Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1984, Blaðsíða 18
18
DV. LAUGARDAGUR 3. NOVEMBER1984.
STUNDUM ER GOTT
AÐ VERA EKKIFUGL
1 útlöndum hafa menn mikinn
áhuga fyrir íslenskum verkföllum
eftir því sem blöðin segja og væri því
kannski rétt fyrir ríkisstjórnina aö
skipa nefnd til að reyna aö afla þeim
markaða erlendis eins og alltaf er
verið aö gera varðandi fiskinn okkar
og lambakjötið með misjöfnum á-
rangri. Þetta þyrfti ekki aö vera
f jölmenn nefnd en hins vegar yröi aö
borga nefndarmönnum gott kaup og
senda þá ótt og títt til útlanda ásamt
eiginkonum og ráðuneytisstjórum
svo framarlega sem konumar eiga
heimangengt og einhver vill fá stjór-
ana tilbaka.
En nú er búið að tala svo mikið um
verkföll aö þessu sinni að ég ætla
heldur aö ræöa um permanent sem
sett er í háriö á konum og maöur tek-
ur ekki eftir fyrr en þær fara að
senda manni stingandi augnaráö yfir
eldhúsborðið á meðan maður er í
mesta sakleysi aö háma í sig plokk-
fiskinnsinn.
Ég er nefnilega með þeim ósköp-
um gerður, meðal annars, að þegar
konan mín kemur úr bænum geri ég
mér aldrei grein fyrir því hvort hún
hefur farið þangað til að fá sér
permanent eða til dæmis endumýja
miöana okkar í Happdrætti Háskóla
Islands sem viö spilum í til að
styrkja gott málefni, þó ekki af
ásettu ráði heldur vegna þess aö við
höfum einfaldlega aldrei fengiö vinn-
ing í því. En þegar konan mín fer
sem sagt að senda mér stingandi
augnaráö yfir eldhúsboröiö geri ég
mér grein fyrir því aö hún hefur ekki
farið í bæinn til að endurnýja.
Slátur
Svo var það einn sólrikan verk-
fallsdag, á meðan samninganefndir
vora í óðaönn að koma sér saman um
það að koma sér ekki saman um
neitt, að konan mín bað mig að
skutla sér í bæinn, hún ætlaði að fá
sérpermanent.
Á þeirri stundu fannst mér fátt
sjálfsagðara en verða við þeirri bón
en hins vegar skipti ég um skoðun á
Klapparstígnum því aö þar var mér
tilkynnt að nú færi ég inn á Laugar-
nesveg að sauma vambir. Þar átti
sem sagt að fara fram sláturgerð
sem konan min ætlaði aö taka þátt í
þegar hún væri búin aö gera sig
mátulega fína til höfuðsins.
Á Laugamesveginum var allt í
fullum gangi þegar ég kom, hús-
móðirin að sauma vambir, sonurinn
aö horfa á vídíóiö, húsbóndinn aö elta
páfagaukinn út um allt og dóttirin að
segja föður sínum hvernig best væri
að fara að því án þess að limlesta
kvikindið.
Þessi páfagaukur er nefnilega dá-
lítiö sérstakt fyrirbæri, hann getur
ekki talað, sem er viss galli á svona
fuglum, en það sem meira er, hann
getur ekki flogið heldur og líkist í því
efni hænsnum sem engum hefur dott-
ið í hug, mér vitanlega, aö setja í búr
og hafa til skemmtunar og skrauts í
stofunni sinni.
Þegar ég var í sveit í gamla daga
hafði enginn gaman af hænsnum
nema í þau örfáu skipti sem þurfti að
aflífa hanann. Þá var öllum börnum
skipað að fara inn í bæ svo þau sæju
ekki aðfarirnar en þau fóru hins
vegar á bak við fjós þar sem útsýniö
var einna best yfir aftökustaðinn.
Á'þessum tíma vom hanar sendir
inn í annan heim meö því móti að höf-
uðiö var höggvið af þeim með axi og
aö því búnu flugu þeir út um allt tún
með miklum fjaðraþyt en af eðli-
legum ástæðum litlum söng og þótti
þeim sem stóöu á gægjum viö fjós-
hornið þetta góð skemmtun í fásinn-
inu enda á þeim aldri að engum datt
annaö í hug en aö haninn hefði af-
skaplega gaman af þessu líka.
