Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1986, Qupperneq 6
6
DV. FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1986.
Penmgamarkaðurinn
Viðskipti
Viðskipti
Viðskipti
Dúsaífimm árá
svarta listanum
„Það er ástœða til að taka það til
athugunar hvort ekki þurfí að setja
strangari reglur um það hversu lengi
megi hafa nöfn manna á svokölluð-
um svarta lista,“ sagði Þorgeir
Örlygsson, formaður Tölvunefhdar,
en eins og reglumar eru í dag verða
þeir sem einu sinni komast á listann
að dúsa þar í 5 ár.
Nú eru það tvö fyrirtæki sem hafa
leyfi til að gefa út vanskilalista. Það
eru Reiknisstofan hf. í Hafharfirði
og Þ. B. útgáfan. Svarti listinn er
síðan seldur öllum sem vilja kaupa
en það eru aðallega fyrirtæki og
aðrir aðilar sem stunda lánsvið-
skipti. Svarti listinn nær hins vegar
ekki til þeirra sem fara yfir á ávis-
anaheftinu. Þeir lenda aðeins á
sérstakri lokunarskrá í bönkunum.
Á svarta listann fara þeir sem eru
dæmdir í skuldamálum eða hafa lent
í aðgerðum eins og fjámámi, lögtaki
eða gjaldþrotaskiptum.
Þeir sem gefa út upplýsingar um
fjárhag annarra þurfa til þess leyfi
tölvunefndar. Að sögn Þorgeirs Ör-
lygssonar er hlutverk tölvunefndar
aðstarsdavörð um alla kerfisbundna
skráningu á atriðum sem snerta fjár-
hag og einkamálefni manna sam-
kvæmt núgildandi tölvulögum. f
tölvunefnd sitja þrír aðalmenn og
þrír varamenn. Aðalmenn í stjóm
em auk fomianns, sem verður að
vera lögfræðingur sem fullnægir
dómai-askilyi-ðum, þeir Bjami P.
Jónasson, sem tilnefhdur er af
Skýrslutæknifélags íslands, og Bogi
Bjamason lögregluvarðstjóri sem
tilnefhdur er af dómsmálaráðherra.
-EH
Eftir lækkunina á verði bfla hefur sala á varahlutum snarminnkað.
Bílavarahlutir seljast ekki
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn-
stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74
ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri
með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningamir eru
verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjömu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
10% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mán-
uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á
óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13%
nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og
15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3% vöxt-
um. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð. Á
hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk
1% vaxta í úttcktarmánuðinum. Taka má út
tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess
að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06.
og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
13(%» nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða
ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðtryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8,
50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6
mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir
18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 13%, eða ávöxtun 3ja mánaða
verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxtum
sé hún betri. Samanburður er gerður mánað-
arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út
af reikningnum gilda almennir sparisjóðs-
vextir, 8%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjórðunga, sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni, eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 12,9(X» eða «ins og á verðtryggðum
6 mánaða rcikningum með 3% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á
ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf
lausir til útborgunar.
Sparisjóöir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%, með
13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist
trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun
bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður
innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél-
stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði,
óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir
eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun er
því einnig 15,5%.
18 mánaða reikningar 5 sparisjóða eru
með innstæðu bundna óverðtryggða í 18 mán-
uði en á 14,5% nafnvöxtum og 15,2% árs-
ávöxtun. Sparisjóðirnir í Keflavík, Hafnar-
firði, Kópavogi, Borgamesi og Sparisjóður
Reykjavíkur bjóða þessa reikninga.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs Islands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni
og vextir greíðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða
óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er
almennt 12 16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðisián
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 782 þúsundum króna, 2 -4 manna
fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 391 þúsund krónur til einstakl-
ings, annars mest 195 þúsund. 2 4 manna
fjölskylda fær mest 497 þúsund til fyrstu
kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns-
tími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150 1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15 42
-ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað-
ir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir
reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári
verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður
þá hærri en nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma-
bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því
10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu
dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún
getur jafnvel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 +6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft-
ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. A endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í apríl 1986 er 1425 stig
en var í mars 1428 stig og í febrúar 1396 og
janúar 1364 stig. Miðað er við grunninn 100
í júní 1979.
Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986
er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924
stig á grunni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04.
en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar
sem við hana er miðað sérstaklega í samning-
um leigusala og leigjenda.
„Við vonum að menn fari að gera
við bílana sína aftur. Varahlutir selj-
ast ekki og eins og verð á varahlutum
Fyrirtækið Pólar hf. hefur hafið
framleiðslu á nýstárlegu efni sem
nota má til viðgerða á malbikuðum
og steyptum vegum. Að sögn for-
svarsmanna Póla hf. hafa farið fram
prófanir á því hérlendis og virðast
þær lofa góðu.
