Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Síða 36
36
DV. MANUDAGUR17. DESEMBER1984.
DV. MÁNUDAGUR17. DESEMBER1984.
37
iþróttir
Iþrótt
iþróttir
Iþróttir
íþróttir
iþróttir
Íþrótt
iþrótt
Sætir
sigrar hjá
Svíum
— yfir Bandaríkja-
mönnum íDavis Cup
Þeir Mats Wllander og Henrik Sund-
ström léku mjög vel í gser í Gautaborg,
þegar þeir lögöu þá Jimmy Connors og
John McEnroe aö velli í úrslita-
keppninni um heimsmeistaratitil
landsliða (Davis Cup) — þannig að
Svíar hafa náð góðu forskoti (2—0) á
Bandaríkjamenn.
• Wilander vann Connor 6—1,6—3 og 6—3.
• Hinn ungi Sundström vann McEnroe
13—11, 6—1 og 6—4. Fyrsta lotan var
geysilega spennandi og stóft hún yfir í hvorki
meira né minna en 123 mínútur.
-SOS.
Barcelona
tapaði
Barcelona tapaði sínum f yrsta leik á
Spáni í gær þegar félagið lék í Bilbao
gegn Atletico Bilbao sem vann, 1—0.
Getur verið að morðhótun sem Terry
Venables, þjálfari Barcelona, fékk hafi
haft áhrif á leikmenn Barcelona? 10
mín. tafir urðu á leiknum vegna mót-
mæla skipasmíðamanna sem eru í
verkfalli. Þá var Bernd Schuster hjá
Barcelona rekinn af leikvelli í leiknum.
Real Madrid vann góftan slgur, 1—0, yfir
Valencia. Barcelona er efst á Spáni meft 25
stig en Real Madrid kemur næst meft 22 stig.
Real Sociedad og Betis hafa 19 stig og
Valencla, Sporting og Atletico Madrid 18 stig.
-SOS.
Fjarvera lands-
liðsfyriHiðans
hafði ekki áhrif
— þegar Valur vann öruggan sigur á Stjörnunni, 21:14
Þrátt fyrir að
landsliðsfyrirliöi
Þorbjörn Jensson
léki ekki með
félögum sinum í Val í gær gegn Stjörn-
unni áttu þeir rauðklæddu ekki í mikl-
Valdimar Grímsson átti mjög góðan leik með Val og skoraði sjö mörk.
DV-mynd Brynjar Gauti.
Sex marka sigur
FH gegn Víking
— íslandsmeistarar FH áttu aldrei í vandræðum
með Víkinga og sigruðu 32:26
Það var mikið markaregn í Hafnar-
flrði í gærkvöldi þegar FH vann Víking
í leik liðanna i 1. deild með 32 mörkum
gegn 26. Staðan i leikhléi var 15—14.
Slgur FH-tnga var aldrel i neinni
hættu og náðu Víkingar aldrei að kom-
ast almennllega inn í leikinn. Mestur
varð munurinn á liöunum niu mörk
þegar staðan var 27—18.
FH-ingar halda því enn öruggri for-
ystu sinni i deildinni og virðast líklegir
til að halda titlinum i Hafnarfirði. Of
snemmt er þó að spá nokkru þar um.
Mörk FH: Kristján Arason 9, Guðjón
Arnason 6, Þorgils Ottar Mathiesen 5,
Pálmi Jónsson 5, Hans Guömundsson
4, Guöjón Guömundsson 2 og Oskar Ar-
mannsson skoraði eitt mark.
Mörk Víkings: Hilmar Sigurgislason
7, Þorbergur Aðalsteinsson 5, Karl
Þráinsson 5, Viggó Sigurösson 3, Guð-
mundur Guðmundsson 2, Siggeir
Magnússon 2, Einar Jóhannesson 1 og
Guömundur Þ. Guðmundsson skoraði
eittmark.
