Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Page 13
DV. MÁNUDAGUR 29. OKTOBER1984.
13
Kjallarinn
SIGHVATUR
BJÖRGVINSSON
FYRRVERANDI
ALÞINGISMAÐUR
anna, sem byggir á haröri hægri
stefnu, mun ýta undir hana. Nú vilja
menn fá að ræða málin opinskátt og
af einlægni og án þess að festa sig
allt of mikið við fortíðina; grónar
stofnanir og gömul kerfi. „Er það
frambúöarlausn að hafa tvo starf-
andi jafnaðarmannaflokka?” spyr
fólkið. „Er ófrávíkjanlegt að ekki
eigi að vera hægt aö mynda ríkis-
stjórn án annaðhvort Framsóknar-
flokks eða Sjálfstæðisflokks?” „Er
endilega víst, aö Sjálfstæðisflokkur-
inn eigi áfram að vera stærsti flokk-
ur þjóöarinnar eftir aö hann hefur
kvatt umburðarlyndið til þess að
bjóða Friedman velkominn?”
„Sætta nýjar stjórnmálahreyfingar
sig við að fæðast til þess eins að
ganga svo í björgin og deyja?”
Vindar breytinga eru farnir að
blása. Vilja menn raða seglum og
sigla eða sætta menn sig við að láta
bara flatreka?
Leitum til fólksins
Mín tillaga er sú, að fljótlega í
haust verði boðað til opinna umræðu-
funda um stöðu og stefnu vinstri
hreyfingar á Islandi þar sem hinum
almenna manni verði gefinn kostur á
að tjá sig. Skírskotum nú til fólksins í
þessu landi, en ekki aðeins foringj-
anna. Eitthvað það verður að fara aö
gerast, sem getur gefið þessu fólki
von og þaö vill eiga hlut að. Líf
verður að vera. Allt frumkvæöi má
ekki vera hjá Framsókn og íhaldi.
Sighvatur Björgvinsson.
Samstaða
BSRB-fólks
Verkfalls BSRB, sem staöið hefur
nú á fjórðu viku þegar þetta er
skrifað, mun lengi verða minnst
fyrir hina sterku samstöðu fólksins
innan BSRB. Alls staðar þar sem
verkfallsfólk kemur saman finnur
maður hinn mikla baráttuanda, t.d. í
verkfallsvörslunni, í kennaraat-
hvarfinu, i BSRB húsinu o.s.frv.
Núverandi ríkisstjórn hefur traðkað
á launafóikinu í landinu og hennar
eina efnahagsúrræöi hefur verið að
skeröa líf skjörin í stað þess aö taka á
málunum af raunsæi, t.d. með því að
gera eitthvað til að uppræta skatt-
svik sem nema hundruðum milljóna
árhvert.
Við sem staðið höfum í baráttunni
fyrir mannsæmandi launum horfum
ekki lengur upp á það þegjandi að
hinir ríku verði ríkari, og stundi um
leið skattsvik, á meðan aðrir verða
fátækari. Við treystum því að nú
verði gerðir samningar sem við
getum sætt okkur við, annars má
búast við frekari aðgerðum, t.d.
f jöldauppsögnum kennara.
Þaö er enginn í BSRB í uppgjafar-
hugleiöingum þrátt fyrir langan
mánuö án launa. Leiðtogar BSRB
hafa sýnt góða forystu í verkfallinu
og fólkiö stendur einhuga með þeim.
Svikasamningurinn
Sem betur fer var svikasamningur
Davíðs Oddssonar borgarstjóra og
Haralds Hannessonar, formanns
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar, kolfelldur. Þessir menn ráku
rýting í bakið á starfsmönnum
Reykjavíkurborgar.
Vinnubrögð þeirra voru slík, að
menn hafa megnustu skömm é at-
hæfi þeirra. Fyrst og fremst ætluðu
þeir að splundra samstöðunni innan
BSRB. Fólkið í Starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar áttaði sig strax á
því sem þeir höfðu verið að braiia í
skjóli nætur. Mjög margir urðu
öskureiðir þegar þeir sáu að Reykja-
víkursamningurinn var ekki annað
en sáttatillagan i nýjum búningi.
Vinnubrögðin voru þó það versta af
öllu; að koma aftan aö fólkinu til að
reyna að splundra samstöðunni. Eg
held að Davíð Oddsson borgarstjóri
ætti að fara að sjá sóma sinn i þvi að
hætta sem borgarstjóri, áður en
hann fremur fleiri axarsköft.
Eðlilegt hlýtur aö teljast að for-
maður Starfsmannafélags Reykja-
víkurborgar segi upp stöðu sinni
enda hefur hann fengið algjört
vantraust frá borgarstarfsfólki,
sama er að segja um borgarstjóra.
