Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1984, Page 10
10
DV. MIÐVIKUDAGUR 28. NOVEMBER1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Bresk verslunarlög:
Strangtrúaðir tán-
ingar ógna kristnum
Táningar með Kaiashnikov riffia eru enn víða yfirvaidið í Libanon þrátt fyrir að herinn reyni nú að taka
völdin i sinar hendur.
Líbanon:
öfgasinnuðum múhameðstrúar-
mönnum hefur mjög vaxið fiskur um
hrygg i Líbanon sem annars staöar
hin síðustu ár. Þetta hefur haft mikil
áhrif á daglegt lif kristinna manna i
Líbanon þar sem áhrif þessara heitu
áhangenda spámannsins eru sem
mest.
I hafnarborginni Tripoli í Líbanon
búa kristnir og reyndar hægfara
múhameðstrúarmenn einnig við
öryggisleysi og kvíða vegna strang-!
trúarmannanna. Bæði samfélögin
hafa orðið fyrir nýjum þrýstingi frá
herflokkum sem hafa boöskap sinn
frá strangtrúarpredikaranum
Sheikh Saeed Shaaban.
Múhameðska sameiningar-
hreyfingin hans, sem í daglegu máli
kallast Tawheed, hefur haft yfirráð
yfir Tripoli síðan menn hennar ráku
Yasser Arafat og menn hans frá
borginni á síöasta ári.
Táningar í svörtum kuflum, meö
höfuðföt og Kalashnikov árásarriffla
í höndum, sjá til þess aö banni við
sölu vínanda í verslunum og
veitingahúsum sé framfylgt. Ibúar
segja aö maður hafi látið lífiö nýlega
þegar Tawheed menn hýddu hann
fyrir drykkju.
„Okkur finnst við ekki vera óhultir
í þessari borg,” sagði einn kristinn
embættismaður í menntakerf inu.
Hann sagði frá því hvernig Taw-
heed strangtrúarmenn meö riffla í
hendi hefðu ruðst inn í skóla krist-
inna manna og hótað öllu illu ef skól-
inn kenndi ekki kenningar Kórans-
ins, biblíu múhameöstrúarmanna.
Fyrr í þessum mánuði var kunn-
gert samkomulag trúarleiðtoga
kristinna og múhameðskra. Sam-
kvæmt því á aö kenna bömum
múhameðstrúarmanna úr Kóranin-
um í kristnum skólum. En margir
múhameðstrúarmenn segjast frekar
vilja taka böm sín úr skólanum en að
þeim verði kenndar kennisetningar
Tawheed manna.
Strangtrúarmaðurinn Shaaban
sagði fréttamanni aö það væri ekkert
nýtt að kenna trúarsetningar Islams
í kristnum skólum.
,,Við erum aöeins að endurvekja
réttindi sem var stolið frá okkur,”
sagði hann. .^ögulega hefur kristn-
um liðið miklu betur undir
múhameðstrúarmönnum en
múhameðstrúarmönnum undir
kristnum. Islam varði kristna menn í
14 aldir en þegar kristnir náðu
völdum þá köstuöu þeir múhameðs-
mönnum burt af svæðum sínum...
Þeir þurfa ekkert að óttast. Kristnir
menn meðal okkar í Tripoli eru ekki i
neinnihættu.”
En margir kristnir menn hafa flúið
Tripoli á undanförnum árum. Sér-
staklega fóru margir þegar borgara-
striðið geisaði 1975—76. Þá böröust
vinstrisinnaðir múhameðstrúar-
menn við kristna hægrimenn í
nágrannabænum Zghorta. Fyrir þá
bardaga voru kristnir um
fimmtungur íbúa borgarinnar sem
voru um 250.000 talsins. Ekki er vitað
hve margir eru eftir.
Embættismaöurinn kristni sagði
að fyrir 1975 hefðu um 80 prósent
nema viö einn skóla kristinna manna
verið kristnir en nú væri hlutfalliö 50
prósent. Þannig væri það víðar.
Til aö reyna að halda öfgamönnum
í burtu hafa trúarleiðtogar kristinna
beðið hina hefðbundnu leiðtoga
múhameðstrúarmanna, múftana, að
taka að sér trúarkennsluna. Elias
Korban, erkibiskup innan grísk-
orþódox kirkjunnar, sagöist vonast
til að múftamir myndu sjá til þess aö
kennaramir létu sér nægja að kenna
trúarsetningar en kæmu ekki nálægt
stjómmálum.
Vei þeim sem selur perur
í dósum á sunnudögum
Nú er næsta víst að ensku lögin
sem banna sölu á flestum vömm á
sunnudögum verði afnumin á næsta
ári. Það þýðir að Bretar geta þá
keypt sér Fish and Chips á sunnu-
dögum án þess að br jóta lögin.
