Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1984, Blaðsíða 11
DV. MIÐVIKUDAGUR 28. NOVEMBER1984.
11
Félagsheimilið orðið fokhelt eftir 11 ár:
Engin þörf fyrir það?
- gamla kaupfélagshúsið gegnir nú hlutverki félagsheimilis
Félagsheimilið á Selfossi hefur veríð lengi i byggingu og miðar hægt, að
mati fréttaritara.
DV-mynd Kristján Einarsson.
Frá Kristjáni Einarssyni á Selfossi:
Það sem ber hæst í umræðum manna
á milli hér á Selfossi þessa dagana er
frábær frammistaöa Guörúnar Krist-
mannsdóttur í hlutverki önnu Frank
sem Leikfélag Reykjavíkur sýnir um
þessar mundir. Við erum ekki síður
stoltir vegna frammistöðu hennar í
Jónas Ingimundarson og Kristinn
Sigmundsson.
Kristinn
Sigmundsson
á hljómplötu
örn og örlygur hefur sent frá sér
hljómplötu með söng Kristins Sig-
mundssonar, Jónas Ingimundarson
leikur undir á píanó. Á plötunni eru
vinsæl íslensk og erlend lög, svo sem
„Fögur sem forðum”, „I fjarlægð”,
„On The Road To Mandaley” og „The
Foggy, Foggy dew”. Alls eru á
plötunni sextán lög. Vandað hefur ver-
ið til útgáfunnar og fer pressan m.a. á
sérstakan gæðavínil sem ekki hefur
verið notaður hérlendis áður og gefur
piötunni tærari og hreinni tón og betri
endingu.
Allir textar eru prentaðir og fylgja
með þýöingar. Hljóðritun annaðist
Halldór Víkingsson að Logalandi í
Reykholtsdal í Borgarfirði í sumar, en
þar er úrvals hljóðfæri af gerðinni
Steinway & Sons. Upptaka er einnig
fáanleg á kassettum.
halda á plötunni.
Og það varst þú:
Barna- og
fjölskyldu-
hljómplata
Utgáfan Skálholt hefur gefið út
vandaða barna- og fjölskylduhljóm-
plötu sem ber nafnið „Og það varst
þú”. Á hljómplötunni er safn úrvals-
tónlistar, sem orðið hefur vinsæl víða
erlendis. Flest eru lögin samin af séra
Lars Ake Lundberg, sænskum presti,.
sem getið hefur sér frægðarorð á
Norðurlöndum fyrir ritstörf og tón-
smíðar.
Yfir fjörutíu flytjendur koma við
sögu á þessari plötu, m.a. barnakór úr
Fossvogsskóla og Melaskóla, Jónas
Þórir, Sverrir Guðjónsson, Páll
Hjálmtýsson, Pálmi Gunnarsson,
Ásgeir Oskarsson o.fl. Upptökur og
hljóöblöndun fór að hluta fram í
Stemmu undir stjórn Sveins Olafsson-
ar. Hljóðblöndun fór einnig fram í
Hljóðrita undir stjóm Jónasar R. Jóns-
sonar.
Flesta texta þýddi séra Kristján Val-
ur Ingólfsson, einnig á Iðunn Steins-
dóttir texta á plötunni. Lars Ake Lund-
berg hefur heyrt margar útgáfur eigin
tónlistar á hljómplötum. Ein þeirra er
íslenska útgáfan „Og það varst þú”.
Og hann lét þau orð falla að sú útgáfa
væri sú besta sem hann hefði heyrt.
sjónvarpsþætti Bryndísar Schram á
dögunum, en þar sat hún undir kjána-
legum spurningum frúarinnar en kom
standandi niður. Yfir því erum við hér
á flatneskjunni stoltir.
Að þessu frátöldu gengur sléttulífið
sinn vanagang. Félagsheimilið nýja,
sem hefur verið í byggingu síðan 1973,
er nú loksins orðið fokhelt. Áformað er
að taka eitthvað af því i notkun á kom-
andi árum. Húsnæðisleysi hefur háð
allri félagsstarfsemi undanfarin ár en
nú hillir undir betri tíma í þeim efnum.
Fossnestismenn hafa byggt tvö til þrjú
hundruð manna sal yfir húsnæði sitt.
Þar verður veitingasalur með tilheyr-
andi bar og dansaðstöðu og nefna þeir
staðinn Inghól eftir hæsta hól í Ingólfs-
fjalli. Einnig er verið að innrétta 80
manna bjórstofu í kjallara gamla
kaupfélagshússins. Þar verður litið
sviö og hafa jassarar hugsaö sér gott
til glóðarinnar hvað varðar staðinn
þann.
Gamla kaupfélagshúsiö er nú farið
að gegna margþættu hlutverki. Fyrir
utan að vera skrifstofuhúsnæði KA hef-
ur Hafsteinn Þorvaldsson opnaö
heilsuræktarsal fyrir almenning í
gamla verslunarhúsnæðinu, bjórstofa
er í kjallaranum og húsgagnaverslun
fyrir ofan hana og er það þá fullnýtt.
Ekki má gleyma safnaöarheimilinu
nýja. Það er að mestu fullbúiö og þykir
mikil völundarsmíð. Nú er svo komið
að menn eru alvarlega farnir aö hugsa
um hvaö eigi að gera við nýja félags-
heimilið þegar það veröur tilbúið tU
notkunar.
-EH.
ÞRIGGJA STJORNU REIKNINGUR
ALÞÝÐUBANKANS ER AFGERANDI FYRIR
SPARIFJÁREIGENDUR
ÞETTA ERU AFBRAGÐSKJÖR SEM HVORKIAÐRIR
BANKAR NÉ RÍKISSJÓÐUR BJOÐA UPP Á
Þriggja stjömu reikningur Alþýðubankans
er afgerandi fyrir spariQáreigendur. Við bjóðum
einstaklingum, félagasamtökum og sjóðum upp á fulla
verðtiyggingu og 9% vexti.
Og hjá okkur er binditíminn aðeins tvö ár.
Alþyðubankinn býður best!
Alþýöubankinn hf.