Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Side 27
DV. MANUDAGUR 29. OKTOBER1984.
27
íþróttir
(þróttir
(þróttir
(þróttir
Stór skellur hjá Manchester United:
Atkinson med „messu”
á Goodison Park
Frá Sigurbimi Aðalsteinssyni, fréttamanni DV í Eng-
landi: — Það var geysileg stemmning á Goodison Park í
Liverpool þar sem 4Q.769 áhorfendur sáu Everton hrein-
lega tæta í sundur milljónarlið Manchester United og
vinna stórsigur, 5—0. Það er liðið 21 ár síðan United hefur
fengið meira en fjögur mörk á sig á Goodison Park —
félagið átti aldrei möguleika gegn frábærum leikmönnum
Everton.
Ron Atkinson, framkvæmdastjóri
United, var óhress eftir leikinn. Hann
lokaöi leikmenn sína inni í búnings-
klefa í klukkustund og hélt þar messu
yfir þeim. Þegar hann kom út úr
búningsklefanum ræddi hann viö
fréttamenn og eins og fyrri daginn,
sagði hann ekkert neikvætt um leik-
menn sína. — Þetta tap er það versta
sem lið undir minni stjóm hefur mátt
þola, var þaö eina sem hann sagði við
fréttamenn.
Sheedy hetja Everton
Kevin Sheedy, leikmaðurinn snjalli.
Það verður
hart barist
Margir stórleikir í
3. umferð ensku
deildabikarkeppninnar
Frá Sigurblmi Aðalsteinssynl, frétta-
manni DV í Englandi:
— Það verða margir hörkuleikir í
þriðju umferð ensku deildablkar-
keppnlnnar. Tottenham fsr Llverpool í
helmsókn á White Hart Lane og
Manchester United dróst gegn Everton
—leikið verður á Old Trafford.
Arsenal, sem er nú efst í 1. deild,
leikur á útivelli gegn efsta liðinu i 2.
deild, —Oxford.
Annars varð drátturinn þessi í
ensku deildabikarkeppninni:
Birmingham—WBA
Ipswich—Newcastle
Lceds—Watford
Luton—Leicester
Man. Clty—West Ham
Man. Utd.—Everton
N orwich—Aldershot
Nott. Forest—Sunderland
Notts County—Bolton
Oxford-Arsenal
QPR—Aston Vllla
Rotherham-Grlmsby
Sheff. Wed—Fulham
Southampton—Wolves
Tottenham—Liverpool
Walsail—Chelsea
gnu ■■■ mm mm mm m mmm mmm
Barinn >
til óbóta
Reuben Agbooiar, varnarleik-
maður hjá Southampton, komst í
hann krappan í næturklúbbnum
Boogles þegar nokkrir áhangendur
Portsmouth veittust að honum.
Þegar ljóst var aö harka myndi
færast l leikinn fór einn dyravarða
staðarins til Agboolar og bað hann
að yfirgefa staðinn, sem hann og
gerði. Það var þá fyrst sem ballið
byrjaði því að fyrir utan nætur-
klúbbinn ruku tveir menn á Agbool-
ar og lumbruðu hressilega á honum
— tennur brotnuðu, hann fékk ljót-
an áverka á höfuðið og nokkur rif-
bein brotnuðu. Agboolar varð að
dveljast tvo daga á sjúkrahúsi í
Southampton til að jafna sig.
-sos.
sem hafði misst af sex leikjum, lék að
nýju með Everton og stóö sig vel —
skoraði tvö fyrstu mörk liðsins á 5. og
25. mín. Hann varð að yfirgefa völlinn
á 68. mín. þar sem hann fékk skurð á
Okkar maður
í Englandi
Sigurbjöm Aðalsteins-
son skrifar frá London
STAÐAN
1. DEILD
Arsenal
Everton
Tottenham
Sheff. Wed.
West Ham
Man. Utd.
Nott. Forest
Sunderland
Southampton
Newcastle
Chelsea
Ipswich
Liverpool
Q.P.R.
