Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1986, Blaðsíða 22
22
DV. FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1986.
Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir
Það var mikil viðhöfn í Frankfurt þegar dregið var í riðla í Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu 1986-1988. Drættinum var sjónvarpað beint til fjölmargra
landa. Island lenti - að allra áliti i erfiðasta riðlinum, þeim þriðja, ásamt Evrópumeisturum Frakklands, Sovétríkjunum, Austur-Þýskalandi og Noregi. í
september leika Evrópumeistararnir við ísland á Laugardalsvellinum, þann tíunda, og Sovétríkin einnig, 24. september. í októberlok verður leikið við Aust-
ur-Þýskaland ytra. Myndirnar að ofan voru teknar þegar dregið var. Ellert Schram, formaður KSÍ, og varaforseti UEFA, knattspyrnusambands Evrópu,
við háborðið og það sést betur á litlu myndinni í vinstra horninu. Ellert fyrir miðju, þriðji frá hægri.
Barcelona í úrslvt eftir vítaspymukeppni:
Leikmenn Gautaborgar mis-
notuðu tvö síðustu vftin
Urslit Evrópu-
leikjanna
Úrslit urðu þessi á Evrópumótun-
um þremur í knattspyrnu í gær-
kvöldi:
Evrópukeppni meistaraliöa
í Búkarest: Steaua (Rúmeníu)-
Anderlecht (Belgíu) 3-0 (2—0). Mörk
Steaua: Victor Piturca 4. og 72. mín-
útu, Gavrilla Balini 23. mín. Steaua
sigraði, samtals 3-1. Ahorfendur 30
þúsund.
í Barcelona: Barcelona (Spáni)-
Gautaborg (Svíþjóð) 3-0 (1-0). Barce-
lona vann 5-4 á vítaspyrnum. Mörk
Barcelona: Pichi Alonso 9., 63. og 70.
mínúta. Áhorfendur 90 þúsund.
Evrópukeppni bikarhafa
I Krefeld: Bayer Uerdingen (V-
Þýskalandi)-Atletico Madrid (Spáni)
2- 3 (0-2). Mörk Atletico: Rubio 16.
mín, Gabrera 28. mín. og Prieto 58.
mín. Mörk Uerdingen: Matthias
Herget 55. mín og Lárus Guðmunds-
son 64. mín. Atletico sigraði 4-2
samanlagt. Ahorfendur 25 þúsund.
I Prag: Dukla Prag (Tékkóslóvak-
íu)-Dynamo Kiev (Sovétríkjunum)
1-1 (0-0). Mark Dukla: Kriz 64. mín.
Mark Dynamo: Belanov, víti, 71.
mín. Dynamo vann samanlagt 4-1.
Evrópukeppni félagsliða
í Madrid: Real Madrid (Spáni>-
Inter Milano (Ítalíu) 5-1 eftir fram-
lengingu. (hálfl. 1-0. Eftir 90. mín.
3- 1) Mörk Real: Hugo Sanches 43.
mín. víti, 75. mín. víti. Rafael Gor-
dillo 64. mín., Carlos Santillana 92.
mín. og 107. mín. Mark Inter: Liam
Brady 65. mín. víti. Real vann 6-4
samanlagt. Áhorfendur 100 þúsund.
í Waregem: Waregem (Belgíu)-
Köln (V-Þýskalandi) 3-3 (0-2). Mörk
Waregem: Dadi Mutombo 52. og 59.
mín, Armin Goertz 79. mín. Mörk
Köln: Klaus Allofs 26., 34. og 68.
mín. Köln vann 7-3 samanlagt.
Áhorfendur 15 þúsund. -fros
Frá Atla Hilmarssyni, fréttamanni
DV í Þýskalandi.
„Atletico var betra liðið allan leik-
inn en við brotnuðum eftir annað
mark Spánverjanna. Við fengum þó
mörg færi, sem ekki tókst að nýta, í
leiknum,“ sagði Feldkamp, þjálfari
Uerdingen, eftir að Atletico Madrid
hafði slegið lið hans út í Evrópu-
keppni bikarhafa í Krefeld í gær-
kvöldi. Sigraði, 3-2, og því samanlagt
4-2. Lárus Guðmundsson skoraði síð-
ara mark Uerdingen í gær. Fór síðan
skömmu síðar af velli. Atli Eðvalds-
son Iék allan leikinn. Byrjaði í
vörninni en síðustu 25 mínúturnar
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta-
manni DV í Svíþjóð.
