Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Qupperneq 47
DV. MANUDAGUR 29. OKTOBER1984.
47
Það hefur verið örtröð i öllum videoleigum síðan sjónvarpið lokaði og
enginn séð eftir peningnum sem þangað hefur farið þó svo að hann sé mun
meiri en greitt er á éri fyrir afnot af sjónvarpi og útvarpi hér.
Sjónvarpslokunin
bjargar mörgum
videoleigunum
frá lokun
Mikið hefur verið að gera í video-
leigum um allt land síðan sjónvarpinu
var lokað 1. október. Er talið að sú
lokun hafi bjargaö fjölmörgum minni
videoleigum frá því aö leggja upp
laupana en búist hafði verið við að
margar þeirra myndu hætta nú í haust.
Að leigja eina mynd I sólarhring
kostar 100 krónur og að leigja video-
tæki kostar 400 krónur fyrir sólar-
hringinn. Það eru því nokkur hundruð
þúsundir sem hafa farið um peninga-
skúffurnar á videoleigunum þessar
nær f jórar vikur sem sjónvarpið hefur
verið lokað.
Margir hafa þegar eytt margfalt
meira í videospólur á þessum mánuði
en þeir greiða í afnotagjald fyrir út-
varp og sjónvarp á einu ári.
Við töluðum við tvo aðila í gær, sem
eru í hópi þeirra stóru í videobrans-
anum, og spurðum þá hvemig þessi
mánuður hefði verið.
„Það var örtröð hér um leið og sjón-
varpið lokaði og hefur verið síðan,”
sagði Ámi Sigvaldason í Sjónvarps-
búðinni Lágmúla 7.
,3ama er aö segja frá afgreiðslum
okkar á Akureyri og Keflavík. Þar
hefur verið allt á fullu og eins og
fimmtudagur sé á hver jum degi.
Sumir koma hér og taka 5 til 6
myndir í einu. Þetta er fólk sem er í
verkfalli og hefur ekkert annað að gera
en aö horfa á video. Þá hefur það
heldur ekki verið óalgengt að fólk
komi hér i þessu verkfalli um leiö og
viö opnum klukkan níu á morgnana og
taki eina eða tvær myndir og komi svo
aftur meö þær klukkan fjögur og taki
þá tvær eða þrjár myndir til að horfa á
um kvöldið,” sagði Ámi.
„Þaö hefur verið mjög mikiö að gera
hjá okkur þessar vikur,” sagði Leó
Pálsson hjá Myndbandaleigu kvik-
myndahúsanna sem er með afgreiðslu
á sex stöðum í Reykjavík og Akureyri.
„Þetta hefur örugglega hresst upp
á kassann hjá mörgum minni leigunum
enda hefur verið mikið aö gera á öllum
videoleigum sem ég þekki til síðan
sjónvarpið hætti útsendingum’’ sagði
Leó.
„Eg hef engar tölur yfir það sem
leigt hefur verið út en það er miklu
meira en venjulega,” sagði Leó sem
vonast sjálfsagt eins og fleiri er við
videoleigurnar starfa — maður talar
nú ekki um þá sem eru eigendur — aö
þetta ástand haldist sem lengst.
-klp.
Símtalið heyrist
í útvarpstækjunum
Þeir sem hafa verið að fikta við út-
varpstæki sín í leit að erlendum út-
varpsstöðvum að undanfömu hafa
margir hverjir komiö inn á samtöl
fólks sem er að talas t við í síma.
A dögunum heyrði t.d. fólk, sem
gleymdi að slökkva á Ríkisútvarpinu
eftir hádegisfréttir, aðfarið varaðtala
í útvarpið. Þegar að var gáð reyndist
þetta vera skiptiborð hjá stórfyrirtæki
í Reykjavík sem heyröist í — það er að
seg ja allt sem símadömurnar sögðu og
ýmislegt fleira.
Þá hafa margir heyrt símtöl milli
manna í útvarpstækjum sínum og
sumir sjálfsagt haft einhverja
skemmtun af.
Samkvæmt upplýsingum sem við
öfluðum okkur er ástæðan fyrir þessu
ekki verkfalliö eða bilun hjá Pósti og
síma. Þama mun vera um að ræða
hina svokölluðu fjarstýrðu sima sem
margir hafa keypt erlendis og flutt
hingaötillands.
Þetta eru þráölausir símar sem eru
mjög vinsælir — en heldur vafasamir
tilaðtala íeftirþessuaðdæma. Einnig
mun vera nokkuð algengt að heyra í
mönnum sem tala I bílasíma í útvarps-
tækjum. Nægir þá að annar sé að tala
úr slíkum síma og á það einnig viö um
f jarstýrðu símana í heimahúsum.