Það vakti athygli í gærkvöldi að þeir
Gunnar Kjartansson og Rögnvaldur
Erlingsson dæmdu leikinn en þeir
höfðu fyrr um daginn dæmt leik Vals
og Stjömunnar i Laugardalshöll. Er
varla hægt að leggja það á dómara að
þeir dæmi tvo leiki í 1. deild sama dag-
inn. -sk.
Hjá okkur færðu
London Lamb
A
HEILDSÖLUVERDI
Álfheimabúðin Nóatún Árbæjarmarkaðurinn
Álfheimum 4 Nóatúni 17 Rofabæ 39
S 3 40 20 S 1 72 61 ® 7 12 00
um erfiðleikum með að innbyrða
stóran sigur.
Valur vann, 21—14, eftir að staöan í
leikhléi hafði verið 9—5 Val í vil. Og
eins og í leik KR og UBK á undan fóru
mörg vítaköst forgörðum. Brynjar
Kvaran bjargaði Stjömunni frá risa-
stóru tapi. Hann varði alls 11 skot í
leiknum, þar af fjögur vítaköst. Og allt
þetta gerði Brynjar þrátt fyrir að hann
léki á annarri löppinni vegna meiðsla.
Leikurinn var í heild ákaflega
slakur og hreint ekki fyrir augaö. Bæði
lið léku illa og geta gert mun betur.
Þaö eina sem gladdi augað, og það
virkilega, var stórgóð frammistaða
markvarða liðanna, þeirra Brynjars
Kvaran og Einars Þorvarðarsonar.
Aður er getið um stórleik Brynjars
en Einar var þó enn öruggari þrátt
fyrir að hann næði ekki að verja víta-
kast í leiknum. Hann varði alls 15 skot í
leiknum og sum hver á auðveldan hátt.
Mörk Vais: Vadimar 7, Júlíus 5, Þorbjöm
G. 3, Jakob 3, Jón Pétur 2, Steindór 1.
Mörk Stjöraunnar: Eyjólfur 4, Hannes 2,
Guftmundur Þ. 2 (1 v.), Guftmundur 0. 2,
Ingimar 1, Gunnlaugur 1, Hermundur 1 og
Magnúsl.
Dcnlarar voru þdr Gunnar Kjartansscn og
Rögnvaldur Erlingsson og áttu þeir ekki
góðan dag.
-SK.
Gomesskoraði
f imm mörk
Portúgalski liðsmafturlnn Fernando Gomes
skoraði flmm mörk þegar Porto vann stór-
slgur, 9—1, yflr Vlzela. Gomes hefur skoraft
þrettán mörk i vetur.
Porto er efst i Portúgal meft 23 stlg eftir 13
leikl, Sporting (John Toshack og félagar) er
meft 21 stig og Benf ica 19.
-SOS.
Jens var eins
og vindmylla
Jens Einarsson varði fimm vítaköst þegar KR vann Breiðablik 18:15
★ Blikar misnotuðu sjö vfti í leiknum
Jóhannes Stef ánsson sést hér skora eitt af þremur
mörkum sinum gegn Breiðabliki.
DV-mynd Brynjar Gauti.
ÍS og HK sigruðu
Línur í 1. deild karla í blaki eru farnar að
skýrast. Þróttur, HK og ÍS berjast á toppnum en
Fram og Víkingur á botninum.
IS sigraði Fram i Hagaskóla á laugardag 3—0;
16—14, 16—14 og 4—15. I fyrstu hrinu höfðu
Framarar náð 14—6 forystu og í annarri hrinu
14—9 forystu. I þriðju hrinu hættu þeir að spila
blak og stúdentar, með Þorvarð Sigfússon í farar-
broddi, sigruðu auðveldlega.
HK sigraði Víking í Digranesskóla 3—1. Kópa-
vogsbúarnir tóku tvær fyrstu hrinurnar auðveld-
lega og náðu svo góöu forskoti í þeirri þriðju áður
en þeir hleyptu varaliðinu inn á. Þá snerist leikur-
inn við, Víkingi á hag, sem vann hrinuna 15—10.
