Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1984, Side 32
DV. MIÐVIKUDAGUR 28. NOVEMBER1984.
32 :
Andlát
Hanna Guðjónsdóttir píanókennari lést
18. nóvember sl. Hún fæddist í Hafnar-
firöi 16. maí 1904, dóttir Kristínar
Ölafsdóttur og Guöjóns Jónssonar.
Hanna giftist Stefáni Kristinssyni en
hann lést áriö 1982. Þau hjónin
eignuðust fimm börn. Utför Hönnu
verður gerö frá Dómkirkjunni í dag kl.
13.30.
Eiður Guömundsson fyrrverandi
hreppstjóri, Þúfnavöllum, Hörgárdal,
lést 10. nóvember sl. á Fjóröungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri 96 ára aö
aldri. Hann var fæddur 1888, sonur
hjónanna Guömundar Guömunds-
sonar, hreppstjóra á Þúfnavöllum, og
Guðnýjar Loftsdóttur. Eiður var
jarðsunginn 17. nóvember sl. frá
Bægisá.
Ragnheiður Ólafsdóttir kennari, Skjól-
braut 4 Kópavogi, sem lést 20.
nóvember, veröur. jarösungin frá
Kópavogskirkju fimmtudaginn 29.
nóvemberkl. 15.
Kristján Sigurðsson, Blönduhlið 10,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 30. nóvember kl. 15.
Tilkynningar
Afgreiðslutími
í desember
Auk venjulegs afgreiðslutíma sem er frá
mánudegi til fimmtudags kl. 8.00—18.30 og á
föstudögum frá kl. 8.00—21.00 má hafa
verslanir opnarí desembersem hér segir:
Laugardaginn 1. desember til kl. 16.00
Laugardaginn 8. desember til kl. 18.00
Laugardaginn 15. desember til kl. 22.00
Laugardaginn 22. desember til kl. 23.00
Aðfangadag 24. desember til kl. 12.00
Þorláksmessu ber nú upp á sunnudag 23.
desember og eru verslanir þá lokaðar. I
staöinn er opið laugardaginn 22. desember til
kl. 23.00. A aöfangadag á að loka verslunum
kl. 12.00 á hádegi.
Á gamlársdag er verslunum einnig lokað
kl. 12.00 áhádegi.
Fyrsta vinnudag eftir jól, þann 27. des.,
hefst afgreiðslutimi kl. 10.00.
Háskólafyrirlestur
Séra Frank E. Bullivant heldur tvo fyrirlestra
við Háskóla Islands í boði Árnastofnunar og
guðfræðideildar Háskólans, miðvikudaginn
28. og fimmtudaginn 29. nóvember kl. 17.15 í
stofu 422 í Ámagarði. Báðir fýrirlestrarnir
munu fjalla um skjalasöfn páfagarðs. Hinn
fyrri verður almennur yfirlitslestur um
söfnin, en hinn síðari um rannsóknir islenskra
heimilda sem þar er að finna.
Séra Bullivant er mörgum kunnur hér á
landi. Að loknu meistaraprófi í fomensku og
germönskum málum dvaldist hann hér ár-
langt og nam islensku við Háskólann. Síðan
var hann um skeið háskólakennari í heima-
landi sínu, en hóf þá prestnám og var vígöur í
Rómaborg árið 1967. Hann starfar á vegum
álþjóðlegrar trúboðsreglu, O.M.I, sem kennd
er viö hina flekklausu Guðsmóður, og hefur
verið sendur á vegum hennar víða um lönd en
haft aðal-aðsetur í Róm. Hann er mikill vinur
íslenskra fræða og hefur dvalist hér í orlofum
sínum við rannsóknir í Árnastofnun en í
skjalasöfnum páfagarðs hefur hann grafið
upp skjöl varðandi Island frá miðöldum.
Fyrirlestramir verða fluttir á ensku og er
öllum heimUl aðgangur.
