Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Page 4
4 DV. MÁNUDAGUR17. DESEMBER1984. Frönsk tíska á Hótel Sögu. DV-mynd KAE. Franskt kvöld á Hótel Sögu Franska útflutningsmiðstöðin, Sam- tök franskra fataframleiðenda og verslunarfulltrúi franska sendiráðsins tóku höndum saman á laugardags- kvöldið og héldu franskt kvöld að Hótel Sögu. Hápunktur kvöldsins var tiskusýn- ing þar sem sýndur var franskur fatn- aður sem f áanlegur er hér á landi. Þær verslanir sem flytja franskan fatnaö inn til landsins komu saman og sýndu það sem upp á er boðið af frönskum tískufatnaðiá Islandi. Módel ’79 sýndu fatnaöinn undir stjórn M. Engel sem kom frá Frakk- landi. Sýndur var fatnaður fyrir alla: kvenfólk, karlmenn og börn. Barna- fatnaður er hannaður sem léttastur og þægilegastur fyrir bömin. Aberandi er hvaö karlmannafatnaður leitar í línur sem áður voru ætlaðar konum og síðan má segja að kvenfatnaöur sé að veröa' karlmannlegrí. Til dæmis er bleikt, gult og rautt komiö í karlmannaföt. Litirnir verða áfram grátt, hvítt, og svart. Varaliturinn er aftur kominn r tísku og er hann nú hárauður. Þá er stutt hártíska ráðandi í París. Lágir skór á daginn og háir skór á kvöldin er næstum því regla. Leöur- fatnaöur er mikiö áberandi. Glit á kvenfatnaöi er að koma aftur. Þær verslanir sem tóku þátt í sýning- unni voru m.a. Eva, Gullfoss, Hjá Báru, Christine, Pelsinn, Herragarð- urinn, Engiabömin, Pakkhúsiö, Endur og hendur. JI Nýr Mpöbb” á Selfossi aðeins opinn tii 23.30: Hertar reglur um opnunar- tfma ölkráa? Um helgina var opnaöur nýr veit- ingastaður, eöa ölkrá, áSelfossi. Heitir hann Gjáin. Þessi staður hefur ekki leyfi til að vera opinn nema til 23.30 á kvöldin öfugt við það sem gerist ann- ars staðar þar sem opnunartímar þess- ara staða fylgja yfirleitt opnunartíma skemmtistaða. Ákvörðun bæjarstjórnar Selfoss um opnunartímann kom í kjölfar fundar bæjarstjórnar með Jóni Helgasyni dómsmálaráðherra. Á þeim fundi mun ráöherrann hafa sagt aö í bígerð væri endurskoðun á opnunartíma þessara staöa. Yrðu reglur þar að lútandi hert- ar og væri Selfoss fyrsta dæmið. Jón Helgason dómsmálaráðherra sagði í samtali við DV að þetta mál hefði veriö rætt innan ríkisstjórnarinn- ar en engar ákvarðanir heföu verið teknar. Hvað Selfoss varðaði sagði Jón að bæjarstjórnin ætlaði aö staðurinn væri ekki ölkrá heldur veitingahús. Þar aö auki væri ekki til nein lögreglusam- þykkt um svona staöi á Selfossi, en þessi er sá fyrsti sinnar tegundar þar, og hefði ákvörðunin um opnunartím- ann verið tekin samkvæmt þessu. Örn Grétarsson, einn af eigendum staðarins, sagði í samtali við DV að þeir væru alls ekki ánægðir með að fá ekki að sitja við sama borö og aðrir landsmenn í þessum efnum. „Gestir okkar eru einnig óánægðir meö þetta fyrirkomulag eins og sást greinilega fyrstu tvö kvöldin. Eg tel þennan opnunartima ekki stuöla að bættri vínmenningu. Fólk drekkur barameiraástyttritíma.” -FRI Grindavík: Börnum vikið úr leikskóla Hallærisástand ríkir nú í dagvistar- málum í Grindavík. Leikskólinn rúm- ar 30 börn. I skólanum eru nú 64 böm hálfan daginn í senn. Um 120 börn eru á biölista eftir leikskólaplássi. I deigl- unni er að koma á sk. tveggja ára reglu svo fleiri börn geti komist aö. Að sögn Petrínu Baldursdóttur, for- stöðukonu leikskólans, þýðir tveggja ára reglan að þau böm sem verið hafa í leikskólanum tvö ár eða lengur verða að víkja. „Þetta mun væntanlega koma til framkvæmda 1. mars nk. og er okkar eina úrræði í plássleysinu,” sagði hún. I samtali við DV sagði Jón Gunnar Stefánsson, bæjarstjóri í Grindavik, að ástandiö á dagvistarmálum væri svip- að hjá þeim og í öömm sveitarfélögum í nágrenninu. Ekki væri búið aö setja neitt niður á blaö varðandi nýtt dag- heimili. Hefði það verið foreldrafundur barna í leikskólanum sem kom með til- lögu um tveggja ára regluna og veitti bæjarstjórnin samþykki sitt. ,,Þaö kemur vafalaust illa við einhverja að missa barnagæslu. Þetta er spumingin um það hvort það er þetta eöa hitt bamið sem hefur leikskólapláss,” sagöi hann. eh. Starfsmenn útvarpsins: ,FÁ ÁTTA ÞÚSUND I„ALAGSUPPBÓr’ Föstum starfsmönnum útvarps og sjónvarps