Eg varð hissa þegar ég frétti að
Alþýðubandalagið hefði setið hjá í at-
kvæðagreiöslunni um Reykjavíkur-
samninginn í borgarstjórn. Eg spyr
bara, getur verið að borgarstjóri sé
búinn að stinga snuði upp í flesta full-
trúa borgarstjórnar, að þeir séu
ljúfir og góðir og hneigi sig fyrir
„Hans hátign”?Hvað sem veldur
vona ég að Alþýðubandalagið standi
sig betur á þingi og þori að taka þar
hreina afstöðu til mála. Sem betur
fer greiddu fulltrúar Alþýðuflokks og
Kvennaframboösins atkvæöi gegn
Reykjavíkursamningnum í borgar-
stjórn.
Ríkisstjórn
peningavaldsins
Skoðanakönnun DV, sem er ný-
komin fram, sýnir að ríkisstjórnin
hefur ekki meirihlutafylgi
þjóðarinnar á bak viö sig. Enda geri
ég ráö fyrir að þessi ríkisstjórn sé
búin að afhjúpa sig gjörsamlega í
verkfalli BSRB. Nú sér fólk svart á
hvítu að það eru fulltrúar peninga-
valdsins sem stjóma landinu. Þeim
er greinilega alveg sama um fjöl-
skyldurnar og launafólkið. Þeir
9 „Það er enginn í BSRB í uppgjafarhug-
leiðingum þrátt fyrir langan mánuð án
launa. Leiðtogar BSRB hafa sýnt góða forystu í
verkfallinu og fólkið stendur einhuga með
þeim.”
BJÖRGVIN
BJÖRGVINSSON
KENNARI
virðast ekki hafa nokkum skilning á
kjörum fólksins í landinu.
Skilningsleysi þessara manna er
svo mikið aö sá sem er viðsemjandi
BSRB í deilur.ni, sjálfur fjármála-
ráðherra, ræðst af mikilli heift á alla
kennarastéttina í landinu. Hann
hefur ekki nokkra hugmynd um störf
kennara.
I þessari deilu eru kennarar í
fremstu fylkingu í baráttunni, þeir
standa t.d. verkfallsvörslu í stórum
hópum alla daga og nætur ásamt
öðru BSRB fólki. Kennarar sem og
aðrir í BSRB munu ekki láta traðka á
sér lengur.
Samstaða okkar.
Vesalings mennimir,
þeir reyndu að svelta okkur
til hlýðni.
Frammi fyrir aiþjóö
standa þeir nú,
kviknaktir, afhjúpaðir.
Það er augljóst að BSRB á í höggi
við ríkisstjóm sem svífst einskis til
að halda aftur af sanngjörnum
kröfum okkar. Þessi ríkisstjóm er
hættuleg öllu launafólki i landinu
vegna þeirrar stefnu sem hún fylgir.
Þess vegna er nauðsynlegt að koma
hennifrásemfyrst.
BSRB fólk, fram til sigurs og
mannsæmandi líf skjara!
Björgvln Björgvinsson.
RANGLÆTI
RÁÐSMANNA
falið, og væntanlega leiörétta kjör
þeirra til samræmis við þær niður-
stöður. Sem betur fer hafa Ragnhildur
Helgadóttir menntamálaráðherra og
fjölmargir þingmenn aðrir viöhaft þau
ummæli á þingi, sem gefa tilefni til
bjartsýni um meðferð þessarar tillögu.
Orðaglöp fjármálaráðherra urðu
þrátt fyrir allt til góðs. Þau urðu tilefni
umræðna á þingi og hvassra viðbragða
af hálfu kennara, og betri stuðning var
í rauninni ekki hægt að fá við fyrr-
nefnda tiliögu Kvennalistans.
„Einhver er að Ijúga"
Á síðasta þingi var samþykkt tillaga
til þingsályktunar um stóraukna rækt
við íslenskt mál í skólum landsins. Af
því tilefni ritaði sá annálaöi gáfu-
maður Helgi Háifdanarson grein í
Morgunblaöið og vék meðal annars að
kjörum kennarastéttarinnar. Hér með
tek ég mér það bessaleyfi að gera
niöurlag greinar hans að lokaorðum
þessarar greinar:
„Með hverju ári verður brýnna að
gera allt sem verða má til að iaða að
kennarastéttinni úrvalsfólk, minna
dugir ekki þar. En það verður ekki gert
nema kjör kennara verði bætt, og ekki
aðeins bætt, heldur stórbætt. Án þess
verða allar ályktanir Alþingis um rækt
við móðurmálið sýndarmennskan tóm.
Einhver er að ljúga því upp, að viö
höfum ekki efni á að gera vel við svo
fjölmenna stétt sem kennarastéttina.
Þar er því einu til að svara, að hafi ein
af ríkustu þjóðum heims ekki efni á að
ala upp sín eigin börn, þá eru einhvers
staðar ranglátir ráðsmenn að verki.”
Tími er til kominn að bæta fyrir það
ranglæti ráðsmanna, sem lýsir sér í
smánarkjörum þeirrar stéttar, sem
við treystum fyrir uppfræðslu og í
sívaxandi mæli uppeldi barnanna
okkar.
Kristín Halldórsdóttir.