Fjórða hrinan varð basl en HK hafði sigurinn, 15—
13. -KMU.
„Nei, okkur vantar ekki vítaskyttu.
Það sem vantar hjá okkur er
einbeiting og ekkert annað,” sagði
Þorsteinn Jóhannsson, þjálfari nýllða
Breiðabllks, eftir að KR-lngar höfðu
slgrað Blikana, 18—15, i leik liðanna í
1. deild Islandsmótsins í handknattleik
í gær. Staðan i leikhléi var 10—5 KR í
vil.
Það sem fyrst og fremst gerði
þennan leik eftirminnilegan, og þá
kannski ekki síst fyrir leikmenn Breiða-
bliks, var að alls fóru níu vítaköst for-
görðum. Blikar misnotuðu sjö þeirra.
Jens Einarsson var í miklu stuði og
gerði sér lítið fyrir og varði fimm víta-
köst. Þaö er mikiö afrek. Þaö er líka
afrek að láta verja frá sér fimm vita-
köst og misnota tvö önnur. Guðmundur
Hrafnkelsson í Blikamarkinu varði tvö
víti KR-inga. Þó að Blikamir mis-
notuðu öll þessi vítaköst var tapiö ekki
stórt og þeir unnu síðari hálfleikinn
með tveimur mörkum. Hvernig hefði
Dómari fékk
lögregluvernd
Verona er óstöðvandi á Ítalíu
Það voru 60 þús. óánægðir áhorf-
endur sem yfirgáfu lelkvöll Lazio í
Róm eftir að félaglð hafði tapað 0—1
fyrir efsta liðinu Verona sem lék án
Hans-Peter Briegel, sem lék með V-
Þjóðverjum á Möltu, og danska leik-
mannsins Preber Elkjær Larsen sem
er meiddur. Það var Giuseppe
Galderisi sem skoraði sigurmark Ver-
ona.
Liam Brady var hetja Inter Mílanó
sem lagði Cremonese að velli, 2—1.
Hann skoraði fyrst með þrumuskoti af
Sigmar Þröstur lokaði
markinu og Þór sigraði
— Vann sjö marka sigur á Þrótti, 28:21, í 1. deild handknattleiksins ígær
Frá Friðbirni Ö. Valtýssyni, Vest-
mannaeyjum.
Mjög góður leikkafli Þórara gegn
Þrótti um miðjan fyrri hálfleikinn
lagði grunn að góðum sigri Þórs,
öðrum sigri iiðsins í 1. deildinni í hand-
knattleiknum. Þór náði þá sjö marka
forustu, komst í 14—7 og í lokin var sjö
marka munur. Þór sigraði 28—21.
Heldur óvænt úrslit eftir árangri lið-
anna í mótinu að undanförnu en sigur
Þórs mjög verðskuldaður. Langbesti
maðurinn á vellinum var Sigmar
Þröstur Öskarsson, markvörður Þórs,
sem varði um 20 skot í leiknum, þar af
þrjú vítaköst.
Leikurinn var heldur daufur framan af
og liöin skiptust á aö skora. Síðan kom
leikkaflinn snjalli hjá heimamönnum
og staðan breyttist þeim algjörlega í
hag. I hálfleik var staðan 14—9 fyrir
Þór.
Framan af síöari hálfleiknum tókst
Þrótti aðeins aö klóra í bakkann,
minnkaði muninn í þrjú mörk, 19—16.
En þá sprungu Þróttarar á limminu og
Þór tryggði sér öruggan sigur með
góðumendaspretti.
Þórsliðiö lék þokkalega vel að þessu
sinni en þó komu daufir kaflar á milli
sem liðið verður að laga ef því á að tak-
1 ast að halda sæti sínu í 1. deildinni. Leik-
menn liösins eru ungir að árum og eiga
framtíðina fyrir sér. Slök frammi-
staða Þróttar kom á óvart, flestir
leikmenn Reykjavíkurliðsins úti aö
aka. Páll Olafsson, landsliðsmaður og
þjálfari, óvenjudaufur, hafði hægt um
sig. Einn leikmaður bar af í liöi Þrótt-
ar, Birgir Sigurðsson línumaður, sem
skoraði tíu mörk í leiknum.