Norwich
Aston Villa
WBA
Coventry
Leicester
Luton
Watford
Stoke
12 8
12 7
12 7
12 6
12 6
12 5
12 5
12 4
12 4
12 4
12 4
12 3 6
12 3 5
11 3
12 3
12 4
12 3
12 3
12 3
12 3
12 1
11 1
26—16 25
24— 18 23
25— 11 22
24—15 21
20-19 21
20-14 20
20-17 18
18— 15 17
15—14 17
24—24 17
15- 11 16
14-14 15
14- 14 14
19— 21 14
16- 18 14
17- 27 14
17— 16 13
9—14 12
18- 27 12
15- 24 12
23-29 8
11—26 7
2. DEILD
Oxford 11 8 2 1 26—9 26
Blrmingham 12 8 1 3 16-8 25
Blackbum 12 7 3 2 25—11 24
Portsmouth 12 7 3 2 18—11 24
Bamsley 12 6 3 3 14—7 21
Grimsby 12 7 0 5 24-20 21
Brlghton 12 6 2 4 15—8 20
Shrewsbury 12 6 2 4 22—16 20
Man. City 12 6 2 4 17—12 20
Leeds 12 6 1 5 20—12 19
Fulham 12 6 1 5 20-21 19
Oldham 12 5 2 5 15-23 17
Wimbledon 12 5 1 6 20—24 16
Charlton 12 4 3 5 18—14 15
Huddersfield 12 4 3 5 11—17 15
Wolves 12 4 2 6 17-23 14
Sheff. Utd . 12 3 4 5 19—22 13
Middlesbrough 12 4 1 7 16—23 13
Carllsle 12 3 2 7 7-20 11
C. Palace 11 2 2 7 11—18 8
Cardiff 12 2 0 10 15—29 6
Notts. C. 12 2 0 10 13—31 6
íþróttir
(þróttir
Graham Sharp hefur skoraði mikið
að undanförnu.
— eftirað milljónarlið hans
hafði verið tætt sundur af
Everton sem vann stórsigur, 5:0
höfuðið eftir samstuö við Kevin
Mooran. Það þurfti að sauma sex spor
íhann.
— Eg myndi giaöur fá sex spor fyrir
hvert mark sem ég skora, sagði
Sheedy eftir leikinn.
Adrian Heath skoraði þriðja mark
Everton á 35. mín. og Gary Stevens
það fjórða — með langskoti á 81. mín.
Þaö var svo Graeme Sharp sem gull-
tryggði sigur Everton á 85. mín. með
glæsilegum skalla eftir sendingu frá
Heath. Þetta var áttunda mark Sharp í
tiu leikjum.
Mótlætið fór í skapið á leikmönnum
United, sem áttu ekkert svar við stór-
leik Everton. Bryan Robson var
bókaður fyrir að mótmæla dómi og
Gordon Strachan fékk nafn sitt í svörtu
bókina eftir að hafa brotið á Heath.
-SigA/-SOS.
• Kevin Sheedy skoraði tvö mörk gegn
United.
Hvenær þarft þú
ápeningumaó
halda í fiamtíóinni ?
*
I Kjörbók Landsbankans verða ekki
kaflaskil við úttekt.
Það getur verið býsna erfitt að sjá nákvæmlega fyrir hvenær þörf er á
handbæru fe í iramtiðinni. Þá er lítið öryggi fólgið í því að eiga peninga undir
innlánsformi þar sem ávöxtunin lyppast niður við hverja úttekt.
Kjörbók Landsbankans rís undir úttektum, ávöxtun hennar er örugg og
stígandi. Berðu Kjörbókina saman við tilboð annarra banka.
Hafðu í huga að innstæður eru ávallt lausar til úttektar og að allt, sem eftir
stendur við úttekt, fær stighækkandi ávöxtun. Þú þarft ekki að sto'fna margar
bækur eða reikninga þó að þú þurfir að hreyfa hluta innstæðunnar á
sparnaðartímanum. Leitaðu til Landsbankans. Starfsfólk Landsbankans veitir
þér skýrar upplýsingar um hvaða sparnaðarform hentar þér best.
KJÖRBÓK LANDSBANKANS EINFÖLD BÓK — ÖRUGG LEIÐ
LANDSBANKINN
Grœddur er geymdur eyrir