Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1984, Blaðsíða 8
8
DV. MIÐVKUDAGUR 28. NOVEMBER1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Ráðgerðu sjálfs-
morðsárás á sendi-
ráð Bandaríkjanna
Italska lögreglan seglst hafa flett
ofan af samsæri um sjálfsmorðs-
sprengiárás á bandariska sendiráöiö í
Róm. Sjö menn hafa verið handteknir,
allir félagar í hinum skuggalegu of-
stækissamtökum sem kalla sig
„Jihad” (heilagtstríö).
lijgreglustjóri Rómar sagði aö sjö-
menningamir, er allir segjast vera
fylgismenn Khomeini æöstaklerks í
Iran, hafi ráögert að aka vörubifreið
hlaöinni sprengiefni á sendiráö Banda-
ríkjanna. — Þeir voru handteknir á
laugardaginn og eru haföir í strangri
gæslu.
18. nóvember haföi svissneska lög-
reglan handtekiö Líbana sem var meö
tvö kíló af sprengiefni í farangri sínum
á leiö til Rómar. Varö það til þess aö
koma ítölsku lögreglunni á spor hinna
sjö.
Samtökin heilagt stríö hafa staðið
fyrir fjórum meiriháttar sprengi-
árásum á bandaríska sendiráöiö í
Beirút og Kuwait síöustu tvö árin.
Mannskæðust var árásin í Beirút sem
kostaði um 230 bandaríska landgöngu-
liöa lífið.
Stjómarandstaðan
i kosningabandalagi
á Indlandi
Eþíópía:
Helstu stjórnarandstööuflokkar Ind- um, hvernig þeir muni deila milli sín
lands segjast hafa náö samkomulagi þingsætum í Delhí og átta fylkjum
Flugræningjarnir
fá pólitískt hæli
Sómölsku flugræningjarnir þrir gáf-
ust upp í gær og létu lausa 108 gísla
sem þeir höföu haldiö um borö í Boeing
707 flugvél á flugvellinum í Addis
Ababa. Þeir virðast hafa veriö fullviss-
aðir um aö sjö ungmenni í Sómalíu,
sem þeir töldu hafa verið dæmd til
dauöa, munu ekki veröa líflátin.
Leiötogi flugræningjanna, herforing-
inn Awil Aden Bouedhan, sagöi frétta-
mönnum að Eþíópíustjórn heföi veitt
honum og félögum hans tveim pólitiskt
hæli. Embættismenn í Eþíópíu sögöu
aö fjórir aðrir farþegar vélarinnar
heföu einnig beöið um hæli og stjórnin
væri aö íhuga þá bón.
Þúsundir ættingja gíslanna flykktust
til flugvallarins í Mogadishu í Sómalíu
til aö bíða endurkomu þeirra. Leigubíl-
stjórar neituöu aö taka viö borgun
fyrir far á flugvöllinn í viröingarskyni
viögislana.
öörum en í dag rennur út frestur til
framboðs fyrir þingkosningamar á
Indlandi sem veröa í næsta mánuði.
1 þessu samkomulagi er gert ráö
fyrir að ekki fari nema einn stjómar-
andstæðingur fram í hverju kjördæmi
gegn frambjóðanda Kongressflokksins
en kosiö er um 273 þingsæti í neöri mál-
stofunni og 241 þingsæti í efri deildinni.
Kosið verður í 20 fy lkjum.
Um 4000 manns eru í framboöi en
7000 voru í framboöi til kosninganna
1980.
<-----------------m.
Nú virðist ljóst aö indverskir
kjósendur munu eiga tvo
höfuðvalkosti í jólakosning-
unum: Kongressflokkinn eða
samtök stjórnarandstæðinga.
Ráðleggur
notkun
gúmmí-
hanska
við
ástaríeiki
Indverskur gúrú (kennimaður),
sem boðaði frjálsar ástir meöal
safnaöar síns og fylgiliðs í Banda-
ríkjunum, hefur nú ráölagt fólki
sínu að hætta aö kyssast. Það er í
varúðarskyni gegn útbreiðslu
ónæmissjúkdómsins „aids”. Bhag-
wan Shree Rajneesh gengur meira
aö segja þvert á fyrri boöskap sinn
því aö hann ráðleggur fylgjendum
sínum aö stunda einlífi, ef þeir ótt-
ist að sýkjast af „aids”, eöa þá
halda sig viö einn maka og nota
gúmmíverjur og gúmmíhanska við
ástarleiki.
