Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1985, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1985, Qupperneq 32
44 DV. FÖSTUDAGUR 30. ÁGUST1985. : Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Fyrir nokkru sögöum viö frá því aö Christina Onassis vseri skilin viö ciginmann sinn, Thierry Roussel, og væri þvi einstæö móðir, en hún eignaðist dóttur fyrir átta mánuö- um. Nú höfum viö hins vegar þær fréttir að færa að hjónin hafa tekið saman aftur. Christina er mjög ánægð með það og segir að barnið hafi bjargað sambandi þeirra. ★ ★ ★ Leikarinn Bob Hope hefur verið aðlaður af Elísabetu Englands- drottningu. Hann getur samt ekki sett nafnbótina sir fyrir framan nafnið sitt því hann er ekki lengur breskur ríkisborgari. Þetta er því hálfgerður bjamargreiöi við Bob en ánægjulegt fyrir hann samt, eða hvað? ★ ★ ★ Margt er manna bölið, nú eru píurnar í Dynasty voðalega reiðar, þær fá nefnflega ekki lengur að nota kjólana úr þáttunum tU einkanota. Þetta hafa hinar umtöluðu leik- konur stundað hingað til og svo banna yfirmennirnir þeim þetta bara sisvona. Joan Collins var svo enn spæidari þegar hún fann ekki nafnið sitt á iista yflr tíu mest kyn- æsandi konur Bandaríkjanna sem blaðið Penthouse birti nýlega. Þar voru aftur á móti konur eins og Victoria Principal og Linda Evans sem meðfylgjandi mynd er af. Karimenn verða bara að láta sér nægja andlitsmynd af henni aö þessu sinni, annars konar myndir eru liklega í annars konar blöðum. Skipstjórinn á Mermoz, Michael Lavoret, Matthías Kjartansson, deildar- stjóri innanlandsdeildar Úrvals, og Guy Labet, yfirbryti á Mermoz. DV-mynd PK Tvœr sundlaugar eru í Mermoz en þær hafa litið verið notaðar í þessari ferð. Farþegarnir notuðu samt góða veðrið til að sóla sig, jafnvel þó örugg- ara væri að hafa teppi og lopa pevsu við höndina. DV-mynd PK Mermoz í Reykjavík: SÍÐASTA SKEMMTIFERDA- SKIPIÐ Á ÞESSU SUMRI Franska skemmtiferðaskipið Mermoz stoppaði í Reykjavík í tvo sólarhringa í síöustu viku. Þetta var síðasta skemmtiferðaskipið á þessu sumri en alls hafa komið 22 skip í sumar. Mermox kom hingað til lands fyrir rúmlega þremur árum þegar Grace Kelly og eiginmaður hennar, Rainer, komu hingað ásamt f jölskyldu sinni. Farþegarnir á Mermoz notuöu tímann vel á meöan stoppað var hér, sumir fóru í skoðunarferð til Grænlands. Aðrir fóru að Gullfossi og Geysi og einnig var boðið upp á skoðunarferðir á Suðurnes. Alls voru um 300 farþegar með Mermoz að þessu sinni en þess má geta að þjónustuliðið í ferðinni var álíka margt og farþeg- arnir. Skipið tekur rúmlega fimm hundruö farþega þannig aö frekar fátt var í þessari sigiingu. Stoppiö hér var liður í þriggja vikna ferð til heimskautsbaugslanda og hófst ferðin í Bergen. Flestir farþegarnir voru franskir og flugu þeir til Bergen. Frá Bergen var siglt tii Svaibarða og þaðan hingað til Islands. Héðan fór skipiö til Dublin og þaðan til Bergen aftur. Mermoz var smíðað áriö 1957 en nokkrar endurbætur hafa verið gerðar á því. I því er kvikmyndasalur, nætur- klúbbur, saUndlaugar, spilasalur, casino, tvær sundlaugar, þrír mat- salir, stórir og rúmgóðir barir og síðast en ekki síst glæsilegar káetur. Það ætti því ekki að væsa um farþeg- ana sem sigla með Mermoz og eftir því sem blaðamönnum var tjáð kosta ferðir meö skipinu dágóðan skilding. Það var ferðaskrifstofan Orval sem sá um móttöku farþeganna hér á landi. -SJ. Farþegarnir á Mermoz fengu is i glösin i skoðunarferðinni til Græn- lands og isinn var að sjálfsögðu tek- inn af næsta ísjaka. DV-mynd baj. VASKIR VEIÐIMENN í HAFNARFIRÐI Kannski er betra að synda svo leikurinn verði jafnari gæti sá seinni á Veiðimennirnir ungu náðu ekki fisknum í þetta sinn. Hann var á heima- myndinni veriö að hugsa. Reyndar hrasaði hann og datt en var fljótur á valii og tókst að fela sig áður en þeir náðu honum. fætur og hélt eltingarleiknum áfram. DV-myndir: S. Dorgað i tjörninni i Hafnarfirði, vinir veiðimannsins leggja sig fram um að aðstoða hann sem best og banda honum á bráðina. En fiskurinn slapp svo það er ekki annað að gera en hlaupa hann uppi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.