Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Page 26
26 DV. MANUDAGUR 29. OKTOBER1984. íþróttir íþróttir íþróttir fþróttir Bjórkrá notuð sem búningsklefi • Kenny DalgUsb lagöi upp bæði mörk Liverpool. Liverpool lagði Forest — á City Ground, 2:0, ígær Frá Sigurblrni Aðaisteinssyni, fréttamanni DV í Englandi: — Liverpooi lyfti sér heldur betur frá botninum þegar félagið lagði Nottingham Forest að veUi, 2—8, á City Ground í Nottingham í gær. 19.838 áhorfendur sáu leiklnn, sem var sjónvarpað bebit um Bret- landseyjar, og er það met hjá Forest í ár. Það var hart barist um miöjuna og fór leikurinn að mestu fram þar þannig að markverðir Uöanna höfðu ekki mikið að gera framan af. Það var á 36. mín. sem Liver- pool skoraði fyrra markið. Kenny Dalglish braust þá skemmtilega upp hægri kantinn og sendi knöttinn fyrir mark Forest þar sem Ronnie Whelan var á auöum sjó og skallaði knöttinn í netið —1—0. Ian Rush skoraði seinna markiö á 50. mín. einnig eftir sendíngu frá Dalglish. Það var dæmigert mark fyrir Rush — skoraði með poti af tveggja metra færi. Eftir þetta sóttu leikmenn Forest meira en Bruce Grobbelaar, mark- vöröur Liverpool, kom í veg fyrir að þeir skoruöu. Hann varði eitt sinn mjög glæsilega — tvívegis í röð, skot frá Peter Davinport. Líverpool var í þriðja neðsta sæti í 1. deild fyrir leikinn í gær. -SigA/-SOS. Curran fær strang- an dóm Frá Sigurbirni Aðalstetnssyni, fréttamanni DV í Englandi: — Terry Curran hjá Everton á nú yfir höfði sér strangan dóm fyrir óprúðmannlega framkomu á leik- velli. Hann lét annan línuvörð i leik Everton og Watford fá það óþvegið — kallaði hann öllum illum nöfnum. Línuvörðurinn, sem er blökkumaður, fékk glósur á sig eins og: — „Þú ættir frekar að vera með banana uppi i tré heldur en línuvörður.” -SigA/-SOS. - þegar leikmenn QPR komu í heimsókn til Norwich ★ Allt gengur á afturfótunum hjá Aston Villa sem tapaði stórt, 0:5, í Leicester Frá Sigurbiml Aðalsteinssyni, frétta- manni DV í Englandl: Lelkmenn QPR þurftu að nota bjór- krá við Carrow Road í Norwich sem búningsklefa á laugardaginn þegar þelr mættu leikmönnum Norwich. Eins og komið befur fram kviknaði í áhorf- endastúkunni á Carrow Road þannig að búningsklefarnlr eyðilögðust. Leik- menn Norwlch þurftu að skipta um föt í lögregiuklefa vailarins. Það var gamla kempan Mike Channon sem var maður leiksins. 14.731 áhorfandi sá þennan 36 ára leikmann sem lék sinn 850. deildarleik, sýna snilldartakta — hann hefur engu gleymt af göldrum knattspyrnunnar. Eftir aöeins 7 mín. var hann búinn að senda knöttinn í netið hjá QPR og var markið hans 297. deildarmark. John Deehen gulltryggði síöan sigur Norwich — 2—0. QPR hefur enn ekki unnið sigur á úti- velli. Turner öskraði eftir öllum gönyum Það er mikil ólga í herbúðum Aston Villa, þar sem Graham Turner er við völd. Turner hreinlega trylltist eftir 0—5 tap fyrir Leicester á Filbert Street — kkaði leikmenn sína inni i búnings- klefa eftir leikinn og hélt þrumuræðu yfir þeim. öskur hans og hamagangur heyröust um alla ganga á Filbert Street. ÚRSUT Úrslit uröu þessi í ensku knattspyrnunni á laugardaginn: l.deild: Chelsea—Ipswich 2-0 Coventry—Sheff. Wed. 1-0 Everton—Man. Utd. 5-0 Leicester—Aston Villa 5-0 Norwich—QPR 2-0 Nott.For.