KXS^~-ý ' :.m .. 1 : '';x: n Litlu munaði að hryðjuverka-
mönnum tækist að sprengja upp
bandaríska sendiráðið í Róm,
mmm m • -* eins og þeim tókst í Beirút.
mk m J
Sovésku fjárlögin
gera ráð fyrir
hækkun herútgjalda
Yfirstandandi þingi Sovétríkjanna
lýkur í dag meö formlegri samþykkt
fjárlaganna fyrir árið 1985. I fyrsta
skipti í fimm ár er gert ráö fyrir í f jár-
lögunum auknum fjárveitingum til
vamarmála.
I f járlögunum, sem lögö voru fram í
gær, er gert ráö fyrir 12% aukningu
herútgjalda, eöa 19,06 milljaröa
rúbla, sem jafngildir 4,9% af heildar-
útgjöldunum. Sérfræðingar á Vestur-
löndum telja aö þessar tölur séu þó
ekki nema hluti af raunverulegum út-
gjöldum til hermála sem séu nær því
að vera yfir 15% af fjárlögunum. Af
fjárlögunum vilja þeir því Utið marka
hvort um raunverulega hækkun sé að
ræöa eöa ekki.
Flestir vUja því túlka þessa hækkuðu
útgjaldaliði á fjárlögunum sem póU-
tísk viöbrögð Sovétstjórnarinnar viö
auknum fjárveitingum Bandaríkja-
stjórnar til hermála.
Sovéska þingið kemur árlega tvisvar
saman og stendur þingiö ekki nema tvo
daga í senn. Aö venju eru þar afgreidd
fjárlög og fleiri tUlögur og ávallt sam-
þykkt mótatkvæðalaust.
Frystingartillagan felld
Ihaldsstjórnin í Noregi slapp naum-
lega viö ósigur í atkvæðagreiðslu í
norska þinginu um frystingu
kjarnorkuvopna. Norska þingiö feUdi
meö eins atkvæðis mun aö Noregur
greiddi atkvæði hjá Sameinuöu þjóðun-
um meö ályktun sem kallaði á bann á
framleiöslu og prófunum á kjama-
vopnum.
Fimm þingmenn stjómarflokkanna
greiddu atkvæði með Verkamanna-
flokknum sem lagöi tillöguna fram.
Formaður Ihaldsflokksins, Jo Benkow,
gagnrýndi Gro Harlem Bmndtland,
formann Verkamannaflokksins, fyrir
aö ráöast að Atlantshafsbandalaginu
meö tillögu sinni.
Noregur mun nú sitja hjá í atkvæða-
greiðslunni hjá Sameinuöu þjóöunum.
KASTRUP FÍKNIEFNAMIÐSTÖÐ
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, í Svíþjóö:
Kastrup-flugvöllur hefur, aö mati
dönsku fíkniefnalögreglunnar, á undan-
förnum árum verið tengUiður alþjóð-
legrar fikniefnaverslunar. Taliö er að
daglega sé dreift frá flugveUinum
hassi, heróíni, kókaíni og öðrum
f íkniefnum fyrir mUljónir króna.
Danska lögreglan herti nýverið
mjög eftirUt sitt á flugvellinum og
leiddi sú ráðstöfun fljótlega tU þess aö
afhjúpað var smygl á kókaíni fyrir
meira en 10 mUIjónir danskra króna
fyrir fikniefnamarkaöi Norðurlanda.
Lögreglan tók eftir þvi að hoUensk
kona setti sig í grunsamlegt samband
við karlmann frá Chile á Kastrupflug-
veUi. Konan flutti manninum einhver
skUaboð, að því er virtist, en síðan létu
þau sem þau þekktu ekki hvort annað.
Það var það sem vakti grunsemdir lög-
reglunnar. Árangurinn varð sem áður
segir afhjúpun mikUs kókaín smygls.
Parið var á leið til Suður-Ameríku,
og var aö koma frá Amsterdam.