Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1986, Page 18
BÍLASALA
TIL LEIGU
Ein snyrtilegasta bílasala landsins til leigu.
Um 700 bílar á söluskrá. Allt í fullum, blóm-
legum, rekstri.
Afgreiðsla á bílaleigubílum gæti einnig
verið hluti af starfseminni, gegn prósentum
- ef vill.
Áhugasamir sendi tilboð til auglýsingadeildar DV fyrir
kl. 18. föstudaginn 18. apríl nk.
merkt „Góð viðskipti“.
RAUNVÍSINDASTOFNUN HÁSKÓLANS
VILL RÁÐA
SKRIFSTOFUMANN
í fullt starf næstu 8 mánuði. Um framtíðarstarf getur
verið að ræða. Aðalstarfssviðið er símvarsla, auk léttra
almennra skrifstofustarfa. Nokkur kunnátta í ensku
talmáli er nauðsynleg vegna símtala við útlönd.
Nánari upplýsingar um starfið eru veittar í síma 21340
og að Dunhaga 3 eftir hádegi næstu daga.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist framkvæmdastjóra fyrir 23. þ.m.
Raunvísindastofnun Háskólans
iMa
Fangavarsla - sumarvinna
Ráðgert er að ráða fólk til starfa við fangavörslu í fang-
elsunum að Litla-Hrauni og í Reykjavík í um 3-4
mánuði frá 23. maí nk. vegna sumarleyfa.
Umsóknir um þessi störf skulu berast dómsmálaráðu-
neytinu, Arnarhvoli, fyrir 1. maí nk. og skulu
umsækjendur gera grein fyrir menntun og fyrri störf-
um.
14. apríl 1986. .
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið.
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar óskast við Geð-
deild Landspítalans á eftirtaldar deildir:
Deild 33 A, Landspítala
Deild 28, Hátúni 10 A
Einnig óskast hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar nú
þegar og til sumarafleysinga á ýmsar deildir
Skrifstofumaður óskast á skiptiborð Geðdeildar
Landspítalans að Kleppi.
Starfsfólk óskast til ræstinga við Geðdeild Landspít-
ala, bæði á Landspítala og að Kleppi.
Upplýsingar um ofangreindar stöður eru veittar á skrif-
stofu hjúkrunarforstjóra Geðdeildar Landspítalans í
síma 38160.
Starfsmaður óskast til ræstinga í dagheimili ríkisspít-
ala, Sólbakka við Vatnsmýrarveg.
Vinnutími eftir-kl. 17.
Upplýsingar veitir forstöðumaður dagheimilisins í
síma 22725.
Starfsmaður óskast við eldhús Vífilsstaðaspítala.
Upplýsingar veitir yfirmatráðsmaður í síma 42800.
Reykjavík, 17. apríl 1986.
DV. FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1986.
Mennin
Menning
Mennin
Heimsborgarar
og sveitamenn
Þeir félagar, Daði Guðbjömsson,
Helgi Þorgils Friðjónsson og Kristinn
Guðbrandur Harðarson, em meðal
mikilvirkari myndlistarmanna af sinni
kynslóð, einkum og sérílagi þeir Daði
og Helgi. Þeir halda einkasýningar á
hverju ári og þess á milli taka þeir
þátt í samsýningum, bæði heima og
heiman.
Vandinn er sá að ísland er eiginlega
of lítið fyrir slíka berserki, áhorfendur
sljóvgast fljótt, fá leiða á verkum
þeirra og markaðurinn mettast. En
þeir halda áfram að mála og sýna,
geta ekki annað.
Nú hafa þeir Daði, Helgi og Kristinn
yfirtekið vestursal Kjarvalsstaða og
þakið hann nýlegum málverkum,
teikningum, vatnslitamyndum og
skúlptúrum.
Þar er nú umhorfs eins og í ævin-
týri eftir sérstaklega bráðþroska og
hugmyndaríkt bam. Alls staðar upp-
götva listamennimir hið óvenjulega í
hinu venjulega, engin hugdetta er of
fáránleg eða kjánaleg til að ekki megi
moða eitthvað úr henni eða nota hana
í bland með annarri hugdettu. í verk-
um Daða dúkkar ómenguð skreyti-
jxirfin síðan upp, eins og til að draga
úr spennu og létta lund.
