Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1986, Blaðsíða 40
Hafir þú ábendingu eða vitn- eskju um firétt - hxingdu þá í síma 687858. Fyrix hvert firéttaskot, sem bixtist eða er notað í DV, gxeiðast 1.000 krónux. Fyrir besta fxéttaskotið í s? I
fio ★7Í ^8 | m
í UO hvexxi viku gxeiðast 3.000 krónux. Fullxax nafiileyndax ex gætt. Frjálst,óháð dagblað
1 ■ Við tökum við fréttaskotum allan sólaxhxinginn.
FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1986.
Okurmálið:
Átta
samstarfs-
menn
kærðir
Átta mönnum var síðastliðinn
mánudag birt ákæra í Sakadómi
Reykjavikur vegna meints okurs.
Mennirnir eru ákærðir fyrir að hafa
alls 22 sinnum veitt Hermanni Björg-
vinssyni lán og tekið 75,5 prósent
ársvexti í stað 18,5 sem voru lögleyfð-
ir. Fyrir bragðið fengu þeir til skipt-
anna samtals 663 þúsund krónur
umfiram lögleyfða vexti. Þá eru tveir
''""’fúannanna sérstaklega ákærðir fyrir
að hafa tekið hærri vexti en fyrr var
greint frá.
Ákærðu, sem eru samstarfsmenn hjá
Flugleiðum, veittu Hermanni Björg-
vinssyni lánin úr sameiginlegum sjóði
sínum og deildu hagnaðinum. Þeir
heita:
Sverrir Jónsson, Karl Friðrik Schi-
öth, Einar Helgason, Steindór Reynir
Jónsson, Viggó Einarsson, Ásgeir
Guðmundur Samúelsson, Birgir Ólafs-
son og Páll Þorsteinsson. -EIR
Kjötmálið:
Rannsókn
framkvæmd
með leynd
„Það verður ekki upplýst hvemig
við í samvinnu við aðra aðila ætlum
að rannsaka kýrkjötssölu í búðum.
Við reiknum með að hægt verði að
komast til botns í málinu og munum
beita ákveðnum aðferðum við það
sagði Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna.
„Fólk í landinu hefur sannarlega
tekið eftir umræðunni um ólöglega
sölu á kýrkjöti. Það er alltaf verið að
hringja til okkar og á hinum ýmsu
fúndum víðsvegar um landið kemur
þetta umræðuefhi upp. Það er mikið
þrýst á að málið verði upplýst," sagði
Jóhannes. -KB
Geriö uerösamanburö
og pantiö
úr
Borgin kaupir hijómflutningskerfi:
TÆKIN KOSTA
„Sú staðreynd lá fyrir að ekki hefði
verið hægt að flytja dagskrá hátíðar-
haldanna, sem stendur til að flytja
á afmælisdegi borgarinnar 18. ágúst.
nema almennilegt hljómflutnigskei-fí
væri til." sagði Ómar Einarsson,
framkvæmdastjóri íþrótta- og töm-
stundaráðs borgarinnar og starfs-
maður afinælisnefhdarinnar.
„Það eru til gömul tæki sem ískrar
og vælir í. Þau eru í raun ónothæf.
Það var því ákveðið að kaupa góð
tæki. Búið er að ganga frá kaupum
á tækjakerfi af bresku fyrirtæki sem
hannaði það sérstaklega fyrir okkur.
Kerfið kostar um 10 milljónir. Það
er hægt að nota þetta tækjakerfi í
ýmsum tilgangi, bæði innan dyra og
utan, á popphljómleikum, útifúndum.
og þess háttai4. Við vonumst til að
kerfið verið komið til landsins fyrir
jxipphátíð Listahátíðar, sem haldin
verður 16. og 17. júní,“ sagði Ómar.
Er þetta ekki óttaleg sóun á jien-
ingum borgarinnar?
„Sjálfsagt finnst mörgum þetta
peningasóun, en kaup á slíku kerfi
eru búin að vera til umfjöllunar
lengi. Við erum ekki að kaupa ein-
hvem lager af tækjum, heldur
sérstaklega hannað keifi fyrir okk-
ur, sem nýtast mun í ýmsum tilgangi
í framtfðinni. Við munum ekki sitja
á kerfinu, ætlunin er að leigja það
út til aðila sem þurfa á svona tækjum
að halda.
Það má einnig geta þess að ýmsar
erlendar hljómsveitir, sem koma
hingað á Listahátíð, koma vegna
þess að hljómflutningskerfi verður
til fyrir þær. _kB
Helgi Þór Jónsson, lengst til hægri, hóf fund með stjórn Arnarflugs klukkan níu í morgun. Aðrir á mynd-
ini eru Axel Gíslason, aðstoðarforstjóri Sambandsins, Haukur Björnsson, stjórnarformaður Arnarflugs,
og Agnar Friðriksson framkvæmdastjóri. Dv-myna kae.
Beðið eftir
að Heigi Þór
sýni spilin
Helgi Þór Jónsson, sem óvænt
keypti 44 prósent hlut Flugleiða í
Amarflugi í gær, settist á sinn annan
fúnd með stjórn Amarflugs klukkan
níu í morgun. Brennandi spurningar
verða lagðar fyrir hann, svo sem
hvort hann ætli að leggja fram fjár-
magn til lausnar vanda Amarflugs.
Helgi Þór hefur reyndar sagt að
hann telji vanda Arnarflugs ekki
eins mikinn og af er látið. Kveðst
hann hafa mikla trú á framtíð félags-
ins. Ástæðuna fyrir kaupunum hefur
hann meðal annars sagt vera þá að
tryggja hóteli því, sem hann er að
reisa í Hveragerði, erlenda við-
skiptavini.
Með Helga Þór fóm á fundinn í
morgun þeir Pétur Þór Sigurðsson
og Þorsteinn Guðnason hjá Fjárfest-
ingarfélaginu.
Tilboð aðilanna níu í nýtt 60 millj-
óna króna hlutafé rann út á hádegi
í gær. Ekki er þó talið að þeir séu
endanlega úr myndinni. Þeir bíða
eftir því að Helgi Þór leggi spil sín
á borðið.
Allir stærstu hluthafar Amarflugs,
nema Flugleiðir, höfðu í gærmorgun
lýst sig reiðubúna til að selja níu-
menningunum hlutabréf sín fyrir tíu
prósent af nafnvirði.
-KMU
Veðrið á morgun:
Kólnandi veð-
ur og enn
bið eftir
vorkomunni
Á morgun er spáð austlægri átt,
víðast fjórum til 6 vindstigum með
snjókomu eða slyddu á norðanverðu
landinu. Á sunnanverðu landinu
verður hæg, breytileg átt frameftir
degi en síðan austan eða norðaustan
kaldi og skýjað með köflum. Veður
fer heldur kólnandi þannig að útlit
er fyrir að vorið láti enn bíða eftir
sér þótt sumardagurinn fyrsti sé í
næstu viku. -A.Bj.
Soífari
AK 70 tek-
inn á frið-
uðu svæði
Varðskipið Týr stóð 149 tonna bát,
Sólfara AK 70 frá Akranesi, að ólög-
legum veiðum á Breiðafirði. Báturinn
var á þorskanetum um 0,8 sjómílur
fyrir innan línu á friðuðu hólfi á
Breiðafirði. Týr kom með bátinn til
Reykjavíkur í gær og hófu menn frá
rannsóknarlögreglu ríkisins þá strax
rannsókn. Sólfari AK 70 var með 20
tonna afla þegar báturinn var tekinn
og færður til hafnar. -SOS