Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Qupperneq 8
8 DV. MIÐVIKUDAGUR 5. MARS1986. Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd W . r ■ > fr' mmwM Þúsundir syrgjenda streymdu að staðnum þar sem Palme var myrtur strax og fréttin barst út. Lögreglan í Stokk- hólmi hefur meðal annars verið gagnrýnd fyrir að girða morðstaðinn ekki nægilega vel af þannig að hugsanlega hafi mikil væg gögn glatast. Hörð gagniýni á sænsku lögregluna Gunnlaugur A. Jónsson, fréttarit- ari DV í Lundi: Sænska lögreglan sækir nú stöðugt aukinni gagnrýni fyrir viðvaningsleg vinnubrögð við leitina að morðingja Olofs Palme. Flest sænsku dagblaðanna skrifa leiðara um málið í morgun. Hvers vegna voru ekki settir upp neinir vegatálmar í Stokkhólmi strax eftir morðið? Hvers vegna liðu tveir sólarhringar þar til þýska lögreglan var látin vita um að hryðjuverka- samtök rauðu herdeildanna í Vest- ur-Þýskalandi höfðu, tveimur klukkustundum eftir morðið, lýst því á hendur sér? Þannig spyrja gagnrýnendur lög- reglunnar og benda auk þess á að það hafi verið almenningur sem fann báðar byssukúlurnar en ekki lög- reglan og að gæslan við landamærin hafi viða nær engin verið eftir morð- ið, þrátt fyrir fullyrðingar lögregl- unnar um annað. Sænska lögreglan hefur einnig verið gagnrýnd í fjölmörgum erlend- umfjölmiðlum. Hans Holmer, lögreglustjóri í Stokkhólmi, átti mjög í vök að verj- ast á fundi með blaðamönnum í gær og baðst undan því að þurfa að hlusta á gagr ,ýni svo hann gæti einbeitt sér að lausn málsins. En allt kom fyrir ekki, gagnrýnum spurningum rigndi yfir lögreglustjórann. Þjóðarleiðtogar fjöl- menna til Stokkhólms Gunnlaugur A. Jónsson, fréttarit- ariDVíLundi: Ljóst er að hundruð útlendra gesta munu verða viðstödd útför Olofs Palme í Stokkhólmi þann 15. mars næstkomandi. Sænska lögreglan verður með gíf- urJegan viðbúnað enda er ljóst að óvenjulegur fjöldi af leiðtogum heimsins verður saman kominn í Stokkhólmi þennan dag. Ekki er enn ljóst hverjir verða fulltrúar stórveld- anna við útförina en fullvíst er talið að Mitterrand Frakklandsforseti og Thatcher, forsætisráðherra Breta, verði meðal viðstaddra. Sænskir fjölmiðlar skýra frá því í morgun að Rajiv Gandhi, forsætis- ráðherra Indlands, og Nyerere, fyrr- um forseti Tansaníu, muni tala við útförina. Af öðrum sem vitað er um að muni verða viðstaddir eru WiIIy Brandt, sem verður fulltrúi alþjóðasamtaka jafnaðarmanna, og Daniel Ortega, þjóðarleiðtogi í Nicaragua. Hins vegar hefur komið fram að fulltrúar frá Suður-Afríku og Chile séu ekki velkomnir til Stokkhólms. Að minnsta kosti eitt þúsund lög- reglumenn munu sjá um öryggis- gæslu gestanna og er viðbúnaður lögreglunnar meiri en nokkru sinni áður í Svíþjóð. R-Ý-M-I-IM-G-A-R-S-A-L-A ANTIK Afsýrð furuhúsgögn á ótrúlega góðu verði VIÐ ERUM ALLTAF SVEIGJANLEG í SAMNINGUM Búðarkot Hringbraut 119 Sími 22340 mwas Bothalofar að afnema neyðariög P.W.Botha, forseti Suður-Afríku, hefur lofað afnámi neyðarlaga er komið var á í kjölfar óeirða í landinu síðasta haust. Forsetinn opinberaði ákvörðun sína í þingræðu í gær og sagði þá að búast mætti við afnámi neyðar- laganna innan skamms. Forsetinn sagði þó að stjórnvöld áskildu sér enn fullan rétt til að halda hluta neyðarlaganna i fullu gildi ef yfirvöld teldu slíkt nauðsyn- legt til að halda uppi lögum og reglu. Botha sagði að ástandið hefði batn- að mikið í landinu að undanförnu og væri það meginástæða þess að neyðarlögunum yrði aflétt. Tveir blökkumenn létu lifið í nótt í áframhaldandi róstum í Alexandr- íu, úthverfi Jóhannesarborgar, og nokkrir særðust. Mikil sprenging átti sér stað í miðborg Jóhannesarborgar í gærdag við