Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1986, Qupperneq 15
DV. LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1986.
15
Sælkerinn Sælkerinn Sælkerinn Sælkerinn
Brin d’amour sauðaostur frá Korsíku.
íslenskur
kindaostur?
Islensku ostarnir eru orðnir mjög
góðir, þó gæðin séu ekki alveg
nægjanlega jöfn, kannski af því að
tegundirnar eru orðnar of margar.
Því miður virðist ekki grundvöllur
fyrir útflutningi á íslensku ostun-
um. Samkeppnin á hinum erlendu
mörkuðum er geysihörð og víðast
hvar í Evrópu eru landbúnaðarvör-
ur niðurgreiddar og því við
ramman reip að draga.
En á íslandi er nóg af sauðfé.
Hvemig væri því að fara að fram-
leiða kindaost?
íslenskir kindaostar gætu orðið
áhugaverð útflutningsafurð sem
gæti auðveldað sölu á íslenskum
landbúnaðarafurðum erlendis.
Frakkar framleiða nokkrar teg-
undir af frábærum kindaostum, t.d.
„Brebis frais du Roueque". Þessi
ostur er frekar feitur, um 45%.
Þessi ágætis ostur kemur frá Au-
vergne. Frá Korsíku kemur kinda-
osturinn „Brin d’amour". Þessi
ostur er bragðbættur með ýmsum
villijurtum sem kindurnar éta.
Þegar búið er að forma ostana er
þeim velt upp úr kryddjurtunum
og þeir látnir standa í 3 mánuði.
Hvernig væri nú að við fengjum
franska ostameistara til að kenna
okkar annars ágætu ostameistu-
rum að búa til kindaost?
Sauðburður stendur nú yfir og
því upplagt fyrir mjólkurbúin að
safna saman nokkrum lítrum af
kindamjólk og heíja tilraunaosta-
gerð á kindaostum.
Afengisframleiösla
á íslandi
Meðal þeirra mála sem rædd voru
á síðustu dögum þingsins var
„bjórmálið” og hvort leyfa ætti
einkaaðilum framleiðslu á áfengi.
Þetta mál hefur nokkuð verið rætt
undanfarin ár en ekki komist
skriður á málið fyrr en farið var
að selja breska (íslenska) vodkann
Icy í verslunum ÁTVR.
Sem kunnugt er ríkir óhemju
samkeppni á áfengismarkaðnum.
Hörðust er sennilega þó baráttan
á vodka-markaðnum. Við íslend-
ingar ættum að hafa einhverja
möguleika á þessum markaði, þ.e.
a.s. við getum kynnt vöru sem sker
sig úr á einhvem hátt. Svíar hafa
t.d. haft töluverðan framgang í
Bandaríkjunum með Absolut-
vodkann, í því sambandi hefur
hönnunin á sjálfri flöskunni haft
mikla þýðingu. Líklegast verður
eitthvað dýrara að framleiða áfengi
á íslandi en í öðrum löndum Ev-
rópu. Flytja verður inn allt gler
(flöskur) og innlendi markaðurinn
er mjög lítill.
Liklegast mun áhuginn verða
mestur á að framleiða vodka, enda
er hann í dag vænlegastur til sölu.
Þó kæmi til greina að framleiða
„bittera” og „brenmvín".
Sá galli er þó á gjöf Njarðar að
það eru helst Evrópubúar sem
drekka þessa drykki. Bandaríkja-
menn eru ekki eins hrifnir af
íslenska brennivíninu (svarta-
dauða) og Skandinavar og Þjóð-
verjar en í þeim löndum ætti
íslenska brennivínið að eiga tölu-
verða möguleika. En þó svo að
sjálfsagt sé að leyfa einkaaðilum
að framleiða áfengi til útflutnings
þá verður aldrei um neina stóriðju
að ræða í þessu sambandi.