Það hefur ekki lengur neitt upp á
sig að draga „nýja málverkið“ inn í
umræðu um þessi verk og önnur álíka.
Sú málaralist er (var?) fyrst og fremst
hylling til tilfinninganna, átök á
striga. Hér sjáum við afleiðingar hins
nýja umburðarlyndis, plúralismans, en
þar em öll viðhorf gjaldgeng: úlfurinn
sefur með lambinu.
Daði Guðbjörnsson - Faðir og sonur, oliumálverk.
Veruleikinn uppstokkaður
Ekki nóg með það. Listamaðurinn
er ekki einungis að miðla viðhorfum
heldur einnig að búa sér til myndheim
sem lýtur einvörðungu heimatilbúnum
lögmálum hans sjálfs.
I verkum hans er vemleikinn upp-
stokkaður, verður eins og samansafh
leikmuna sem raðast saman eftir því
sem tilfinningar, hugarhvarfl og sálar-
flækjur listamannsins segja fyrir um.
Vitund hans sjálfs er aðaldramað.
Það gefur augaleið að þegar hver
listamaður er í list sinni orðinn eyland
em talsverðar kvaðir lagðar á áhorf-
andann, neytandann.
Hann þekkir ekki forsendumar og
getur ekki fundið verkunum stað í
viðtekinni hugmyndafræði. Það sem
hann sér og það sem hann veit kemur
ekki heim og saman.
Er þá myndlistin ekki orðin eins og
samsafh af sólóistum? Myndast þá
ekki óbærileg óhljóð, kakófónía?
Ekki endilega. Þetta ástand mála
neyðir áhorfandann til þess að gefa
sérhverjum listamanni meiri gaum en
fyrr, í stað þess að reiða sig leikreglur
hópsins.
Og þegar verk þeirra Helga og Krist-
ins em gaumgæfð koma í ljós endur-
tekningar sem mynda mynstur. IVIeð
því að finna orð yfir þau mynstur er
áhorfandinn á góðri leið með að
' „skilja“ betur það sem gerist í mynd-
unum.
Kristinn G. Harðarson - Skúlptúrar, frauðplast.
Myndgera þversagnir
Þó held ég að myndir þessara
Nýtft kver
um húsvemdun
Torfusamtökin hafa nýverið gefið
út vandað kver sem ber nafhið Hús-
vemdun. í kverinu, sem er 56 síður,
eru prentuð erindi þau sem haldin
vom á ráðstefnu samtakanna um
húsfriðun og húsvemd í nóvember
síðastliðnum, auk þriggja greina
sem vom sérstaklega skrifaðar fyrir
kverið.
Hjörleifur Stefánsson arkitekt,
sem er einnig formaður Torfusam-
takanna, skrifar hugleiðingar um
húsvemdun, Hörður Agústsson list-
málari skrifar um íslenska húsfrið-
unarstefnu, sérkenni hennar og
sérstöðu, Þorsteinn Gunnarsson
arkitekt ritar um viðhorf arkitekta
til endumýjunar gamalla húsa,
Guðrún Jónsdóttir arkitekt skýrir
frá því hvemig stuðla má að varð-
veislu gamallar byggðar, Þorvaldur
Útskurður á Fjalakettinum sáluga
þar sem klassísk, norræn og sérís-
lensk stílbrigði mætast.
S. Þorvaldsson, forstöðumaður
Borgarskipulags Reykjavíkur,
skrifar um Reykjavíkurborg og frið-
un, Birgir H. Sigurðsson skipulags-
fræðingur skrifar um húsafriðun og
skipulag borga og Leifur Blumen-
stein byggingaverkfræðingur segir
frá endurbyggðum húsum í eigu
Reykjavíkur.
Greinunum fylgir fjöldi ljósmynda
og uppdrátta og hafa margar þeirra
aldrei komið fyrir almenningssjónir
fyrr.
Hjörleifur Stefánsson er ábyrgur
fyrir útliti kversins en Guðmundur
Ingólfsson ljósmyndari sá um ljós-
myndavinnu.
Ljóst er að þetta kver á erindi til
allra þeirra sem láta sig varða frið-
un og vemdun húsa á íslandi.
-ai