Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1985, Side 4
4
DV. MÁNUDAGUR 29. JUU1985.
Jacqueline, ekkja Picassos:
„Ogþásagði
ég við Erró: af
hverju ekki?"
— sýning á verkum Picassos opnar næstu listahátíð
„Já, þaö er öruggt aö listahátíö
ykkar Reykvíkinga hefst meö opnun
sýningar á verkum Picassos,” sagöi
Jacqueline Picasso, ekkja Pablos
Picassos, í samtali viö blaöamann
DV á laugardag.
Jacqueline Picasso kom til
Islands á laugardag til að kanna
aðstæður vegna þessarar sýningar.
„Hugmyndin aö þessu kom upp er
við Erró og Gilbert Haas drukkum
saman morgunkaffi á Café de Flore
ekki alls fyrir löngu. Það barst í tal
aö verk eftir Picasso úr einkasafni
mínu væru á leið á sýningu í
Montreal. Erro spuröi mig: af hverju
ekki aö sýna þau á Islandi? og ég
svaraöi: af hverju ekki? Eg er búin
að athuga aðstæöur og sé ekkert því
til fyrirstööu aö af sýningunni geti
orðiö. Nei, ég er ekki búin aö velja
myndir, slikt krefst gaumgæfilegrar
athugunar. Dagurinn sem ég hef eytt
hér á Islandi hefur verið sérstaklega
ánægjulegur og þaö var sérstaklega
skemmtilegt aö koma hingað í fyrsta
skipti,” sagöi Jacqueline Picasso.
Aö sögn Salvarar Nordal er ekki
búiö að ganga endanlega frá málinu,
en Jacqueline valdi sýningunni staö í
Kjarvalssal Kjarvalsstaöa. Mun hún
velja verkin sjálf og stjórna upp-
setningu þeirra. Salvör sagöi að
búast mætti viö aö þetta yrði all-
kostnaöarsöm sýning, ekki vegna
fjárkrafna ekkjunnar heldur
trygginga og löggæslu. Verður verk-
anna gætt dag og nótt af löggæslu-
mönnum. Sýningin hefst um leið og
listahátíö, 31. maí. Listahátíðinni
lýkur formlega 17. júni en horfur eru
á því að verkin verði sýnd talsvert
Jacqueline Picasso. Á innfelldu myndinni
er Portrett af Madame Z, en Jacqueline
sat fyrir er Picasso gerði þá mynd.
mikið lengur, ef til vill hátt á annan
mánuö.
Jacqueline Picasso hafði eins
dags viðdvöl á Islandi á leiö vestur
um haf. Auk þess sem hún skoðaði og
valdi sýningarstað snæddi hún há-
degisverð i boði borgarstjóra og
kvöldverð í boði listahátíðar. Hrafn:
Gunnlaugsson kvikmyndaleikstjóri.
sýndi þeim Jacqueline og fylgdar -
manni hennar, Gilbert Haas, svo
landið í langri flugferð síðdegis þar
sem Omar Ragnarsson sat við
stjórnvölinn. -ás
Bandaríkjamenn hóta
Japönum refsingum
—ef þeir kaupa hvalkjöt af íslendingum
eftir að þessari vertíð lýkur
Óskar Magnússon, DV, Washington:
Bandaríkjamenn hafa í hyggju aö
beita Japani refsingum ef þeir halda
áfram að kaupa hvalkjöt af
Islendingum eftir að þessari vertíð
lýkur. Japan er aðalmarkaður
Islendinga með hvalkjöt.
Samkvæmt heimildum DV mun
John Bume, sérfræðingur Banda-
ríkjastjómar í hvalveiðimálum, hafa
tjáð Halldóri Asgrímssyni sjávarút-
vegsráðherra þessa stefnu banda-
rísku stjórnarinnar á óformlegum
fundi þeirra í Bournemouth í
Englandi í síðustu viku. Halldór og
Burne voru þá báðir staddir í
Boumemouth vegna aðalfundar
Alþjóða hvalveiðiráðsins. Þær
refsingar sem Bandaríkjamenn geta
væntanlega beitt Japani eru að skera
niður fiskveiöikvóta þeirra viö
Bandaríkin. Samkvæmt svonefndum
Packwood-Magnusson lögum er
Bandaríkjastjóm talið skylt að skera
niður fiskveiðikvóta þeirra þjóða
sem ekki fara að alþjóðasamþykkt-
um um veiðar. Fyrsta árið skal
kvótinn skorinn niður um helming og
síðan að fullu. Japanir veiða nú um
900 þúsund tonn af fiski árlega í
bandarískri lögsögu. Talið er að þeir
muni ekki stofna þeim veiðum í
hættu meö kaupum á hvalafurðum af
öðrum þjóðum. Eftir þessu að dæma
myndi japanski markaðurinn lokast
og Islendingar yröu að leita
markaðar'fyrir hvalafurðir annars
staðar eða neyta þeirra heima fyrir.
A meðan þessu vindur fram era í
gangi málaferli hér í Banda-
ríkjunum vegna hvalveiða Japana
sjálfra. Einn viðmælandi DV benti á
að það skyti nokkuð skökku við ef
beita ætti Japani refsingum vegna
kaupa á afurðum frá öðrum þjóðum
en ekki vegna eigin veiða. Málaferlin
era hins vegar ekki til lykta leidd.
Urslit þeirra kunna að verða á þá
leið að Japanir verði beittir
viðurlögum vegna eigin veiöa.
-KÞ.