Tónleikar í Skagafirði
og á Akureyri
Páll Jóhannesson tenór og Ölafur Vignir Al-
bertsson píanóleikari munu halda tónleika
fimmtudaginn 28. nóvember í Miögaröi,
Varmahlíö í Skagafirði, og hefjast þeir kl. 21.
Laugardaginn 1. nóvember veröa þeir svo í
Borgarbíói, Akureyri. Tónleikamir eru jafn-
framt kynning á nýrri plötu þeirra Páls og
Olafs.
Happdrætti FHU
Dregið hefur verið í happdrætti félags
harmóníkuunnenda og upp komu eftirtalin
númer:
Nr. 491, harmóníka eða hljóðfæri í Rín, kr.
51.000. Nr. 7742, hljóðfæri að eigin vali í Rín,
kr. 15.000. Nr. 159 , 9251, hljóðfæri að eigin vali
í Rín, kr. 10.000. Nr. 1818, 8843, 2467, 1366, 3534,
hljóðfæri að eigin vali í Rín, kr. 8.000.
Nr. 180, 1214, 6731, 1858, 7827, 9605, 2549, 194,
hljóðfæri að eigin vali í Rín, kr. 5.000.
Nr. 3893,9606,7282, hljómplatakr. 500.
Kvenfélag
Háteigssóknar
býður öUu eldra fólki í sókninni til samkomu
og kaffidrykkju sunnudaginn 2. desember kl.
15.15 í Domus Medica. Félagskonur mætiö vel
og munið jólafundinn 4. desember kl. 20.30 í
sjómannaskólanum.
Fræðslufundur Geðhjálpar
Geðhjálp heldur næsta fræöslufund sinn
fimmtudaginn 29. nóv. kl. 20.30 á Geðdeild
Landspítalans í kennslustofu á 4. hæð. FjaUað
verður um sjálfsþekkingu — sjálfsöryggi og
námskeið fyrir foreldra. Fyrirlesari er
ÁlfheiðurSteinþórsdóttú- sálfræðingur. Fyrir-
spurnir og umræður verða eftir fyrirlestrin-
um. Aðgangur ókeypis. Stjómin.
Jólamarkaður
■Jólamarkaður félags einstæðra foreldra
verður í Traöarkotssundi 6 laugardaginn 1.
desember nk. Fólk er beðið að koma munum
á skrifstofuna fyrir 30. nóvember í síðasta
lagi.
Basar Sjálfsbjargar í
Reykjavík og nágrenni
verður haldinn í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni
12, 8. og 9. desember nk. Tekið er á móti
munum á skrifstofutíma og á fimmtudags-
kvöldum.
Fimleikasýning i
Laugardalshöll
Þann 2. des. nk. kl. 16.30 verður stórkostleg
fimleikasýning í Laugardalshöll, fyrir alla
fjölskylduna.
Viöfangsefnið „Rauðhetta og (fimleika-)
úlf urinn „verður sýnt með þátttöku bama og
unglinga frá KR., Stjömunni, Gerplu, Björk,
Armanni og fBA. Samvinna þessara aðila er
býsna forvitnileg útkoma, ekki satt? Skóla-
hljómsveit Mosfellssveitar leikur og sögu-
maður er Bessi Bjamason. Landsliðið leikur
listir sínar af alkunnri snilld og er í stöðugri
framför. Mismunandi atriði sýningarpró-
gramma af öllum gerðum era að sjálfsögöu
með. Þá verða seldir happdrættismiðar til
styrktar landsliði og em vinningar gimilegir,
eins og úlfinum fgnnst amman, svo ekki sé
meira sagt.
Sama dag kl. 9 árdegis verður ársþing FSI
haldið að Hamraborg 1, Kópavogi. Mörg mál
liggja fyrir, þ.á.m. norrænir fimleikar.
Fimleikar, fimleikar, allt á að sýna.
Velkominn með þig og þína. Stjóm FSl.
