Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1985, Page 6
6
DV. MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER1985.
IMeytendur_________Neytendur____________Neytendur___________Neytendur
• Griffill: Piolet-taskan lengst til vinsti kostar 1.308 krónur, sú nœsta er á 1.409 krónur, siflan kemur ein
Piolet á 698 krónur. Þá kemur Amigo taska á 1.340 krónur og siflast er poki sem kostar 989 krónur.
Eitt af því sem flestir eignast ein-
hvern tíma um ævina er skólataska,
sumir eignast bara eina tösku sem
dugir þeim alla skólagönguna. AÖnr
eignast fleiri eöa fá töskurnar frá
eldri systkinum. Þar sem skólarnir
byrja flestir starfsemi sína nú í
byrjun september þótti okkur við
hæfi aö kanna hvemig skólatöskur
væri boðiö upp á í nokkrum
verslunum í Reykjavík. Viö fórum í
Pennann, Bókabúö Braga, Griffil og
Bókahúsiö og athuguðum verö á
þeim töskum sem hafa verið hvaö
vinsælastar undanfarin ár. Þaö má
segja aö í öllum verslunum hafi
okkur veriö bent á nokkuö svipaöar
töskur sem hafi selst vel sl. ár, þaö
eru töskur sem hægt er aö hafa á
bakinu og bakpokar ýmiss konar.
H'iðartöskur eru frekar teknar
fyrir krakka á aldrinum 10—11 ára
og upp úr. Skjalatöskur eða stress-
töskur eru alltaf vinsælar eftir því
sem okkur var sagt og eru þaö frekar
strákarnir sem vilja þannig töskur.
Eins og gefur aö skilja fer þaö eftir
stærö barnsins hversu stóra tösku
þaö getur boriö í fyrsta skipti sem
keypt er skólataska. Sum 6 ára börn
geta t.d. notað tösku sem ætluð er
fyrir börn á aldrinum 10—11 ára. Viö
reynum samt aö skipta töskunum
upp og tókum sérstaklega aldurinn 6
— 10—11 ára og síðan töskur fyrir
10—11 ára og upp úr.
• Bókabúfl Braga: Frá vinstri, mjúk taska á 474 krónur, Piolet, grá á
1.135 krónur. Ofan á henni bleik taska á 1.315 krónur. Við hliðina á
henni, létt tautaska, bleik og blá, á 537 krónur, undir henni grœn taska
á 1.657 krónur. Lítill Piolet á 612 krónur og fyrir framan Andrésar Andar
taska á 350 krónur.
Athyglisvert var aö flestar
töskurnar, sem viö skoöuðum, voru
meö endurskinsmerkjum, mis-
munandi mörgum aö vísu. Einnig
var áberandi hversu bakólarnar og
festingar voru vandaðar og bakið á
mörgum töskum var meö sérstökum
stuðpúðum til aö vernda bakið. Við
leggjum þó ekki gæðamat á
• Penninn: Fremst er grá skjalataska sem hægt er afl stækka í botninn,
hún kostar 1.893 krónur. Næst er Jeva Twin Sport bakpoki sem kostar
2.141 krónu. Leðurpokinn þar fyrir framan kostar 3.346, hann er án
grindar. Og loks er þafl raufl og svört taska sem er bæfli mefl hliðar- og
axlaról. Hún kostar 1.065 krónur.
• Bókahúsifl: Fremst á myndinni er rauð leðurtaska sem kostar 498
krónur. Til vinstri er Jeva Space bakpoki sem kostar 1.222 krónur en til
hægri er bakpoki á 1.010 krónur. D V-myndir VH V
töskurnar hér heldur greinum
einungis frá veröi. Gæðin getur fólk
oft kannaö sjálft meö því aö spyrja
einhvern sem hefur átt tösku af
þeirri gerð sem viökomandi hyggst
kaupa. Víkjum þá aö hverri verslun
fyrir sig.
Bókabúð Braga
I Bókabúö Braga tókum viö 7
töskur fyrir yngri aldurinn eöa 6—
10—11 ára, þær voru á veröbilinu frá
474 kr., mjúk taska úr taui, og upp í
1.657 kr. sem er öllu stærri taska og
gæti enst lengur. Töskurnar fyrir
yngri krakkana eru oft í
skemmtilegum og skærum litum og
oft meö myndum af einhverjum
teiknimyndafígúrum. (Sjá
meðfylgjandi mynd meö töskum
fyrir 6—10 ára frá Bókabúð Braga).
Fyrir eldri krakka eru ýmsir
möguleikar, þar má fyrst nefna Jeva
pokana sem eru til í ýmsum gerðum
eins og Jeva Midi á 1.424 kr. og Jeva
Super á 1.833 kr. Einnig er til taska
sem kallast Truck og kostar hún 671
kr., hún er á hjólum og er meö endur-
skini aö framan og á hliöum.
