Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Page 24
24
DV. MÁNUDAGUR 29. OKTOBER1984.
íþróttir
íþrótt
íþróttir
íþróttir
„Strákarnir börð
ust grimmilega”
»Þorbergur AÖalsteinsson.
Þorbergur
meiddist
áhné
Þorbergur Aöalsteinsson
meiddist í landsleiknum gegn
Svíum á NM, þannig að hann gat
ekki leikið með gegn Dönum og
Norðmönnum. Þorbergur lenti í
samstuði við einn sænska leik-
manninn meö þeim afleiðingum að
hann tognaði á hné — það tognaði á
vöðvafestingum. Þorbergur hefur
verið í læknismeðferð í Finnlandi
og mun hann að öllum líkindum
geta leikið með Víkingi gegn
Fjallhammer í Evrópukeppninni.
-SOS.
Sigurður
rétt náðií
flugvél
til Spánar
Sigurður Gunnarsson þurfti aö
fara af leikvelli áður en lands-
leikurinn gegn Dönum á NM var
búinn þar sem hann þurfti að ná í
flugvél til Spánar. Það mátti ekki
tæpara standa, því að Sigurður var
næstum því búinn að missa af flug-
vélinni. -SOS
Tværkrónur
á hvern
íslending
Kostnaðurinn við undirbúning og
þátttöku íslands hjá NM í hand-
knattleik í Helsinki var hálf milljón
kr. — Við vonumst til að við fáum
þessa góðu ferð fjármagnaða,
sagði Jón Hjaltalín, formaður HSÍ.
Þegar að er gáð þá er kostnaðurinn
aðeins tvær krónur á hvern íslend-
ing, sagði Jón.
Jón sagöi aö íslenska þjóöin
mætti vera hreykin af hvaö við Is-
lendingar eigum gott landsliö. —
Þaö hefur vakið mikla athygli hér í
Finnlandi hvað fámenn þjóð eins og
Island á gott handknattleikslið,
sagði Jón.
— og uppskáru eftir því, sagði
Bogdan, landsliðsþjálfari íslands
— Ég er ánægöur með árangurinn
hjá strákunum hér i Helsinki. Þeir
börðust grimmilega og samstaöa
þeirra var frábær, sagði Bogdan,
landsliðsþjálfari tslands, í stuttu
spjalli við DV í gærkvöldi aö loknu
Norðuriandamótinu í handknattleik.
— Markvarslan var góö hjá okkur,
varnarleikurinn einnig og þá var yfir-
vegun í sóknarleik okkar. Ungu strák-
arnir í liðinu skiluöu hlutverkum
sínum vel þegar þeir fengu að spreyta
sig, sagði Bogdan.
Bogdan sagði að hann heföi sér-
staklega verið ánægður með leikinn
gegn Svíum sem var talinn besti leikur
mótsins. — Við náðum fljótlega góðum
tökum á Svíum sem við slepptum ekki.
Þá sýndi Einar Þorvarðarson snilldar-
markvörslu — fékk t.d. aðeins á sig
þrjú mörk á 25 mín. kafla sem hafði
mikið að segja, sagði Bogdan.
— Ertu bjartsýnn á framhaidið?
— Já, það er ekki hægt annaö. Við
stefnum að því að gera góða hluti í A-
keppni HM í Sviss 1986. Undir-
búningurinn fyrir HM í Sviss veröur
bæði strangur og erfiður. Leikmenn
eru tilbúnir til aö leggja mikið á sig,
sagði Bogdan.
Bogdan sagði aö það væri ljóst að
kostnaðurinn við þann undirbúning
yröi mikill. — Við vonumst eftir góðum
stuöningi og ef hann kemur þá þurfa
Islendingar ekki að óttast framtíðina.
Þeir eiga marga snjalla handknatt-
leiksmenn, sagði Bogdan.
-sos.
Pétur Pétursson sést hér skora gegn PEC á dögunum en þá skoraði hann tvö
„Danaleikurinn
tók á taueamar”
- þar sem mikið var í húf i, sagði Þorbjörn
Jensson, fyririiði íslenska landsliðsins
— Ég er mjög ánægður með árangur
okkar hér í Helsinki, enda ekki hægt
annað. Þetta er besti árangur okkar á
Norðurlandamóti, sagði Þorbjörn
Jensson, fyrirliði íslenska landsliðsins
í handknattleik. Þorbjörn sagði að
sigurinn gegn Svíum hefði verið sætur.
