Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Síða 21
DV. MÁNUDAGUR 29. OKTOBER1984.
21
Pétur leikur
með Sunderland
— og Einar Þorvarðarson besti
markvörðurinn á NM
Þjálfarar allra landsliða Norður-
landanna í handknattleík komu saman
á fund í Helsinki — eftir Norðurlanda-
mótið þar sem ákveðið var að halda
sérstaka norræna þjálfararáðstefnu á
Islandi á næsta ári.
— Þjálfararnir voru mjög hissa á
hvaö íslenska liöið var sterkt þegar
þaö var tekið með í reikninginn að sex
af þeim íslensku leikmönnum sem tóku
þátt í 01 í Los Angeles höfðu ekki leikið
með íslenska liðinu i Helsinki, sagði
Jón Hjaltalín, formaður HSI.
Jón sagði að þjálfaramir hefðu verið
sammála um að Kristján Arason hefði
verið besti sóknarleikmaðurinn á NM
og Einar Þorvarðarson besti mark-
vörðurinn.
Kristján var jafnframt markahæsti
leikmaður NM —skoraði 30 mörk í
f jórum leik jum.
-sos.
• Pétur Guðmundsson — er nú byrjaður að leika körfuknattleik í Englandi.
• Kristján Arason.
Einar Þorvarðarson.
— Fyrsti íslenski körfuknattleiksmaðurinn til að leika
„Þetta er nokkuð mikil tilbreyting
frá því að leika í Bandaríkjunum og
mér líkar þetta ágætlega, sagði körfu-
knattleiksmaðurinn Pétur Guðmunds-
son en hann mun i vetur leika körfu-
knattleik með enska liðinu Sunderland.
Eins og kunnugt er hefur Pétur undan-
farin ár dvalið í Bandaríkjunum en
ekki gengið sem skyldi að festa sig þar
i sessi. Það voru siðan forráðamenn
Sunderland, sem er eitt besta körfu-
knattleikslið Englands, sem settu sig í
samband við Pétur og dæmið gekk
upp.
Pétur verður hjá liöinu í vetur eins
og áður sagði en óvíst er hvort hann
verður lengur í Englandi. ,j5g er enn-
þá að hugsa um að komast í atvinnu-
Kristján besti
sóknarleikmaðurinn
íEnglandi
mannadeildina í Bandaríkjunum og ég
er ekki það gamall ennþá aö það ætti
að geta tekist. Hér fæ ég góða reynslu
og stefni að því að standa mig vel hér,”
sagði Pétur Guðmundsson.
—SK.
íþróttir íþróttir Iþróttir
• Bogdan — landsliðsþjálfari.
„Þetta er besti árangur
íslands á Norðurlandamóti”
— sagði Jón Hjaltalín, formaður HSÍ, eftir að ísland tryggði sér silfursæti á NM í Helsinki
„Bíðum eftir
grænu Ijósi
f rá Póllandi
— um að Bogdan fái
að vera héráfram
framyfirHM 1986/’
segirJón Hjaltalín,
formaðurHSÍ
— Við erum nú að vinna að því að
Bogdan verði áfram landsliðs-
þjálfari fram yfir HM-keppnina í
Sviss 1986. Bogdan hefur áhuga á
að vera með landsllðið og ljúka
HM-verkefninu, sagði Jón
Hjaltalín, formaður Handknatt-
leikssambands tslands, í stuttu
spjalli við DV i gærkvöldi.
Jón sagði að HSI væri aö senda
íþróttamálaráðherra Póllands bréf
þar sem óskað er eftir því að
Bogdan fái leyfi til aö vera áfram á
Islandi sem landsliðsþjálfari —
fram yfir HM í Sviss. — Við von-
umst eftir aö fá svar frá Pólverjum
fyrir áramót, sagði Jón.
— Bogdan hefur gert góða hluti
með landsliðið og við munum reyna
að gera allt til að hann verði áfram
með það fram yfir HM.