Hins vegar gæti framleiðsla á
áfengum bjór orðið öflug atvinnu-
grein hér á landi.
Þýsk eðalvín
Það er ekki oft sem okkur hér á
íslandi gefst kostur á að taka þátt
í vínsmökkun þar sem ólíkar teg-
undir gæðavína eru kynntar.
Fyrir nokkrum dögum var stadd-
ur hér á landi Charles Peter Hagen
frá hinu þekkta þýska vínhúsi,
Sichel. Kynntar voru 8 tegundir af
hvítvínum. Eftirminnilegust af
þessum vínum voru sérstaklega
tvö: Kaseler Kehrnagel og Riesling
Spátlese.
Spátlese-vínin eru framleidd úr
síð-uppskeru, það er að segja berin
eru mjög þroskuð. Þetta vín var
sérlega ljúft á bragðið og frí-
skandi, liturinn var fallegur og af
víninu var blómaangan. Þetta vín
er án efa með bestu Spátlese-vínun-
um sem Sælkerasíðan hefur
bragðað.
Hitt vínið, sem vakti sérstaka
eftirtekt, var Bechtheimer Geyers-
berg, Riesling Beerenauslese. Vín
af þessari gerð eru framleidd úr
ofþroskuðum vinberjum sem eru
sérlega valin. Hér er því um ein-
stakt gæðavín að ræða. Vín af
þessari gerð passa sérlega vel með
krydduðum mat, t.d. góðu paté.
Þetta vín, Bechteimer Geyersberg,
er einstakt vín, liturinn var dökk-
gulur, bragðið kröftugt og kryddað
- hér var um ógleymanlegt vín að
ræða.
Þýskaland er eitt af nyrstu vin-
ræktarlöndum heims. Vin hafa
verið ræktuð í landinu í það
minnsta frá dögum Rómveija og í
dag eru Þjóðverjar 7. mestu vín-
framleiðendur í heiminum.
Þýsk vín eru óhemjuvinsæl hér á
landi. íslendingum virðast falla
hálfsæt vín sérlega vel í geð. Þýsku
vínin eru „létt“ og af þeim er ljúft
ávaxtabragð. Það er hins vegar
sorglegt hvað lítið úrval er af þý-
skum vínum á boðstólum hjá
verslunum ÁTVR. Ef verðlistinn
er skoðaður mætti halda að úrval
þýskra vína væri gott en svo er
ekki því þau eru öll mjög svipuð
og sum meira að segja alveg eins.
Ef það er haft í huga hve gott
úrval er af þýskum eðalvínum þá
er sorglegt hve framboðið í versl-
unum ÁTVR er fátæklegt.
Undanfarna mánuði hafa hin
svokölluðu „vínhneyksli" verið
mjög til umræðu í fjölmiðlum og
vínhneykslið á Ítalíu er eflaust.
mörgum ofarlega í huga.
Sælkerasíðan ræddi þessi mál
örskamma stund við Charles Peter
Hagen. Spurt var um hin svoköll-
uðu E.G. vín eða Efnahagsbanda-
lags-vín. Þessi vín eru mjög ódýr
og heyrst hefur að vínframleiðend-
ur hafi freistast til að blanda
þessum vínum saman við sín eigin.
Charles Peter Hagen sagði að
Efnahagsbandalags-vínin væru
yfirleitt seld í stórmörkuðum á
mjög lágu verði. Þeim vínframleið-
endum, sem byggðu afkomu sína á
útflutningi, myndi aldrei detta í
hug að blanda vín sín með E.G.-
vínum. Slíkt væri algjörlega bann-
að og því lögbrot. En er gæðaeftir-
litið jafnstrangt í Þýskalandi og
t.d. í Frakklandi?
„Já, svo sannarlega," sagði Char-
les Peter Hagen. „Þýska eftirlitið
gefur því franska ekkert eftir. Það
má nefna að Frakkar kaupa sjálfir
mikið magn af E.G.-vínum og einna
mest af ítölskum."
