Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1986, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1986, Síða 17
DV. LAUGARDAGUR 10. MAl 1986. 17 „Lýst er eftir fyrrum Bandaríkjafor- seta til að sitja í stjóm fyrirtækis sem vill vekja á sér athygli. Starfsskyldur lítilfjörlegar, laun svimandi há, farið með umsóknir sem trúnaðarmál." Hugsanlega em þrír umsækjendur um þetta starf sem búið er til hér að ofan: Richard Nixon, Gerald Ford og Jimmy Carter. Þeir bjuggu og störfuðu í Hvíta húsinu í Washington, USA, frá 1969 til 1981 og em einir lifandi úr hópi fyrrum Bandaríkjaforseta. Ford mun þó vera sá eini þremenn- inganna sem hugsanlega svaraði svona auglýsingu. Og fyrirtæki vildu líka langhelst fá Ford í stjómir sínar því hann er sá eini fyrrum forseta sem nýtur einhverra vinsælda. Forsetamir þrír hafa reyndar allir nóg að gera. Og þeir em ríkir, hafa ekki þörf fyrir svimandi há laim fyrir léttbærar. starfsskyldur. Þeir em víst allir milljónamæringar uppá amer- ísku. Ford, sem orðinn er 72 ára, tók við þegar Nixon hraktist frá völdum í kjölfar Watergatehneykslisins, hefur notað sér frægð sína til að vinna sér inn ýmsan aukaskilding jafnt í við- skiptum sem skemmtanalífi. í fyrra var hann ráðgjafi Amax-fyrirtækisins, Ae- rospace Corp, Peabody Intemational, Shearson Lehman/American Express, Tesoro Petroleum, Tiger Intemation- al, Beneficial Corp. of New Jersey, The Charter Co. og Twentieth Century Fox - auk annarra fyrirtækja. Ekki ólöglegt Harry Truman afþakkaði öll slík laun sem honum buðust - og vom sum uppá sex tölustafi. „Þeir vildu ekki mig heldur fyrrum forseta Bandaríkj- anna,“ skrifaði hann um slíka „ráðn- ingarsamninga". „Ég gæti aldrei lánað þeim persónu mína í svona brask, sama hversu virðingarvert það væri - það væri að braska með heiður og æm forsetaembættisins." Bob Barrett, áður hermálafulltrúi í Hvita húsinu og nú sérstakur talsmað- ur Geralds Fords, ver auðvitað „stjómarstörf' húsbónda síns: „Það er ekkert ólöglegt við þetta og ekkert siðleysi heldur. Ford vinnur hörðum höndum." Samningur Ford við Amax-fyrirtæk- ið eitt mun hafa fært Ford 110 þúsund dollara í aðra hönd árið 1985. Stjóm Amax kemur saman fjórum sinnum á ári þannig að Ford hefur nægan tíma til að sinna hinum fyrirtækjunum sín- um - og annarri vinnu. Hann heldur um það bil 30 ræður á hverju ári og tekur uppundir 15000 dollara fyrir hverja. Fjárfestingar víða Ford hefúr fjárfest víða, meðal ann- ars í ræktarlandi og í fjölmiðlunarfyr- irtækjum. Hann stendur fyrir sinni eigin golfkeppni og sínu eigin skíða- móti í Colorado en þar á hann skíða- skála sem metinn er á 2,5 milljónir dollara. Hann á líka hús í „Rancho Mirage" sem er sérstakur friðsældar- staður fyrir ríkt frægðarfólk nærri Palm Springs í Kalifomíu. Ford er sagður vera á ferðinni 20 daga í hverj- um mánuði út af pólitík. Þá er hann að veita hinum og þessum frambjóð- endum Repúblíkanaflokksins per- sónulegan stuðning - og halda 15000 dollara ræður. Væri Ford ekki svona athafhasamur gæti hann lifað í náðum á eftirlaunun- um sem ríkið borgar honum. Hann fær rösklega 82 þúsund dollara á ári í eftir- laun. Þegar fyrrverandi forsetar falla loks ‘i valinn fá ekkjur þeirra 20 þús- und dollara í ekkjulaun. Lady Bird Johnson þiggur nú slík laun. Fyrrum forsetar fá að auki 250 þúsund dollara á ári í eyðslufé. Það em peningar sem Bandaríkin: Fyrrverandi forsetar eftirsóttir þeir eiga að nota til ýmissa óskil- greindra þarfa - svo sem ferðalaga eða annars sem til fellur vegna stjóm- málastarfa. Ford heldur sjö manna skrifstofú- starfslið og mun sjálfúr greiða mestan hluta launa þeirra þar eð ríkið greiðir „aðeins" 96 dollara í laun til slíks skrifstofuhalds. • Auk eftirlauna og annars sér ríkið fyrrum forsetum fyrir lífvörðum. -Reuter/Robert Keams Ford hefur það fínt... og Nixon kvartar ekki lengur. • Leitar þu hagkvæmrar pökkunarlausnar? t Plastprent hf. Plastumbúðir, pökkunarvélar, ráðgjöf. Höfðabakka 9. Sími 685600. Krumpuvélar. Allt að 50% sparnaður við pökkun. ■ Lofttæmingarvélar. Aukið geymsluþol og verðmæti matvöru. Pokalokunarvélar. Frá 7.000 kr. Fyrir stórar sem smáar rekstrareiningar. Plastprent selur fleira en plast. Við bjóðum einnig úrval stórra og smárra pökkunarvéla sem spara vinnu og auka verðmæti vörunnar. Notagildi vélanna er næsta ótakmarkað. Yfir 50 fyrirtæki keyptu pökkunar- vélar af okkur á síðasta ári, t.d.: Sól hf, Mjólkur- samsalan hf, Vífilfell hf, Nói—Síríus hf, K. Jónsson & Co hf, Kaupfélagið Fram, Síldarvinnslan Nesk , Vest- firska harðfisksalan, Rækjuvinnslan Skagastr., Gunnarsbakarí Reyðarf., Valberg Ólafsf., Staðarskáli Hrútaf., Hraðhreinsun Árbæjar, Broadway, Júmbósamlokur. . . Þú handleikur umbúðirnar okkar daglega. I 26 ár höfum við jafnframt framleitt alls konar plastumbúðir úr eigin filmu, með og án áprentunar. Við svörum síaukinni eftir- spurn eftir hagkvæmum umbúðum sem nýtast allt frá framleiðanda til neytanda. Það er því engin tilviljun að flestallir íslendingar meðhöndla daglega vörur sem pakkað er í umbúðir frá okkur. Plastpökkun er framtíðarlausn. Plast sparar miðað við aðrar umbúðir, verndar vel og uppfyllir auknar kröfur um geymsluþol og aug- lýsingargildi. Forysta Plastprents byggist á tækni- framförum, fjölhæfu starfsliði og mikilli reynslu. Þess vegna leys- um við pökkunarvanda íslenskra fyrirtækja. íngs Brettapökkun í plast — hagkvæm og hlífir vöru í flutn- ingum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.