aðalstöðvar lögreglunnar við John Vorstertorg og ljóst er að nokkrir særðust. Mikill viðbúnaður lögreglu og öryggissveita setur nú svip sinn á Alexandríu en þar er búist við þús- undum blakkra syrgjenda í dag þegar nokkur blökk fórnarlömb óeirðanna að undanförnu verða borin til grafar. Á síðustu tveim árum hafa yfir ellefu hundruð manns látið lífið í kynþáttaátökum í Suður-Afríku og þúsundir særst. Noregur: Þrír fórust ísnjó- flóðum Björg Eva Erlendsdóttir, fréttaritari DV í Oslo: Undanfarna sólarhringa hafa mörg snjóflóð fallið víða í Noregi, flest í Norður-Noregi. Að minnsta kosti þrír menn hafa látið lífið í snjóflóð- unum og stöðugt falla fleiri flóð sem loka vegum og einangra jafnvel heilu byggðarlögin. í Norður-Noregi eru sextíu vegir lokaðir vegna skafrennings, óveðurs og snjóflóða og hætt er við að flestir eða allir vegir i þeim landshluta lokist ef veðrið batnar ekki fljótlega. Fiskibátur með þremur mönnum er týndur og eru menn vonlitlir um að hann muni finnast. í Tromsö eyðilögðust rafmagnslín- ur í óveðrinu og þar hafa þrjátíu þúsund manns verið rafmagnslausir í rúman sólarhring. Þrír látnir Enginn veit hversu mörg snjóflóð hafa fallið í Norður-Noregi og ekki heldur hvort fólk hefur grafist undir í flóðunum. í Ofoten, þar sem stærstu flóðin féllu, hafa hundrað manns leitað að fólki sem hugsanlega gæti hafa grafist undir flóðunum. Þrjú lík fundust í gær og í fyrradag. Einn hinna látnu var skógarhöggsmaður sem hafði orðið undir flóði á leið til vinnu sinnar. Einnig létust tvær tvítugar stúlkur sem voru í skóla- ferðalagi ásamt kennurum og bekkj- arfélögum. Ætlunin var að gista í snjóhúsum sem skólakrakkarnir byggðu sjálf en tvö snjóhúsannna reif flóðið með sér. Margir af krökk- unum grófust undir en það tókst að bjarga öllum í tíma nema stúlkunum tveim. Þær náðust ekki upp úr snjón- r- ■ -1 ,s var nrðið ofseint. Austurríki: Vínútflytjandi í erfíðleikum Stærsti vínútflytjandi Austur- ríkis - fyritækið Lenz-Moser, á í fjárhagserfiðleikum. Þrátt fyrir að fyrirtækið hafi ekki verið eitt þeirra sem í fyrra urðu uppvís að því að blanda vín sín frostlegi hefur það hneykslismál engu síður skaðað fyrirtækið því fjöl- margir sneru sér alfarið frá aust- urrískum vínum. Giftist 119 ára Draumur hins 119 ára gamla fyrrum þræls, Walomiro Da Silva, rættist um helgina í Rio de Janero. Hann og hin 65 ára gamla Iracema giftu sig og fengu þar með blessun kathólsku kirkj- unnar yfir átta ára gamalt ástar- ævintýri. Da Silva, sem fæddist 1867, var ánauðugur fyrstu ár ævi sinnar en þrælahald var ekki afnumið í Brasilíu fyrr én 1888. Ástarskóli Ást, hjónaband og Qölskyldu- siðfræði eru kennslugreinarnar í nýstofnuðum skóla í Hong Kong. í skólanum, sem er ætlaður ógift- um stúlkum, stunda nú nám hundrað og sjötíu stúlkur á aldr- inum sautján til þrjátíu ára. Þær geta valið úr sjö KÚrsum, þar á meðal eru „hættur sem fylgja kynlífi fyrir hjónband" og „hvernig velja skal elskhuga“. Áhrífameirisem skemmtikraftur Hinn þekkti söngvari, Harry Belafonte, hefur hafnað boði um að bjóða sig fram til bandaríska þingsins fyrir demókrata. Sagðist Belafonte telja að hann gæti haft meiri áhrif á gang mála, til dæmis í Suður-Afríku, sem skemmti- kraftur en sem þingmaður. Vildi afklæðast fýrirdrottning- una Áströlsk kona var handtekin þegar hún reyndi að bera brjóst sin fyrir framan Elísabetu Eng- landsdrottningu og mann hennar sem eru í opinberri heimsókn í Astralíu um þessa mundir. Kon- an sagði tilganginn með athæfi sínu vera að vekja athygli á málstað kvenfrelsiskvenna. UMSJON: VALGERÐUR JÓHANNSDÓTTIR OG HANNES —HEIMISSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.