Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Page 16
16 DV. MÁNUDAGUR 29. OKTOBER1984. Spurningin IMotar þú greiðslukort? Sigurður Ölafsson, á eftirlaunum: Nei, þaö geri ég ekki. Eg hef aldrei haft nein lánsviöskipti heldur borgaö út í hönd. Sigríður Finnbjörnsdóttir hárgreiösiu- meistari: Eg nota greiðslukort lítiö hér heima. En erlendis nota ég þaö mikið vegna þess aö það er bæði þægilegra og öruggara. Astrid Andersen húsmóðir: Nei, ég hef engan áhuga á því. m Lúövík S. Nordgulen rafverktaki: Eg nota greiðslukort mikið erlendis því það er þægilegra en bein peningavið- skipti. En hér heima geri ég þaö ekki. Það veitir manni visst aðhald. Friörik Hermannsson iögreglumaður: Nei, ég nota ekki greiðslukort heldur borga frekar með peningum eða ávís- un. Rósa Jónsdóttir húsmóðir: Greiöslu- kort hef ég aldrei notað. Ég myndi ekki þora þaö vegna eyðslunnar. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur „BRÆÐUR MUNU BERJAST...” H.B. hringdl: öllum er víst ljóst aö áhrif þeirra verkfalla sem verið hafa í þjóð- félaginu aö undanförnu munu draga dilk á eftir sér varöandi afkomu allra sem í landinu búa. Við launþegar höfum lagt niður vinnu til aö mót- mæla lágum launum okkar og kref j- ast úrbóta. En eru allar þessar aðgerðir réttmætar? Hér er ég að taia um þaö atriði þegar fólkiö snýst gegn sínum eigin baráttubræðrum. I þessu sambandi langar mig að taka sem dæmi aðgeröir þær sem vagn- stjórar SVR höfðu í frammi þegar Ijóst varð að þeir fengju ekki laun sín greidd fyrirfram. Þeir hófu akstur með alls konar kúnstum, stoppuðu á ólíklegustu stöðum aö ástæöulausu, keyrðu fram hjá fullum stoppi- stöðvum af fólki og svona mætti lengi telja. Og á hverjum bitnuöu þessar aðgerðir? A þeim sem beittu þá óréttinum, þ.e.a.s. handhöfum ríkis- valdsins? 0 nei, heldur á þeirra eigin samborgurum sem þurftu að komast leiðar sinnar og áttu ekki einkabila og bílstjóra likt og ríkistopparnir í þjóöfélaginu. Eg vil taka það skýrt fram að ég skil mætavel reiði starfsmanna SVR yfir þeirri lögleysu sem þeir voru beittir varðandi launagreiðslur en þarna var að mínu mati verið að hengja bakara fyrir smið. Einnig má í þessu sambandi nefna framkomu verkfaUsvarða BSRB í hlið Keflavíkurflugvallar sem var fyrir neöan allar heliur. Eðlilegt er að viö langþreyttir launþegar höfum loks, eftir margra ára strit, risið upp og mótmælt réttilega því aögeröa- og fyrir- hyggjuleysi sem stjórnvöld hafa boöiö fólki upp á. En viö launþegar landsins eigum aö standa saman gegn þeim sem beita okkur órétti en ekki láta mótmæli okkar bitna hver á öðrum. Látum ekki sannast hend- inguna úr Hávamálum: „Bræður munu berjast og að bönum verðast. ” Hvonær kemur strætó eiginlega? Höfuðstöðvar Fróttaútvarpsins. „Fréttaútvarpið lofaði mjög góðu” Bjarney Kristfn Oiafsdóttir skrlfar: Eg er eindreginn stuðningsmaður frjáls útvarps. Tel ég að starfsmenn Ríkisútvarpsins hafi með þvi aö leggja niður vinnu brotið grimmilega á þeim sem minnst mega sín í þjóðfélaginu. Á ég hér viö sjúklinga á sjúkrahúsum, gamalmenni og fatlað fólk. ÖUu þessu fólki er útvarp nauðsynlegt til dægrastyttingar og til að vera í tengslum við samfélagið. Mér fannst frjálst Fréttaútvarp lofa mjög góöu á meðan þaö starfaði og éf þaö hefði fengið að þróast áfram tel ég aö það hefði á engan hátt gefið Ríkisút- varpinu neitt eftir. Enn um verð símtækja Carl Eiríksson hringdi: Vegna svars Guðmundar Björns- sonar hjá Pósti og síma, varðandi spurningu um verð ákveöins símtækis, langar mig aö fá skýrari svör við á- kveðnum atriðum. 