Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Qupperneq 39
DV. MÁNUDAGUR17. DESEMBER1984.
39
íþróttir íþróttir (þróttir íþróttir
á Kástle skíðum, Marker bindingum og Dynafit skíðaskóm. Við
skíðum og bindingum á ótrúlega lágu verði.
Fullorðins-
pakki
Kástle Comfort skíði
lengd 160-195
verö kr. 6.320.-
Jólatilboð kr. 6.990.
Extra-tilboð
Byrjendaskíðasett,
barna og fullorðins.
Skíði og bindingar.
Extra-tilboðsverð
kr. 2.860.-
Barna- og
unglingapakki
Kástle Champ skíði
lengd 120-140
Marker M 15 bindingar
verð kr. 4.850.-
Jólatilboð kr.3.890.-
Kástle Champ skíði
lengd 150-175
Marker M 15 bindingar
vcrð kr. 4.850.-
Jólatilboð kr. 3.990.-
S3vimafit
SuperShadow
stærðir5-12
verí kr. 3.270.-
Jólatilboð kr.
2.540.-
Dvnafit
LadyClassic
stærðir4-7
verð kr. 2.650.-
Jólatilboð kr.
1.980.-
Dvnafit
Junior Master
stærðir 30-40
yerðkr.-^hSSO.-
Jólatilboð kr.
1.190.-
SKÁTABÚÐIN
Dvnafit
gönguskíðaskór
DynafitTouring75
stærðir 40-47
verðkr. 1.550.-
Jólatilboð kr.
.190.-
Snorrabraut 60 sími 12045
Arsenal vann öruggan sigur en heppnin var með Tottenham
• Tveir snjöllustu markverðir Englands seinni ára, Peter Shilton og Ray
Clemence, voru í sviðsljósinu á laugardaginn.
aukaspyrnu og sendi knöttinn inn í
vítateig Watford, þar sem Graham
Roberts var og skallaöi knöttinn til
Mark Falco, sem skoraði sitt
sautjánda mark í vetur — 0—1.
Leikmenn Watford gáfust ekki upp
og þeir tvíefldust við mótlætið. Nigel
Callaghan átti þrumuskot sem skall á
slánni á marki Tottenham og síðan
varði Clemence skalla frá John Barnes
á meistaralegan hátt. George Reilly
misnotaði síðan tvö gullin tækifæri.
Það var svo Garth Crooks sem
skoraði 2—0 fyrir Tottenham á 55. mín.
en Steve Terry minnkaöi muninn í 2—1
fyrir Watford á 63. mín. — og þá hófst
barátta leikmanna Watford fyrir
alvöru. Callaghan hafði ekki heppnina
með sér — skaut í stöngina á marki
Tottenham og síðan sýndi Clemence
hvað eftir annaö snilldartakta í mark-
inu, þannig að leikmenn Watford réðu
ekkert við hann og máttu sætta sig við
tap —1—2.
Yfirburðir Arsenal
Arsenal vann öruggan sigur, 4—0,
yfir WBA á Highbury þar sem 33.728
áhorfendur voru samankomnir. Leik-
menn Arsenal tóku völdin á miðjunni
og réðu gangi leiksins. Paul Davies
skoraöi 1—0 fyrir Barónana úr víta-
spymu á 38. mín., sem var dæmd á
Derek Statham sem handlék knöttinn.
Það var svo um miðjan seinni hálf-
leikinn að Arsenal gerði endanlega út
um leikinn með því að skora tvö mörk
á tveimur mínútum. Brian Talbot
skoraði fyrst og síðan hinn ungi Ian
Allinson, sem bætti svo fjóröa
markinu við. Ian Allinsbn hefur átt
stórleiki aö undanfömu, þannig aö
Charlie Nicholas er kominn út í kuld-
ann. Þá lék Talbot vel og það er ijóst að
hann gefur sæti sitt ekki átakalaust
eftir, ef Arsenal kaupir Steve Williams
fráSouthampton.
