Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1984, Blaðsíða 35
DV. MIÐVIKUDAGUR 28. NOVEMBER1984.
35
Hitaveita SuOurnesja viO Svartsengi er aO verOa vinsæll baOstaOur vegna tílkomu Bláa lónsins. AO baOa
sig ilóninu mun vera gott viO húOsjúkdómnum psoriasis. D V-myndir GVA.
Fjarskiptaskermar varnarliðsins á Stafnesi, Dye-five eins og þeir eru kallaðir, eru engtn ný-framkvæmd
heldur reistír áriO 1960.
lÍlÉÉIfMÍ ~
lé,'lf- ^ • i í:v ,
Þorsteinn Pálsson á fundi með stórkaupmönnum á Hótel Loftleiðum.
DV-mynd: KAE
„Aukið frelsi brýnt
þegar kreppir að”
— segir Þorsteinn Palsson
j „Það er aldrei eins brýnt aö veita
ifrelsi eins og þegar að kreppir,”
sagði Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, meðal annars í
ræðu á hádegisfundi hjá Félagi
íslenskra stórkaupmanna. Þor-
steinn flutti þama erindi um „Versl-
un í pólitískri umræðu” og svaraði
fyrirspumum fundarmanna. Rakti
Þorsteinn í máli sínu ýmsa þætti
verslunarinnar bæði fyrr og nú.
Taldi hann nauðsynlegt að auka
sjálfa verðmætasköpun verslunar-
innar en óhollt væri að, „velta fölsk-
um verömætum í gegnum verslunina
eða aðra atvinnugrein meðerlendum
lánum”.
Æskilegt væri að auka frelsi
verslunarinnar svo fremi samkeppni
væri fyrir hendi. Gerði hann einnig
að umræðuefni lækkun vöruverðs til
neytenda í þéttbýli og taldi að dreif-
býlisneytendur sætu ekki við sama
borð þar. Því væri æskilegt að
pólitískur vilji yrði fyrir því aö veita
aukið fjármagn til að styrkja verslun
úti á landi. „Um leið og við tölum um
frelsi er nauðsynlegt líka að setja
leikreglur.” Þær leikreglur þyrftu
allir að virða og það væri óréttlátt að
einstakir aðilar gætu komiö í veg fyr-
ir að gildandi reglur væru virtar.
Þessi síðasta athugasemd formanns
Sjálfstæðisflokksins var tilkomin
vegna fyrirspumar um aðstöðumun
einstakra fyrirtækja og aðila í
skattamálum.
-ÞG
Framkvæmdanefnd landsmótsins. Frá vinstri Hreinn Árnason, Orn Ingólfs-
son, Gunnar Jóhannsson, Bjarni Ansnes og Sigurður Haraldsson.
DV-mynd EJ.
Landsmóti 1986
flýtt um viku
Nú hefur verið ákveðið að landsmót-
ið árið 1986 verði haldið dagana 3.-6.
júlí. Mótinu hefur verið flýtt um eina
viku vegna þrýstings frá kynbóta-
gripaeigendum. Þeir vilja lengja
notkunartíma stóðhesta.
Að þessu sinni sjá 15 hestamannafé-
lög á Suður- og Suðvesturlandi ásamt
Landssambandi hestamanna ummóts-
hald. Fimm manna undirbúningsnefnd
hefur verið kosin til að sjá um fram-
kvæmd mótsins. I henni em Gunnar
Jóhannsson formaður, Geysi, öm
Ingólfsson gjaldkeri, Fáki, Hreinn
Ámason ritari, Gusti, og Bjarni
Ansnes, Smára, og Sigurður Haralds-
son, L.H., meðstjórnendur.
Hestamannafélög austan Hellisheið-
ar hafa tekið að sér að sjá um upp-
byggingu og rekstur á Gaddstaðaflöt-
um á Rangárbökkum og hafa stofnað
með sér samtök sem þau nefna Rang-
árbakkar sf. I stjóm Rangárbakka sf.
em Birgir Gunnarsson formaður, Sel-
fossi, en aðrir Halldór Guömundsson,
Hvammi, Albert Jóhannsson, Skógum,
Sigfús Guðmundsson, Geldingaholti,
og Agúst Ingi Olafsson, Hvolsvelli.
Þessi nefnd mun sjá um að undirbúa
mótssvæðið fyrir landsmótið og mun
skila mótssvæðinu til framkvæmda-
nefndarinnar um það bil viku fyrir
mótssetningu.
Ljóst er að um miklar framkvæmdir
verður að ræða á svæðinu. Ræktað
verður upp geysilegt flæmi suöur og
austur af Gaddstaöaflötum og verður
hægt að taka viö ótakmörkuðum fjölda
ferðahesta. Vatn verður nægilegt á því
svæði. Einnig verða byggð hesthús
fyrir kynbótahross og vellir til sýn-
inga. Ekki er endanlega gengið frá
skipulagningu svæðisins þannig að
ekki er hægt að lýsa framkvæmdum í
smáatriðum.
Framkvæmdanefnd landsmóts 1986
stefnir að því að þetta verði hiö besta
landsmót hingað til. Þeir vona að mik-
ill fjöldi manna komi og búast við frá
10.000 manns til 20.000 ef veður verður
gott.
EJ