Pólarmenn segja að ekki þurfi
er núna er hætta á að menn trassi að
gera við og ástand bíla versni til
muna,“ sagði Stefán Ingólfsson, inn-
flokk manna og tækja á viðgerðar-
stað heldur geti einn maður unnið
verkið með einfóldum handverk-
færum. Gatan sé greið allri umferð
samstundis eftir viðgerð. Efnið neíha
þeir holufyllir og er það sérvalinn
íslenskur steinsalli sem blandaður
er sérstakri svartri kvoðu. -EH
kaupastjóri hjá Bílaborg, í samtali við
DV. Verð á varahlutum í bíla hefur
staðið í stað á meðan bílverð hefur
lækkað um 12-15%. Þetta misræmi
hefur í íbr með sér að sögn þeirra bíla-
kaupmanna sem DV ræddi við þá
hefiir sala á varahlutum dregist veru-
lega saman. Menn vilja ekki eyða
stórum upphæðum í að lappa upp á
bíla sem kannski seljast á rúmar
hundrað þúsund krónur eftir lækkun-
ina.
Að sögn Stefáns Ingólfssonar hjá
Bílaborg var brugðið á það ráð að
lækka varahluti í bíla eldri en 1980.
„Við eigum lager af varahlutum sem
gæti hreinlega dagað uppi. Það sem
af er þessu ári hefur sala á varahlutum
dregist verulega saman. Þá á ég ekki
eingöngu við vegna tollalækkunar-
innar á bílum heldur höfðum við orðið
varir við þennan samdrátt frá áramót-
um. Við gripum því á það ráð að lækka
verð á boddí-hlutunum en boddí-við-
gerðir eru yfirleitt dýrari en aðrar.
-EH
Landkynning-
arskrifstofa
rangfeðruð
Landkynningarskrifstofan, sem ný-
lega flutti frá Hamborg til Frankfurt
am Main, er ekki á vegum Flugleiða
nema að hluta til. Skilja mátti af frétt
hér á síðunni í fyrradag að skrifstofan
væri alfarið á vegum félagsins. Hið
rétta er að Landkynningarskrifstofan
í Frankfurt er rekin af Ferðamála-
ráði, sem er meirihlutaaðili, en önnur
fyrirtæki eru Flugleiðir, Amarflug,
Samband veitinga- og gistihúsaeig-
enda, Félag íslenskra ferðaskrifstofa
og Ferðaskrifstofa ríkisins.
-EH
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%)
11.-20.04. 1986
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM
SJA sérlista
II íl íl Jl ll II ll íl
innlán óverðtryggð
SPARISJÓÐSBÆKUR Úbundin innstæða 9.0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 10.0 10.25 10.0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10.0 9.0
6 mán. uppsögn 12.5 12.9 12.5 9.5 10.5 10.0 10.0 12.0 10.0
12 mán.uppsoan 14.0 14,9 14.0 11.0 12.6 12.0
SPARNAÐUR - LANSRÉnUR Sparað 3 5 mán. 13.0 13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10.0 9.0
Sp.6mán.ogm. 13.0 13.0 9.0 11.0 10.0 10.0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanareikningar 6.0 6.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
Hlaupareikningar 4.0 3.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
innlAnverðtryggð
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0
6 mán. uppsögn 3.5 3.0 2.5 3.0 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0
innlAn gengistryggð
GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 7.5 6.5 7.0 6.5 7,5 7.0 7,0 6.5
Sterlingspund 11.5 11.5 10,5 11,0 11.5 11.5 11.5 11.5 10.5
Vestur-þýsk mörk 4,5 4.0 3.5 4.0 3.5 4.0 3.5 3.5 3.5
Danskar krónur 8.0 9.5 7.0 8.0 7.0 7,5 7.0 7.0 7.0
útlAn óverðtryggð
ALMENNIR VlXLAR (forvextir) 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15,25 15,25
VIÐSKIPTAVlXLAR 3) (forvextir) kge 19,5 kge 19,5 kge kge kge kge
ALMENN SKULDABRÉF 2) 15.5 15.5 15.5 15.5 15,5 15.5 15.5 15.5 15.5
VIÐSKIPTASKULDABRÉF 3) kge 20,0 kge 20.0 kge kge kge kge
HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRATTUR 9.0 9.0 9.0 9.0 7.0 9.0 9.0 9.0 9.0
útlAn verðtryggð
skuldabréf Að 21/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lengri en 21/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
útlAn til framleiðsuj
sjAneoanmálsi)
l)Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn-
ings, í SDR 9,25%, í Bandaríkjadollurum 9, 0%, í sterlingspundum 13,25%, í
vestur-þýskum mörkum 5,75%. 2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilal-
ána er 2%, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3) Við kaup á viðskiptavíxlum
og viðskiptaskuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge,
hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóð-
unum.
I
oIXZI
Hafin er framleiðsla hérlendis á nýju efni til viðgerða á vegum.
Holóttir vegir
úr sógunni?