Shelton meiddist
West Ham átti í miklum erfiðleikum
með Sheffield Wed. á Upton Park.
Leikmenn Wednesday sóttu grimmt í
fyrri hálfleik og með smáheppni hefðu
þeir átt að vera búnir að skora minnst
tvö mörk. Félagið varð síðan fyrir ó-
happi þegar Gary Shelton, miðvallar-
spilarinn snjalli, meiddist á ökkla og
var fluttur á sjúkrahús. Við þaö
misstu leikmenn liösins jafnvægi og
West Ham kom meira og meira inn í
leikinn og ógnuðu þeir Paul Allen og
Paul Goddard marki Sheff. Wed.
Martin Hodge þurfti tvisvar að verja
vel og á síöustu min. leiksins sýndi
hann snilldarmarkvörslu þegar hann
varði frá Dave Swindlehurst.
JOLA
Tottenham og Arsenal gefa nú
Luudúnabúum von um að það sé að
renna upp „Lundúnaár” — að
Englandsmeistaratitillinn hafni í
London, eftir þrettán ára útlegð.
Arsenal vann síðast Lundúnaliða
meistaratitilinn árið 1971, og þá gerði
fciagið betur, vann „doubie”, eða bæði
deild og bikar, en þá voru einmitt tíu ár
síðan Tottenham vann það afrek, árið
1961.
Meistaratitillinn hefur því aðeins
hafnað tvisvar í London á síöustu 23
árum, en aftur á móti hafa Lundúnalið
unnið bikarinn ellefu sinnum á sama
tíma. Lundúnaliðin hafa þvi fengið
þann stimpil á sig aö þau iséu sterk
bikarlið — eða stemmningslið í „eins
leiks slag”, en veikari í lengri útgerð.
En hvað um það, þaö er ekki ætlun
okkar að vera með hugvekju um
árangur liðanna frá London síðustu
áratugi, heldur segja frá leikjum
liðanna á laugardaginn.
Clemence með stórleik
Ray Clemence, markvörður
Tottenham, átti stórleik þegar félagið
heimsótti Watford. 24.225 áhorfendur
sáu hann verja hvað eftir annaö
glæsilega þegar Tottenham vann
sigur, 2—1. Tottenham skoraði fyrst á
16. mín. þegar Steve Perryman tók
Gönguskíða-
pakki
KástleTouring
gönguskíðí
lengd 180-215
Marker gönguskíða-
bindingar
verð kr. 3.210.-
Jólatilboð kr. 2.680.-
Lundúnarisamir
gefa ekkert eftir
Sjðlfsmark Shiltons
Peter Shilton, markvörður
Southampton, skoraði sjálfsmark í
Highfield Road í Coventry, þar sem
Southampton tapaði sínum fyrsta leik
síðan 4. september — 1—2. Trevor
Peake skoraði fyrra mark Coventry
en Joe Jordan skoraði eina mark
Southampton.
• Sunderland vann sinn fyrsta sigur
á útivelli í vetur þegar félagið lagði
Ipswich að velli 2—0 á Portman Road.
Gary Bennett og Clive Walker skoruðu
mörk liðsins.
• Chelsea varð að sætta sig við
jafntefli, 1—1, gegn Stoke, sem fékk
þar með sitt fyrsta stig í síðustu ellefu
leikjum liðsins. Kerry Dixon skoraöi
mark Chelsea — hans 21. mark, en
Paul Dyson jafnaði fyrir Stoke.
-SOS.
Thompson
til Sheff-
ield Utd
Það varð ekkert af því að Phíl
Thompson færi sem lánsmaður til Hull
City — hann breytti um stefnu og fór
þess í stað til Sheff. Utd. sem leikur í 2.
deild. Verulegar iíkur eru taldar á að
hann geri samning til frambúðar hjá
þessu kunna félagi. Thompson, fyrrum
f yrirliði Liverpool og um árabil enskur
landsliðsmaður, er nú talinn hafa litla
sem enga möguleika á að vinna sæti á
ný í Liverpool-liðinu.
-hsim.