— Djöfuls kvikindið, var þaö
fyrsta sem ég heyrði þegar ég kom
inn í forstofuna á Laugarnesvegin-
um. Húsbóndinn á heimilinu var að
tala við páfagaukinn sinn eftir aö
hafa rekið sig á eitt hornið á sófa-
borðinu.
Húsbóndinn var oröinn þó nokkuð
æstur og þegar hann hoppaði upp í
ljósakrónuna bölvaði hann svo hroða-
lega að það er ekki hægt að hafa það
eftir á prenti og hann var enn að
bölva þegar heimilisprýðin, páfa-
gaukurinn þögli, magalenti í sófan-
um. Húsbóndinn vankaðist dálítiö
við það að skalla ljósakrónuna og sá
því ekki fuglinn. Hann tók því það
ráð, sennilega í örvæntingu sinni, að
æða öskrandi um stofuna og baða út
öllum öngum. öðruhvoru stansaði
hann þó, leit tryllingslega í kringum
sig og skrækti: Hvar ertu árans
beinið þitt.
Þegar hér var komið sögu sá ég að
við svo búiö mátti ekki standa, ég
varð aö hjálpa húsbóndanum að
handsama heimilisprýöina en gerði
því miöur það sem ég heföi átt aö
láta ógert. Ég skutlaði mér á
Beethoven sáluga sem stóð á borði
við hliöina á sófanum sem páfagauk-
urinn lá enn í og meiddi mig bara
talsvert því að þessir gömlu meistar-
ar eru þó nokkuð haröir þegar búiö
er að steypa þá í gif s eða brons.
Við vildum þó ekki gefast upp við
svo búið en eftir svona margar
misheppnaðar tilraunir við að hand-
sama einn fugl sem getur hvorki tal-
að né flogið fannst okkur rétt að
setjast niður og hugsa málið eins og
þeir gera í ríkisstjórninni þegar þarf
að ákveöa næstu gengisfellingu.
Eftir nokkrar umræður komum
við okkur saman um aö líklega væri
best aö læðast að kvikindinu
blístrandi lagstúf og þykjast ætla að
fara að vökva blómin eða draga
gardínurnar fyrir gluggana. Hús-
bóndinn fór því fram í eldhús aö ná í
könnu með vatni í en ég fór aö
blístra.
Þetta gekk alveg prýðilega,
húsbóndinn vökvaði blómin, ég
blístraöi Gamla Nóa og fuglinn lá
grafkyrr í sófanum. Smátt og smátt
færðum við okkur svo vökvandi og
blístrandi nær páfagauknum sem
átti sér einskis ills von og hefur sjálf-
sagt verið aö hugsa um þaö hvaö það
væri notalegt aö teygja úr sér í svona
góðum sófa og hlusta á öndvegistón-
BENEDIKT AXELSSON
verk blístruð á meðan húsbóndinn
væri að vökva blómin.
En á hárréttu augnabliki henti hús-
bóndinn frá sér könnunni, ég hætti að
blístra og við stukkum hvor á annan
en gauksi flaug eins og hvert annað
hænsn fram í eldhús og lenti þar í
balanum með rúsínuslátrinu sem
var tilbúiö undir saumaöar vambir.
Þar greip húsmóðirin á heimilinu
hann og skellti honum inn í búrið
hans um leið og hún hrópaöi til
okkar, fuglaveiðaranna í stofunni,
hvort við héldum að vambirnar
saumuðu sig sjálfar?
Eftirmáli
Löngu seinna kom konan mín í
sláturgerðina og um leiö og hún kom
inn úr dyrunum átti ég ekki orö yfir
þaö hvað hárið á henni væri fallegt,
þetta hlyti bara aö vera Islandsmet
eöa eitthvað svoleiðis.
I staö þess aö brosa blítt og þakka
komplímentiö sendi konan mín mér
stingandi augnaráö yfir eldhúsborðiö
um leið og hún tilkynnti mér að hún
hefði ekki fengiö neitt permanent,
hárgreiðslukonan hefði veikst
skyndilega og stofan því verið lokuð.
Mikiö þakkaöi ég guöi fyrir á
þessu andartaki að ég var ekki f ugl.
Kveðja
Ben. Ax.
