Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1986, Síða 44
68*78*58
Hafiz þú ábendingu eða vitn-
eskju um firétt - hzingdu þá í
síma 687858.
Fyziz hvezt fzéttaskot, sem
birtíst eða ez notað í DT,
gzeiðast 1.000 kzónur.
Fyzir besta firéttaskotíð í
hvezzi viku gzeiðast 3.000
krónuz.
Fullzaz nafnleyndar er gætt.
Tið tökum við fréttaskotum
allan sólazhzinginn.
Forstjóri Landhelgisgæslunnar
heíiir faríð þess á leit við ríkissak-
sóknara að hann láti fara fram
opinbera rannsókn á málum Land-
helgisgæslunnar. Tilefnið er
blaðagrein sem birt var nýlega þar
sem Jón Sveinsson ber fram ásak-
anir á Landhelgisgæsluna fyrir
stjórnleysi á þeim tíma sem hann
starfaði hjá henni á síðastliðnu ári
og ásakanir Jóns á hendur áhöfn
varðskipeins Týs. Dómsmálaráðu-
neytið telur að með þessu sé tryggt
að fram fari sú rannsókn sem rætt
hefur verið um að sjálfeögð væri í
þessu sambandi.
Þá hcfur ráðuneytið ítrekað það
opinberlega að meðferð og neysla
áfengis sé óheimil um borð í varð-
skipum eins og við önnur lög-
gæslustörf.
„Mér er alveg ókunnugt um
þetta, málið var ekki komið til mín
er ég fór af skrifetofunni" sagði
Þórður Bjömsson ríkissaksóknari
í samtali við DV í gær.
Akureyrí:
Mikil
sprengi'
hætta
Frá Jóni G. Haukssyni, blaðamanni
DV á Akureyri:
Nokkurt tjón varð í eldsvoða í skipa-
smíðastöðinni Vör á Akureyri í gær.
Eldurinn kom upp í jámsmíðaverk-
stæði stöðvarinnar og teygði sig í
verkfæra- og varahlutalager og þaðan
J.Py* upp í þakið. Mestar skemmdir urðu
af hita. Um tíma var hætta á mikilli
sprengingu vegna gaskúta sem geymd-
ir vom á verkstæðinu. Greiðlega gekk
að slökkva eldinn. Stórtjón varð í eldi
hjá skipasmíðastöðinni Vör fyrir um
átta árum.
Geriö verösamanburd
og pantiö
LOKI
Það er líklega hægt að verða
rikur á þessum seiðum!
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1986.
Seiðaeldi margfaldast hjá fiskeldisstöðvunum:
Ætla að selja fyr
ir 300 milljónir
Það sem er fljótlegast og skilar
fyrst arði í uppbyggingu fiskeldisins
hér á landi er seiðaeldi. 36 af 71 eldis-
stöð á skrá em í seiðaeldinu.
Forráðamenn þeirra reikna með yfir
300 milljóna tekjum á þessu ári af
seldum laxa- og silungaseiðum.
Áformin snúast um framleiðslu á
3,5 milljónum laxagönguseiða og
hálfri milljón regnbogasilungsseiða.
Fyrir laxaseiðin fast nú um 85 krón-
ur að jafnaði og um 50 krónur fyrir
regnbogaseiðin. Ef allar tölur ganga
upp ættu að fást 327,5 milljónir fyrir
seiðasöluna.
Seiðaeldisstöðvamar áætla að
koma framleiðslunni upp í 5,3 millj-
ónir laxagönguseiða og milljón
regnbogasilungsseiða, jafhvel á
næsta ári. Verðmæti þeirrar fram-
leiðslu yrði um 500 milljónir króna.
Aðalmarkaður fyrir seiðin um þessar
mundir er í Noregi.
Á síðasta ári seldu íslenskar fisk-
eldisstöðvar fyrir tæpar 40 milljónir
króna. Af því er ljóst að framleiðslu-
verðmæti þeirra margfaldast þegar í
ár, standist öll áform. HERB
Slökkviliðsmenn að störfum i skipasmíðastöðinni Vör í gær.
DV-mynd:JGH.
til jarðar
■ í Mosfellssvert
28 ára maður slasaðist í
Skammadal í Mosfellssveit í gær
þegar svifdreki, sem hann flaug,
missti flugið og féll til jarðar. Lög-
regla og sjúkrabifreið voru kölluð
á vettvang kl. 17.30 og var maður-
inn fluttur meðvitundarlaus á
Slysadeild Borgarspítalans þar
sem gert var að meiðslum hans.
Þrír svifdrekamenn voru við æf-
ingar í gær í Mosfellssveitinni þar
sem er mjög vinsælt svifdreka-
svæði. Tveir mannanna voru
talsvert fyrir ofan þann sem slas-
aðist þannig að þeir sáu ekki hvað
gerðist. Óhappið átti sér stað aust-
an í Helgafelli. -SOS
Eldur á
Veðrið á mofgun:
Sumarblíða
á Suðuriandi
Á morgun verður nánast óbreytt
veður frá því sem verið hefur. Norð-
austanáttin verður áfram ríkjandi
og því svalt fyrir norðan og austan,
en hlýtt á Suðurlandi.
Áfram verður vart við slydduél á
Austurlandi en heiðskírt um allt
Suðurland. Hitinn verður á bilinu
1-6 stig á Norður- og Austurlandi
en búast má við sannkölluðu sól-
baðsveðri með 10-11 stiga hita á
Suður- og Suðvesturlandi.
-S.Konn.
i
i
í
i
i
i
i
i
i
Eldur kom upp í hlöðu og
geymslu á Ásmundarstöðum á
Rangárvöllum á fimmtudaginn. í
hlöðunni var verið að þurrka
hænsnaskít sem notaður er sem
áburður. Hlaðan og geymslan
brunnu til kaldra kola og einnig
um 20 tonn af hænsnaskít. Grunur
leikur á að kviknað hafi í út frá
neista sem skotist hafi út úr þurrk-
ara og í hænsnaskítinn sem var
mjög eldfimur.
„Við sluppum með skrekkinn.
Það munaði ekki miklu að eldur
kæmist í þrjú íbúðarhús sem voru
rétt hjá hlöðunni og geymslunni,“
sagði Garðar Jóhannsson, bóndi á
Ásmundarstöðum.
Slökkvilið frá Hellu og Hvols-
velli komu á staðinn. Það var ekki
hægt að ráða við eldinn en
slökkviliðið vann við að kæla
íbúðarhúsin þrjú þannig að eldur
kæmist ekki í þau. -SOS