Leikmenn IFK Gautaborg voru
lék hann sem miðheiji.
Spánska liðið lék mjög sterkan
varnarleik og var stórhættulegt í
skyndisóknum. Mikið um gróf brot,
oft gífurleg harka. Atletico náði for-
ustu á 16. mín. Rubio skoraði úr
vítaspyrnu, sem dæmd var á Dámg-
en, mjög klaufalegt hjá honum.
Kastaði sér fram og kom við knöttinn
með hendinni. Á 28. mín. komst At-
letico í 2-0. Cabrera fékk knöttinn á
miðju, lék upp og skoraði af stuttu
færi. Þannig var staðan í hálfleik.
í byrjun síðari hálfleiks átti Lárus
skot í stöng áður en Herget minnk-
aði muninn í 1-2 á 55. mín. Skoraði
miklir klaufar að komast ekki í úr-
slitaleikinn í Evrópubikarnum í
Barcelona i gærkvöldi. Það þurfti
beint úr aukaspyrnu af 20 metra færi.
Það stóð ekki lengi, Prieto skoraði
þriðja mark Atletico á 58. mín. Ná-
kvæm eftirlíking af öðru marki
liðsins. Skyndisókn. Á 64. mín. skor-
aði Lárus eftir hornspyrnu. Mark-
vörður Atletico missti knöttinn og
Lárus var á réttum stað. Potaði
knettinum í markið af stuttu færi.
Hann fór skömmu síðar af velli.
Nokkuð öruggur sigur hjá spánska
liðinu. Þjálfari Bayer Uerdingen
vildi alls ekki kenna þreytu hjá leik-
mönnum sínum um tapið þótt þeir
hafi þurft að leika mikið að undan-
fömu. hsím
vítaspyrnukeppni til að fá úrslit og
Gautaborg komst í 4-2 í vítunum.
Hins vegar misnotuðu þeir tvö síð-
ustu vítin og Barcelona stóð uppi sem
sigurvegari i lokin, 5-4, í vítakeppn-
inni. Hvort félag fékk sex vítaskot,
jafnt eftir fimm fyrstu spyrnurnar.
Leikmenn sænska liðsins tóku
vítaspyrnurnar á undan. Skoruðu úr
þremur fyrstu en Carrasco misnotaði
þriðja víti Barcelona. Grét mikið.
Síðan skoraði Stig Fredriksson fyrir
Gautaborg, 4-2. Barcelona skoraði
en markvörður liðsins varði svo frá
Roland Nilsson, slakt skot. Barcel-
ona jafnaði í 4-4 og áfram var haldið.
Norðmaðurinn Mort, nýliði hjá
Gautaborg, spymti yfir markið en
Victor skoraði fyrir Barcelona og
fögnuður á leikvanginum var hreint
ótrúlegur. Barcelona leikur til úr-
slita við Steaua í Sevilla 7. maí.
Leikmenn Gautaborgar voru
hræddir fyrir leikinn. Miðvörðurinn
sterki, Hysen, gat ekki leikið og
mynduðust oft geigvænleg göt í vörn
Gautaborgarliðsins. Það nýtti Pichi
Alonso sér vel. Skoraði þrisvar fyrir
Barcelona í vengjulegum leiktíma.
Fyrst á 9. mín. Þriðja markið á 70.
mín. Gautaborg skoraði mark í
leiknum, sem dómarinn dæmdi fyrst
gilt. Leikmenn Barcelona mótmæltu
ákaft. Dómarinn fór þá og ræddi við
línuvörð og eftir rúma mínútu var
markið dæmt af. Línuvörðurinn
hafði sett upp flagg sitt, síðan strax
tekið það niður. Þetta var mikið áfall
fyrir leikmenn Gautaborgar.
