Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1986, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1986, Qupperneq 4
4 DV. FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1986. Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Samstarf A-flokkanna eftír kosningar? Nánara samstarf fram að Alþingiskosningum •skiptar skoðanir um kosningabandalag í ljósi þess að A-flokkamir unnu á í kosningunum er ekki óeðlilegt að þessir tveir flokkar hugsi gott til glóðarinnar í næstu kosningum; Al- þingiskosningunum. Skemmst er þess að minnast að ó síðasta aðal- fundi verkalýðsfélagsins Dagsbrún- ar var samþykkt áskorun til þessara tveggja flokka um að íhuga alvar- lega kosningabandalag fyrir Alþing- iskosningamar. „Ég tel fráleitt að þessir tveir flokkar fari í kosningabandalag núna. Hins vegar held ég að það sé nauðsynlegt að þessir flokkar reyni að eiga samleið um einhverja póli- tíska valkosti sem grundvallast á félagshyggjunni," sagði Össur Skarphéðinssson, ritstjóri Þjóðvilj- ans, er hann var spurður um hvort þessir flokkar ættu að stofna kosn- ingabandalag. Starfsbróðir hans, Ámi Gunnarsson ritsjóri Alþýðu- blaðsins, vill ekki tjá sig um þetta mál. „En ég hef ekki farið leynt með þá skoðun að jafriaðarmenn og verkalýðssinnar eigi að hafa miklu nánara samstarf í þeim tilgangi að auka styrk verkalýðshreyfingarinn- ar og jafnaðarstefinunnar sem ég tel reyndar vera tvær greinar á sama meiði,“ segir Ámi. Kjósendur vilja samstarf „Mér finnast úrslit kosninganna benda til þess að kjósendur vilji slíkt samstarf. Þessir tveir flokkar vinna á nánast alls staðar. Það er því mik- ilvægt að menn setjist niður hver í sínum flokki og ræði þessi mál,“ seg- ir Þröstur Ólafsson, framkvæmda- stjóri Dagsbrúnar, sem hefúr verið einn helsti hvatamaður samstarfs A- flokkanna í næstu kosningum. Þröstur bendir reyndar á að þessir Fréttaljós Arnar Páll Hauksson flokkar hafi verið í skotgröfum ó ýmsum sviðum og einnig að hreppa- pólitík gæti hindrað samstarf sem þetta. Sighvatur Björgvinsson, fyrrver- andi þingmaður Alþýðuflokksins og ráðherra, bendir einnig á þetta. „Það eru enn mörg mál óútkljáð milli þessara flokka. Ástæðan fyrir því að þessir flokkar em tveir er einmitt klofhingur í afstöðunni til lýðræðis- legra vinnubragða," segir Sighvatur. Hann segir að annars vegar sé lýð- ræðisjafhaðarstefna og svo kom- múnismi. Og innan -Alþýðubanda- lagsins hafi menn ekki enn gert það upp við sig hvorri stefnunni eigi að fylgja. „Þeir vilja bæði sleppa og halda,“ segir Sighvatur. Pólitískt tómarúm Össur Skarphéðinsson segir að eft- ir þessar kosningar hafi myndast pólitískt tómarúm þar sem frjáls- hyggjan sé ó undanhaldi. Kosning- amar sýni að mikil eftirspum sé eftir einhverju nýju. „Nú er því gmnd- völlur fyrir Á-flokkana að setja fram grundaðan félagshyggjuvalkost. Og það er nauðsynlegt að þessir flokkar ræði málin en það er algerlega út í hött að ræða kosningabandalag á þessari stundu," segir Össur. Sighvatur Björgvinsson tekur í sama streng. „Mér finnst ekki koma til greina að ræða kosningabandalag við þessar aðstæður. Samt er nauð- synlegt að íhuga nánara samstarf. Til dæmis á sviði launamála. Hann nefhir hugmynd um að setja lög um lágmarkslaun eins og gert hefur ver- ið í Frakklandi og Bandaríkjunum. Það sé mikilvægt fyrir þessa flokka að koma sér saman um stefhu sem getur útrýmt því launamisrétti sem ríkir. Skiptar skoðanir Af þessu má ráða að mjög skiptar skoðanir em um hvort A- flokkamir eigi að fara út í kosningabandalag. Hins vegar virðast flestir vera sam- móla um að þessir flokkar eigi að stefha að auknu samstarfi á ýmsum sviðum. APH Er ráðherrastóll á næsta leiti hjá Svavari Gestssyni? Pólitísk bylting í Bolungarvík Bolungamkursamningamir ekki kosningamál Kosningar 14. júní: Kosið í 162 hreppum Bolvíkingar lifa nú breytta tfma í bæjarmálapólitíkinni. Forysta Sjálf- stæðisflokksins er ekki lengur ótvi- ræð, eins og hún hefur verið langa lengi, og allt eins víst að Alþýðu- bandalagið nái forystu í meirihluta bæjarstjómar eftir kosningasigur. Sá flokkur var einn í minnihluta síð- asta kjörtímabil með einn fulltrúa. í meirihluta vom Sjálfstæðisflokkur með fjóra, Framsóknarflokkur með tvo og jafiiaðarmenn og óháðir með tvo. Samtals vom því níu í bæjar- stjóm. Nú var