—Liverpool 0-2 Sunderland—Luton 3-0 Tottenham-Stoke 4—0 Watford—Newcastle 3—3 WBA—Southampton 0-0 West Ham-Arsenal 3—1 2. DEILD: Barnsley—Charlton 1-0 Birmingham-Oxford 0-0 Cardiff—Grimsby 2-4 Carlisle—Huddersfield d-0 C. Palace—Fulham 2-2 Leeds—Middlesbrough 2-0 Man. City—Blackburn 2-1 Oldham—Notts. C. 3-2 Portsmouth—Wolves 0-1 Sheff. Utd.—Wlmbledon 3-0 Shrewsbury—Brighton 0-0 3. DEILD: Boumcmouth—Preston 2-0 Brentford—York 2-1 Brlstol R.-Hull 1-1 Buraley—Bolton 3—2 Cambridge—Swansea 0-2 Doncaster—Plymouth 4-3 Giilingham—Bradford 2-2 Lincoln—Reading 5—1 Millwall—Bristol C. 1-1 Rotherham—Derby 2-0 Walsall—Newport 1-1 Wigan—Orlent 4—2 4.DEILD: Aldershot—Southend 6-2 Blackpool—Northampton 2-1 Bury—Scunthorpe 0-1 Chester—Chesterfield 1-1 Colchester— Halifax 1-3 Crewe—Rochdale 3-1 Exetcr—Darlington 1—1 Hartlepool—Mansfield 0-0 Hereford—Wrexham 2-1 Port Vale—Peterborough 3-1 Swindon—Stockport 4-0 Trabmere—Torquay 3-1 Leikurinn fór fram á laugardags- morgni. Forráðamenn Leicester tóku þá ákvörðun til að forðast aö drukknir menn myndu valsa um á áhorfenda- bekkjunum með læti. Þessi ráðstöfun kostaði það aö 3000 færri áhorfendur komu á leikinn. Aðeins 11.885 áhorf- endursáuhann. Gary Linkeker skoraði þrjú mörk fyrir Leicester og það tók hann aðeins 33 mín. aö skora þau. Hann skoraði á 5., 11. og 33. mín. Steve Lynex skoraöi fjórða markið á 44. mín. úr vítaspymu og síðan skoraði Peter Eastoe, sem Leicester er með i láni frá WBA, fimmta markið. Dixon skoraði tvö Chelsea hafði heppnina með sér á Stanford Bridge þar sem félagið lagði Ipswich að velli, 2—0. Kerry Dixon skoraði bæði mörk Chelsea — fyrst eftir undirbúning Paul Canoville og síðan eftir sendingu frá Keith Jones. 29.213 áhorfendur. • Terry Gibson tryggði Coventry sigur, 1—0, yfir Sheffield Wed. 14.348 áhorfendur sáu snilldarleik Steve Ogrizovic í marki Coventry — hann varði hvaö eftir annaö stórglæsilega. • 12.454 áhorfendur sáu David Cross leika sinn fyrsta leik fyrir WBA í sjö ár þegar Albion gerði jafntefli, 0—0, við Southampton. Hann kom til WBA frá Kanada þar sem hann hefur leikið meö Vancouver. • Sunderland lagði Luton að velli, 3— 0. 15.280 áhorfendur sáu þá Gordon Chrisholm, Rodger Wylde og Nick Pickering skora mörkin. öruggt hjá Tottenham Peter Shreeves, framkvæmdastjóri Tottenham, tók þá ákvörðun fyrir leik félagsins gegn Stoke að taka þá Garth Crooks og Mike Hazard út en þeir hafa verið bestu leikmenn Tottenham að undanförnu. I staðinn setti hann inn gullkálfana Glenn Hoodle og Clive Allen. Allen skoraði tvö mörk — á 5. og 75. min. Nígeríumaðurinn John Chiedozie, sem var besti maður leiksins, skoraöi eitt og fjórða markið skoraöi Graham Roberts úr vafasamri vítaspyrnu. • George Berry hjá Stoke var rekinn af leikvelli. 