Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1986, Blaðsíða 8
8
DV. LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1986.
Ferðamál Ferðamál Ferðamál Ferðamál
Skaftafell eða
- gönguferðir,
Um næstu helgi rennur upp fyrsta
ferðahelgi sumarsins og munum við
af því tilefni fjalla um ferðalög innan-
lands.
í Ferðafélagi íslands eru 8.200 félag-
ar sem dreifðir eru um allt land og
tilheyra 10 minni félögum sem aðilar
eru að Ferðafélagi Islands. Um þessa
hvítasunnuhelgi verður farið í 6 ferðir
á vegum félagsins hér á höfðuborgar-
svæðinu og hefjast þær allar á fóstu-
dagsmorgni og komið verður heim á
mánudegi, 19. maí.
1) Ferð á Öræfajökul og gengið á
Hvannadalshnjúk. I þessari ferð verð-
ur gist í tjöldum og þátttakendur verða
því að hafa með sér góðan viðleguút-
búnað.
2) Ferð í Skaftafell og farið í göngu-
ferðir um þjóðgarðinn. I þessari ferð
verður einnig gist í tjöldum.
3) Þórsmerkurferð. I þessari ferð verð-
ur gist í Skagfjörðsskála, sæluhúsi
Ferðafélagsins.
4) Ferð á Snæfellsnes og gengið á
Snæfellsjökul. Gist verður á Amar-
stapa og farin hringferð með viðkomu
á Hellissandi, Malarrifi og fleiri stöð-
um.
5) Ferð í Landmannalaugar. Þessi ferð
er þó með þeim fyrirvara að hægt verði
að komast stærstan hluta Ieiðarinnar
á bíl. Ef það reynist fært verður gist
í sæluhúsi félagsins.
6) Ferð í Skagafjörð og farið verður út
í Drangey og Málmey. Gist verður í
svefnpokaplássi á Sauðárkróki og
famar skoðunarferðir um Skagafjörð.
Ferðimar munu kosta 3000 krónur
fyrir félaga, en 3.300 fyrir utanfélags-
fólk. Skagafjarðarferðin verður þó um
1.000 krónum dýrari.
Á vegum Ferðafélags Akureyrar
verður farið í dagsferð laugardaginn
17. maí og verður gengið á Vatna-
hjalla í Eyjafirði. Kostnaður verður á
bilinu 100-200 krónur. Ferðafélag Ak-
ureyrar kemur fram með nýjung í
starfsemi sinni í sumar því ráðgerð er
8 daga ferð til Færeyja dagana 19.
-26. júní. Keyrt verður frá Ákureyri
til Seyðisfjarðar og farið með bílinn í
Norrænu til Færeyja þar sem famar
verða skoðunarferðir um eyjamar.
Verð verður á bilinu 15.000 til 17.000
kr. og em í því innifaldar ferðir, gist-
ing og morgunverður.
Starfsemi ferðafélaga hefur eflst
mjög hin síðustu ár og sífellt em fleiri
sem taka þátt í skipulögðum ferðum
félaganna, hvort sem er að sumri eða
vetri. Kostnaði er yfirleitt stillt í hóf
og menn þurfa ekki að vera þraut-
reyndir göngu- eða fjallamenn til að
vera með því sá síðasti er ávallt látinn
ráða gönguhraðanum. -S.Konn.
útMst
og siglingar
Sumarhús um altt land
Stéttarfélög og launþegafélög hafa á
undanfömum árum komið sér upp
sumaibústaðaþyrpingum víða um
land. Þangað geta félagsmenn leitað
í sumarleyfum og einnig um helgar
annan tíma ársins.
En þeir sem ekki em í slíkum félags-
skap vilja kannski einnig komast í
sumarhús og geta þeir þá leitað til
Ferðaþjónustu bænda sem hefur á sín-
um snærum hús um allt land.
„Það fylgir allur búnaður, einnig
rúmföt. Fólk gengur bara inn og fær
allt nema matinn. Bóndinn vill taka
vel á móti fólkinu og býður upp á
ýmislegt eins og veiði, hestaleigu og
bátaleigu svo eitthvað sé nefht,“ sagði
Oddný Björgvinsdóttir hjá Ferðaþjón-
ustu bænda í samtali við DV.
Um er að ræða sérhús, bæði sumar-
bústaði og einnig eldri hús sem gerð
hafa verið upp. Nefna má Húsafell,
Kvemá í Grundarfirði og Ytri Tungu,
Staðarsveit, Skálavík skammt frá Bol-
ungarvík, Hnausa í Þingi, Vatnið,
Þórðarströnd, Hraun í Fljótum, Syðri
Haga, Árskógsströnd, Bláhvamm milli
Húsavíkur og Mývatns, Vopnafjörð,
Borgarfjörð eystri, Skipalæk á Egils-
stöðum, Bemfjörð, Brunnhól skammt
frá Höfn í Homafirði, Sólheimum, en
bóndinn þar býður upp á vélsleðaferð
upp á Mýrdalsjökul. Þá er gistiaða-
staða í sumarhúsi í Þrastarskógi og
við mynni Þjórsár í Fljótshólum svo
nefhdir séu flestir staðimir á landinu.
Gisting kostar 9.500 kr. fyrir 3-5
manns í viku og 11.500 kr. fyrir 6-10
manns. Enn er hægt að fá gistingu um
hvítasunnuna og kostar gisting þá um
1300 kr. á hús yfir sólahringinn.
Þá er víða boðið upp á svefnpoka-
pláss þar sem einnig er eldunar- og
baðaðstaða og kostar það 350 kr. Loks
er eftir að geta um gistingu á bónda-
bæjum sem kostar 1500 kr. á sólahring
fyrir manninn og það með fúllu fæði.
Þessi starfsemi hefur öll mælst mjög
vel fyrir og í fyrra var um helmingur
gerstanna íslendingar.
Nánari upplýsingar veitir Ferða-
þjónusta bænda í síma 19200. -A.Bj.
Ferðir
tilSovét
aftur-
kallaðar
afótta
við
geisla-
virkni
Ferðamenn hafa unnvörpum afl-
urkallaðar pantaðar ferðir til
Sovétríkjanna af hræðslu við
geislavirkni eflir kjamorkuslysið í
Chemobyl. Flestar em afpantan-
imar hjá finnsku ferðaskrifstof-
unni Finsov. f síðustu viku vom
það nær eingöngu afþantanir sem
komu upp á borð ferðaskrifstof-
unnar. Þá hafa um 50% af
bókuðum ferðum til vinsælla
ferðamannastaða á Krímskaga
hafa verið afturkallaðar eftir
kjamorkuslysið, segir í frétt frá
Eleutersfréttastofunni.
Árið 1985 heimsóttu 330 þúsund
Finnar Sovétríkin, en vinsælustu
staðimir vom Moskva, Leningrad
og Eystrasaltslöndin.
Tjæreborg í Danmörku aflýsti
öllum ferðum til Moskvu og Len-
ingrad í sumar vega hættu á
geislavirkni. Aðrar danskar ferða-
skrifstofur hafa einnig afturkallað
ferðir til Sovétríkjanna og Austur
Evrópu
Þeir sem ekki eiga aðgang að sumarhúsum á vegum stéttarfélaga eiga nú aðgang að sumarhúsum sem leigð em út á vegum Ferðaþjónustu bænda.