„Drögin eru
athyglisverð”
— segír Davíd Oddsson um úttekt á
stöðu Bæjarútgerðarinnar
og ísb jarnarins
„Drögin era athyglisverð. Næsta Birtingar úttektarinnar á fyrir-
skref verður tekið eftir viku eða tækjunum tveimur hefur veriö beðið
svo,” sagði Davíð Oddsson, borgar- með nokkurri óþreyju. Borgar-
stjóri Reykjavíkur, í gær. Spurt var stjórinn kom með hugmyndina að
um skýrslu sem unnið hefur verið að viðræðum um samvinnu fyrir-
um úttekt á Bæjarútgerö Reykja- tækjanna.
víkur og Isbiminum. Drög að skýrslu Verkfræðingar, tæknifræðingar
liggja nú fyrir og borgarstjóri og löggiltir endurskoðendur hafa
sagðist litlu vflja við þetta bæta öðra unnið að þeirri úttekt sem nú iiggur
en að vel þyrfti að skoða drögin áður fyrir hjá borgarstjóra.
ennæstaskref yrðitekið. -ÞG.
I dag mælir Pagfari,_______________í dag mælir Dagfari_____________j dag mælir Pagfari
Albert segir hernum stríð á hendur
Albert hefur tekið til sinna ráöa og
er farinn í stríð við herinn. Var ekki
seinna vænna að einhver lslendingur
mannaði sig upp í að taka varnar-
liðið í bóndabeygju og sýna því í tvo
heimana.
Bandaríkjamenn hafa verið að
færa sig upp á skaftið aö undanförnu.
Þeir láta sér ekki nægja að setja lög í
sínu eigin landi heldur eru þeir farnir
að grafa upp lög sem þeir telja að
gildi í öðrum löndum. Þannig hefur
einhvert huldufyrirtæki, sem kallar
sig Rainbow Navigation, hafið sigl-
ingar til Islands í skjóli bandarískra
einokunarlaga. Flytur þetta skipa-
félag góss fyrir vamarliðið og þykist
geta gert þaö án tollskoðunar.
Bandarikjamenn mega okkar vegna
samþykkja hvaða dellulög sem þeir
vilja vestur þar en það er mikill mis-
skflningur aö halda að þau lög gfldi
hvar sem er í heiminum. Og meðan
Bandaríkjamenn halda þessari bá-
bilju til streitu og láta sér ekki
skiljast er ekki um annað að ræða en
láta íslensk lög gilda i íslenskri lög-
sögu. Ef Kanamir era svona löghlýðnir
þá hljóta þeir að gegna lögum hvar sem
þauerasett.
Islensk lög gera ráð fyrir að allur
innflutningur til landsins sé toll-
skoðaður. Jafnvel ferðalangar einir
síns liðs eru berháttaðir og gegnum-
lýstir og skinkubitar og dönsk spægi-
pylsa er hirt af saklausu fólki sam-
kvæmt tollalögum. Ef einhverjum
dettur i hug að kaupa sér þrettán
bjórflöskur í stað tólf þegar hann
kemur heim í bjórlaust föðurlandið
er hann umsvifalaust sekur fundinn
fyrir smygl og tollsvik. Islenskir sjó-
menn era meðhöndlaöir eins og
galeiöuþradar í hvert skipti sem þeir
koma heim og fá móttökur á við for-
hertustu glæpamenn. Það sleppur
sem sagt enginn í gegnum græna
hliðið hjá tollinum nema hafa hreint
sakavottorð og skitugar nærbuxur i
farangrinum.
Á sama tíma hefur varnarliðiö og
flutningaskip á þess vegum notið
þeirra forréttinda að transportera
heilum skipsförmum af gámum sem
enginn veit hvað innihalda. Þeir
gætu þess vegna flutt inn saman-
lagða gin- og klaufaveiki í einum
litlum gámi, heilt tonn af fíkniefnum
og bjór sem flýtur á okurprísum út af
Vellinum.
Enginn hefur sagt neitt vegna
þess að Islendingar hafa viljað vera
góðir við varðhundana sína og talið
þá hafna yfir lög og rétt. Nú, þegar
Albert hefur ákveðið að ein lög skuli
gilda í þessu landi yfir jafnt réttláta
sem rangláta, jafnt soldáta sem
sauðsvartan almúgann, reka
Ameríkanamir upp stór augu og
senda frá sér mótmæli í nafni sendi-
herrans og forsetans.
Ámátleg mótmæli frá banda-
riskum yfirvöldum bíta ekki á Albert
Guðmundssyni. Hann lætur hvorki
Pentagon né Hvíta húsið segja sér
fyrir verkum.
Það verður hinsvegar óborganleg
sena þegar Albert okkar verður boð-
inn í Hvíta húsið til viðræðna um
lausn á þessari alþjóðadeilu þar sem
Bandaríkjaforseti heimtar aö fá að
flytja inn gin- og klaufaveiki til Is-
lands án afskipta tollyfirvalda. Þá
verður sláttur á okkar manni enda
Albert vanur að umgangast höfð-
ingja og munar ekki um að siga toll-
þjónum á ameríska herinn og hafa
sigur ef því er að skipta.
Sennilega hefur engum manni
dottið það fyrr í hug að leggja prívat
og persónulega til atlögu við banda-
ríska herinn — og hafa betur. Því
sanniöi til að ef Bandaríkjamehn
vilja veifa lögum þá kann Albert það
lika. Ameríska hamborgara mega
þeir éta heima í sínu guðs eigin landi
en hér á Islandi skal lambakjötið
ofan í þá meðan Kanarnir standa í
þeirri firru að bandarísk lög nái yfir
Albert.
Dagfari