Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Síða 48
48 DV. MANUDAGUR17. DESEMBER1984. MEZZOFORTE — RISING: ALISON MOYET—ALF: Engin venjuleg söngkona Sannast sagna hef ég ekki beðiö eftir nokkurri annarri breiðskífu á þessu ári með jafnmikilli tilhlökkun og þessari fyrstu sólóplötu Alison Moyet. Hún vakti fyrst athygli á sér í hljómsveit- inni Yazoo þar sem hún skyggði að mínum dómi gersamlega á Vince Clarke og lögin hennar á báðum Yazoo-plötunum báru glöggt vitni um stórbrotna söngkonu og frábæran laga- smið; ýkjulaust held ég það hafi ekki komið fram jafn mikilfengleg söng- kona í rokkinu í háa herrans tíð. Svo leystist Yazoo upp og þau fóru hvort sína leiðina, Vince Clarke stofnaði The Assembly og Alf tilkynnti um sólóferil. Hér er hann hafinn og það þarf enginn að velkjast í vafa um ágæti Alison Moyet eftir að hafa hlýtt á þessa plötu: hún er dásemd! Það þarf ekki að hlusta grannt til þess að skynja hæfileikana í þessari miklu djúpu rödd og tilfinninguna fyrir iaglínum. Hitt er svo aftur veikur hlekkur, og raunar allt að því skemmd, að útsetja lögin með þeim aula-popp-hætti sem hér er gert. Hvernig dettur mönnum í hug að sömu útsetjarar hæfi Spandau Ballet og Alison Moyet? Vonandi kemur sú tíð að menn hætti að líta á Alf sem söluvöru og dægurlagasöngkonu og fái henni til fulltingis sómamenn sem skilja hennar tónlist. Við þurfum ekki annað en upplýsingar um átrúnaðargoð hennar til þess að skilja hvaðan uppspretta áhrifanna er. Svariðer: Billie Holiday. Hún er yndislega blúsuö þessi stelpa og gæti sent frá sér margfalt áhrifameiri plötu en þessa svo fremi Swain & Jolley fái reisupassann. Og raunar finnst mér samt merki- legt hvaö hæfileikar Alf ná að smjúga gegnum allt jukkið í útsetningunum, þær fela að sönnu margt en ekki allt og þess vegna er ekki annað hægt en bera lof á þessa plötu. Hér eru afar sterk og heillandi lög: Ali Cried Out, Where Hides Sleep, For You Only og Invisible. I fáum orðum sagt: hörkufín söngkona og lunkinn iagasmiður sem býr við vont atlæti hvað umgjörö og útsetningar áhrærir. Alison Moyet á betra skilið. Við líka! Gsal. ÞEIRRA BESTA TIL ÞESSA Þá er komin ný plata meö okkar þekktustu hljómsveit, Mezzoforte, og er ekki aö efa aö margir hafa beðiö spenntir eftir henni, bæði hérlendis og erlendis. Þar sem þeir eru búnir að skapa sér nafn erlendis er nafn þeirra merki um gæöatónlist. Frá því aö síð- asta plata þeirra, Yfirsýn, koip út í fyrra hafa oröiö þær breytingar að saxófónleikarinn Kristinn Svavarsson hefur hætt og eru liðsmenn Mezzoforte nú orðnir, eins og þeir voru upphaf- lega,fjórir. Rising, en svo nefnist nýja platan þeirra, er að mínu mati þeirra besta plata hingað til. Þaö er komin í ijós sú reynsla sem skapast hefur á tveggja ára feröalagi, hverjir hljómleikamir á fætur öörum, allt frá Islandi til Japans. Mezzoforte er í dag skipuö f jórum frá- bærum hljóðfæraleikurum sem beina kröftum sínum aöallega að jass-funk tónlist og eru komnir þar í fremstu röð. Mega þeir fara aö vara sig, Weather Report, Bob James, Lee Rittenour og fleiri þekkt nöfn sem spila samskonar tónlist. Ekki þaö að ég efist um að Mezzoforte sé jafnþekkt í Evrópu, en Bandaríkjamarkaðurinn er enn eftir og