Mörk Þórs skoruöu Gylfi Birgisson
5, Sigurður Friðriksson 5/1, Herbert
Þorleifsson 5/2, Elías Bjamhéðinsson
4, Sigbjörn Oskarsson 4, Öskar Freyr
Brynjarsson 2, Steinar Tómason 2 og
Páll Scheving 1. Mörk Þróttar skoruöu
Birgir 10, Gísli Oskarsson 4/1, Sverrir
Sverrisson 3/1, Páll 2, Sigurjón Gylfa-
son og Haukur Hafsteinsson eitt hvor.
Dómarar Guðmundur Kolbeinsson og
Þorgeir Pálsson. Dæmdu vel. Sex Þór-
arar voru reknir af velli í tvær mín.
hver eða í 12 mínútur. Þremur leik-
mönnum Þróttar í sex mínútur.
FÖV/hsím.
• Sigmar Þröstur, varði vel í eyjum í gær.
22 m færi — úr aukaspymu og þá lagöi
hann upp mark sem Mandorlini
skoraöi.
• Mark Hateley lék aö ný ju meö AC
Mílanó sem varð að sætta sig viö
jafntefli, 2—2, gegn Atlanta á heima-
velli. Hateley náði ekki að skora en
hann lagði upp mark fyrir Virdis, en
hann skoraði bæði mörk Mílanóliðsins.
• Dómarinn Bergamo varð að yfir-
gefa leikvöll Napoli, Paolo Stadium,
undir lögregluvernd, eftir að Roma
hafði lagt Napoli að velli, 2—1. Dómar-
inn dæmdi mark af Napolí, áður en
Falcao skoraði 1—0 fyrir Roma.
Argentinumaðurinn Bertoni jafnaði
1—1 fyrir Napolí en það var svo Nela
sem skoraði sigurmark Roma.
• Fiorentina og Juventus gerðu
jafntefli, 0—0, Sampdoría vann
Avellino 1—0 og Torínó lagði Coma aö
velli,3—1.
• Verona er efst með 20 stig eftir
tólf umferðir — eina liðið sem ekki
hefur tapað leik á Italíu, unnið átta og
gert fjögur jafntefli.
Torínó er með 18 stig, Inter Mílanó
og Sampdoría 17, Roma 14, AC Mílanó
13, Juventus, Fiorentína og Atalanta 12
als' ÍOS.
STAÐAN
l.DEILD
Crslit urftu þessi i 1. deildarkeppnhml i
handknattlelk i gœr:
Þór-Þréttur 28—21
KR-Brelftabllk 18—15
Valur-Stjaraan 21—14
FH-Víkingur 32—26
FH 5 5 0 0 129—109 10
Valur 3 2 1 0 73-54 5
Stjaraan 5 2 1 2 107—105 5
KR 4 2 0 2 81-74 4
Vikingur 4 1 2 1 98—100 4
ÞórVe 5 2 0 3 107—113 4
Þréttur 5 0 2 3 104-125 2
BrelftabUk 5 1 0 4 98—117 2
Nœstu leUdr: Þróttur-Stjaraan annaft
kvöld og á mtftvlkudaglnn: FH-Valur, KR-Þór
og Viklngur BreiðabUk.
leikurinn farið ef Blikarnir heföu
skorað þó ekki nema úr helmingnum af
vítunum? Gangur leiksins var í stuttu
máli sá að KR-ingar byrjuðu mun
betur og settu Blikana út af laginu
strax á fyrstu mínútunum. Staðan
varð fljótlega 4—1 og síðar 8—4. Blikar
skoruðu ekki mark á tólf mínútna kafla
í fyrri hálfleiknum og misnotuðu sex
vítaköst fyrir leikhlé.
