Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1986, Qupperneq 2
2
Jlí^A :?.f írJOACUTr'Vr* . n
DV. FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1986.
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
Til Mexíkó með
fimm milljónir?
- Enn fréttist ekkert af Hermanni Björgvinssyni
„Ef ósk um áframhaldandi farbann
hefði komið frá ríkissaksóknara
hefðum við að sjálfsögðu orðið við
henni. Sú ósk kom aldrei og því var
látið nægja að hafa Hermann í far-
banni til 12. mars,“ sagði Magnús
Ásgeirsson, aðalfulltrúi hjá bæjar-
fógetaembættinu í Kópavogi.
Engin ósk
Rannsóknarlögregla ríksins hafði
farið fram á að farbann Hermanns
gilti til 1. júní en þegar málið var
Fréttaljós
Eiríkur Jónsson
úr þeirra höndum í byrjun febrúar
og sent ríkissaksóknara tók Magnús
ákvörðun um styttingu farbannsins.
„Það var ríkissaksóknara að meta
hvort óskað væri eftir frekari að-
gerðum. Svo var ekki,“ sagði
Magnús.
Aðspurður hvers vegna 12. mars
hefði orðið fyrir valinu, sagði Magn-
ús: „Hvers vegna ekki 12. eins og
13. eða 14., einhvers staðar varð að
draga mörkin?"
Innheimtur
í samtali við DV á þriðjudaginn,
er ljóst var að Hermann Björgvins-
son væri kominn til Bandaríkjanna
ásamt fjölskyldu sinni, sagði Jónat-
an Sveinsson saksóknari að verjandi
Hermanns Björgvinssonar, Grétar
Haraldsson, hefði ekki alið með þeim
neinn ótta um að Hermann hygðist
flýja land: „Við sáum því ekki
ástæðu til að setja hann í farbann."
I þessu sambandi er athyglisvert að
íhuga ummæli gamalla félaga Her-
manns Björgvinssonar um að
Hermann hafi eytt síðustu dögum
sinum hér á landi í að innheimta
gamlar kröfur ássunt lögmanni sín-
um, Grétari Haraldssyni.
Ákveðinn ótti
Þrátt fyrir eftirgrennslanir yfir-
valda um ferðir Hermanns Björg-
vinssonar í Bandaríkjunum er enn
með öllu óljóst hvort hann snýr aftur
heim eða hyggst dvelja erlendis um
ókomna framtið. Ólöf Pétursdóttir,
héraðsdómari í Kópavogi, var að því
komin að birta Hermanni ákæru er
hann hvarf af landi brott. „Það var
ákveðinn ótti meðal okkar um að
Hermann færi úr landi. Þetta á eftir
að torvelda dómsrannsókn og máls-
meðferð alla,“ sagði hún er DV færði
henni fréttimar um ferðalag Her-
manns. Þó er það álit lögmanna að
unnt verði að dæma í máli Her-
manns að honum fjarstöddum og
samkvæmt upplýsingum dómsmála-
ráðuneytisins mun mál hans fimast
á fimm árum ef og þegar hann verð-
ur dæmdur.
Snýr Hermann Björgvinsson aftur
til íslands?
4-5 milljónir
Samkvæmt heimildum DV tókst
Hermanni að innheimta 4-5 milljón-
ir króna áður en hann lagðist í
ferðalag ásamt fjölskyldu sinni. Ætt-
ingjar hans, er DV hefur haft
samband við, telja þó allir sem einn
að Hermann snúi heim er hann hef-
ur notið hvíldar vestanhafs. Tengda-
móðir hans sagði: „Hermann var
úttaugaður. Þetta mál hefúr tekið
óskaplega á hann. Hann varð að
hvílast."
Mexikó
Gamall kunningi Hermanns er þó
á annarri skoðun: „Fuglinn er flog-
inn. Hermann kemur' ekki aftur í
bráð. Hann neddi það oft að fara til
Mexíkó eða þá að fara að stunda
viðskipti í Islendingabyggðum í
Seattle. Þar gera menn út á túnfisk,
krabba, lax og rækju við Alaska og
gera það gott. Þar á Hermann einn-
ig skyldmenni, föðursystur, en
eiginmaður hennar rekur sjálfsala
víða í Bandaríkjunum."