í gærkvöldi_______ í gærkvöldi
Sveinn Sæmundsson, forstöðumaður kynningardeildar Flugleiða:
Útvarpið flutti góðar f réttir í gær
Utvarpiö flutti í gær góöar fréttir
þegar tilkynnt var um aö ungmennin
þrjú heföu fundist heil á húfi. Jafnvel
miðdegistónleikamir hljómuðu dá-
samlega. Hjálparsveitimar leggja
mikið á sig og ber þjóöinni aö standa
vel aö baki þessum mönnum. Ut-
varpið er að mörgu.leyti gott. Vegna
vinnu get ég ekki hlustaö á þaö á
daginn en nota oft kvöldin til þess. Þó
er oft á tíðum skammt á milli
öfganna í tónlistarvalinu og mér
finnst vanta meira af léttri klassískri
tónlist. Einnig að lesnar séu góðar og
gamlar sögur á kvöldin því fátt er
notalegra en aö sofna undir góöum
lestri.
Eftir fréttir í sjónvarpinu þurfti
ég aö velja á milli aö horfa á sögu
Afríku eða hlusta á Árna Bergmann
og haföi Ámi betur til aö byrja meö.
Þátturinn um Afríku sýndi og
sannaöi þaö arörán og þá
svíviröilegu framkomu sem hvítir
sýndu í þessum heimshluta. Það er
eðlilegt aö þessu fólki sé hjálpað nú
þar sem hvíti maðurinn á sök á
ógæfu þess. Því næst kom Reilly og
er þar á feröinni stórmerkur þáttur
og vel unninn. Dagskránni í sjón-
varpinu lauk svo meö því að
fréttamenn tóku Jón Baldvin Hanni-
balsson á hvalbeinið. Á þaö var
gaman að horfa enda Jón Baldvin
hinn hressasti maöur.
Félag Snæfellinga- og
Hnappdæla í Reykjavík
heldur spila- og skemmtikvöld laugardaginn
1. desember í Domus Medica kl. 20.30.
Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Sinfóníutónleikar
í Háskólabíói
Fjórðu áskriftartónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands á þessu starfsári verða í
Háskólabíói nk. fimmtudag, 29. nóv., og hefj-
astþeirkl. 20.30.
Á efnisskránnieru:
Leifur Þórarinsson: Sinfónía nr. 1, Franz
Liszt: „Malediction” fyrir píanó og strengja-
sveit. Alexander Skrjabin: Sinfónía nr. 2 í e-
moll.
Stjórnandi tónleikanna verður Páll P.
Pálsson og einleikari Halldór Haraldsson.
-ÁFl
Kattavinafélagið
Jólaföndur, kökubasar ásamt flóamarkaði í
einu homi verður á Hallveigarstöðum laugar-
daginn 1. desember kl. 14. Allur ágóði rennur í
húsbyggingu Kattavinafélagsins.
Háskóiatónleikar í
Norræna húsinu
Sjöttu Háskólatónleikar á haustmisseri 1984
verða haldnir í Norræna húsinu miðvikudag-
inn 28. nóvember í hádeginu.
Blásarakvintett Reykjavikur flytur tónlist,
eftir Franz Denzi og Jean Francaix.
Tónleikarnir hefjast kl. 12.30 og standa u.þ.b.
hálftíma.
-ÁFl
Jólasýning Langbróka
I Galleri Langbrók stendur nú yfir jólasýning
Langbróka. Á sýningunni eru grafíkmyndir,
gler- og vatnslitamyndir, keramik, textil,
fatnaður, skartgripir og fl. Galleríið er opið
virka daga kl. 12—18.1 desember verður opið
á laugardögum milli kl. 12 og 18.
Hallgrímskirkja —
starf aldraðra
Opið hús verður á morgun, fimmtudaginn 29.
nóvember, kl. 14.30 í safnaðarsal kirkjunnar.
Dagskrá og kaffiveitingar. Safnaðarsystir.
Basar Sjálfsbjargar
í Reykjavík
og nágrenni
verður haldinn í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni
12,8. og 9. desember nk. Tekið er á móti mun-
um á skrifstofutíma og á fimmtudagskvöld-
um.