hafa veriö greiddar 8000 krónur í álagsuppbót fyrir desember- mánuð, utan við kjarasamninga, að sögn Harðar Vilhjálmssenar, fjár- málastjóra Ríkisútvarpsins. Þess utan fá þessir starfsmenn persónuuppbót ofan á laun sín fyrir þennan mánuö, sem nemur 4000 krónum samkvæmt kjarasamningum. „Þetta er álagsuppbót fyrir desem- bermánuð,” sagði Hörður Vilhjálms- son í viðtali við DV. „Þetta er sérstök greiðsla sem metin var og samþykkt af framkvæmdastjórn Ríkisútvarpsins vegna aukins vinnuálags í desember. Þetta er hugsaö sem greiðsla fyrir þetta aukna vinnuálag, í eitt skipti fyr- iröll.” I dag mœlir Dagfari I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari Norskt sjónvarpsefni — fyrir hvern? Allt útlit er nú til þess, að alþingis- mönnum hafi tekist að drepa út- varpslagafrumvarpið. Það frum- varp var lagt fram í uppbafi þing- halds í haust með þeim yfirlýsingum menntamálaráðherra, að ný út- varpslög tækju gildl fyrsta nóvem- ber. Stóöu flestir í þeirrl meiningu, að ráðherrann ætti við fyrsta nóvem- ber á þessu ári, en nú er ljóst, að það var mikill misskilningur. Alla vega hefur frumvarp þetta gufað upp ein- hvers staðar í nefndarfarganinu á þingi og spuming hvort það á þaðan afturkvæmt á þessum vetri. Aftur á móti hafa önnur tíðindi gerst á sviði útvarps- og sjónvarps- mála að undirlagi stjórnvalda. Þar er um að ræða samkomulag vlð frændur okkar Norðmenn, sem felur í sér, að norskt sjónvarpsefni verður sent beint til tslands i gegnum gervl- hnött. Áður en langt um líður getur íslenska þjóðin skipt yfir á norska rás á tækjum sínum og notlð norræns menningarsamstarfs frá gervltungl- um. Nú munu kunnugir halda þvi fram, að dagskrá norska sjónvarpslns sé sú jafnleiðinlegasta sem um getur á norðurhveli jarðar og ekki er heldur til þess vitað, að einn einasti Islend- ingur hafi opinberlega óskað sér- staklega eftir því, að norskar dag- skrár væru tll sýnis hér uppi á Fróni. En ekki er allt sem sýnist. Þetta er klókindabragð hið mesta hjá for- ráðamönnum Riklsútvarpslns. Þeg- ar norska sjónvarpið fer að sjást hér að staðaldri gegnum gervihnött, mun sá samanburður verða íslenska sjónvarpinu hagstæður og af tvennu illu velja sjónvarpsáhorfendur sina eigin íslensku stöð. Þannig á að sann- færa þjóðina um ágæti Rikisútvarps- ins og þarfleysi þess, að fleiri stöðv- um verði bætt við á öldum Ijósvak- ans. Með öðrum orðum: í krafti hinnar norrænú samvinnu á að koma auknu frjálsræði í útvarps- og sjón- varpsmáium fyrir kattamef. Verður það ekki i fyrsta skipti sem norrænir mennlngarstraumar verða til þess að framlengja sambandsleysl ts- lendinga við lifnaðarhætti samtím- ans. Um aldir tókst Dönum að ein- angra okkur svo rækilega, að ís- lenska þjóðln hélt að Kaupmanna- höfn væri nafli alheimsins og hafði fyrir vikið mestu skömm á að kynn- ast alheiminum. Nú á greinilega að beita norska sjónvarpinu fyrir sama vagn, sem verður væntanlega til þess, að tslendingar fá hina mestu ótrú á gervihnöttum og frjálsræði á því sviði. Annars hefur það verið þannig, allt frá þvi að frjálsar útvarpsstöðvar voru starfræktar í verkföliunum i haust, að þjóðin hefur farið fram á það eitt að fá útvarps- og sjónvarps- frelsi sjálfrl sér til handa. Norð- mönnum var aldrei blandað i það mál. Það segir hinsvegar nokkra sögu um viðhorfin á Alþingi, að þar skuli þykja sjálfsagt að hleypa norskum inn á íslensk heimili í gegnum gervl- hnetti, en komið skuli í veg fyrir að íslendlngar sjálfir fál leyfi til slíks. Þróunin í sjónvarpsmálum á sem sagt að fara fram annarsvegar með innflutningi á ólögiegum myndbönd- um í gegnum videoleigur og hins- vegar með því að opna fyrir ielðln- legustu dagskrá erlenda, sem völ er á. En frelsi til handa tslendingum sjálfum skal algjörlega bannað, nema með þeim einkarétti, sem ríkið hefur skammtað sér. A Alþingi situr jafnvel heill stjómmálaflokkur, sem hefur lagt það á sig að semja ný út- varpslög, þar sem einokunin er áréttuð og innsigluð. Með þessum vinnubrögðum verður ekki annað sagt en að Alþingi takist vel í því hlutverki sínu að fá þjóðina upp á móti sér. Dagfari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.