurning hvemig ganga
muni að innheimta úttektir sem gerðar
hafa verið erlendis. Hjá Visa Island
fengum við upplýsingar um að yfirlit
yfir innkomnar úttektir hefði hreinlega
veríð sótt til útlanda svo búast má við
aö úttektir erlendis frá berist til iands-
ins jafnt og áður.
APH
Eitthvað svipað þassu verða kort Iðnaðarbankans sem verða lykill að peningakassa bankans aiian sólar-
hringinn.
Nýtt fyrirbrigði:
Tölvubankinn
„Við höfum verið að kanna þetta
mál í nokkuö langan tíma og höfum
nú ákveðið að koma nokkrum tölvu-
bönkum upp. Við höfum þegar fest
kaup á nokkrum vélum og tvær
þeirra eru nú komnar hingaö til
landsins og verða að öllum líkindum
settar upp í nóvember,” sagði Bragi
Hannesson, bankastjóri Iðnaðar-
bankans, er hann var spurður um
töivubanka sem unniö er við aö setja
upp í Reykjavik og í Hafnarfirði.
Bragi sagði að eftir langa umhugs-
un hefði veriö ákveðið aö kalla þessa
banka tölvubanka. Það sem hér um
ræðir er eins konar sjálfsafgreiðslu-
bankar sem oftast eru staðsettir
utandyra þar sem viðskiptavinir
geta tekið út peninga hvenær sem er
sólarhringsins. I Iðnaðarbankanum
verða tölvubankarnir reyndar stað-
settir í anddyrum bankanna og
ákveðiö kort notað til að opna dyr
þeirra. Þetta sama kort, sem er svip-
að venjulegu greiðslukorti, er síðan
hægt að nota til aö taka peninga út i
tölvubankanum. Þaö er gert með því
að stinga kortinu inn í tölvuna á þar
til gerðum stað og gefa tölvunni
ákveðin fyrirmæli og upplýsingar.
Að þessu loknu spretta fram um-
beönir peningar. Svo einf alt er það.
Bragi sagði aö tölvubankinn væri
búinn ýmsum öðrum eiginleikum
en að borga bara út peninga.
Þegar fram líða stundir er ráðgert
að hægt verði að leggja inn peninga
og einnig geta viðkomandi viðskipta-
vinir athugað stöðu sína á reikning-
um bankans. Þá væru jafnvel önnur
verk sem bankinn gæti unnið en ekki
tímabært að skýra frá núna.
Bragi sagði að með tilkomu tölvu-
bankans væri um gífurlegar breyt-
ingar að ræða á þessu sviði bankans.
Þetta væru mikil þægindi fyrir við-
skiptavinina og einnig starfsfólk
bankans. Nú væri hægt að taka út
peninga á öllum tímum sólarhrings-
ins og gjaldkerarnir þyrftu nú í
minna mæli aö vinna þessi störf sem
eru ákaflega tímafrek.
Þeir sem hafa ávísanareikning hjá
bankanum geta sótt um að fá úttekt-
arkort með því að fýlla út sérstök
eyðublöð. Þá er einnig gert ráð fyrir
því að hægt verði að vera með
peninga á sérstökum reikningum til
þessara nota sem eru með venju-
legumsparisjóðsvöxtum. APH
Raddir neytenda
Aska i
brauðinu?
Neytandihrlngdi:
Hann sagðist hafa keypt sér
Myilu-franskbrauð sem var
reyndar með afbrigðum gott. A
meðan hann var aö gæða sér á
brauðinu fór hann aö lesa á
umbúðir þess. Þar var m.a. greint
nákvæmlega frá innihaldi og meðai
innihaldsins var aska. Jú, af ösku
voru tæp tvö grömm. Hann langar
að vita hvað og hvers vegna aska
sé í þessu brauði.
Það er Rannsóknastofnun land-
búnaöarins sem sér um að efna-
greina Myllubrauðin. Þar fengust
upplýsingar um þessa ösku. Aska
er annaö heiti yfir steinefni.
Astæðan fyrir því að notaö er
nafnið aska er sú að áöur fyrr voru
efni brennd til að hægt væri að
mæla magn steinefnanna. Efnin
voru sem sagt brennd og aðeins
aska var eftir sem er nánast bara
steinefni.
Vetraiskoðun
Stendur frá 15. október og út desember.
SUÐURLANDSBRAUT 16 —,-SÍMI 35200
Verð: 4 cyl. kr. 2.054 - 6 cyl. kr.2.640
ATH! Skipt um olíu og olíusíu
ef óskað er (Olía og olíusía ekki innifalin)
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
Vélarþvottur
Hreínsun og feítí á geYmíssambönd
Mæling á rafgeymi
Mælíng á rafhleðslu
Hreínsun á blöndungí
Ísvarí settur i bensín
Skípt um kertí
Skipt um platínur
Stillíng á viftureím
Rúðusprautur stilltar
Mælíng á frostlegí
Vélarstilling
Ljósastilling