Vitað er að kaupmannsdóttirin,
Margrét Thatcher, styður tillögur
um að leyfa verslunum að hafa opið
allan sólarhringinn, aila daga vik-
unnar, þrátt fyrir ýlfur og gól starfs-
manna verslana og trúarhópa.
Ef tillögumar verða að lögum
myndi þaö þýða afnám vanvirtustu
lagabókstafa Bretaveldis, furöu-
legra takmarkana á sunnudags-
verslun sem allur almenningur hlær
aö eða virðir fullkomlega að vettugi.
Samkvæmt þessum lögum mega
verslanir selja rakvélarblöö til að
skera grænmeti með en ekki til að
nota viö rakstur. Neytendur geta
keypt varahluti fyrir bíla eða flug-
vélar en þeir mega ekki kaupa sér
skó.
Þeir mega kaupa klámtímarit en
ekki biblíur. Vínanda er leyfilegt að
selja og kaupa en ekki gos. Það þýðir
að þú mátt kaupa þér viski en ef þú
ætlar aö fá þér kók út í það ertu orð-
inn lögbrjótur (fyrir utan brot á al-
mennu velsæmi með því að blanda
þannig guðaveigarnar).
Verslanir mega ekki selja fisk með
frönskum á hvíldardeginum en ef þú
getur látið þér nægja kínverska vor-
rúllu til að taka meö þér þá er það
allt í lagi. Sala á vorrúllum er leyfð.
Svona heldur listinn áfram. Apótek-
arar geta selt höfuðverkjartöflur en
ekki grænsápu eða tannkrem. Fersk-
ir ávextir og frosnir fá náð fyrir
augum laganna varða en vei þeim’
sem ætlar sér að selja perur í dósum
Ferskt grœnmeti, það eriiagi. En eru nokkrar perudósir á staðnum?
i sunnudagseftirrétt. Perumar mega
reyndar heldur ekki vera í krukkum.
Lög um verslunarhætti frá 1950
fela í sér þessi og önnur furðulegheit.
Lögunum var upprunalega ætlað að
einfalda völundarhús þáverandi
lagabálka án,þess aö eyðileggja hinn
hefðbundna breska sunnudag en
leyfa samt sölu á nauðsynja vamingi.
Lagasetningin mistókst herfilega.
Sautján máttvana tilraunir hafa
verið gerðar í þinginu til að skáka lög-
unum. Allar hafa þær misheppnast.
Mörg staðaryfirvöld neita aö fylgja
lögunum eftir. En nú er byrjaö að
hilia undir að aðdáendum Fish and
Chips, sem ekki borða vorrúllur,
takist að afnema höftin.
Nefnd á vegum stjómarinnar lagði
til nýlega að leyft verði að versla á
öilum tímum alla daga ársins. Leon
Brittan innanríkisráðherra sagöi þó
aö stjórnin myndi athuga vandlega
viðbrögð við ráðleggingum nefndar-
innar áður en farið væri út í aö
breyta lögunum en embættismenn
segja að þeir búist fastlega við að
frumvarp sem innihaldi flestar eða
allar tillögur nefndarinnar verði
komið á borð þingmanna á næsta ári.
Innanríkisráðherrann þurfti ekki
að bíða lengi eftir viðbrögðunum.
John Flood, varaaöalritari verka-
lýðsfélags verslunarfólks, sagðist
hafa lagst í þunglyndi þegar hann
heyrði fréttirnar.
„Jafnvel á Viktoríutímanum fengu
verslunanmenn fri á sunnudögum,”
sagði hann. „Stjórnin vill færa
klukkuna aftur um marga manns-
aldra. Við vitum að það sem gerist
verður að verslunarmenn munu
þurfa að vinna bæði á laugardögum
og sunnudögum ef lögunum verður
breytt.”
„Félagið til verndar hvíldardegin-
um” setti einnig á sig snúð. „Ef
stjómin reynir að þrýsta þessu í
gegn erum við óhræddir að slást við
hana,” sagði í tilkynningu frá félag-
inu. Það hefur barist í 150 ár fy rir því
að halda hvíldardeginum heilögum.
Talsmaður rómversk-kaþólsku
kirkjunnar lýsti einnig yfir áhyggj-
umsínum.
En stórar verslanakeðjur fögnuðu
ráðleggingum nefndarinnar.
Stuöningsmenn afnáms laganna
sögðu að með því að leyfa sunnu-
dagsverslun mætti skapa 20.000 ný
störf.
Nefndin varaði samt við að
margar smáverslanir myndu ekki
standast samkeppnina við stór-
verslanimar veröi breytingarnar
gerðar.
Sumar stórverslanir komast upp
meö aö viröa núverandi lög að vett-
ugi. Ein keðjuverslun sem selur
heimilisáhöld hefur farið fyrir dóm
500 sinnum og verið sektuð um sam-
tals sex milljónir króna fyrir að hafa
opið á sunnudögum. En verslunin
segir það vera ódýrara fyrir sig að
borga sektimar en aö hætta að hafa
opið á sunnudögum.