1 fyrsta lagi hvers vegna innkaups- verð símans er jafnhátt og raun ber vitni, eða um 1600 kr., þegar hægt er að kaupa sams konar tæki í Danmörku fyrir 600 kr. ísl. Og í öðru lagi hvort hægt sé aö kaupa símtæki út úr búö í Danmörku þegar danski siminn á ÖU tækin. Við þessu væri gaman aö fá svör. DV hafði samband við Guðmund Björnsson, fjármálastjóra Pósts og sima: Hann sagði að sennUega hefði ekki komið nógu vel fram áöur að þarna væri um að ræða aöaltalfæri og auka- talfæri. Þegar maöur fengi síma í Dan- mörku léti danski siminn honum í té aöaltalfæri sem innifalið væri í afnota- gjaldi viökomandi. Hins vegar væri lika hægt að kaupa aukatalfæri og þá væri borgaö sérstakt stofngjald af þvi og síðan væri borgað afnotagjald af þessu aukataifæri ársfjórðungslega. Þannig aö ekki er hægt að bera saman innkaupsverð simtækisins hingað tU lands og þaö verð sem hægt væri að kaupa tækið á í Danmörku. Varðandi seinni fyrirspurnina þá breyttust reglur í þessum málum mjög hratt. En eftir því sem hann kæmist næst þá væri danski síminn með ein- okun á sölu simtækja en ekki væri hægt að fullyrða neitt í því efni. Hver er réttur neytandans? Neytandl skrifar: Mig langar hér aö segja frá viðskiptum mínum við hjólbarða- verkstæði Sigurjóns hér í bæ. Eg lét umfelga þar dekk í sumar og vUdi þá það óhapp tU að felga af einu dekkjanna skekktist. Var það síðan lagað af hálfu verkstæðisins þannig aö felgan var rennd tU og átti það að vera fuUnægjandi. Eg setti síðan felguna með dekki í skottið og hugðist nota hjólið sem varahjól. Ekki þurfti ég að nota t>að fyrr en nú fyrir skömmu er ég setti vetrardekk undir bílinn. Þá kemur í ljós að felgan er enn svo bogin aö ég kem henni ekki upp á hjólskál- ina. Ég fer því aftur á hjólbarða- verkstæðið umrædda, sýni þeim felguna og fer fram á leiðréttingu minna mála. Það vildu þeir ekki hlusta á og sögöust hafa lagað felguna full- komlega og þetta sé hreinn uppspuni í mér. Eg vil taka það fram að ég hef sýnt tveim sérfróðum aöilum felguna og þeir hafa báöir dæmt hana ónothæfa i því ástandi sem hún er. Það virðist því að ég þurfi að sitja uppi með skaðann og ný felga kostar um 3000 kr. Mér er því spum: Hver er eiginlega réttur neytandans í málum sem þessum eöa er hann kannski enginn ? DV hafðt samband viö eiganda umrædds hjólbarðaverkstæðis: Hann sagðist muna eftir þessu atviki sem skeð hefði í vor. Felgan hefði þá verið löguð og síðan sett undir bílinn. Viögerðin hefði kostað um 2000 kr. og skaðinn sem unninn var á felgunni hefði þar meö verið f uUbættur. DV hafði því næst samband við skrif- stofu Neytendasamtakanna: Þar fengust þær upplýsingar að í tilviki sem þessu lægi sönnunarbyrðin hjá neytandanum eða eiganda felgunn- ar. En þar sem í þessu máli væri um að ræða staöhæfingu eigandans gegn staðhæfingu verkstæðisins gæti reynst mjög erfitt fyrir felgueigandann að sanna sitt mál. Það yrði hann hins veg- ar að gera ætti hann aö fá skaðann bættan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.