Föðursystir Hermanns, sem búsett
er i Seattle, Stella Hermannsdóttir,
er stödd hér á landi um þessar mund-
ir og hún sagði í samtali við DV:
„Ykkur kemur ekkert við hvort
Hermann kemur í heimsókn til mín
eða ekki. Það er okkar mál.“
Að vinna tíma
Annar kunningi Hermanns sagði:
„Hermann er að vinna tíma. Hann
getur farið yfir til Kanada þegar að
framsali kemur og síðan til Mexíkó
ef þannig horfir við. Því lengri tími
sem líður því meiri möguleikar verða
á því að staða hans í Bandaríkjunum
breytist þannig að örðugara reynist
að fá hann framseldan."
Að sögn Jónatans Sveinssonar sak-
sóknara verður vissulega látið reyna
á framsal ef Hermann lætur ekki sjá
sig í bráð hér á landi: „Það er óvar-
legt af Hermanni að treysta því að
hann fái að vera í friði í Bandaríkj-
unum.“
-EIR
Hermann Guðmundsson.
Hafið
þið séð
þennan
mann?
Ivögreglan í Grindavík lýsireft-
ir Hermanni Guðmundssyni frá
Sjónarhóli, Grindavík. Hermann
sást síðast við unglingaskemmti-
staðinn Gjána í Grindavík
aðfaranótt sunnudagsins 13.
apríl.
Hermann er 17 ára gamall, 180
sm á hæð, skolhærður, klæddur
gráum buxum, gráum rúskinn-
sjakka, drapplitaðri skyrtu, bláu
ullarvesti og svörtum skóm.
Þeir sem geta gefið upplýsingar
um ferðir Hermanns eru beðnir
um að snúa sér til lögreglunnar
í Grindavík í síma 92-8444 eða
lögreglunnar í Keflavík í síma
92-3333.
„Snjóaði ekki
sérstaklega
fyrir mig?“
- spurði Fats Domino við komuna
til landsins
ann þótt þetta sé nokkur munur frá
því sem var í Texas í gær,“ sagði Dom-
ino enda var hann kappklæddur og
við öllu búinn. „Ég er orðinn svo van-
ur þessu flakki við ýmsar aðstæður
eftir fjörtíu ár í tónlistinni. Fyrir mán-
uði var ég í Evrópu, fór svo aftur
vestur, þá hingað og héðan fer ég til
New Orleans. Snjór hér, sól þar - ég
er við öllu búinn.“
Fats Domino sagðist ætla að bjóða
íslenskum úheyrendum upp á það
helsta sem hann hefur hljóðritað á
umliðnum árum. „Ég ætla að bjóða
fólki upp á þennan Fats Domino sem
allir þekkja. Ég veit að íslendingar
þekkja lögin mín. Nú fúið þið tæki-
færi til að heyra okkur félagana leika
þau,“ sagði Domino kotroskinn og
vingsaði sambyggða stereósegulband-
inu eins og hinir unglingamir.
í för með Domino er m.a. Herbert
Hardesty, gamalrejmdur rokkari, sem
Uengi hefúr fylgt kappanum og verið
með á öllum plötum hans.
-GK
„Mér var sagt að hér væri enginn
snjór. En svo skilst mér að það hafi
snjóað síðustu nótt. Var það ekki sér-
staklega gert fyrir mig?“ spurði Fats
Domino, rokkarinn góðkunni þegar
hann snaraðist ásamt fríðu föruneyti
inn á Loftleiðahótelið. Hann kom til
landsins í gær og ætlar að halda hér
sex tónleika á Broadway, þá fyrstu í
kvöld.
„Ég læt mér ekkert bregða við kuld-
TÓKST EKKI
AD SEMJA
Ekki tókust samningar milli starfs-
fólks veitingahúsa og viðsemjenda
þess á samningafundi sem stóð til
klukkan tvö í nótt.
Sáttasemjari boðaði formenn samn-
inganefhdanna á sinn fúnd í morgun
og ætlaði að freista þess að ná samn-
ingum úður en tveggja sólarhringa
verkfall hefst á morgun. -APH
Fats Domino við komuna til landsins í gær. Hér heldur hann sex tónleika og hverfur svo aftur vestur um haf til hinnar
snjólausu New Orleans. DV-mynd GVA.