Leöurtöskur ýmiss konar eru til í
Bókabúö Braga og kosta þær frá
1.465—3.671 kr. Þær eru bæði til í
svörtu og ljósu. Þetta eru töskur sem
bæöi er hægt aö nota sem hliöar-
töskur og sem handtöskur. Skjala-
töskur kosta frá 790—3.573 kr. en
algengustu skjalatöskurnar eru á
um 1.200—1.400 kr. Bakpokar úr leöri
og leðurlíki meö grind og án hafa
veriö vinsælir undanfarin ár og
kostar hvítur leöurbakpoki meö
grind 2.995 kr. en nýrri tegund án
grindar kostar 3.365 kr. Hann má
einnig nota sem hliðartösku.
Penninn
Hjá Pennanum eru til ýmsar gerðir
af skólatöskum en einna vinsælastar
munu Scout töskurnar hafa verið
undanfarin ár. Þær eru til í ýmsum
stæröum og litum. I handfanginu á
Scout töskunum er lítil vog sem segir
til um hversu þung taskan er sem
barnið ber meö sér í skólann.
Penninn er líka með töskur sem
kallast Jeva og eru þær til í fimm
geröum og kosta frá 695 upp í 2.241
kr. Dýrasta Jeva taskan er meö
• Bókabúfl Braga: Hvitur leðurpoki með grind á 2.995 krónur og léttari
leðurpoki á 3.365 krónur.
• Penninn: Frá vinstri Scout á 1.634 krónur, annar Scout á 1.353 krónur,
Jeva Space á 1.264 krónur, létt köflótt tautaska á 372 krónur og loks
leðurtaska á 295 krónur mefl bakböndum, endurskinsmerkjum og
teiknimyndum.
íþróttapoka sem festur er utan á bak-
pokann og er hægt aö taka hann af.
Grindumar á Jeva töskunum er hægt
aö stækka þannig að hægt er aö setja
aukafarangur undir pokann ef
eigandinn vill nota hann í eitthvað
annað. Skjalatöskur hjá Pennanum
eru á veröbilinu 972 kr. til 3.203 kr.
Einnig eru til leðurtöskur, bæöi með
og án axlarólar, og kosta þær 2.793
kr. og 2.853 kr. meö ólinni. Þær eru til
í svörtu og ljósu. Verö á töskunum
sjást á meöfylgjandi myndum.
Griffill
Hjá Griffli var Piolet tóskunum
stillt upp í glugga verslunarinnar og
var okkur tjáð aö þetta væru einna
vinsælustu töskurnar hjá þeim. Þær
kosta frá 698 kr. og eru með endur-
skini aö framan en meö þeim fylgir
merki til aö setja á hliðarnar. Ýmiss
konar bakpokar eru til í Griffli sem
annars staöar fyrir krakka á
aldrinum 10—11 ára og upp úr.
Pokarnir, sem minnst hefur veriö á
án grindar, kosta í Griffli 3.326 kr. en
leöurlíkispokar meö grind kosta
1.462 kr. Nælonpoki með grind kostar
1.731 kr. Skjalatöskur af ýmsum
geröum og stæröum eru á boðstólum
og t.d. var til „álstressari” ef svo má
segja og kostaöi hann 1.129 kr. Það
var ódýrasta gerðin af skjalatöskum
en þær dýrustu voru á 2.583 kr.
Venjuleg taska, ef svo má segja, sem
sagt ekki bakpoki, heldur vönduö
taska sem hægt er aö hafa á bakinu
og líka nota sem handtösku, kostar
kr. 1.239 kr. Urvaliö fyrir yngri
krakkana sjáum viö á meöfylgjandi
mynd.
Bókahúsið
í Bókahúsinu rákumst viö á hinar
gömlu sígildu skólatöskur eins og
notaðar voru í gamla daga en af-
greiðslumaðurinn sagði aö þær væru
að vinna á. Hvaö er verið aö tala um?
jú, þaö eru leöurtöskurnar sem voru
allsráöandi hér áöur fyrr. Nú kosta
þær hjá Bókahúsinu 498 kr. I Bóka-
húsinu eru til bakpokar, bæði frá
Jeva og Midi, í ýmsum stæröum og
geröum. Jeva Midi kostar þar 1.362
kr., algeng stærö af Scout poka, fyrir
eldri krakka, kostar 1.579 kr.
Bakpoki með grind kostar þar 955 kr.
Venjuleg leðurlíkisskólataska er til
þar á 527 kr. en leðurtöskur fást í
Bókahúsinu á 1.219 kr. Skjalatöskur
eru á veröbilinu 1.587—3.020 kr. en
þær dýrustu eru meö tölvulæsingum
og fóðraðar. Þaö sama er aö segja
um dýrustu skjalatöskurnar í hinum
verslununum. Töskur fyrir þau
yngstu, sem fást hjá Bókahúsinu, má
sjá á meðfylgjandi mynd.
Viö höfum nú rakið þaö helsta sem
fyrir augu bar í þessu búðarrápi
okkar en síöan er þaö vitanlega
ykkar lesendur góöir aö velja og
hafna. SJ
Bakpo karaf
ýmsu tagi
vinsælastir
í skól lann