Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Qupperneq 34
34 DV. MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 1986. O- I s Erlendir fréttaritarar Erlendir fréttaritarar Erlendir fréttaritarar Erlendir fréttaritarar Sjóbleikjan, eldisfiskur framtíðarinnar? Lúðvík Börkur Jónsson, fréttaritari DV í Tromsö: Sjóbleikjan (salvelinus alpinus) heíiir notið mikillar athygli síðustu ár vegna eiginleika sem koma sér vel í eldi. Rannsóknir á sjóbleikju sem eldisfiski hófúst fyrir u.þ.b. 10 árum. Útkoman var mjög léleg í fyrstu þar sem fiskurinn þoldi ekki saltvatnið. Mikill hluti seiðanna drapst fyrsta veturinn i eldinu. Auknar rannsóknir á náttúrulegum aðstæðum bleikjunnar hafa nú svar- að ýmsum spumingum. Stofn úr Víðidalsá reynist vel 1978 hófust sjóbleikjurannsóknir við sjávarútvegsháskólann í Tromsö sem standa enn. Hefur meðal annars verið unnið að samanburði á stofn- um úr mismunandi ám og vötnum. fslenskur stofn úr Víðidalsá í Húna- vatnssýslu hefur komið vel út. Nið- urstöður hafa þó ekki verið birtar nema yfir fyrstu æviskeiðin. Við sínar eðlilegu aðstæður geng- ur sjóbleikjan fyrst í sjó að sumri til 3 4 ára gömul, er þá 50 150 gr. að þyngd. Þar vex hún vel enda sjórinn mun fæðuríkari en vötnin. Dvölin í sjónum er ca 2 mán. Þá er aftur haldið á heimaslóðir. Eftir það er göngufiskurinn í fei-skvatninu að vetrinum en < sjó á sumrin. Er þannig á þveröfugu róli við laxinn. Ferskvatnsbleikjan deyr Það hefur lengi verið ljóst að bleikja er bæði göngufiskur og stað- bundinn (þ.e. lifir allt lífið í fersku vatni). Hvað veldur því hvaða fiskur gengur í sjó og hver ekki er ekki vitað. Samhengið þama á milli er óljóst en kenningar fræðimannsins H. Nordeng, sein rannsakað hefur þetta í Salanger-vötnum í Norður- Noregi frá 1961, em viðurkenndar af flestum. Nordeng álítur að við tæplega 2 ára aldur skiptist seiðin annaðhvort í sjóbleikju ca 25% eða staðbundna bleikju ca 75%. Seinna, ca 6-7 ára, getur hluti af staðbundna fiskinum tekið upp lifnaðarhætti sjóbleikjunnar og telst þá til göngu- hópsins. Hve seint er hægt að greina á milli sjóbleikjunnar og ferskvatns- bleikjunnar veldur erfiðleikunum í eldinu og skýrir hinn mikla seiða- dauða á fyrsta vetri í sjóeldinu. Ferskvatnsbleikjan getur ekki stjómað saltjafnvæginu og deyr eftir ákveðinn tima en sjóbleikjan lifir af ef rétt er að staðið. Kynbætur. Álitið er að kynbætur geti hér breytt dæminu mjög. Með því að „ekta“ sjóbleikjur pari sig í 2-3 kynslóðir telja þeir bjartsýnustu að hlutföll sjóbleikjunnar aukist úr 25% í 90%. Reynist það rétt má með sanni segja að sjóbleikjan verði „gullfiskur" í eldislegu tilliti. Hinir ákjósanlegu eiginleikar bleikjunnar sem eldisfisks samanborið við lax Sjóbleikjan er norðurheimskauts- fiskur (lifir ekki fyrir sunnan 63° n. br.) og kjörhitastig lægra en hjá laxi. Bleikjan er harðgerðari og þolir harkalegri meðhöndlun án þess að missa hreistur eða láta á sjá að öðm leyti. Margir telja að bleikjan hafi meira mótstöðuafl gegn sjúkdómum. Hægt er að ala bleikju mjög þétt í kvíum eða kerum, ca 100 kg pr. rúmmetra vatns á móti 15-20 kg pr. rúmmetra hjá laxinum. Þ.e. ca 5 sinnum meira magn af fiski upp úr ákv. keri sé ræktuð sjóbleikja. Nýting á öllum útbúnaði verður þannig til muna hagstæðari. Hve fljótt lax getur orðið kynþroska hefúr oft valdið erfiðleikum i laxeld- inu. Sjóbleikjan verður kynþroska mun seinna, þ.e. 4-8 ára gömul. Sjóbleikja á íslandi I fiskeldismálum höfum við íslend- ingar aðallega haft í huga eldi i landstöðvum þar sem við getum nýtt okkur jarðvarmann. Eru þær hug- myndir núna að verða að veruleika. Spumingin er hvort ekki sé rétt að hafa fleiri jám í eldinum, renna sem flestum stoðum undir þessa atvinnu- grein sem svo miklar vonir eru bundnarvið. Bleikja sem verið hefur þrettán mánuði í sjó. Sjóbleikjueldi gæti hentað vel á Norður- og Austurlandi. Þar em skjólgóðir staðir og hið lága hitastig yfir veturinn gerir lítið til, þótt vissu- lega þurfi að hafa viðbúnað fari hitastig niður fy rir ákv. lágmark. Markaðskannanir em í fullum gangi hérhjá Norðmönnum og menn bjartsýnir á að hægt sé að vinna markaði sem gefi gott verð. Falleg eldis-sjóbleikja frá Simo havlax í Hammerfest. Kraftaverk í blómarækt: Fyrstisvarti túlípaninn í heiminum - ræktandi tryggir hann fyrir 22 mii|jónir Gizur í. Helgason, fréttaritari DV, Zúrich: Blómaræktandi í Hollandi náði því að kynbæta túlípana sína þannig að út kom hinn langþráði draumur: Fyrsti svarti túlípaninn í heiminum. Hann er nú tryggður á um 22 millj- ónir íslenskra króna og lögregluvakt er um hann dag og nótt. Þeasi svarti túlípani er nú til sýnis á hinum ýmsu blómasýningum í Hollandi. „Svarti túlípaninn" hefur verið notaður í ýmsum tilvikum og er þess m.a. að minnast að rithöfund- urinn Alexander Dumas notaði hann sem titil í einni af skáldsögum sínum og einnig notaði Alain Delon Jxjtta nafn nú nýverið í ævintýrakvik- mynd. Gert Hageman blómaræktandi hefur þetta að segja um dýrasta blóm veraldar: „I augnablikinu er þetta eina eintakið en á næsta ári verða þeir orðnir tveir og eftir átta ár þá verður hér heill fkur með þessum gersemum. Með því að kynbæta hinn dimm- bláa túlípana sem heitir „drottning næturinnar" með öðrum sem ber nafnið „vínarvalsinn" náðist þessi árangur, en að loknum fjölda til- rauna. Sá svarti hefur enn ekki fengið nafn. Fyrsti túlípanalaukurinn barst til Hollands frá 'IVrklandi árið 1635. í dag flytja Hollendingar út túlípana- lauka fyrir um 10 milljarða ísl. króna árlega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.