Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1985, Blaðsíða 6
6
DV. FÖSTUDAGUR 30. ÁGUST1985.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
• Ágústa Richards-
dóttir bragðar á
sýnishorni sem
garðyrkjubóndi úr
ölfusinu færði
ur á neytendasiöu
DV í vikunni. Þetta
voru alveg dúndur-
góðar agúrkur og
sumar hverjar nú á
leiðinni í gler-
krukku með ediki
og lauk.
DV-mynd Vilhjálm-
ur.
Ferskar í sal-
öt og sýjrðar
með steikinni
Uppskerutimi grænmetis stendur sem hæst þessa dagana, í það minnsta
í bjartviðrinu á Suður- og Vesturlandi. Vonandi fá aðrir landshlutar að
njóta þess. — Við hvetjum alla til þess að hafa grænmeti á borðum sinum
daglega, — njóta þess á meðan færi er á. Núna á verðið að vera í lágmarki.
Einnig má hugsa til þess að f rysta eða leggja niður í edik eitthvað af þvi.
Gúrkan er klofin að endilöngu og
kjarnarnir skafnir úr með teskeið.
Gúrkan er svo skorin í ca 5 cm langa
búta. Þeir eru látnir liggja í kryddlegi í
ca 15 mín. Snúið bitunum öðru hverju.
Þeir eru síöan teknir úr leginum, látiö
renna af þeim og þeim raðað á fat.
KRYDDLÖGURINN
4 msk. edik
3 msk. salatolía
salt, pipar, örl. sykur
Hér koma nokkrar agúrku
uppskriftir
GÚRKUBITAR MEÐ
FYLLINGU:
Gúrkubitar með alls
kyns krásum sóma
sér vel á mat
boröinu og einnig
sem aukaréttir
milli mála.
Hér er ein
tiUaga:
Leyfileg
vatns-
prósenta
smjörs
Fyrir nokkru var skrif-
aö um vatnsinnihald í
íslensku smjöri. Þar
var ekki fariö rétt meö
leyfilega vatns-
prósentu. Hún er 16%.
A.
FYLLING
75 g reyktur lax eöa síld
50 g rækjur
1 harðsoöið egg
ca 1 msk. rifin piparrót
Laxinn er skorinn í litla bita, sömu-
leiðis eggið og þetta látið í skál meö
rækjunum. Stráið piparrótinni yfir og
hellið kryddleginum saman við. Látið
bíöa um stund en salatið er síðan látið í
gúrkubitana. Skreytt með steinselju.
GÚRKUBITAR MEÐ
MURTUFYLLINGU
Það er um aö gera aö nota hug-
myndaflugið og það sem fyrir hendi er,
ef mögulegt er, þegar verið er að mat-
reiða fyllingar í t.d. agúrkur. Svipaðar
fyllingar passa einnig vel í tómata.
Fyllingarnar geta verið svolítið
mayones, hrært saman við sýröan
rjóma, með t.d. smátt söxuðu soðnu
grænmeti, eins og t.d. gulrótum, græn-
um baunum, korni, murtu, rækjum,
o.s.frv.
Ef nota á slíka fyllingu er betra að
hafa gúrkubitana langsum en ekki
þversum eins og í fyrri uppskriftinni.
Gúrkurnar eru flysjaðar og skornar
í ca 5—6 cm langa bita. Skafið er upp
úr þeim með teskeið en gætið þess aö
skilja örugglega eftir „botn” í hverj-
um bita. Stráið grófu salti á bitana og
látið bíða í 2—3 tíma. Skolið þá grófa
saltið af og þerrið bitana og raðið þeim
áfat.
Þetta er gert til þess að ná sem
mestu af vatninu úr gúrkunum.
Fyllingin er síðan sett í hvern bita og
skreytt eftir vild.
Geymistþar sem böm ná ekki til:
Vítissóti
bannvara í
kjörbúðum
„Við göngum fast eftir því við
kaupmenn aö þeir láti ekki viðskipta-
vini sína sjálfa taka vítissótann úr
hillum verslananna. Við erum þar
með að framfylgja reglugerðar-
ákvæðum sem kveða svo á að vítis-
sóti megi ekki vera í hillum sjálfsaf-
greiðsluverslana,” sagði Hróbjartur
Lúthersson, fulltrúi hjá heilbrigðis-
eftiriiti Reykjavíkurborgar,í samtali
viðDV.
