Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1986, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1986, Qupperneq 9
DV. FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1986. 9 Utlönd Svetlana farin til USA Svetlana, dóttir Jósefs Stalins, fór fró Moskvu í gær áleiðis til Bandaríkjanna með viðkomu í Sviss. Flaug hún með svissnesku flugfélagi, en lokaáfanginn er Chicago. Búist er við þvi að hún hafi skamma viðdvöl í Bandaríkjunum áður en hún sest að hjá Olgu dótt- ur sinni í Bretlandi. Olga kom til Bretlands í fyrradag til að hefja skólagöngu að nýju i sínum gamla skóla, Saffron Walden í Austur- London. - ffinn bandaríski faðir hennar, William Peters, var fjórði eiginmaður Svetlönu. Þær mæðgur höfðu búið í Tblisi í Georgíu síðan þær sneru aftur til Sovétríkjanna í nóvember 1984, en þá hafði Svetlana búið á Vest- urlöndum í sautján ár. Landflótti hennar frá Sovétríkjunum 1967 vakti heimsathygli á sínum tíma. - Sömuleiðis hafði það vakið mikla athygli þegar hún sneri aftur til Sovétríkjanna og endurheimti sín fyrri borgararéttindi. Gromyko á sjúkrahús Forseti Sovétríkjanna, Andrei Gromyko, liggur á sjúkrahúsi vegna inflúensu að sögn sovéskra embættismanna. Gromyko, sem er 76 ára orðinn, ætlaði að hitta norsku þingnefndina að máli en hún átti í staðinn fund með vara- forsetanum, Vladimir Orloff, i staðinn. Gromyko er einn af fáum úr gamla valdaliðinu í Kreml sem haldið hefur velli eftir valdatöku Gorbatsjovs. Hann sást í opinberri heimsókn í Sverdlovsk í síðustu viku, en gat ekki verið á flugvell- inum í Moskvu í gær til þess að kveðja Gorbatsjov sem þá lagði upp í heimsókn til Austur-Berlín. Eldgos í St. Helens St. Helens eldfjallið i norðvest- urhluta Bandaríkjanna sendi í morgun út í loftið frá sér gufu, gas og ösku, svo að strókurinn stóð 7.600 metra upp í loftið. Eldfjallið, sem varð sextíu manns að bana í gosi í maí 1980, hefur síðan verið til friðs. Einhver titringur mældist á jarðskjálfta- mælum í nótt en annars er ekkert sem bendir til þess að meiriháttar gos sé í aðsigi. \AARNER HOME VIDEO Látið þessar myndir ekki fara fram hjá ykkur, spyrjið eftir þeim á myndbandaleigum næst ykkur. ALLAR MFI) ÍSLENSKUM TEXI'A Leikið rétta leikinn—takid mynd fráTEFLI í TEFLI1 Tefli hf. Einkaréttur á íslandi fyrir Warner Home Video Sídumúla 23, 108 Reykjavík Q 91-68 62 50 / 68 80 80 enda frábærar myndir eru væntanlegar á myndbandaleigur í dag. NIGHTSHIFTOÐALFEÐRANNATHETOUGHEST MANINTHEWORLDTHUNDERALLEYTHEGREATGOLDSWINDLE Nightshift Sprenghlægileg grínmynd meö vinsælustu gaman- leikurunum vestanhafs. í aöalhlutverkum svo sem: Shelley Long (leikur Díönu í Staupasteini), Michael Keaton (leikur aöalhlutverkiö í Johnny Dangerously) og Henry Winkler (þekktastur fyrir aö leika the Fonz í Happy Days). Bráöskemmtileg mynd, sem allir veröa • aö sjá og ekki nú neitt múöur. Óðal feðranna Ein besta og jafnframt umdeildasta íslenska myndin til þessa. í myndinni er sagt frá hokri tií sveita þar sem ofríki kaupfélagsins fer ekki milli mála. Hér sjáum við islenskt þjóðlif í hnotskurn meö tilheyrandi mannlífs- lýsingum. Þetta er í einu oröi sagt frábær mynd. The Thoughest Man in the World Bruise Brubarker (Mr. T) er fyrrverandi landgöngu- liði, sem hefur eytt frístundum sínum í að hjálpa vandræðaunglingum. Þegar á aö loka félagsheimili þeirra, vegna peningaskorts, eru góö ráð dýr. Til aö komast yfir peninga tekur hann þátt í keppni um nafn- bótina „sterkasti maöur heims". (Margir muna eflaust eftir Mr. T í Rocky III.) Thunder Alley Stórkostleg mynd sem segir frá tveimur vinum, sem lifa og hrærast í heimi tónlistarinnar. Eftir því sem velgengnin vex magnast freistingamar sem veröa á vegi þeirra. Þetta er 1. flokks mynd, sem fær okkar bestu meðmæli, enda mynd sem enginn verður svik- inn af aö sjá. The Great Gold Swindle í þessari stórgóðu, áströlsku spennumynd fer saman hnyttinn húmor og spennandi söguþráður sem fær áhorfendur til að gleyma shmd og staö. Þessi mynd er kennslubókardæmi um þaö hvemig á að fram- kvæma hinn fullkomna glæp - næstiun því. Mynd sem enginn má verða af. r L n AMCJeep /eg/ll / VILHJÁLMSSON HE Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202 Cherokee Wagoneer 1 Cneronee zja dyra frá kr. 950 þús. Cherokee 4ra dyra frá kr. 1.050 þús. Wagoneer frá kr. 1.200 þús. Getum útvegað nokkra bíla með stuttum fyrirvara. AMC brautryðjandi í 4x4.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.