Sigfiis og Vilhjálmur uiinu
Stóra-Flóridanamótíð
Um sl. helgi gekkst Bridgefélag Sel-
foss fyrir hinu árlega Stóra-Flóridana-
móti sem haldið er til minningar um
Einar Þorfinnsson.
I þetta sinn urðu heimamenn í fyrsta
sæti, Sigfús Þórðarson og Vilhjálmur
Þ. Pálsson unnu nokkuð ömgglega, en
þeir hafa fyrir löngu undirstrikaö getu
sína með ágætum árangri á liönum
árum.
Röö og stig efstu para vom annars
þessi:
1. Sigfús Þórðars.-Vilhj. Þ. Pálsson. 247
2. AsmundurPálss.-KarlSigurhjartars. 208
3. Jón P. Sigurjónss.-Sigfús ö. Árnas. 203
4. Gestur Jónss.-SigurjónTryggvas. 195
5. KristinnM. Gunnarss.-GunnarÞórðars. 187
6. Þórarinn Sigþórss.-Guðm. P. Arnars. 186
Þrjú efstu pörin fengu góö peninga-
verðlaun.
Spilið í dag er frá síðustu umferðum
mótsins og má segja aðSigfús hafi inn-
siglaðsigur þeirra félaga í því.
Austur gefur/allir utan hættu.
NOKttUK
A -
V D986542
0 DG73
* 53
Vl.Síi k Avsrvn
Á DG86 Á Á7542
V 73 G
ó ÁK1065 O 984
* Á2 * G964
SUOUK
A K1093
^ AK10
■ 2
* KD1087
Þar sem Sigf ús og Vilhjálmur sátu n-
s, gengu sagnir á þessa leið:
Austur Suður Vestur Norður
pass 2L dobl 2H
2S pass 4S 5H
dobl pass pass pass
Akvörðun Sigfúsar að berjast upp í
fimm hjörtu reyndist vel, því hann
vann spÚið auðveldlega eftir að austur
spilaöi út spaðaás.
Komi spaðaásinn hins vegar ekki út
þá veröur Sigfús að svína laufatíu til
þess að vinna spiliö.
Fyrir að vinna fimm hjörtu dobluö
fengust 650 eða 33 stig af 38 möguleg-
um.
Frá Bridgedeild
Skagfirðinga
Sl. þriðjudag hófst aöaltvímennings-
keppni félagsins sem er 5 kvölda baro-
meter með þátttöku alls 36 para. Spiluð
em 4 spil milli para. Eftir 7 umferöir (1
k völd) er staða ef stu para þessi:
1. Steingrimur Steingrimss.-Öm Scheving 105
2. Sigmar Jónsson-Vilhjálmur Einarss. 83
3. Guðni Kolbeinss.-Magnús Torfason 73
4. Arnar Ingólfss.-Magnús Eymundss. 68
5. Jón V. Jónmundss.-Sveinbj. Eyjólfss. 56
6. Bergur Þorleifss.-Björn Árnas. 54
7. Guðm. Ásmundss.-Guðm. Thorsteinss. 54
8. Rúnar Láruss.-Sigurður Láruss. 42
Keppni verður framhaldið í Drangey
nk. þriöjudagskvöld.
Því miður varð að neita fjölda para
um þátttöku í þessu móti, en á að giska
46—48 pör sóttu í þessa'keppni. Er þaö
stórkostleg fjölgun á spilurum hjá
deíldinni, svo mikil aö húsnæðið rúmar
það alls ekki.
Keppnisstjóri hjá Skagfirðingum er
Olafur Lárusson.
Stofnana/Fyrirtækja-
sveitakeppnin
Þátttakan í Stofnana/Fyrirtækja-
sveitakeppninni, sem Bridgesamband
Islands og Bridgefélag Reykjavíkur
standa að, hefur fariö fram úr björt-
ustu vonum forráðamanna keppn-
innar, miðað viö það ástand sem ríkt
hefur í þjóðfélaginu síðustu vikur. Vel
yfir 20 sveitir hafa þegar skráð sig til
leiks, þar af mörg af okkar stærstu
fyrirtækjum hér á landi.
Keppnin hefst miövikudaginn 7.
nóvember í Domus Medica kl. 19.30.
