Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1986, Síða 5
DV. MÁNUDAGUR 21. APRÍL 1986.
Stjórnmál
Stjórnmál
Stjórnmál
Stjórnmál
Þjóðarbékhlaða:
Þjóðarátak
eða
eignamannaátak?
„Sænski prest-
urinn fær að
sækja um brauð
Þingmenn Kvennalista og Banda-
lags jafhaðarmanna í efii deild
Alþingis vilja að fyrirsögn frumvarps
menntamálaráðherra um þjóðarátak
til byggingar Þjóðarbókhlöðu verði
breytt. 1 stað þjóðarátaks komi
eignamannaátak. Frumvarpið gerir
nefailega ráð fyrir því að lagður
verði á eignaskattsviðauki til að
hægt verði að ljúkja byggingunni á
þremur árum.
Menntamálaráðherra mælti fyrir
frumvarpinu á laugardaginn. Karvel
Pálmason, Alþýðuflokki, var eini
þingmaðurinn sem mælti gegn frum-
varpinu. Hann sagði að það væri
fallt af öðrum verkefaum sem brýnni
nauðsyn væri að vinna að. Nefadi
hann í því sambandi hafaarmál. Á
þessu ári færu ekki nema 20 milljón-
ir til hafnarframkvæmda.
Páll Pétursson, Framsóknarflokki,
sagðist fagna þessu frumvarpi. Hins
vegar upplýsti hann að framsóknar-
menn væru því mótfallnir að veitt
yrðu viðurkenningarskjöl til þeirra
sem skattur yrði tekinn af vegna
þessa átaks. Þetta væri fráleit hug-
mynd og væri aðeins viðurkenning
til þeirra sem hefðu átt ákveðnar
eignir þetta tímabil.
Stefán Valgeirsson, Framsóknar-
flokki, fagnaði einnig þessu frum-
varpi og sér í lagi þeirri stefaubreyt-
ingu hjá sjálfstæðismönnum að
leggja á eignaskatt. Við gerð síðustu
fjárlaga hefðu þeir ekki mátt heyra
minnst á eignaskatt. Stefán lagði til
að þessi skattur yrði tvöfaldaður á
næsta ári og hluti hans notaður til
að bjarga hafaarmálum hér á landi.
-APH
Lagt hefur verið fram sérstakt frum-
varp á Alþingi til þess að Cecil
Haraldsson, starfandi prestur í Sví-
þjóð, geti sótt um brauð að Laugalandi
í Eyjafirði. Kirkjumálaráðuneytið
hafaaði umsókn hans á þeirri forsendu
að hann lærði til prests í Svíþjóð. Slík-
ir prestar geta ekki sótt um prestsem-
bætti hér á landi samkvæmt
núgildandi lögum.
Samkomulag varð meðal þingflokk-
anna um að greiða götu prestsins.
Þess vegna var lagt fram frumvarp sem
heimilar að veita kandídötum úr há-
skólum hinna Norðurlandanna prest-
sembætti hér á landi. -APH
Framsókn
í Kópavogi
Framboðslisti Framsóknarflokksins
fyrir bæjarstjómarkosningamar í
Kópavogi hefur verið ákveðinn.
Fimm efetu sæti skipa: Skúli Sigur-
grímsson bæjarfulltrúi, Guðrún
Einarsdóttir skrifetofúmaður, Elín Jó-
hannsdóttir kennari, Einar Bollason
kennari og Guðleifur Guðmundsson
kennari.
-APH
Framboðslisti
krata á
Akranesi
Framboðslisti Alþýðuflokksfélags
Akraness fyrir komandi bæjarstjóm-
arkosningar hefur verið birtur.