Þess má geta að þýska gæðaeftir-
litið er öðruvísi uppbyggt en það
franska. I Þýskalandi eru gæða-
flokkarnir byggðir á þroskastigi
berjanna við uppskeru. Annars er
miðinn á flöskunum nokkurs konar
upplýsingamiðill um vínið en á
honum er að finna allar helstu
upplýsingar eins og t.d. nafn fram-
leiðanda, árgerð, hvaða berjateg-
undir eru í vininu, gæðaflokkur og
landsvæði, svo eitthvað sé nefnt.
Vínhúsið Sichel er þekktast fyrir
þau vín sem seld eru undir merkinu
„Bláa nunnan".
Frá Sichel eru á boðstólum í
verslunum ÁTVR: Bernkastler
Blue Nun Label og Liebfraumilch
Blue Nun.
Það var fyrirtækið Austurbakki
h/f sem sá um framkvæmd þessarar
ágætu vínkynningar.
Vonandi verður úrvalið af þý-
skum vínum aukið í verslunum
ÁTVR og vill Sælkerasíðan sér-
staklega mæla með gæðavíninu
Kaseler Kehrnagel.
Charles Peter Hagen frá þýska vínhúsinu Sichel.
Vor-
sjóbirtingur
Nú stendur sjóbirtingsveiðin yfir.
Sjóbirtingur er aldeilis frábær mat-
fiskur, að maður tali nú ekki um
hve unaðslegt er að dveljast við
fagra á, njóta vorsins og veiða sjó-
birting. Hér kemur uppskrift sem
er sænsk.
Þessi réttur er sérlega góður
kaldur en hér kemur uppskriftin:
1 kg sjóbirtingur
1 gulur laukur, skorinn í sneiðar
1 rauð paprika, skorin í strimla
'A búnt dill
10 hvít piparkorn
3 msk. vínedik
1 'A msk. salt í 1 1 vatni.
Vatnið er sett í pott og bætt er út
í vínedikinu, saltinu, lauknum,
paprikunni, dilli og piparnum. Vat-
nið er látið sjóða í 10 mín. Þá er
hitinn lækkaður og fiskurinn sett-
ur í pottinn.
Sjóbirtingurinn er soðinn í 15
mín. og að þeim tíma liðnum er
hann borinn á borð ásamt soðnum
kartöflum og bræddu smjöri.
Eins og áður sagði er þessi réttur
sérlega góður kaldur. Sjóbirtingur-
inn er þá látinn kólna í soðinu og
með honum er haft grænmeti, ma-
jones eða olíusósa.
1 olíusósuna þarf:
2 dl olíusósu (majones)
1 msk. grófhakkað soðið spínat
1 msk. hakkaða steinselju
1 msk. fíntsaxaðan graslauk
Þessu er öllu blandað vel saman
og geymt i ísskáp í klukkutima
áður en sósan er borin á borð.
Þennan rétt má bera fram sem
forrétt og er þetta sannkallaður
veisluréttur. Góða veiði.
HÁTÍÐ HARNIONIKUNNAR
verður í Broadway sunnudaginn
11. maí kl. 15.
Sólistar:
Jón Hrólfsson, N-Þing.
Jakob Ingvarsson, Reykjavík.
Einar Guðmundsson, Akureyri.
Gunnar Guðmundsson, Reykjavík.
Garðar Olgeirsson, Suðurlandi.
Hljómsveitir:
Stórhljómsveit Akkord.
Kvartett Guðna S. Guðnasonar.
8 félagar úr FHU.
Djasskvartett Karls Jónatanssonar.
i veitingahléi koma fram dansarar frá Nýja
dansskólanum og píanósóló (trio Sig.
Jónssonar). Húsið verður opnað kl. 14.
Aðgöngumiðasala við innganginn.
Skemmtun fyrir alla fjölskylduna.