— Það var sigur liðsheildarinnar og
ekki skemmdi það að Éinar Þor-
varðarson átti stórleik í markinu,
sagði Þorbjörn.
Einar fór á kostum í markinu —
varði alls 20 skot í leiknum. Þá áttu
Svíar ekkert svar við stórleik
Kristjáns Arasonar sem skoraði ellefu
URSLIT
Úrslit í leikjum á NM í handknattleik
og lokastaðan varð þessi:
Island—Finnland
Danmörk—Noregur
32-13
23-17
Danmörk—Finnland
ísland—Svíþjóð
27—23
22—20
Danmörk—ísland
Noregur—Svíþjóð
26-22
22—21
ísland—Noregur
Svíþjóð—Finnland
22-19
26—21
Danmörk—Svíþjóð
Noregur—Finnland
24—21
30-20
Danmörk
Island
Noregur
Svíþjóð
Finnland
4 4 0 0 100—83 8
4 3 0 1 96-78 6
4 2 0 2 88-84 4
4 1 0 3 88-89 2
4 0 0 4 77—115
mörk, flest með fallbyssuskotum utan
af velli.
Þeir sem skoruðu mörk Islands gegn
Svíum, voru: Kristján 11, Hans 3, Þor-
bjöm 2, Steinar 2, Siguröur 2, Páll 1 og
Jakobl.
Taugaleikur gegn Dönum
— Við náðum okkur aldrei verulega
á strik gegn Dönum. Leikurinn var úr-
slitaleikur NM og tók hann á taug-
arnar. Það var slæmt að Þorbergur
Aðalsteinsson gat ekki leikið meö og þá
gat Sigurður Gunnarsson ekki einbeitt
sér því að hann varö aö fara áður en
leiknum lauk — til að ná í flugvél til
Spánar, sagði Þorbjörn.
— Danir voru yfir, 12—10, í leikhléi,
en síðan náðum við að jafna, 12—12, og
síðan var jafnt þar til staöan var 17—
17. Danirnir voru sterkari á lokasprett-
inum og unnu 26—22, sagði Þorbjöm.
Þeir sem skoruðu mörkin gegn
Dönum, vom: Kristján 5, Sigurður 5,
Þorgils Ottar 4, Hans 2, Viggó 2, Páll 2,
Jakob logSteinarl.
Þreytan sagði til sín
Leikurinn gegn Dönum var á laugar-
dagsmorgun og síöan var leikið gegn
Norðmönnum seinna um daginn.
— Sá leikur var afar erfiöur, enda
vorum við orönir þreyttir, sagði Þor-
björn.
Islendingar unnu Norðmenn, 20—19.
Þeir sem skomðu mörkin í leiknum,
voru: Hans 6, Viggó 5, Kristján 5,
Steinar2,Pálllog Jakobl. -SOS.
> Þorbjöra Jensson.
Svíar brugðust og
silfur tii Islands
Danir sigruðu Svía, 24-21, og urðu þar með Norðurlandameistarar
„Þetta hefur verið mjög góð ferð í
aila staði og ég held að hægt sé að
segja með góðri samvlsku að
íslenska iandsliöið hafi staðið sig
mjög vel. Menn em ánægðir þrátt
fyrir að Norðurlandameistaratitill-
inn hafi runniö okkur úr greipum,”
sagði Guðjón Guðmundsson, aðstoð-
íhandknattleik 1984
arþjálfari landsliðsins í handknatt-
leik, í samtali við DV í gærkvöldi,
Eftir að íslenska liðið tapaði fyrir
Dönum varð ljóst að til þess að okkur
mætti takast að sigra á mótinu
urðum við aö sigra Norðmenn og
Danir að vinna Svía. Islenska liöið
vann Noreg 20—19 en Svíum tókst
ekki aö leggja Danina að velli. Danir
sigmðu 24—21 og var sá sigur aldrei i
hættu, Baunarnir betri ailan tímann.
Danir urðu því Norðurlandameistar-
ar 1984. Island varð í ööru sæti og
Norðmenn höfnuöu i þriðja sætinu.
I
(þrótt
(þrótt
(þróttir
Iþróttir