Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1985, Side 10
10
DV. FÖSTUDAGUR 4. OKTOBER1985.
Utlönd
Utlönd
Útlönd
Útlönd
KGB-foringjar
flýja hreinsanir
Gorbatsjovs
Fjöldaflótti sovéskra leyniþjón-
ustumanna til vestursins í sumar er
afleiöing hreinsana innan KGB-
leyniþjónustunnar sem hinn nýi
Sovétleiðtogi, Mikhaíl Gorbatsjov,
hefur fyrirskipaö. Hann skipaöi
rannsóknarnefnd að endurskipu-
leggja leyniþjónustuna og losa hana
við þá foringja sem höföu notið hylli
fyrirrennara síns og fyrrverandi
yfirmanns KGB, Júrís Andropov.
Þetta hefur Sunday Times blaðið
breska eftir heimildum sem þekkja
til í undirheimum alþjóðlegrar
njósnastarfsemi.
Síðan Gorbatsjov fyrirskipaði
endurskipulagninguna hafa fimm
háttsettir njósnarar KGB flúið til
vestursins. Þeir flúöu vegna þess að
frama þeirra var hætta búin af
hreinsunum Gorbatsjovs.
Flótti þess sem síðast er vitað um,
Vitalis Júrtsénkó, er alversta áfallið
fyrir sovésku leyniþjónustuna.
Á frama sinn
Andropov að þakka
Júrtsénkó hefur haldið ýmsum
mikilvægum embættum innan KGB.
Hann á frama sinn að þakka
Andropov, fyrrverandi yfirmanni
KGB. Þau 15 ár sem Andropov
stjómaði sovésku leyniþjónustunni
hækkaði hann mjög í metorðastigan-
um.
Júrtsénkó var fyrsti ritari í
sovéska sendiráöinu í Washington,
frá 1975 til 1980. Á meöan hann var
þar var hann kallaður til Moskvu til
að koma fram í kvikmynd sem gerð
var til aö halda upp á 60 ára afmæli
sovésku leyniþjónustunnar. I slikum
myndum birtast menn alltaf í ná-
kvæmri virðingarröð frá yfirmann-
inum, og Júrtsénkó var sá 10. í röð-
inni frá Andropov.
Júrtsénkó fór strax að fá mikilvæg
foringjaembætti árið 1967 þegar
Andropov tók við KGB. Leyniþjón-
Umsjón:
ÞórirGuðmundsson
og
Guðmundur Pétursson
ustunni er skipt í níu deildir. Sú
mikilvægasta er fyrsta deildin sem
sér um aðgerðir erlendis. En sú önn-
ur, sem vinnur að öryggi innanlands,
og sú fimmta, sem vinnur gegn and-
ófsmönnum innanlands, eru líka
mjög mikilvægar.
Yfirmaður KGB
í Washington
Júrtsénkó vann sem aðstoðaryfir-
maöur undirdeildar K í fyrstu deild.
Hann bar ábyrgð á öryggi KGB-
njósnara í aðgerðum þeirra erlendis.
Á sex árum var hann hækkaöur
fjórum sinnum í tign. Árið 1975 var
hann færður til Washington, með það
að yfirskini að vera einn af mörgum
.sendiráðsriturum. Raunveruleg
staða hans var þó aö vera yfirmaður
meginstöðvar KGB á Vesturlöndum.
Árið 1980 fór Júrtsénkó aftur til
Moskvu. Þar fékk hann yfirstjórn
einnar deildar KGB. Sennilega var
hann yfir sjöundu deild, sem sér um
eftirlit, eða þeirri áttundu, sem sér
um f jarskipti í njósnastarfinu. Hann
hefur þá verið orðinn hershöfðingi
innan KGB.
Sem slíkur var hann aðeins tveim-
ur skrefum frá stóli formanns, yfir-
manns KGB.
Frami stöðvaður
En frami Júrtsénkós var stöövað-
ur þegar Júri Andropov dó og þegar
Gorbatsjov var kjörinn formaður
kommúnistaf lokksins i fyrra.
