Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1985, Side 15
DV. LAUGARDAGUR 9. MARS1985.
15
Keila, keiluspil, bóling eða bowling!
Þessi leikur hefur veriö endurvakinn
á Islandi. Fyrir um það bil aldarfjórð-
ungi var hann leikinn í Tónabæ aö mig
minnir. Þá hét leikurinn keiluspil eöa
bowling. Seinna oröiö þótti óneitanlega
meira spennandi, sérstaklega ef
manni tókst vel upp meö aö kringja
varirnar til aðmynda tvöfalt vaff.
Nú bregöur svo viö aö nafn leiksins
og staöarins veröur umræöuefni í
blöðum.
Málnefnd og bóling
Fyrst er þetta mál rætt í leiðara
Morgunblaðsins þann 12. janúar. Þar
er kvartað undan því aö nýi staðurinn
sé auglýstur undir nafninu bóllng sem
kallaöer „orðskrípi”.
Fjórum dögum síöar er grein um
máÚð í sama blaði. Þar er haft eftir
eiganda staöarins aö íþróttin skuli
heita keila, sögnin verði að keila og
íþróttamaðurinn keUari. I sömu grein
er einnig deUt á Islenska málnefnd
fyrir seinagang. Eigandinn hafði leitað
til hennar um heiti á leUcnum og fengið
svar sex mánuöum síöar.
Fjórum dögum eftir þetta er sagt í
leiðara Morgunblaösins aö þetta sé allt
málnefndinni að kenna.
Sama dag skrifar formaöur mál-
nefndar bréf sem birtist í Mogga stuttu
síðar. Formaöurinn er aö vonum sár
yfir að vera að ósekju kennt um þetta.
1 lokin segir hann aö kjarni málsins sé
einfaldlega sá að eigendur staðarins
hafi viljað nota oröiö bóUng í auglýs-
ingum og alls ekkert annaö.
Grein sína kallar formaður mál-
nefndar Kaupsýsluíslensku og fer vel á
því enda fæ ég ekki betur séð en hér sé
á ferðinni einhver stærsta en um leið
ódýrasta auglýsing sem staöurinn gat
fengið.
En niöurstaöan er sú aö ljósaskilti á
þaki hússins viö Öskjuhlíð sýnir staf-
ina bóUng og á skilti viö afleggjarann
aö Hótel Loftleiöum er staðurinn
kynntur með heitinu bóUng.
Dekkja
útsala
Eigum yfir 100
notuð vörubfladekk
í stærðunum 1100 x 20 og
1000 x 20. Nylon, radial
á mjög góðu verði.
250
kaldsóluð radíaldekk
af ýmsum stærðum
og gerðum á hreint hlægi-
legu verði, komdu og
skoðaðu um leið nýja
verkstæðið
- við skiptum um fyrir þig
á staðnum.
Kaldsóhmhf.
Dugguvogi 2. Sími: 84111
Sama húsi og Ökuskólinn.
Allt bendir því tU þess aö niðurstaða
formanns Islenskrar málnefndar sé
rétt.
Mér dettur Uka í hug aö ástfóstrið við
orðiö bóling stafi af því aö þaö dregur
vitaskuld frekar aö sér athygli út-
lendinga en ef á skiltunum stæði keila,
keUuspil eöa eitthvaö í þeim dúr.
Komdu í keilu
KeUa finnst mér hentugasta orðið án
þess að ég'ætli að fara að heimta aö
aörir lagi sig aö mínum smekk. Þaö er
stutt og fer þvi ágætlega í samsetning-
um. Þannig gæti húsiö kaUast keUuhöU
(sem er þjáUa en keUuspUshöU) og
sigurvegari í keUukeppnl væri þá
keUukóngur. Jafnvel keUumeykóngur
ef um konu væri aö ræöa.
íslensk tunga 5
Eiríkur Brynjólfsson
skrífar
Einhver skaut því Uka aö mér í
gamni aö upplagt væri að kalla leikinn
bólu. Þetta er þegar allt kemur tU aUs
ný bóla og á örugglega eftir að breiöast
út og ná vinsældum. Þá gæti keUu-
kóngur verið Bólu-Hjáhnar.
Ekki meira um það.
Smávegis um tökuorð
Ekki ætla ég aö gerast spámaður um
það hvert orðið muni bera sigur úr
býtum, keUa, keUuspil, bóUng eöa
bowling. öll þessi orö hafa reyndar
sést á prenti aö undanförnu og bowUng
er notað í auglýsingum frá feröaskrif-
stofu í Reykjavík, bæöi í prentuðu máh
og talmáU í sjónvarpsauglýsingu.