-klp.
OPIÐ KL. 8-21.45
ALLA
DAGA.
Fiskréttir frá kr. 110,-
Kjötréttir frá kr. 130,-
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njáisgötu 49 — Sími 15105
SMURT BRAUÐ OG SNITTUR
MAZDA eru
farandi atriði framkvæmd:
Skipt um kerti og platínur.
Kveikja tímastillt.
Blöndungur stilltur.
Ventlar stilltir
Vél stillt með nákvæmum stillitækjum.
Vél gufuþvegin.
Skipt um bensínsíu.
Rafgeymir, geymissambönd og hleðsla athuguð.
Kannaður bensín, vatns- eða olíuleki.
| Loftsía athuguð og hreinsuð, endurnýjuð 1 ef með barf.
Viftureim athuguð og stillt.
Slag í kúplingu og bremsupetala athugað.
Frostþol mælt.
Rúðusprautur stilltar og frostvari settur á.
Þurrkublöð athuguð.
Silikon sett á þéttikanta hurða og far- angursgeymslu.
Ljós stillt.
i Hurðalamir stilltar.
Þrýstingur í hjólbörðum athugaður.
Verð með söluskatti: Kr. 1.884.00
Innifalið í verði: Platínur,
kerti, ventlalokspakkning,
bensínsía, frostvari á rúðu-
sprautu og þar að auki: brúsi
af lásavökva og ný rúðu-
skafa í hanskahólfið!
Pantið í tíma í símum 81225
eða 81299
BÍLABÖRG Wr
Smiðshöfða 23 sími 812 99
ÞJONUSTA
Veðrið
Veðrið
Norðan kaldi - norðanlands og
austanátt sunnanlands, viða rign-
ing eða slydda á annesjum noröan-
lands og smáskúrir suðvestanlands
en b jart veður á Suðausturlandi.
f Gengið
, Gengisskróning
. NR. 206 - 25. OKTÚBER 1984 KL. 09.15
cining Kaup Sala Tollgengi
' Dollar 33,520 33,620 3332
Pund 40,936 41.058 41.409
Kan. dollar 25,491 25,568 25335
Dönsk kr. 3,0657 3.0749 3.0285
Norsk kr. 33107 3,8221 3.7916
Sænsk kr. 3,8892 3,9008 3.8653
Ft. mark 5,3080 5,3238 5.2764
Fra. franki 3,6076 3.6184 3.5740
Belg. franki 0,5475 0,5492 0.5411
Sviss. franki 13.4944 13.5346 13.2867
Holl. gyllini 93148 9,8441 9.7270
V-Þýskt mark 11,0718 11,1049 10.9664
lt. lira 031785 0,01791 0.01761
Austurr. sch. 1,5763 1,5810 1.5607
, Port. escudo 0.2060 0,2066 0.2073
Spá. peseti 0,1971 0,1976 0.1959
Japanskt yen 0,13665 0,13706 0.13535
jrskt pund 34307 34,309 33.984
SDR (sérstök 33,4578 33,5576
dránarrétt.)
Símsvari vegna gengisskráningar 2219(1
Útvarp
Dagskráin í dag.
Dagskrá útvarps verður eins og
undanfarna daga í verkfalli, fréttir
lesnar kl. 12.20 og kl. 19. Þá verða
veðurfréttir lesnar kl. 8.15, kl. 10.10, kl.
12.45, kl. 16.15, kl. 18.45, kl. 22.15, kl.
01.00, kl. 4.30 ogkl. 07.00.
Síðasta
rallkeppni
ársins
Sunnudaginn 4. nóvember verður
síðasta rallkeppni ársins haldin á
vegum B.I.K.R. og Hjólbarða-
hallarinnar en keppnin gefur stig til
Islandsmeistaratitils.
Ekið verður um Suðurnes og verður
keppnin u.þ.b. 250 km löng.
Halldór Ulafarsson er nú efstur í
keppninni um Islandsmeistaratitilinn
með 55 stig en óvíst er hvort hann
kemur til lansins í keppnina þar sem
hann er nú fluttur til Danmerkur.
Næstir honum að stigum eru þeir
Omar Ragnarsson meö 47 stig og Birg-
ir Þór Bragason með 38 stig. -FRI.
Rétt og jöfn
loftþyngd eykur öryggi,
bætir aksturshæfni,
minnkar eyöslu eldsneytis
og
nýtir hjólbaröana betur.
Ekki þarf fleiri orö um þetta
-NEMA -
slitnir hjólbaröar
geta orsakað alvarlegt
umferðarslys.
||X*0AR