Níu efetu sæti listans skipa: 1. Gísli
S. Einarsson verkstjóri, 2. Ingvar Ing-
varsson yfirkennari, 3. Bragi Níelsson
læknir, 4. Sigríður Óladóttir húsmóð-
ir, 5. Kjartan Guðmundsson aðaltrún-
aðarmaður, 6. Haukur Ármannsson
kaupmaður, 7. Amfríður Valdimars-
dóttir verkamaður, 8. Siguijón
Hannesson trésmíðameistari, 9. Elí
Halldórsson bifreiðarstjóri.
Tólf efetu sæti listans em skipuð
samkvæmt niðurstöðum prófkjörs hjá
flokknum að undanskildu þriðja sæt-
inu, en í prófkjöri hafaaði núverandi
bæjarfulltrúi flokksins, Guðmundur
Vésteinsson, í þvi sæti. Nokkur eftir-
máli varð eftir þá niðurstöðu eins og
reyndar hefur komið fram í fréttum,
en Guðmundur kærði til bæjarfógeta
á Akranesi meint afskipti forsvars-
manna Sementsverksmiðjunnar af
prófkjörinu.
Alþýðuflokkurinn hefur átt einn
bæjarfulltrúa á Akranesi síðastliðið
kjörtímabil, þ.e. Guðmund Vésteins-
Akranes:
Framboðslisti
Alþýðubanda-
lagsins
Alþýðubandalagið á Akranesi hefur
birt framboðslista sinn fyrir bæjar-
stjómarkosningamar í vor.
Níu efstu sæti listans skipa: 1. Guð-
bjartur Hannesson skólastjóri, 2.
Jóhann Ársælsson skipasmiður, 3.
Ragnheiður Þorgrímsdóttir kennari,
4. Gunnlaugur Haraldsson safavörður,
5. Jóna Kr. Ólafedóttir húsmóðir, 6.
Þorbjörg Skúladóttir nemi, 7. Ingi-
björg Njálsdóttir fóstra, 8. Garðar
Norðdahl jámsmiður, 9. Pétur Óðins-
son húsasmiður.
Alþýðubandalagið á Akranesi hefur
átt einn bæjarfulltrúa síðasta kjör-
tímabil og var það Engilbert Guð-
mundsson kennari. Hann hefur hins
vegar starfað erlendis síðastliðið ár
og hefur Ragnheiður Þorgrímsdóttir
setið í bæjarstjóm í hans stað, en í
forvali flokksins fyrir skömmu gaf hún
ekki kost á sér ofar en í 3. sæti listans.
Þdðer komið!
Myndbandstækið frá J sem allir hafa beðið eftir.
MEÐ ALLA MÖGULEIKA DÝRU TÆKJANNA, EN Á HÆGILEGA LÁGU VERÐI
AÐEINS 35.980,- KR. STGR.
Nú geta allir tekið upp Eurovision-keppnina.
* 83 rásir.
* 12 forvalsstillingar.
* 14 daga upptökuminni með 2 mismunandi
tímum.
* Föst dagleg upptaka.
* Le'tt rofar / allt að 4 tíma samfelld upptaka.
* Þráðlaus fjarstýring með 13
stjómaðgerðum.
SKIPHOLTI 19
SÍMI 29800
Komdu og líttu á nýju myndbands-
tækin frá GoldStar og kynntu þér
möguleika þeirra, verð og gæði, þú
verður ekki fyrir vonbrigðum.
VIÐ1ÖKUM VEL
Á MÓTI ÞÉR
* Truflanalaus samsetning á mynd í upptöku.
* 5 föld hraðleitun fram og til baka /
kyrrmynd.
* Sjálfvirk spólun til baka.
* Rafeindateljari.
* Teljaraminni.
* Skýrt ljósaborð sem sýnir allar aðgerðir
tækisins.
Pantnir dskast sóttar sem fyrst.
1 leiðinni geturðu litið á
GER VIHN ATT AS J ÓN V ARPIÐ
því við eru í beinu sambandi við
EUTELSAT 1 F-1 í gegnum
frábæra FUB A-loftnetið okkar.