Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Page 44
44
DV. MANUDAGUR17. DESEMBER1984.
Úlfar Gunnarsson, framleiðslustjóri Iðunnar; Jafet Ólafsson, forstöðumaður fatadeildar SÍS, og Þorbjörn
Stefánsson, verksmiðjustjóri Gefjunar.
Husqvarna Optima
Husqvarna Optima er fullkomin saumavéi, létt og
auðveld í notkun.
Husqvarna Optima hefur alla nytjasauma inn-
byggða.
Husqvarna Optima saumar allt frá þynnsta silki til
grófasta striga og skinns.
Husqvarna Optima, óskadraumur húsmóðurinnar.
Verð frá kr.
12.000.
stgr.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Sími 9135200
(fi) Husqvarna
DEMANTAHOSIÐ
SÉRHA NNA ÐIR H VITA G UL L SSKA R TGRIPIR
MEÐ VIÐURKENNDUM DEMÖNTUM
DEMANTAHÚSIÐ
REYKJAVÍKURVEG! 62, HAFNARFIRÐI
A TH. NÝTT SÍMANÚMER 651313
Þekkt andlit auglýsa „A CT"-skó fatadeildar SÍS.
Framtíðin verð-
ur „ACT”
hjá fatadeild SÍS
Fatadeild SIS rekur umfangsmikla
framleiðslu, innflutning og söiu á
hvers kyns fatnaði, skóm og heimilis-
vefnaði. Deildin rekur fata- og
skóverksmiðju á Akureyri, sauma-
stofu á Sauðárkróki og fataverksmiðju
í Reykjavík og að auki verslanimar
Torgið og Herrariki.
Fatadeildin varð til við skipulags-
breytingar sem gerðar voru á
Sambandinu sl. sumar og er deildin
hluti af Verslunardeild Sambandsins.
Nýlega voru blaðamenn boöaðir til
kynningar þar sem kynnt 1 voru
áform fatadeildarinnar svo og nýjar
tiskulínur i fatnaði og skófatnaði. Alls
ráðandi er „ACT” og mun það vöru-
merki heyrast mikið í framtiðinni,
bæði á fatnaði og skóm, sagði Jafet
Olafsson, forstöðumaður fatadeildar-
innar.
Hafin er auglýsingaherferð á
,,ACT”-vörum og hafa tveir
alþingismenn sést í auglýsingadálkum
dagblaðanna þar sem þeir máta
,,ACT”-skóna.
Jafet sagði að þeir teldu þetta
framlag þeirra raunhæfan stuðning til
að styðja við bakið á islenskum iðnaði.
Vinnufataverksmiðjan Hekla á
Akureyri framleiðir aðallega buxur og
yfirhafnir, og em Heklu-úlpumar
sívinsælu hvað merkastar. Byrjuð var
framleiösla á þeim fyrir 25 árum og
em þær framleiddar enn í dag. Einnig
er framleitt í Heklu nokkuð af sokkum.
Skóverksmiðjan Iðunn á Akureyri
starfar enn af krafti þrátt fyrir að uppi
hafi verið hugmyndir um að hætta
rekstri árið 1980. Frá þeirri hugmynd
var horfið og vélakostur var endur-
nýjaður, verksmiðjan var endurskipu-
lögð og vöraþróun var efld verulega.
Hafin var þá framleiösla undir vöm-
merkinu ,,ACT” sem nú er eina
vörumerki verksmiðjunnar.
Framleiddir eru karlmanna- og ungl-
ingaskór og götuskór kvenna, ásamt
fjölbreyttu úrvali af kuldaskófatnaði.
Áætlaö er að framleidd verði 65.000
pör af skóm á þessu ári, en skókaup
Islendinga á ári nema um 500.000
pörumafskóm.
Skóverksmiðjan Iðunn er sú eina á
landinu og séö er fram á aö reksturinn
fari batnandi með tímanum.
Olfar Gunnarsson, framleiðslustjóri
Iðunnar, sagði að tekist hefði mjög vel
til með vöruþróun. „Við notum
hugmyndir annarra en staðfæmm að
íslenskum veðurskilyrðum svo að
skómir seljist hér á landi.”
Fataverksmiðjan Gefjun í Reykja-
vík framleiðir nú einkum herra- og
unglingaföt. Um 20 prósent af fram-
leiðslunni em sérsaumuð föt, m.a. er
saumað mikið af einkennisfatnaöi
Það sem koma skal er gæjafatnað-
ur frá SÍS undir vörumerkinu
„Guts".
fyrir hið opinbera. Einnig hefur færst í
vöxt að sauma einkennisföt fyrir
einstök fyrirtæki og sem dæmi má
nefna að Landsbankinn hefur nú látið
sauma einkennisföt á allt starfsfólk
bankans.
Nýlega var hafin framleiðsla á
frjálslegum fatnaði undir
vörumerkinu „Guts” sem er fyrir
„unga” menn. Þessi lína er í „gæja-
stæl” og er hönnuðurinn Jan Davids-
son. Fjölbreytni í þessari fatalínu
verður siöar aukin og boðið upp á
frakka, peysur og skyrtur í þessum
stil.
Verksmiöjan Ylrún er starfrækt á
Sauðárkróki. Ylrún framleiðir sængur,
kodda, svefnpoka og kermpoka. Hjá
verksmiðjunni starfa sjö manns — allt
konur.
Fatadeild Sambandsins er ekki með
útflutning á vömm sínum. .Jnnlenda
fataframleiðslan er samkeppnishæf
við aðrar innflutningsvörur,” sagði
Jafet. „Markaðurinn íslenski er sér-
stakur og íhaldssamur og hikum við
ekki við að stela góðum hugmyndum
frá nágrannalöndunum, hvar sem þær
er að finna, og nýta þær hérlendis.”
Peysuframleiðslu hefur að mestu
verið hætt hjá fatadeild SlS vegna örra
tæknibreytinga í peysuframleiðslu.
Vélamar em hins vegar notaðar í
ullarframleiðslunni.
Vömmerki fatadeildarinnar eru öii á
ensku sem er nokkuð merkilegt þar
sem enginn útflutningur er á vörunum.
Jafet sagði aö skýringarnar á bak viö
þetta væru e.t.v. sálfræðilegar vegna
þess að mun auðveldara er að koma
vöm á markaðinn sem er undir
erlendu vörumerki heldur en íslensku.
Hinsvegar er þaö von manna hjá SlS
aö draumurinn um útflutning verði að
vemleika einhvern daginn.
-JI.
Málef ni hungurs og neyðar
Athygli alþingismanna hefur sér-
staklega verið vakin á hrikalegri neyð
á þurrkasvæðunum í Afríku með bréfi
frá Hjálparstofnun kirkjunnar.
Iþví bréfisegir m.a.: Flest þjóðþing
nágrannalandanna hafa nú þegar tekið
þessi málefni til gaumgæfilegrar um-
ræðu og lagt af mörkum umtalsverð
framlög til hjálparstarfsins. T.d. hefur
danska þjóðþingiö lagt af mörkum
tuttugu og fimm milljónir danskra
króna og auk þess heitið að það muni
leggja fram jafnháa upphæð og safn-
ast í frjálsum söfnunum. Hjálpar-
stofnanir nágrannaiandanna leggja nú
áherslu á að senda flugleiðis matvæli,
hjálpargögn og hjúkrunarfólk á
neyðarsvæðin.
Hjálparstofnunin skorar á Alþingi
Islendinga að taka málefni hungurs og
neyðar til umræðu og ákvörðunar.
-ÞG