— Við bíðum nú eftir grænu ljósi
frá Póllandi, sagði Jón. -SOS.
— Eg er mjög ánægður með árangur
íslenska liðsins sem náði silfursætinu
og þar með sinum besta árangri á
Víkingar
þurfatil
Noregs
Forráðamenn norska llðsins Fjall-
hammer, sem er mótherji Víklngs í
Evrópukeppni bikarhafa, hafa tilkynnt
Víkingum að þeir séu hættir við aö
ieika báða Evrópuleiklna á tslandi —
ætla að lelka heima og heiman.
Evrópulelkir liðanna fara fram nú í
þessari viku og bendir ailt til að Vik-
ingar leiki Evrópuleik sinn í Hafnar-
firði ef verkfall BSRB veröur ekkl
leyst.
-SOS.
Norðurlandamóti fram til þessa, sagði
Jón Hjaltalín, formaður HSt, eftir að
NM í Helsinki lauk í gær.
Jón sagði að það væri ljóst að tsland
tefldi nú fram besta landsliði sem við
hefðum átt. Liðsheildin er geysilega
strek þar sem allir leikmenn leggja sig
fram að vinna hver fyrir annan án þess
að sé verið að spila sérstaklega fyrir
einstaka stjörnuleikmenn, eins og
hefur verið gert í islenska landsliðinu
undanfarin ár, sagði Jón.
Jón sagði að Svíar og Danir hefðu
lýst yfir aðdáun — yfir leik íslenska
liðsins, sem var yfirvegaður og góður.
— Við eigum nú mjög gott landslið sem
viö erum ánægðir með.
— Sigurinn gegn Svíum. Okkar fyrsti
sigur yfir þeim síðan í HM-keppninni í
Bratislava í Tékkóslóvakíu (12—10)
1964, var sætur og sýndi að við getum
lagt Svía að velli hvar og hvenær sem
er,sagði Jón.
Kristján góður
Jón sagði að Kristján Arason hefði
sprungið út í Helsinki — sýnt frábæra
leiki og skoraði mikið af mörkum með
þrumuskotum utan af velli. Hans Guð-
mundsson og Viggó Sigurðsson, sem
léku að nýju með landsliöinu, skiluðu
hlutverkum sínum vel og einnig þeir
Steinar Birgisson og Jakob Sigurðsson.
Einar Þorvarðarson var snjall í mark-
inu. Svona má lengi telja en liðsheildin
var aðall okkar — hreint frábær, sagði
Jón.
Erum að byggja upp lið fyrir
HM
— Þetta var fyrsti hluti af uppbygg-
ingu landsliðsins fyrir HM-keppnina í
Sviss 1986 og það verður haldið áfram
að byggja landsliðið markvisst upp.
Ungu leikmennimir Karl Þráinsson og
Geir Sveinsson, sem léku hér sína
fyrstu landsleiki, eru menn framtíðar-
innar. Þeir fengu sína eldskirn og þeir
eiga eftir að öðlast meiri reynslu á
næstunni, sagði Jón.
Þá sagöi Jón að undirbúningur
Bogdans heföi verið afar góður og
stjómun liðsins, innáskiptingar og
annað, til fyrirmyndar.
— Nú er bara aö fylgja þessu eftir og
lyfta merki Islands enn hærra á loft,
sagði Jón Hjaltalín.
-SOS
j"Bergþór ]
■ bestur ;
| hjáVal |
1 Bergþór Magnússon miðvaliar- ■
| spilari var i gær útnefndur knatt-1
spymumaður ársins 1984 hjá Val, I
er Valsmenn efndu til uppskeruhá- ■
tíðar i gær. Þá fékk Guðmundurl
Kjartansson einnig viöurkenningu *
— fyrirgóðaframmistöðuísumar. I
■SOS "
m mmm mmm m mmm mmm mmm mmm J