Þeir höfðu sigrað, 3-0, í Gautaborg
og því þurfti að framlengja. Ekkert
mark skorað þá og lokin gífurlega
spennandi í vítakeppninni. Bernd
Schúster lék með Barcelona þó fyrir
leikinn væri gefið í skyn að hann
mundi ekki leika. Hins vegar gat
Skotinn Steve Archibald ekki leikið
vegna meiðsla. 25 ár eru frá því Barc-
elona lék í úrslitum Evrópubikars-
ins. Tapaði í úrslitum i Bern 1961
fyrir Benfica, 3-2. hsím
Nýr þjátfari hjá Þór
Frá Þráni Stefánssyni, fréttamanni
DV á Akureyri.
Gunnlaugur Björnsson hefur verið
ráðinn þjálfari kvennaliðs Þórs i
knattspyrnunni í stað Guðmundar
Svanssonar, sem hætt hefur störfum.
Guðmundur hefur þjálfað kvennalið-
i ið undanfarin ár. Gunnlaugur hefur
áður verið þjálfari hjá KA i yngri
flokkunum. hsím
Lárus skoraði þegar
Bayer Uerdingen féll
- tapaði á heimavelli fyrir Atletico Madrid
UVERPOOL A T0PPINN A NY
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni,
fréttamanni DV á Englandi.
„Leikmönnum Liverpool heppnað-
ist það sem þeir komu hingað til að
gera. Skora snemma leiks og leika
síðan sterkan varnarleik. Leikurinn
var leiðinlegur á að horfa,“ sagði
Brian Butler, fréttamaður BBC, eftir
að Liverpool hafði skotist á topp 1.
deildarinnar ensku á ný eftir sigur á
gervigrasinu í Luton, 0-1. Eina mark
leiksins skoraði Craig Johnston á 17.
mín. eftir undirbúning Dalglish og
mistök í vörn Luton. Luton sótti mun
meira en tókst varla að skapa sér
færi. Þó átti Steve Foster skot í
þverslá marks Liverpool.
Við þennan sigur í gærkvöldi
komst Liverpool í efsta sætið. Hefur
76 stig eins og Everton en með betri
markamun. Everton hefur leikið ein-
um leik minna.
Loks fór Man. Utd að skora á ný,
sigraði Newcastle, 2-4, í Newcastle.
Bryan Robson skoraði fyrsta markið
á 3. mín úr vítaspyrnu eftir að
Stapleton hafði verið felldur. Staple-
ton var þó ekki miðherji heldur
framvörður. Colin Gibson miðherji
með Hughes en Gibson slasaðist í
leiknum og kom Daninn Sivebæk í
hans stað.
Hughes skoraði annað mark Un-
ited. Síðan minnkaði Ian Stewart
muninn í 1-2. Þannig var staðan í
hálfleik. í síðari hálfleik komst liðið
í 1-4. Hughes og Whiteside skoruðu
en undir lokin skoraði Cunningham
frábært mark fyrir Newcastle.
• Aston Villa er að komast af
mesta hættusvæðinu. Sigraði Ips-
wich, 1-0, á Villa Park. Steve Hodge
skoraði eina mark leiksins.
Frá Þráni Stefánssyni, fréttamanni
DV á Akureyri.
Ómar Guðmundsson markvörður
mun leika með KS á ný í sumar, verð-
• Sheff.Wed. vann öruggan sigur
á Arsenal á Hillsborough, 2-0. Ster-
land og Shutt skoruðu mörkin. Þá
vann Tottenham Birmingham á
White Hart Lane, 1-0. Mark Falco
skoraði.
• í skosku úrvalsdeildinni tapaði
Aberdeen enn á heimavelli. Nú fyrir
Dundee Utd, 0—1. hsíiti
ur markvörður Siglfirðinga í 2.
deildinni. Ómar var hjá Þór hér á
Akureyri sl. sumar og lék tvo leiki
með liðinu í 1. deildinni. hsím
ÍBR_________________________KRR
REYKJAVIKU R M ÚT
MEISTARAFLOKKUR
i kvöld kl. 20.30
FYLKIR - ÞRÓTTUR
Á GERVIGRASINU I LAUGARDAL
Ómar markvörður
með KS á ný