Okkur hafði borist til eyrna að
brögö væru að því að vítissóti væri
einmitt mjög tilgengilegur í a.m.k.
einni kjörbúö í Reykjavík.
Það er skýrt tekið fram í reglugerð
að ef styrkleiki vítissótans fari fram
úr 3% megi ekki hafa natríumhy-
droxíð á boðstólum þannig að við-
skiptavinimir geti tekið varninginn
sjálfir.
„Nú eru komin á markaöinn ný og
mjög sterk ræstiefni, sem notuö eru
t.d. til þess að hreinsa salerni. Við
munum næst snúa okkur að því að
fjarlægja þau úr neðstu hillunum,”
sagði Hróbjartur.
Fyrir nokkrum árum var vítissóti
talsvert notaður í venjulegu heimilis-
haldi. Hann var leystur upp og notað-
ur m.a. til þess að leggja þvott í
bleyti í. Með tilkomu miklu fullkomn-
ari þvottaefna á öllum sviðum er erf-
itt að koma auga á ástæðuna fyrir
því aö þetta efni er enn á almennum
markaöi.
— Til hvers nota menn vítissóta í
dag?
„Hann er notaður til þess að ná
stíflu úr vöskum og einnig er hann
notaður þar sem verið er með mikla
fitu.
En ég er viss um að fólk gerir sér
ekki grein fyrir hve stórhættuleg efni
það er með í höndunum. Það þarf
ekki nema örlitla snertingu við húð
og þá kemur sár. Þetta er stórhættu-
legt efni,” sagði Hróbjartur.
Við gerðum lauslega könnun á því
hvort vítissóti væri farinn úr hillum
sjálfsafgreiðsluverslana. Svo reynd-
ist nema í einni verslun. Þar var
hægt að ganga að honum í þriðju
hillu neðan frá. Á dósinni stendur
með rauðu letri: Geymist þar sem
börn ná ekki til. Þetta hefur væntan-
lega verið lagfært.
„Það er gott aö þið vekið athygli á
þessu stórhættulega efni. Þá vakna
þeir til meðvitundar sem ekki hafa
gert sér grein fyrir hættunni á að
hafa þetta efni frammi í verslun-
um,” sagði Hróbjartur Lúthersson.
A.Bj.
AGÚRKÚR í SALÖT
OGOFANÁBRAUÐ
Hafið þið prófað aö smyrja brauð-
klemmur með venjulegum brauðosti
og agúrkusneiöum? Alveg tilvalið í úti-
leguna og sem skólanesi. Hollt, gott og
óklístrað. Agúrkubitar passa vel í alls
konar salöt, bæði súr og sæt í félagi með
t.d. eplum og sýrðum rauörófum, með
kryddlegi eða mayones/sýröum rjóma
sósu.
GÚRKUR í EDIKSLEGI
Agúrkur henta vel til geymslu í
edikslegi. Þannig eru þær tilvaldar að
hafa með steik, smátt skornar í krydd-
sósur meö mayones út á steiktan fisk,
nú eöa ofan á kæfubrauösneiðina.
Hér er mjög góð gömul uppskrift:
Hún er frekar stór, en einfalt mál er að
minnka hlutföllin.
15 agúrkur
11 edik
1/21 vatn
5 litlir laukar
1 pk. asíukrydd (má vera meira)
750 g sykur
einn hnefi gróft salt
Gúrkurnar eru flysjaðar og klofnar
eftir endilöngu í 5—6 cm langa bita.
Kjarnarnir hreinsaðir. Bitarnir látnir í
stóra skál og einum hnefa af grófu salti
stráð yfir. Látið liggja á köldum stað
yfir nótt. Þá er lögurinn útbúinn og
laukurinn (skorinn í báta) og gúrkubit-
arnir látnir út í löginn (saltvatninu er
hellt) og látið bíða á köldum stað í eina
viku. Hrærið í einu sinni á dag — í upp-
haflegu uppskriftinni stóð með trésleif
og gott að halda sig viö það.
Þá er allt látið í stóran pott og hitaö
aö suðumarki, — má ekki sjóöa. Bæta
má einni msk. af rotvarnarefni út í
hvern lítra ef vill.
Látið á hrein glerglös og lokað strax.
Hráefniskostnaður er innan við 600
kr. A. Bj.