Hinn nýi leiðtogi setti annan hers-
höfðingja, Júrí Kristsov, yfirmann
nefndar sem átti að endurskipu-
leggja starf KGB. Kristsov þessi var
gamall keppinautur og óvinur Júrt-
sénkós og Júrtsénkó vissi um leið að
hann átti litla framtíð fyrir sér innan
KGB.
Talið er nú að Oleg Gordievsky,
Tak skjöl þín og
gakk. . . óánægö-
ir KGB-leyniþjón-
ustumenn flýja í
kippum til Vestur-
landa.
yfirmaður KGB í Bretlandi, hafi flú-
ið vegna þess að framavonir hans
hafi líka minnkaö umtalsvert viö
uppstokkun Gorbatsjovs á leyniþjón-
ustunni. Hann gat átt von á að verða
kallaöur til Moskvu og hann vissi að
þaðan væri lítil von aö hann kæmist
til baka. Notagildi hans fyrir Vestur-
lönd yrði því ekkert. Hann strauk.
Fimm háttsettir
hafa strokið
Þrír aðrir KGB-foringjar í Buenos
Aires, Aþenu og Nýju Delhi hafa
einnig strokið í sumar.
Júrtsénkó hóf undirbúning flótta
síns snemma á þessu ári, nokkrum
mánuðum áður en Gordievsky fór
yfir. Júrtsénkó var ekki búinn að
vera tvöfaldur í roðinu eins og
Gordievsky heldur var það bara allt í
einu að hann labbaði yfir línuna.
Þess vegna var honum tekið með
miklum grunsemdiun af CIA-mönn-
um sem nú yfirheyra hann í Banda-
ríkjunum.
CIA vill frekar fá menn eins og
Gordievsky, sem þeir hafa getað
fylgst með og unnið með í mörg ár.
Vestrænir njósnaforingjar eru
undrandi yfir því að svo háttsettur
foringi sem Júrtsénkó hafi náð aö
yfirgefa Sovétríkin. Yfirleitt er yfir-
mönnum deilda bannað að fara úr
landi, af ótta við mannrán, flótta eða
uppljóstranir.
Jaruzelski veHar sakaruppgjöf
i skiptum fyrir góða kjörsókn
Wojciech Jaruzelski hershöfðingi,
kommúnistaleiðtogi Póllands, hefur
augsýnilega mildað hið fyrra
stranga og hermannlega yfirbragð
sitt eftir heimsóknina til Samein-
uðu þjóðanna í síðustu viku. Þeirri
heimsókn lýsir Varsjárstjórnin sem
mikilvægum diplómatískum áfanga.
Skuggagleraugun
horfin
Samtímis því sem yfirvaldiö býr
sig undir að kunngera nýja sakar-
uppgjöf til handa andófsmönnum,
sneri Jaruzelski um síðustu helgi
heim aftur frá New York, broshýr og
mildilegur. 1 stað herforingjaskrúð-
ans voru komin blátt áfram jakkaföt
og horfin voru svörtu sólgleraugun
skuggalegu, sem hann hefur orðið að
bera vegna augnveikinnar. Þau
höföu lagt sitt af mörkum til þess aö
gefa manninum harðneskjulegan
svip.
Það var sýnt í pólska sjónvarpinu
þegar Ieiðtoginn sneri aftur frá
Vesturlöndum. Á flugvellinum i
Varsjá var töluverður mannsöfnuð-
ur til þess að bjóða Jaruzelski vel-
kominn eins og sæmir við ástsælan
leiðtoga. Og líkt og vel skólaður
frambjóðandi á Vesturlöndum
klappaði hershöfðinginn bömum á
koll, kyssti framréttar hendur
kvenna og ornaði sér í móttökunum.
