Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Qupperneq 21
DV. MÁNUDAGUR17. DESEMBER1984.
21
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
hafa
hagnastá
frjálsu
kjötverði
„Viö höfum verið svo lengi i fjötrum
í verðlagsmálum að menn hafa hvorki
þroska né skilning á að hafa verðlagið i
réttri mynd. Þessi gifurlega sam-
keppni sem hefur t.d. skapast í kjöt-
sölu hefur sannarlega komið neyt-
endum til góða,” sagði Hrafn Bach-
mann, kaupmaður í Kjötmiðstööinni.
Hrafn rekur eina af stærstu kjöt-
verslunum borgarinnar og hefur
jafnan boðið kjötvörur á mun lægra
verði heldur en aðrar kjötverslanir
hafa gert. Kjötmiðstöðin hefur alltaf
komið mjög hagstætt út í kjötverð-
könnunum Verðlagsstofnunar.
— Hvernig ferðu að því að hafa
kjötið, t.d. svínakjötið, á hagstæðra verði
en víða er?
„Eg get sagt þér meö svínakjötið,
það er einfaldlega vegna þess að ég
greiöi bændunum fyrirfram þannig að
þeir geti fjármagnað fóðurkaup og
annað og svo kaupi ég kjötiö á föstu
verði. Grísirnir sem ég er að borga fyr-
ir núna eru ekki einu sinni fæddir,”
sagði Hrafh. Hann vildi hins vegar
ekki segja okkur hvernig hann færi að
því aö selja nautakjöt á næstum þvi
hálf u heildsölu verði.
,,En viö tökum auðvitað mikla
áhættu í sambandi viö kjötkaup, eins
og t.d. í fyrra. Þá keypti ég 30 tonn af
svínakjöti 1. desember. Skömmu síðar
varð 20% verðfall og ég tapaði milljón
á einni nóttu. Eg held að menn hafi
hreinlega ekki þorað að taka áhættuna
og því sé minna um svínakjöt fyrir
utan að neyslan á svínakjöti hefur
aukist gífurlega mikið,” sagði Hrafn.
Hann sagði að Kjötmiöstöðin heföi
m.a. stuölað að þeirri auknu neyslu
með því að hafa á boöstólum alls kyns
hantéraðar svinasteikur og er jafnan
með ófrosið kjöt á boðstólum.
„Það er heldur ekkert skrýtið að
fleiri komist upp á lag með að borða
svínakjöt á meðan hlutar úr svini eru
ódýrari en lambakjöt, fyrir utan að
þaö þarf minna af svinakjöti á hvern
mann en lambakjötl Við höfum verið
meö sérstaklega kryddaðar svína-
sneiðar, svokallaöa sænska kryddsteik
sem er alveg gífurlega vinsæl.
Schnitzel úr svínakjöti er alvinsælasta
schnitzelið í dag,” sagði Hrafh Bach-
mann.
Við gátum ekki stillt okkur um að
spyrja Hrafn hvað hann ætlaði sjálfur
að hafa í jólamatinn.
„Rjúpur, auðvitaö rjúpur,” svaraði
hann.
-A.Bj.
Hrafn Bachmann ætlar að borða
rjúpuró aðfangadagskvöld.
DV-mynd: Bjarnleifur Bjarnleifs-
Sjá einnig
neytendasíðu
ábls.6
Samkeppnin og f rjálsa
álagningin koma
neytendum til góða
Guðlaug Steingrimsdóttir, kaup-
maður i Kjörbúð Hraunbæjar.
DV-mynd.
„Mér finnst tvimælalaust aö þessar
verðkannanir eigi rétt á sér. Það held-
ur vöruverðinu niðri,” sagði Guðlaug
Steingrimsdóttir, kaupmaður i Kjör-
búð Hraunbæjar, sem átti lægst verð á
þrem vörutegundum i könnun Verð-
lagsstofnunar á jólasteikarverðinu yf-
ir allt landið. Guðlaug kom vel út úr
könnuninni almennt.
— Hvernig heldurðu kjötverði í lág-
marki?
„Eg kaupi kjötið mikið beint og læt
reykja sjálf og reyni alltaf aö gera hag-
stæð innkaup og yfirleitt allt sem
mögulegt er til að halda vöruverðinu
niðri. Alagningin er nú yfirleitt lægri
en hún var áður en hún var gefin frjáls.
Þetta er mjög mikil vinna en maður er
að reyna aö halda fólkinu í hverfinu,”
sagði Guölaug. Hún sagöi aö sam-
keppnin við stórmarkaðina væri gífur-
lega hörð en hún væri staðráðin i að
gera áf ram sitt besta.
„Þessi samkeppni og frjálsa álagn-
ingin hefur sannarlega komið neytend-
um til góða,” sagði Guðiaug. Hún sagö-
ist vera búin að reka Kjörbúð Hraun-
bæjar í Hraunbæ 102 i tvö ár en áður
var hún með litla verslun i Hlíðunum.
A.Bj.
Sanitas
VERDLÆKKUN'
w /0
VERDMUNUR
0,851
&
JSt
Gleðileg jól. Sanitas hf.