Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1985, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1985, Blaðsíða 36
FRÉTTASKOTIO Sími ritstjórnar: 68 66 11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i síma 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn Frjálst, óháð dagblað FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1985. NúH-núll-hálfsjö finnur legstein í Þverholti: ÓKU „Ég var á leið niður á Hlemm, ætlaði aö taka strætó til afa og ömmu og „dobla” afa í bíó, þegar ég rakst á legsteininn,” sagði Sveinn Guðni Gunnarsson í spjalli við DV. Sveinn fann gamlan legstein í garði við Þver- holt í gærmorgun. Legsteinninn var brotinn í tvo hluta og virtist ekki hafa legið þarna lengi. Af áritun steinsins má merkja að hann hafi staðið á leiði Guðrúnar Jóns- dóttur, húsmóður frá Breiðabólsstað í ölfusi. Guðrún er sögð fædd 5. júní 1861, hafa gifst Olafi Sæmundssyni 23. október 1902 og látist þann 17. júní 1912. Svo merkilega vill til að langafi Sveins Guöna hét Olafur Sæmundsson en það er þó ekki sami maöurinn. Líkur benda til þess að á legsteininn hafi verið grafiö fyrir rúmum 70 árum en það getur hugsast aö aöstandendur Guðrúnar hafi látið gera nýjan stein á leiði hennar einhvern tíma á öldinni. Ihugulir blaðamenn DV hafa gert því skóna að nýr steinn hafi verið unninn í steinsmiðjunni sem eitt sinn var í Ein- holti, skammt frá Þverholtinu. Hann hafi hins vegar brotnaö í vinnslu, verið hent niður í Þverholt og annar gerður í staðinn. Þetta er þó einungis tilgáta. Þegar haft var samband við Kirkju- garöa Reykjavíkurprófastsdæmis höfðu starfsmenn þar ekki upp á nafni Guðrúnar í bókum sínum. En sögðu þó ekki útilokað að leiöi hennar leyndist í gamla kirkjugaröinum við Suöurgötu. Þegar Sveinn Guðni hafði sýnt blaða- mönnum DV öll verksummerki kvaðst hann ætla að drífa sig til afa og ömmu. „Eg vona að afi sé til í að koma á „Djeims Bond”-myndina með núll- núll-hálf-sjö,” sagði hann að lokum. Vf DV-mynd 8. -JKH. Þarf ekki að tollskoða hrá-salatið? VERÐUR GEIR STEFNT FYRIR LANDSDÓM? Bændasamtökin íhuga kæru eöa lögbann á kjötinnflutninginn „Það er spurning hvern á að kæra. Varnarsamningurinn heyrir undir utanríkisráðherra og ef honum verður stefnt verður að gera það fyrir landsdómi hvað hefur aldrei verið gert áður. Til þess þarf sér- staka heimild Alþingis, þannig aö það eru viss vandkvæði á höfðun málsins,” sagði Gunnar Guðbjarts- son, framkvæmdastjóri Fram- leiðsluráðs landbúnaöarins, þegar hann var inntur eftir því hvort bændasamtökin hefðu ákveðið að verða ákæruaðili í kjötmálinu svo- kallaða. Eins og kunnugt er var ákveöið á föstudag í fyrri viku að leita til dóm- stóla um hvort innflutningur á kjöti fyrir bandaríska herinn á Kefla- víkurflugvelli bryti í bága við íslensk lög. Forsætisráðherra, Steingrímur Hermannsson, hafði samband við Stéttarsamband bænda og óskaði eft- ir því að það efndi til málaferla þannig að úr þessu fengist skorið. „Við verðum líklega ákæruaðili í málinu,” sagði Gunnar Guðbjarts- son, „en þaö stendur hins vegar í lög- fræðingum okkar hvaða leiðir á að fara. Annaðhvort er að kæra til ríkis- saksóknara eöa láta setja lögbann á ákveðnar sendingar til vallarins til að fá fyrsta dómstigiö afgreitt strax. Sumir óttast þó að lögbannskröfu verði vísað frá. Það hefur ekki