Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1986, Blaðsíða 19
DV. FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1986.
19
Menning Menning Menning
Helgi Þorgils Friðjónsson - Stefnumót, oliumálverk.
tveggja listamanna verði ævinlega
heldur torráðnar þar sem þeir gera
beinlínis í því að myndgera þversagnir
og endurtaka sig helst ekki.
Það sem hægt er að segja um' Helga
er að honum hefur tekist að varðveita
og beinlínis rækta með sér bláeyga,
jafnvel bemska afstöðu til alls sem er.
Ekkert er honum heilagt, allt getur
skeð.
I verkum hans erum við stödd í
skringilegum Edensgarði þar sem ber-
rassaðar manneskjur, jafnsaklausar
og Adam og Eva, em sífellt að lenda
í óþægilegri aðstöðu eða meiri háttar
hremmingum.
Listamaðurinn sjálfur leikur Guð
almáttugan sem stendur til hliðar og
leggur alls kyns þrautir á þessar
mannskepnur sem hann hefur skapt.
Þó erfitt sé að fjölyrða nánar um
tildrög og tilurð margra þessara verka
er hægt að segja sitt af hverju um
vinnubrögð málarans.
Helgi hefur aldrei haft áhuga á fág-
aðri málaralist. Honum hefur nægt að
gera hugdettur sínar nógu skýrar og
áþreifanlegar á striga eða blaði.
En nú er meiri málarametnað að
finna í verkum hans en áður, myndefn-
ið hlítir oft klassískum reglum um
massa í rými, litir eru kænlega sam-
stilltir.
Fílingur
Kristinn Guðbrandur er mesta ráð-
gáta þeirra þremenninga og sá sem
kemur mest á óvart með skúlptúrum
sínum.
Hann hefur í viðtölum sagst vera
að draga upp myndir af tilfinningum
eða „fíling“.
Hann teiknar sínar eigin útgáfúr af
banölum auglýsinga- og fréttaljós-
myndum, endurgerir ýmis „vinsæl“
mótíf í klossuðum teiknistil, málar
risastórar „landslagsmyndir tilfinn-
inganna" - og gerir tilfyndna skúlp-
túra.
011 eru þessi verk einkennilega
ásækin, einkum þó hin þrívíðu, jafnvel
þótt maður sé ekki alveg með á nótun-
um.
En það sem er kannski mest heill-
andi við verk hans er hvemig þau
vega salt milli heimsmennsku og
sveitarómantíkur, grafalvöru og
kerskni, fúsks og fágunar.
Slík jafnvægiskúnst er næsta sjald-
séð.
Daði heldur svipuðum kúrs og á
undanfomum misserum, lætur gamm-
inn geisa í skrautlegri pensilskrift. Út
af fyrir sig er það áræðni af honum
að leyfa eðlilegri skrautfíkni sinni að
njóta sín - listamenn gera of mikið
að því að bæla hana niður - en eftir
skoðun tæplega fimmtíu verka, sem
öll ganga út á yfirborðsskraut, líður
áhorfandanum eins og eftir kappát á
páskaeggjum. -ai
sé
Sérverslun með
SKRIFSTOFUHÚSGOGNI
A. GUÐMUNDSSON ~ 9 4
Sími 731 00
„Allt fyrir kylfinga“
Ódýr golfsett með poka
Barna og unglingasett,
kr. 5.450,-
Fullorðinssett,
kr. 5.950,-
Golfboltar,
kr. 50,- og 80,-
Hanskar/húfur.
Glæsibæ - Sími 82922.
Æfinganet,
tilvalið í garðinn,
kr. 6.800,-
Golfpokar í úrvali,
verð frá 1.000,- til 4.600,-
Gönguskór
í úrvali
GLÆSIBÆ
Simi 82922
LETTIR - ÞÆGILEGIR - VATNSHELDIR
BÍLATORG
Til sölu
Ford Bronco
torfærutröll
með öllum
útbúnaði fyrir
fjallaferðir.
BÍLATORG
NÓATÚN 2 - SÍMI621033
TILKYNNING
UM LÓÐAHREINSUN í REYKJAVÍK
V0RIÐ 1986
Samkvæmt ákvæðum heilbrigðisreglugerðar er lóðar-
eigendum skylt að halda lóðum sínum hreinum og
þrifalegum. Umráðamenn lóða eru hér með minntir á
að flytja nú þegar brott af lóðum allt sem veldur
óþrifnaði og óprýði og hafa lokið því eigi síðar en
14. maí nk. Að þessum fresti liðnum verða lóðirnar
skoðaðar og þar sem hreinsun er ábótavant verður
hún framkvæmd á kostnað og ábyrgð húseigenda,
án frekari viðvörunar.
Þeir sem óska eftir sorptunnum, hreinsun eða brott-
flutningi á rusli á sinn kostnað tilkynni það í síma
18000.
Til að auðvelda fólki að losna við rusl af lóðum hafa
verið settir gámar á eftirtalda staði: Við Meistaravelli,
Vatnsmýrarveg (gamla Laufásveginn), Grensásveg,
Kleppsveg, við Súðarvog, Stekkjarbakka, Rofabæ og
Breiðholtsbraut. Eigendur og umráðamenn óskráðra,
umhirðulausra bílgarma, sem eru til óþrifnaðar á göt-
um, bílastæðum, lóðum og opnum svæðum í borg-
inni, eru minntir á að fjarlægja þá hið fyrsta. Búast
má við að slíkir bílgarmar verði teknir til geymslu um
takmarkaðan tíma en síðan fluttir á sorphauga. Úr-
gang og rusl skal flytja á sorphauga við Gufunes á
þeim tíma sem hér segir:
mánudaga-föstudaga kl. 08-21
laugardaga kl. 08-20
sunnudaga kl. 10-18
Rusl, sem flutt er á sorphauga, skal vera í umbúðum
eða bundið.
Ekki má kveikja í rusli á sorphaugunum og hafa ber
samráð við starfsmennina um losun.
Sérstök athygli skal vakin á því að óheimilt er að
flytja úrgang á aðra staði í borgarlandinu. Verða þeir
látnir sæta ábyrgð sem gerast brotlegir í þeim efnum.
Gatnamálastjórinn í Reykjavík.
Hreinsunardeild.