Ritgerðarsamkeppni
skólafólks
Fyrr á þessu ári efndi Landssamband
iðnaðarmanna til ritgerðarsamkeppni skóla-
fólks um íslenskan iðnað og máefni honum
tengd. Upplýsingabæklingur um tilhögun
samkeppninnar var sendur öllum grunnskól-
um og flestum framhaldsskólum. Skilafrestur
var ákveöinn 1. desember 1984.
Vegna þeirrar röskunar í skólastarfi sem
varð í verkfalli BSRB í októbermánuði hefur
verið ákveðið að framlengja skilafrest til 15.
febrúarl985.
önnur atriði sem tilgreind eru í upplýsinga-
bæklingnum standa óbreytt.
Minnt skal á að vegleg verðlaun verða veitt
fyrir þrjár bestu ritsmíðamar sem berast.
Fyrstu verölaun eru kr. 25.000, önnur verð-
laun kr. 15.000 og þriðju verðlaun kr. 10.000.
Að auki verða allt að 10 viðurkenningar veitt-
ar fyrir ritgerðir er dómnefnd telur athyglis-
verðar.
Þátttaka er heimil öllum skólanemendum,
jafnt nemendum í grunnskólum sem fram-
haldsskólum, svo sem i tækniskólum, háskól-
um, iðnfræðsluskólum, verslunar- og mennta-
skólum. Við mat á gildi ritsmíðanna verður
að sjálfsögðu tekið tillit til mismunandi
aldurs og menntunarbrauta er þátttakendur
hafa valið sér, þannig að unglingar geta unniö
til verðlauna og viðurkenningar eins og há-
skólanemar sem komnir eru að lokaprófi.
Dómnefndina skipa Sigurður Kristinsson,
forseti Landssambands iðnaðarmanna, og er
hann formaður nefndarinnar, Bragi Hannes-
son, bankastjóri Iönaðarbankans hf., Ingjald-
ur Hannibalsson, forstjóri Iðntæknistofnunar
Islands og Jón Böðvarsson, ritstjóri væntan-
legrar Iönsögu Islendinga.
Grýla og jólasveinarnir
komin í bæinn
Jólin eru í nánd. Samningar hafa tekist í Jóla-
sveinaríkinu og hafa þeir því lagt nótt við
dag við aö ljúka við jólagjafimar og bíða nú
óþreyjuf ullir jólanna. En Grýla sá að ekki var
til zetunnar boðið. Sú flugufregn hefur flogið
um bæinn, að Grýla hafi rennt kambi í gegn
um háriö gefið spegilbrotinu 90 gráðu hom-
auga og farið í sparibomsumar sínar og drifið
sig til borgarinnar með tvo stálpaða syni sina,
þá Gáttaþef og Gluggagægi. Nú langar hana
að hitta alla krakkana, sem jólasveinarnir
synir hennar hafa gortað sig af að þekkja.
Dvelst tríóið nú hjá afar fjarskyldum ættingj-
um og bíður í ofvæni eftir aö komast á jóla-
skemmtanir. Þeir sem hafa áhuga á að fá þau
í heimsókn geta hringt í sima 621126 eða 20050
milli kl. 17.00-19.30 daglega.
Jólamarkaður
Jólamarkaður félags einstæðra foreldra
verður í Traðarkotssundi 6 laugardaginn 1.
desembcr nk. Fólk er beðið að koma munum
á skrifstofuna fyrir 30. nóvember í siðasta
lagi.
Jólakort Barnahjálpar Sam-
einuðu þjóðanna
Jólakort Bamahjálpar Sameinuðu þjóðanna
(UNICEF) era korni,. á markaðinn enn á ný.
Kortin era unnin af listamönnum frá ýmsum
löndum og era aUmargar myndanna gerðar
sérstaklega fyrir þessi kort. Einnig eru notað-
ar eldri myndir eftir fræga Ustamenn fyrri
alda.