veriö valið milli þessara leiða enn. ’ ’ I vikunni vakti Framleiðsluráð athygli á þvi að ekki væri rétt, sem fullyrt hefði verið, að samtök bænda hefðu ekki mótmælt kjötinnflutn- ingnum til hersins áður. Tilgreindar voru 5 bókanir frá fundum Fram- leiðsluráðs á árabilinu 1977 til 1984, þar sem geröar voru kröfur um stöðvun innflutningsins. Stjórn- völdum voru send þessi mótmæli en samkvæmt upplýsingum þeirra áttu að vera undanþágur frá sóttvarnar- lögunum í varnarsamningnum. „Túlkun stjórnvalda reyndist ekki rétt þegar lögfræðingur Fram- leiðsluráös hafði skoðað varnar- samninginn. Þessi innflutningur hefur því of lengi viðgengist á röngum forsendum í trássi við lands- lög Islendinga,” segir Gunnar Guð- bjartsson. -PÁ/-JKH. „Okkur brá auðvitað” — sagði Ólafur Björnsson, einn þriggja íslendinga sem staddir eru í Nígeríu „Við höfum það gott og þaö er ekk- ert að okkur,” sagði Olafur Björns- son hjá Skreiðarsamlaginu, en hann er staddur í Lagos í Nígeríu, í sam- tali við DV. Eins og DV hefur sagt frá eru þrír Islendingar í Nígeríu á vegum skreiðarseljenda. Eru það auk Olafs, Ragnar Sigurjónsson hjá Samband- inu og Bjarni V. Magnússon hjá Is- lensku umboössölunni. _ „Hér er allt eins og það á að sér að vera,” sagði Olafur. „Eg held bara að það sé minna umstang en venju- lega.” — Hvenær urðuð þið fyrst varir við að bylting hefði orðið? „Það var þegar viö vorum á leið til Lagos frá Kaduna. Við ætluðum að fara fljúgandi. Þetta er um klukku- stundarflug en þegar við komum út á flugvöllinn í Kaduna var okkur sagt að bylting hefði orðið í landinu og flug lægi niðri.” — Hvernig varð ykkur við? „Við tókum þessu rólega, þótt auð- vitað brygöi manni við. Við urðum því að vera áfram í Kaduna, en um miðjan dag í gær hófst innanlands- flugið að nýju, svo og millilandaflug, og símasamband komst á, þá komum viö hingað til Lagos. Annars held ég að varla sé hægt að tala um byltingu, þar sem þetta eru aðeins einhverjar mannabreytingar í ráöherrastólum.” — Hvernig taka iimfæddir þessu? „Blöðin fagna þessu mjög, en annars held ég að fólkið sjálft hugsi lítið eða ekkert um þetta, því litið er umaðverahérna.” — Hvenær komið þið heim? „Varla fyrr en um miðja næstu viku. Við ætlum að skoða stöðuna. Við vitum ekki enn hver jir eru okkar samningsaðilar nú og ætlum því að- eins að líta í kringum okkur.” — En þið hafið þaö sem sagt ágætt? „Já, já, alveg sallafínt. Okkur er engin hætta búin, nema maður þarf að passa sig á matnum,” sagði Olafur Björnsson. -KÞ. Atvinnulífið og HÍ í eina sæng Stofnað hefur verið nýtt fyrirtæki, Tækniþróun hf., sem er í eigu Há- skóla Islands, fyrirtækja og sam- taka. Tílgangur fyrirtækisins er að efla tengsl Háskólans við atvinnulífið. Hlutafé fyrirtækisins er um 10 millj- ónir og leggur HI til þriðjung. Aðrir standa síðan undir afganginum: Plastprent, BM Vallá, Smjörlíki, Iðn- lánasjóöur og Félag islenskra iðn- rekenda. APH Mikiöaögera á Grandanum Nóg var um að vera úti á Granda í nótt. Brotist var inn í fiskverkunar- hús og stolið Datsun bifreið. Þjófam- ir rákust utan í stoö í húsinu og virð- ast hafa skemmt bílinn. Þeir höfðu ekki fundist í morgun. Þá varö bílvelta á mótum Eiðis- granda og Boöagranda um hálfþrjú- leytið í nótt. Engin slys urðu á mönn- um. -EH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.