Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1985, Side 7
DV. MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER1985.
7
•ssmí
Það getur verið að ekkert sé nýtt
undir sólinni, en í „landi hinnar
rísandi sólar'', virðist sífellt hægt
að gera betur. Toyota Camry er
fullkomið dæmi þess. Hann virðist
við fyrstu sýn ósköp venjulegur
5 manna fjölskyldubíll, en við
nánari kynni kemur annað í Ijós. Þverstæð vél og framhjóladrif gera það að
verkum að innanrými er geysimikið. Sætin eru 1. flokks, (t.d. er hægt
að stilla bílstjórasætið á 7 mismunandi vegu).
Farangursrými í Camry Liftback er 1,17 m3,
sem er meira en margir stationbílar geta státað
af. Veltistýri, 5-gíra skipting (eða 4 stiga
sjálfskipting), loftbremsur, gasdemparar,
tannstangarstýri, gott miðstöðvarkerfi og
annar búnaður hafa líka sitt að segja um þægindi og góða aksturseiginleika.
1,8 eða 2,0 lítra bensínvél með rafstýrðri „beinni innspýtingu" og 1,8
lítra dieselvél með forþjöppu, hafa snerpu og kraften eru auk þess hljóð-
látar og eyðslugrannar.
Verð frá kr. 529 þús.
TOYOTA
CAMRY
Nýbýlavegi 8 200 Kópavogi S. 91-44144.
„Óheilla-
þróun”
— segir verslunar-
stjórínn
„Þaö er rétt aö þaö varö 10 þús.
kr. hækkun á þessari gerö af
þvottavél á sl. tæpum þrem
mánuðum en þaö á sér sínar skýr-
ingar.
Okkur þykir þetta óheillaþróun
og ekki skrítiö að fólk reki upp stór
augu þegar svona veröhækkanir
eiga sér staö,” sagöi Olafur Már
Sigurösson, verslunarstjóri í heim-
ilistækjadeild Bræðranna
Ormsson, er DV lagði dæmiö um 10
þús. kr. veröhækkunina fyrirhann.
Hækkun á þessari tegund þvotta-
véla varð erlendis um 9%. Hækkun
vegna gengisbreytinga þýska
marksins varð 10,2% á þessu tíma-
bili. Hækkun varð á aðflutnings-
gjöldum og öörum gjöldum, m.a.
vegna óhagstæðs gámaflutnings og
loks varð 1% hækkun á söluskatti,”
sagöi Olafur Már. Reikningsdæmiö
sem Ölafur sýndi okkur var eftir-
farandi:
Utsöluverð 04.06.85 35.382
Hækkun erlendis 3.184
Hækkun 14.85 38.566
v/gengisbr. 13,47 10,2% 3.933
42,499
Hækkun á flutnings- og öðrum gjöldum 2.402
44.901
Söluskattshækkun 1% 449
45.350
Til þess aö koma til móts við
neytendur vegna þessarar hækkun-
ar hefur staögreiðsluafsláttur á öll-
um stærri heimilistækjum veriö
aukinn úr 5% í 7%, eöa um 2%. Þar
að auki tekur fyrirtækiö þriggja
ára ábyrgö á AEG heimilistækjum
sem er tveimur árum lengri ábyrgö
en skylt er aö taka samkvæmt ís-
lenskum lögum. -A.Bj.
Skemm-
ist rabar-
barií
hita?
Húsmóöir hringdi til okkar á
neytendasíðuna og spurðist fyrir
um hvort rabarbari, sem héföi ver-
ið í hita, væri eitraður eöa ónýtur.
Hún sagðist hafa veriö með tölu-
vert magn af rabarbara sem heföi
staöiö í 4—6 klukkustundir í vel
heitu herbergi en síðan hefði hann
fariö beint í kæli. 1 framhaldi af.
fréttum um að kartöflur gætu orðið
eitraöar ef þær væru í hita sagðist
hún hafa farið aö velta fyrir sér
hvort þaö sama gæti gerst í rabar-
bara.
Eftir því sem viö best vitum er
rabarbari ekki ónýtur eftir að hafa
staðið í hita í svona stuttan tíma.
Hann gæti hafa linast eitthvaö en
þá má vitanlega skera það burt
sem ljótt er orðið. -SJ.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Þvottavélin hækkaði um
10 þús. kr. á þrem mán.
„Það gekk alveg fram af mér er ég
heyrði um verðhækkun sem varð á
ákveðinni þvottavélartegund sem ég
ætlaði að kaupa mér,” sagði ung kona í
samtali viö neytendasíðuna.
„Systir mín keypti sér „AEG-660”
þvottavél hjá Bræðrunum Ormsson
um mánaðamótin mai/júní. Vélin kost-
aði 35 þús. kr. Nú ætlaði ég að fá mér
samskonar vél, tæpum þremur mán-
uðum seinna. Þá var vélin komin upp í
45 þús. kr.
I búðinni fékk ég þau svör að verð-
hækkunin væri vegna gengissigs.
Þetta er um það bil 28% hækkun. Eg
hef ekki orðið vör við að það hafi orðið
28% gengissig eöa felling sl. þrjá
máíiuði. Hver er skýringin?”
Þrjár orsakir
Neytendasíðan lagði dæmið fyrir
Verðlagsstofnun. Við athugun þeirra
kom í ljós að hluta verðhækkunarinnar
má rekja til gengissigs, hluta til er-
lendrar hækkunar og hluta til hækkun-
ar á söluskatti og öðrum kostnaði, eins
og fram kemur í samtali við verslunar-
stjóra heimilistækjadeildarinnar.
-A.Bj.