held ég að sé bara spursmál um tíma hvenær þeir komast inn á hann. Það voru greinilega inistök að fá Herb Alpert í hendur þeirra þekktasta lag, Garden Party. Hann klúðraöi því. En meöan Mezzoforte sendir frá sérplötur í likingu við Rising er þetta ekkert vandamálhjáþeim. Rising byrjar á stuttum inngangi eft- ir þá alla saman, Check It In, og gefur það tóninn hvað koma skal. Ur Check It In er fariö beint í Take Off, stórgott lag eftir Eyþór Gunnarsson. Grípandi melódía með hörkugóðum hljóðfæra- leik. Hefur það lag verið gefið út á smáskífu. Það er viðurkennt aö lög gæti komist á vinsældalista, ekki vant- ar gæöin. örlítil heppni þyrfti aö vera; meö. Happy Hour er annað lag sem fljótlega síast inn í heilabúið. Taktfast lag eftir Friðrik Karlsson, sem minnir aöeins á eldri lög. Waves er gullfallegt lag eftir Friðrik. Notar hann þar gítar- sem eingöngu eru leikin eiga mjög erf- itt uppdráttar á vinsældalistum. Gard- en Party var nánast undantekning fyr- ir tveimur árum. Take Off er lag sem synthesizer og passar þaö hljóöfæri vel viö rólegar ballööur þótt ekki kunni ég að meta það í hraðari lögum. Fyrri hlið plötunnar endar á Blizzard, frábæru lagi eftir Eyþór. Blizzard er jassað og er það ásamt Check It Out einkennandi þegar talaö er um aö Rising sé jassaöri en fyrri plötur Mezzoforte. Aðeins dofnar yfir plötunni þegar seinni hliöin er spiluð. Solid er nokkuð likt Happy Hour, bara ekki alveg eins gott. Það er fyrst í Northern Comfort sem heyrist í saxófóni. Hefur Mezzo- forte fengið til liðs við sig breskan saxófónleikara, Dale Barlow. Leikur hann í tveimur lögum, Northern Com- fort og Fiona. Lítið er hægt að dæma um getu hans í þessum tveimur lögum. Hann allavega bætir þau ekki og sóló hans eru síðri en Eyþórs og Friðriks. Friðrik á gott gítarsóló í Fiona, en í því lagi hressast þeir eftir frekar dauf tvö lög í röö. Rising er önnur falleg mel- ódia eftirFriðrik þar sem bassinn í ör- uggum höndum Jóhanns Ásmundsson- ar fær að njóta sín og allt er svo sett í botn í Check It Out, og þar er svo sann- arlega kraftur í hljómsveitinni. Góður endir á góðri plötu. Það er í raun ótrúlegt hversu þróaðir strákarnir í Mezzoforte eru orðnir í tónlist sinni, þegar það er haft í huga að þeir eru allir rétt rúmlega tvítugir. Þeir hafa að vísu leikið saman í nokkur ár, en það þarf frábæra hljóðfæraleik- ara til að skila frá sér jafnheilsteyptu verki og Rising er. Þrátt fyrir að saxó- fónleikur hafi skapaö nokkra fyllingu í tónlist þeirra á fyrri plötum, þá sakna ég hans ekki á Rising og er á þeirri skoðun að héðan í frá bæti hann litlu við tónlist Mezzoforte. HK. KIKK-KIKK: HRESST OG KRAFT- MIKIÐ POPP Fyrsta plata hljómsveitarinnar KIKK er ágætis kandídat í titilinn „jólaplata ársins” af þeirri einföldu meginástæðu að sennilega höfðar hún til breiðasta hópsins á jólaplötumark- aöinum i dag. Tónlistin er hresst og kraftmikiö popp, grípandi melódíur sem allir geta hummaö með. Hið eina sem verulega er aðfinnsluvert er að ekki er hægt að skilja textann sem sunginn er, hvort sem þar er um slæma hljóöblöndun að ræða eða raddbeitinguna hjá Sigríði Beinteinsdóttur. Ef þetta er gert með ráðnum hug er þaö ekki mjög sniðugt því að í tónlist sem þessari