Pólsku blöðin lýsa þessari fyrstu
Svörtu glaraugun settu harö-
nsskjusvip 6 laiðtogann, sn aftir
heimsóknina til New York. . .
heimsókn hershöföingjans til Vestur-
landa eftir að hann kom til valda sem
persónulegum sigri hans. Eins og
aðalfréttahaukur flokksmáigagns-
ins Trybuna Ludu, Zygmunt
Broniarek, komst að orði: „Við urð-
um þess alls staðar áskynja að hver
sá, sem átti orðastað við forsætisráð-
herrann, mat hann mjög mikils. Valt
enda mjög á því til þess að breyta af-
stööu manna vestra til Póllands og
málefnaokkar.”
Sakaruppgjöf
liggur í loftinu
1 viðtali við Washington Post á
meðan á Ameríkuferðinni stóö gaf
Jaruzelski í skyn að ný sakaruppgjöf
pólitiskra andstæðinga kynni að vera
í deiglunni en gæti oltið á því hvort
nægilega mikil þátttaka væri í kosn-
ingunum 13. október. — Hin óháöa
verkalýðshreyfing „Eining”, sem er
ekki lengur leyfð, hefur hvatt kjós-
endur til þess aö sitja heima og skila
ekki atkvæði. Lech Walesa, leiðtogi
Einingar, sagði að hugmyndin um
sakarupþgjöf og umræður um hana
svona skömmu fyrir kosningarnar
og með því skilorði, sem henni á að
fylgja, væri einber þvingunaraðgerð.
Síðan andófsmönnum var veitt
sakaruppgjöf í Póllandi síðast, sem
var i júli 1984, hafa 250 eöa þar um bil
verið dæmdir fyrir pólitískar sakir.
Þar í hópi eru Adam Michnik,
Bogdan Lis og Wladyslaw Frazyniuk
sem allir eru úr fylkingarbrjósti
„Einingar”.
Það hefur kvisast að helstu ráð-
gjafar Jaruzelskis innan flokksins
hafi mælt með sakaruppgjöf við
hann en á móti sporni harðlínumenn-
imir studdir af Moskvu sem jafnan
ygglir brún yfir hvers konar mildi
. . . hafði mildast yfirbragöið og
svörtu gleraugun voru horfin og
hershöföingjaskrúöinn á forsæt-
isróðherranum pólska.
gagnvart andófsmönnum. Á hinn
bóginn sagði Jerzy Urban á dögun-
um: „Það getur engin landsstjórn
gert þaö aö árlegum fastaviðburði að
gefa lagabrjótum upp sakir því að
með þeim hætti yrðu lögin algert
formsatriði sem enginn virti.”
I öllu talinu um hugsanlega sakar-
uppgjöf hefur ekkert heyrst um
hvort hún yrði látin taka til allra póli-
tiskra andófsmanna eða með hvaða
skilmálum hún yrði veitt. I þessi tvö
skipti fyrr, sem sakaruppgjöf hefur
verið veitt fjölda pólitískra fanga,
hefur það verið sett sem skilyrði að
viðkomandi mættu ekki snúa aftur til
pólitískra athafna af því tagi sem
bannaðar eru. Ella þyrftu þeir að
fullnægja fyrri dómum. — Margir úr
röðum „Einingar” virtu skilorðiö að
vettugi.
Eiga mikið undir
kjörsókn
1 vesturferðinni mátti heyra á
Jaruzelski að hann væri nokkuð viss
um að fá þá 75—85% kjörsókn sem
stjómin æskir eftir. Ef henni veröur
að þeirri ósk má hugsast að hún telji
áhrif „Einingar” orðin svo hverfandi
aö öllu mundi óhætt um aö sleppa aft-
ur lausum fyrrum forystumönnum
hreyfingarinnar.
Auðvitað getur Varsjárstjórnin
gefið út hverjar þær tölur sem henni
sjálfri sýnist um niðurstöður kosn-
inganna en á hinn bóginn getur hún
ekki leynt Moskvu hinum réttu niður-
stöðum. Ef kosningaþátttakan verð-
ur mjög lítil verður erfiðara fyrir
Jaruzelski og félaga að telja Kreml-
verjum trú um að þeir hafi kveðið
„Einingu” og andófsmenn í kútinn.