Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Qupperneq 1
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
DAGBLAÐIÐ —VÍSIR
275. TBL. —74. og 10. ÁRG. MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 1984.
41.200 EINTÖK PRENTUÐ í DAG.
72SIÐUR I DAG
RITSTJÓRN S(MI 686611 • AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA SÍMI 27022
Sæbjörgfrá Vestmannaeyjum strandaði við Stokksnes:
Fjórtán skipverjum var
bjargað íland f morgun
Loðnubáturinn Sæbjörg fró Vest-
mannaeyjum strandaði í morgun
skammt frá radarstöð Vamarliðsins
á Stokksnesi við Homaf jörð. Verið er
að bjarga fjórtán manna áhöfn í
land.
Hjálparbeiðni barst frá skipinu
rétt fyrir klukkan fimm í morgun.
Sæbjörg var vélarlaus og rak i ótt að
landi undan austsuðaustan roki.
Annar loðnubótur, Erling úr
Keflavík, reyndi að aðstoða Særúnu.
„Hann reyndi aö halda honum fró
meö taug. en það héldu engin bönd.
Það slitnaði,” sagði Garðar Sig-
valdason í stjórnstöð björgunar-
félagsins á Höfn.
Bátinn rak áfram. Hann tók fyrst
niðri um sjöleytið. „Þetta var
heppni. Hann lenti á besta stað,
sandfjöra í Hornsvík, miili Stokks-
ness og Hafnartanga. Hann siapp
framhjá Kirkjuskeri, eina skerinu
þarna í víkinni,” sagði Garðar.
Vamarliðiö í radarstöðinni var
látið vita til þess að það fengi ekki
rangar hugmyndir, eins og til dæmis
þær aö þama væri sovéskur kafbátur
á ferð.
„Hann er ekki ennþá kominn upp í
fjöru. Hann er 150 til 200 metra frá
fjörunni en orðinn botnfastur. Hann
situr vel og hallast ekkert. Það er
ekki talin hætta á að hann velti. Hann
stendur vel i hælinn,” sagði Garðar
um klukkan 8.20 í morgun.
Skömmu síðar var línu skotiö út í
bátinn. Um klukkan 8.30 urðu menn
varir við að sjór var kominn í vélar-
rúm. Gat var komið á skrokkinn.
„Þá var ekki eftir neinu að bíða.
Fyrsti maöur var kominn í stólinn
klukkan 8.48. Núna erum við að ná
þeim fjórða í land,” sagði Sveinn
Sighvatsson, formaður björgunar-
félagsins, klukkan 9.07.
Síðustu fréttir
Klukkan 9.36 var síðasti skip-
verjinn af Sæbjörgu dreginn í land.
Björgunin tókst giftusamlega. Allir
skipverjar era heilir á húfi.
Júlía, Höfn/KMU.
55 þúsund krónum stolið
úr Landsbankanum:
Dularfullt
hvarf úr
bankabók
55 þústmd krónur hafa horfið með
dularfullum hætti úr sparisjóðsbók i
Landsbankanum á Laugavegi 77. Eldri
kona átti þessa bók, en i henni voru
rúmar 100.000 kr. Er konan ætlaöi að
taka út úr bók sinni um siöustu mán-
aöamót sá hún aö 55.000 kr. vora horfn-
ar.
Þessi úttekt var hinsvegar ekki
stimpluð inn í hennar eigin bók, heldur
var sýnilega um það aö ræða, að önnur
bók hafði verið útbúin, gengið fró út-
tektarmiða á hana, og peningarnir
þannig teknir út. Ottektarmiði þessi
hefur fundist í bankanum.
Talið er ólíklegt annað en að einhver
i bankanum hafi átt þarna hlut aö
máli.
Þorkell Magnússon, útibússtjóri
Landsbankans á Laugavegi 77, sagði í
samtali við DV að hann gæti engar
upplýsingar gefið um þetta mál og
benti á bankastjóra bankans. Helgi
Bergs, einn af bankastjórum Lands-
bankans, sagði í samtali við DV aö sér
væri ekki kunnugt um þetta mál.
Samkvæmt heimildum DV er
kvenmannsnafn á úttektarmiða þeim,
sem 55 þúsund krónumar voru teknar
útá.
-FRI
Veröurþrengt
aöopnunar-
tíma„pöbba”?
— sjá bls. 4
Ásgeiríhópi
bestu knatt-
spyrnumanna
heimsl984
— sjá íþróttir
bls. 33 — 40
Kópavogsbúar fengu sitt jólatré um helgina og var kveikt á því með pomp og pragt í
gœr. Jólasveinar komu í heimsókn og mátti vart á milli sjá hvor skemmti sér betur,
jólasveinninn eda börnin. Jólatréð er gjöf frá vinabœ Kópavogs, Norrköping í Sví-
þjóð. Var trénu valinn staður austan Kópavogskirkju. DV-mynd
Fjórarsíöur
umneytenda-
; málefniídag
— sjábls.6,7,
20og21
j Ratsjárstöðvar-
máliðíhugum
] Þórshafnarbúa:
Mikil óánægja
með leyndina
— sjá bls. 52 — 55