þykir þeim sem gaman hafa af henni nauðsynlegt að hafa einhverjar notalegar laglínur líðandi um heiladingulinn við hlustun, laglínur af „Baby I love you” -tegund- inni. KIKK-platan er gerð af þeim Sveini Kjartanssyni bassaleikara, Nikulás Róbertssyni hljómborðsleikara, Guð- mundi Jónssyni gítarleikara og Jóni Björgvinssyni trommuleikara, auk Sigríðar. Guðmundur Jónsson er þeirra at- kvæðamestur við lagasmíöarnar og finna má tvö dúndurskemmtileg lög eftir hann á plötunni, Looking for someone og Victims. -FRI PAX VOBIS — PAX VOBIS: POTTÞETT PAX Ef líkja á tónlist Pax Vobis, á þessari fyrstu plötu þeirra, við eitthvaö kunnugt koma vissir taktar Mezzo- forte helst til greina þótt þessar hljóm- sveitir séu annars mjög ólikar á heildina iitiö. IULIAN LENNON - VALOTTE: ÞRAÐURINN TEKINN UPP Mörgum fannst skarð fyrir skildi í tónlistinni eftir moröið á bítlinum fyrr- verandi, John Lennon, og söknuðu tón- listar hans. Nú þurfa þessir aðilar ekki að syrgja lengur því skaröið í skildinum hefur verið bætt. Og sá sem hleypur í skarðið er enginn annar en eldri sonur Johns heitins, Julian Lennon, nú 21 árs að aldri. Það er aldeilis með ólíkindum hve líkir þeir feögar eru í röddum en Julian fyllir ekki bara skarðið eftir föður sinn að því leytinu til, heldur einnig hvað tón- listina varðar. Það má eiginlega segja að Julian taki upp þráðinn þar sem faðir hans var ófús látinn hætta. Að vísu hefur Julian ekki náð sama stand- ard og faðir hans í textagerð, enda ekki á hvers manns færi. Og sem betur fer reynir Julian það ekki heldur fer sínar eigin leiðir hvað textana varðar. Tónlistarlega eru þeir aftur á móti mjög jafnfætis og verður að segjast að þessi fyrsta breiðskífa Julians Lennon er hreint ótrúlega þroskaö verk af ekki eldri manni og jafn lítt reyndum í tónlistarheiminum. Hvert verður hann kominn um fertugt? Líkt og faðir hans hefur Julian mik- ið dálæti á píanóinu og er þaö mjög ein- kennandi hljóðfæri fyrir plötuna. Hljóöfæraskipan er að öðru leyti mjög hefðbundin og ekkert ber á hljóðgervl- um eða öðrum nútímahljóðfærum. Mörgum kann að finnast það gamal- dags, en slík hljóöfæri eiga ekkert heima í þessari tónlist. I stuttu máli er þessi plata Julians Lennon kjörgripur sem allir aðdá- endur Johns heitins Lennon ættu aö verða sér úti um og n jóta. I -SþS. Pax Vobis er umfram allt pottþétt hljómsveit, skipuö fagmönnum sem vita hvaö þeir eru að gera og hafa til að bera markvissa tónlistarsköpun, tón- listarsköpun sem byggir mikiö á sam- spili hljómgervla og bassaplokks með gítarstefum sem eins konar rjóma- toppnumákökunni. Hljómsveitin er skipuð þeini Ásgeiri Sæmundssyni söngvara, Skúla Sverrissyni bassaleikara, Þorvaldi Þorvaldssyni gítarleikara og Steingrími Ola Sigurðssyni á trommur. Tómas Tómasson stjórnaöi upptökum á gripnum í Hljóðrita en út- setningar önnuðust hljómsveitarmeð- limir sjálfir. Af einstökum lögum plötunnar kann undirritaður best við Coming my way, sérstaklega eftir að hafa séð það tekið „live” en titill þess lags er nokkurs konar öfugmæli við feril hljómsveit- arinnar hingað til. Hún hefur ekki komist nálægt því að vekja þá athygli sem hún á í raun skilið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.