bæjarfulltrúum fækkað í sjö. Sjálfstæðisflokkurinn missti sæti og hefur þijú og Framsóknarflokkur- inn tapaði báðum sínum sætum. Alþýðuflokkurinn bauð nú fram sér og náði einu sæti og Óháðir héldu einu sæti. Alþýðubandalagið bætti við sig sæti og hefur tvö. Að auki var það næstum búið að ná Sjálfstæðisflokkn- um að atkvæðatölu, fékk 217 atkvæði móti 224.1982 fékk Alþýðubandalagið 85 atkvæði en þá fékk Sjálfstæðis- flokkurinn 282 atkvæði. Alþýðubandalagið hefur nú forystu um meirihlutaviðræður með Alþýðu- flokki og Óháðum. Ekkert liggur fyrir um hugsanlega meirihlutamyndun. Samkvæmt heimildum DV er ekki úti- lokað að Óháðir myndi meirihluta með Sjálfstæðisflokknum og jalhvel Al- þýðuflokknum en sjálfetæðismenn hafa ekki haft samband við neinn um viðræður fram að þessu. En hvers vegna urðu þessar bylting- arkenndu breytingar í bolvískri pólib ík? Viðmælendur DV á staðnum voru sammála um að svokallaðir Bolungar- víkursamningar hefðu ekki verið kosningamál í neinum skilningi. Sigur Alþýðubandalagsins er rakinn til þeirrar aðstöðu hans að vera einn í minnihluta síðasta kjörtfmabil. „Al- þýðubandalagið eitt pólitísku flok- kanna þorði að segja að það vildi breytingar hér og það gat gagnrýnt margt í stjóm bæjarins, raunar valið sér umræðuefrii í kosningabarát- tunni,“ sagði Jón Guðbjartsson bæjarfulltrúi Óháðra. í samtali við Benedikt Kristjánsson, sem skipaði efeta sæti á lista Fram- sóknarflokksins, sagði hann efsta mann á lista Alþýðubandalagsins hafa beitt sér persónulega gegn sér og ein- um forystumanna Sjálfetæðisflokks og Alþýðuflokks allt síðasta kjörtímabil. Málefhi hefðu vikið. Rétt væri að ekki hefði verið byrjað á neinum nýjum framkvæmdum á síðasta kjörtímabili. Hins vegar hefði verið lokið við fimm mikilvæg verkefhi. Þá sagði Benedikt um afhroð síns flokks að margir flokksbundnir fram- sóknarmenn og jafhvel sumir meðmælendur listans hefðu svikið flokkinn á kjördag, jafnvel þótt þeir hefðu látist vinna fýrir listann fram á síðustu stimd. DV hefur heimildir fyr- ir því að innbyrðis átök í Framsóknar- flokknum og milli efetu manna á listanum hafi klofið flokkinn og fjöldi framsóknarmanna hafi kosið Alþýðu- bandalagið. Um tap Sjálfetæðisflokksins sögðu þeir Bolvíkingar sem DV talaði við að einna helst væri um að ræða deyfð og stöðnuð sjónarmið sem kjósendur hefðu hafhað. HERB Gengið verður til kosninga í 162 hreppum 14. júní. í kosningunum 31. maí var aðeins kosið í 24 kaup- stöðum og 37 kauptúnahreppum. í þeim hreppum sem kosið verður núna búa fleiri en 3/4 íbúanna í stijálbýli. Almennt er um óhlutbundna kosningu að ræða í þessum hrepj> um. Það þýðir að allir ibúar á kosningaldri erú í kjöri. Þó geta þeir sem hafa verið í hreppsnefhd eitt kjörtímabil eða lengur skorast undan kjöri. Það verður þó að til- kynna kjörstjóm íjórum vikum og sex dögum fyrir kjördag. Eftir því sem næst verður komist Reglugerð um nýjar lánareglur Hús- næðisstofnunar verður væntanlega tilbúin í lok þessa mánaðar og birt í Stjómartíðindum. Þegar hefur nefhd á vegum stofhunarinnar unnið drög að reglugerðinni sem nú em til at- hugunar hjá stjóm Húsnæðisstofnun- ar. Sigurður E. Guðmundsson, forstöðu- maður Húsnæðisstofiiunar, sagði að greinilegt væri að mjög margir hu- verða listakosningar í 19 hreppum. Þessir hreppir em: Kjalames- hreppur (3 listar), Laxárdalshrepp- ur (Búðardalur, 3 listar), Barðastrandarhreppur (3), Mýra- hreppur (2), Ytri-Torfustaðahrepp- ur (2), Ámeshreppur (3), Sveins- staðahreppur (2), Svínavatns- hreppur (2), Skútustaðahreppur (3), Jökulsdalshreppur (4), Norð- fjarðarhreppur (2), Breiðdals- hreppur (2), Nesjahreppur (2), Mýrdalshreppur (3), Rangárvalla- hreppur (Hella, 2), Grímsneshrepp- urhreppur (3), Hrunamannahrepp- ur (2), Biskupstungnahreppur (3) og Vestur-Landeyjahreppur (2). -APH gleiddu nú húsnæðiskaup vegna nýju laganna sem ganga eiga í gildi 1. sept- ember nk. Hann sagðist búast við að þeir sem sæktu um lán núna fengju lán samkvæmt nýja fyrirkomulaginu. „Ég myndi samt persónulega hinkra við og bíða eftir reglugerðinni. Þar á að koma greinilega fram hver réttur hvers og eins er og einnig tekinn allur vafi af óljósum atriðum laganna," sagði Sigurður. -APH Nýju lánareglumar: Reglugerð væntanleg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.