Þegar síðari hálfleikur var
hálfnaður, hafði Blikunum tekist að
jafna leikinn, 12—12, og allt virtist geta
skeð. Þegar fjórar minútur voru til
leiksloka var staðan 15—14 og síðar
16—15 en KR-ingar voru sterkari á
lokakaflanum. Á síðustu tíu mínútum
leiksins misnotuðu Blikar tvö vítaköt
og það sem fyrst og fremst gerði þaö
að verkum aö sigurinn lenti ekki
Breiðabliksmegin var slæm nýting af
vitalínunni. Deyfð var mikil i
sóknarleiknum og leikmenn virtust
hreinlega fara á taugum þegar illa
gekk. Þá var ekki annað að að sjá í
síðari hálfleik en að úthald væri af
skornum skammti.
KR-ingar byrjuðu leikinn vel en þeir
geta eingöngu þakkað markverði
sínum, Jens Einarssyni, þennan sigur.
Jenni fór hreinlega á kostum og varði
alls 13 skot í leiknum, þar af fimm vítá.
KR-liðið verður að leika mun betur í
næstu leikjum ef ekki á illa að fara.
Mörk KR: Jakob 5, Jóhannes 3,
Olafur 3 (1 v.), Haukur Ottesen 1,
Haukur G. 2, Friðrik 2, Hörður 1, Páll
1.
Mörk UBK: Bjöm 4, Jón Þ. 4 (2 v.),
Kristján Þ. 2, Kristján H. 3, Alexander
1 ogAðalsteinnl.
Leikinn dæmdu þeir Olafur Har-
aldsson og Stefán Amaldsson og voru
góðir. -SK.
iþróttir
Eindhoven
stöðvaði
sigurgöngu
Ajax
Ron Atkinson, framkvæmdastjóri
Manchester United mátti þola sitt
fyrsta tap á keppnistimabilinu, 1—2,
fyrir Eindhoven sem skaut með því
upp á topplnn í Hollandi. Atkinson var
þar tU að fylgjast með vamar-
manninum Ernie Brandts hjá
Eindhoven, en það var einmltt
Brandts sem opnaði leikinn — með
góðu marki á 16. min. og síðan skoraði
Van der Gijp tvö mörk og Michel Valke
eitt. AusturrUdsmaðurinn Fellx
GasseUch skoraði mark Ajax, rétt
fyrir leikslok.
Eindhoven er með 26 stig eftir sextán
leiki og síöan kemur Ajax með
jafnmörg stig, en verri markatölu,
eftir fimmtán leiki. Feyenoord, sem
lagði Den Bosch að velli, 2—1, er í
þriðja sæti — meö 22 stig, Groningen
kemur svo meö 21 og Twente 19.
Heimir Karlsson og félagar hans
hjá Excelsior töpuðu heima 0—1 fyrir
Haarlem.
-sos.
(tylýX...
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
I flestum leynist listamaður. Vandinn er bara að byrja. Til þess þarf
ekki dýran eða flókinn útbúnað. Heima nægir eldhúsborðið eða horn
í bílskúrnum. Svo kemur teiknideild Pennans til sögunnar.
Það er örugglega listamaður í þinni fj'ölskyldu. Kannski þorir hann
ekki að fara sjálfur að kaupa sér það sem til þarf. Þessvegna er gaman
að gefa myndlistarvörur.
Olíulitir, vatnslitir og allar aðrar tegundir lita. Túss, trönur, blind-
rammar, strigi, pappír. Kennslubækur fyrir byrjendur á öllum sviðum
myndlistar eru góð byrjun. (Kannski nokkrar túpur og lítið strigaspjald
með). Hitt kemur svo koll af kolli. Allt til í teiknideild Pennans. Þar
afgreiða útlærðir myndlistarmenn, sem kunna sitt fag.
rTTUU.W-
HALLARMÚLA 2 SlMI 83211