Síðan verður 2. umferð fimmtudaginn
15. nóvember, einnig í Domus Medica
og 3. umferð þriðjudaginn 20. nóvem-
berí Domus Medica.
Enn er pláss fyrir nokkur fyrirtæki
til að skrá sig og vera með í þessari
fyrstu Stofnanakeppni í sveitakeppni
hér á landi. Væntanlegar sveitir geta
haft samband við Olaf Lárusson hjá
Bridgesambandi Islands á mánudag
og þriðjudag í næstu viku í s: 18350.
Spilað verður eftir Monrad-fyrir-
komulagi, 3 eða 4 leikir á kvöldi (fer
eftir þátttöku). Vakin er athygli á því
að tveir eða þrír aðilar geta myndað
sveit í nafni þeirra sem spila, þannig
að auöveldara ætti að vera að mynda
sveitir fyrir þá sem hafa áhuga á að
vera með.
Bridgefélag
Hafnarfjarðar
Nú stendur yfir 3 kvölda butler
keppni en það er tvímenningur með
sveitakeppnissniði. Eftir fyrsta
kvöldið er staðan þessi:
1. Ásg. Ásbjörnss.—Hrólfur Hjaltas. 113
2. Hrannar Jónss.—Mattías Þorvaldss. 112
3. Guðbrandur Sigurbergss.—Kristófer
Magnúss. 105
4—5. HafsteinnSteinarss.—JónGíslason 100
4—5. Guðni Þorsteinss.—HaDd. Einarss. 100
Miölungur var 90. Næsta mánudag
verður haldiö áfram með butlerinn, en
síðan er ætlunin aö fá Bridgefélag
kvenna í heimsókn. Keppnisstjóri hjá
félaginu er Einar Sigurðsson.
Tafl- og bridge-
klúbburinn
Tvímenningskeppni Tafl- og bridge-
klúbbsins lauk sl. fimmtudag, úrslit
uröu:
stlg
1. Tryggvi Gísias.-Berahard Guömundss. 612
2. Björa Jónsson-Þórður Jónsson 588
3. Gunnl. Óskarsson-Sig. Steingrimsson 584
4. Sigtr. Sigurðsson-Gísli Steingrimsson 583
5. Magnús Torfason-Guðni Kolbeins 578
6. Arni M. Björasson-Heimir Þ. Tryggvas.566
7. Þorst. Kristjánsson-Rafn Krlstjánsson 563
Hæstu skor fengu Heimir Þór
Tryggvason og Arni Bjömsson, 144.
Næsta keppni félagsins veröur hrað-
sveitakeppni og hefst hún á fimmtudag
8. nóv. nk. kl. 19.30 í Domus Medica.
Menn em beönir að láta skrá sveitir
hjá Tryggva í síma 24856 eöa hjá
Braga í síma 30221 og 19744 á daginn.
Stjórnin mun eftir getu aðstoða stök
pör sem haf a hug á þátttöku.
öllum bridge-áhugamönnum er
heimil þátttaka í keppni þessari.
Stjórnin.
ísland
með
óska-
byrjnná
ÓLí
Seattle
Landslið Islands á ólympíumót-
inu í Seattle fékk óskabyrjun og
þegar þetta er skrifað hefur sveitin
183 stig eftir 11 umferðir.
I fyrstu umferð tapaði sveitin
fyrir þeirri finnsku með 9—21, vann
síðan sex næstu leiki, Egypta 18—
12, Uruguay 23—7, Bangladesh 23-
7, Hong Kong 21—9, Spán 24—6, og
Antilópueyjar 20—10. Þá hittu þeir
norsku sveitina í banastuði og töp-
uðu 5—25, töpuðu enn fyrir Kína 9—
21, unnu Filippseyjar 20—10 og töp-
uðu aö lokum fyrir Pakistan 11—19.
Af ofangreindri upptalningu sést
að sveitin hefur unnið veikari
sveitimar (ef hægt er að tala um
veikar sveitir á ólympíumóti) en
tapað fyrir þeim sterkari. Ellefu
stig móti Pakistan, sem spilaöi til
úrslita um heimsmeistaratitilinn í
fyrra, er alls ekki lakur árangur.
Meira um ólympíumótiö í næsta
þætti en daglegar fréttir eru í DV
frá þessu merka móti.