Nú er það mjög algengt aö tökuorö
og nýyröi séu til yfir sama hlutinn. Það
virðist tUviljun háð hvort oröiö sigrað í
sUkum tUfeÚum.
Nærtækt og nýtt dæmi er myndband
eða vídeó. Líklega er ógjömingur aö
giska á hvort orðið er meira notaö.
Samkvæmt Símaskránni eru 28 mynd-
bandaleigur í Reykjavík og þar af
kennir 21 sig viö vídeó eöa video.
Annaö dæmi er pianó eöa slagharpa.
Mér skilst að oröið slagharpa hafi átt
að útrýma píanói á sínum tíma en aUir
vita hvemig þaö fór. Og í framhaldi af
því má spyrja hvort orðið vídeó sé
nokkuö óæskUegra en til dæmis píanó!
Þriöja dæmiö hér er traktor. Tvö ný-
yrði eru til yfir þennan grip, dráttarvél
og dragi. Síöastnefnda orðið er Uklega
hvergi notað í daglegu taU og ég hygg
að traktor sé meira notað en dráttar-
vél. Einhvern tímann heyröi ég því
fleygt aö útbreiðsla orðanna færi þó
eftir landshlutum. Þannig áttu
dráttarvélar aö vera notaöar af norö-
lenskum bændum meöan aörir starfs-
bræður þeirra notuðu frekar traktora.
En þetta ætla ég ekki aö selja dýrar
en ég keypti.
TOLVUSYMXNG
mmaimaT«riii.T.
Nú stenduryfin anddyri Laugardalshallar ein stærsta
tölvusýning á (slandi til þessa. Sýningarsvæðið er á
yfir 1000 fermetrum á tveimur hæðum. Sýndar eru allar
helstu nýjungar í tölvuheiminum frá fjölda fyrirtækja.
Sýningunni lýkur sunnudaginn 10. mars klukkan 22.00.
★ Fjöldi glænýrra tölva
★ Laser-prentarar
★ Snertiskjáir
★ Viðskiptakerfi
★ Sérhannaður tölvubúnaður fyrir
hreyfihamlaða
Mikið af hugbúnaðinum er íslenskur og sýnir vel gróskuna í hugbúnaðargerð hér á landi.
Fyrirtestrar
★ 20 mism. forritunarmál
★ Bókhaldsforrit
★ Kennsluforrit
★ Ritvinnsla
★ Flugforrit
★ íslenskt getraunaforrit
Kunnáttumenn fjalla á almennan hátt um
málefni tengd tölvum og notkun þeirra.
Á eftir eru almennar umræður og fyrirspurnir.
Laugardagur 9. mars
kl. 14.00 Islenskur hugbúnaðariðnaður
kl. 17.00 Einkatöivan
Sunnudagur 10. mars
kl. 14.00 Staða tölvufræðslu á Islandi
r\n\ð í Ó39
^ánoorgvin,
Kl.1'10
Ortölvuver
Tölvuverið er stofa með um 15 tölvum eingöngu til afnota
fyrir áhorfendur. Þetta er nýjung á tölvusýningum, sem gefur
áhorfendum tækifæri til að kynnast af eigin raun tölvum og
hugbúnaði af ýmsum tegundum. Þjálfaðir leiðbeinendur veita
aðstoð eftir því sem þörf krefur.
Skákmót
Hvað er besta skákforritið?
8 öflug skákforrit munu keppa sín á milli um það hvert þeirra
sé best. Keppt verður um titilinn Tölvuskákmeistari íslands.
Skák og mát
Ef þú getur sagt þetta við White Knight skákforritið þá áttu
möguleika á að fá Electron-tölvu í verðlaun. Dregið verður
úr nöfnum vinningshafa seinni partinn á sunnudag.
Nýbakaðar vöfflur
Á sunnudeginum er ætlunin að bjóða fólki upp á nýbakaðar
vöfflur í veitingabúðinni á efri hæðinni. Þar er hægt að setjast
niður og ræða um sýninguna í rólegheitum.
Myndlistarsýning
I veitingabúðinni er myndlistarsýning á vegum
Listamiðstöðvarinnar. Sýndar eru myndir eftir ýmsa þekkta
höfunda.
„ SýnÍClg- fyrir aUa flölskyiduna”
Turninn, Melhaga 2, sími 19141
áður kjörbúð Vesturbæjar — beint á móti Melaskólanum.
ALLT ÞAÐ NÝJASTA.
Leigjum út tæki.
SÆLGÆTI OPIÐ FRÁ
gos og snakk kl. 9—23.30 alla daga.