Bamahjálpin hefur gefiö út jólakort á
hverju ári frá því 1949 og hefur þessi útgáfa
fjármagnað um 10—15% af starfseminni á
undanförnum áram. Fjárþörfin er gífurleg.
Barnahjálpin hefur á síðustu árum beint
kröftum sínum að langtímaverkefnum til að
stuðla aö varanlegri lausn vandamála á
hverjum stað. Þó fer aUtaf töluvert til neyðar-
hjálpar. Þurrkarnir í Afríku, t.d. í Eþíópíu,
eru dæmi um stað þar sem neyðarhjálp er
mjög nauðsynleg. Barnahjálpin er ein þeirra
fjöbnörgu alþjóðastofnana sem lagt hafa sitt
af mörkum þar.
Bamahjálpin þarf að hafa yfir töluverðum
birgðum að ráða til aö vera viðbúin að veita
neyðarhjálp. Hún hefur nýverið tekið birgða-
stöðina UNIPAC í notkun í Kaupmannahöfn.
Með innan við sólarhrings fyrirvara geta flug-
vélar lagt af stað frá flugvelUnum í Kaup-
mannahöfn meö hjálp tU nauðstaddra hvar
sem er í heiminum. Auk þessa er UNIPAC
birgðastöð fyrir aUa þá stöðugu hjálp sem
UNIPAC veitir.
Jólakortin era tU sölu í helstu bókabúöum
landsins auk þess sem þau eru til sölu á skrif-
stofu Kvenstúdentafélags Islands að HaU-
veigarstööum en Kvenstúdentafélagið hefur
séð um sölu jólakortanna hér á Islandi í rúm
30 ár.
Jólakveðja með vinningsvon
Gigtarfélag Islands efnir nú tU óvenjulegs
happdrættis. Hver happdrættismiði er um leið
jólakort. Vinningar eru 8 ferðavinningar eftir
vali.
Það er von félagsins að þessu korti verði vel
tekið. ÖHum ágóða verður varið til að greiða
Sjávarútvegsráðuneytið:
Leyfir meiri
loðnuveiði
Eins og loönusjómenn áttu von á gaf
sjávarútvegsráðuneytið út tilkynningu
í gær um að loðnukvótinn hefði verið
stækkaöur.
Kvótinn var aukinn úr 390 þúsund
tonnum í 595 þúsund tonn og skiptist
viðbótin með sama hætti og áður.
Skiptast 57% jafnt á milli skipa en 33%
í hlutfalli við burðargetu þeirra.
Alls fengu 50 skip leyfi til loönuveiða
á þessari vertíð og hafa þau öll nema
tvöhafiðveiðar.
-klp.
kostnað við Gigtlækningastöðina sem nú er
komin í fullan gang. Kortin fást hjá Gigtar-
félagi Islands, Ármúla 5, og hjá félags-
mönnum víða um landið.
Stjómin.
Fundur Sagnfræðingafélags
íslands
Sagnfræðingafélag Islands efnir til fundar í
stofu 423 í Árnagarði, Háskóla Islands, mið-
vikudaginn 28. nóvember og hefst fundurinn
kl. 20.30. Þorleifur Friðriksson sagnfræðingur
flytur erindi er hann nefnir: „Alþýðuflokkur-
inn; alþjóðahyggja í norrænu ljósi”. Fundur-
inn er öUum opinn.
75 ára afmæli á í dag, 28. nóvember,
Kristmundur Georgsson, trésmíða-
meistari, Holtsgötu 8 Hafnarfirði. —
Hann ætlar að taka á móti gestum á
heimili dóttur sinnar og tengdasonar,
Vesturvangi 30 þar í bænum, eftir kl. 17
ídag.
80 ára afmæli á í dag, 28. nóvember,
Gunnar Jens Gíslason, bóndi á Vagns-
stöðum í Suðursveit. Hann dvelst þar
hjá syni sínum og tengdadóttur.
BELLA
Þegar ég fór í þennan hlýralausa
kjól datt mér ekki í hug að þú
myndir bjóða mér upp á pipar-
steik og kampavín.