24.477 áhorfendur sáu leik- inn. Markaregn Enn eitt markaregnið var á heima- velli Watford á laugardaginn þegar félagið gerði jafntefli, 3—3, við New- castle. Leikmenn Watford voru mun betri en það voru leikmenn Newcastle sem skoruðu tvö fyrstu mörk leiksins — fyrst Neil McDonald og síðan Peter Beardsley. I seinni hálfleik náðu þeir Luther Blisset og Worrell Sterling að jafna metin. Ken Wharton skoraði síö- an, 3—2, fyrir Newcastle — þvert á gang leiksins — á 81. mín. en það var svo Blissett sem jafnaði, 3—3, með þrumuskoti á 88. mín. 18.753 áhorfend- ursáuleikinn. • Birmingham og Oxford gerðu jafn- tefli, 0—0, í toppslag 2. deildar. Jim Smith, framkvæmdastjóri Oxford, kom í fyrsta skipti i tvö ár til St. Andrews. Hann var framkvæmda- stjóri Birmingham en var rekinn. • Peter Lorimer og Andy Ritchle skoruðu mörk Leeds — 2—0 — gegn „Boro”. -SigA/-SOS • Mike Channon, markvarðahrellirinn mikli, átti stórleik með Norwich. Billy Bond fór á kostum — þegar West Ham lagði Arsenal að velli, 3:1, á Upton Park Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta- manni DV í Englandi: — Ég er í sjöunda himni yflr þessum sigri og ánægður vegna leikmanna minna sem lengi hafa staðlð í skugg- anum af Arsenal og Tottenham sem hafa getað keypt dýra leikmenn á færl- bandi. Leikmenn mínir eru nú að ná sér á strik og þeir ætla sér að vera með í baráttunni um Englandsmeistara- titilinn, sagði John Lyall, fram- kvæmdastjórl West Ham, eftir að félagið hafðl lagt Arsenal að velli, 3—1, á Upton Park í London. — „Þrátt fyrir þetta tap ætla ég ekki að skamma mína leikmenn. Leikurinn var góður og hann veitti 33.218 áhorf- endum góöa skemmtun, sagði Don Howe, framkvæmdastjóri Arsenal. Arsenal lék án þriggja lykilmanna — Paul Mariner, Tony Woodcock og Tommy Cathon — í leiknum sem þótti mjög góður. Maður leiksins var gamla brýnið Billy Bond, sem var hreint óstöðvandi. Hann lagði upp tvö fyrstu mörk West Ham eftir að varnarleikmenn Arsenal höfðu sofnað á verðinum. Fyrst átti hann snjalla sendingu inn á Tony Cottee á 28. mín. og átti Cottee, sem var á auöum sjó, ekki í erfiðleikum með að skora. Síðan var Bond aftur á ferðinni á 36. mín. með frábæra send- ingu á Paul Goddard sem skoraði, 2— 0. Brian Talbot var nærri búinn að skora fyrir Arsenal stuttu seinna en Tom McAllister, markvörður „Hamm- ers”, var vel á verði og varði snilldar- lega. Hann réð aftur á móti ekki við skot Tan Allinson á 44. mín. — þrumu- skot af 25 m færi sem þandi út neta- möskvana — 2—1. Það var svo Geoff Pike sem innsigl- aöi sigur West Ham á 49. mín. og þar viðsat. -SigA/-SOS • Billy Bond fór á kostum gegn Arsenal. íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.